Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 46
^46 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Mat á stj órnunarárangri -
lausnarorð evrdpskra stjórnenda
SJÁLFSMAT og
notkun þess í heildar-
stefnumótun fyrir-
tækja var ofarlega
huga margra stjórn-
enda evrópskra stór-
fyrirtækja sem héldu
erindi á Evrópsku
gæðaráðstefnunni sem
var haldin í París á
>-dögunum.
Á ráðstefnunni, sem
var sótt af á þriðja þús-
und gesta frá öllum
heimshomum og þar á
meðal níu félagsmönn-
um Gæðastjórnunarfé-
lags íslands (GSFÍ),
var fjallað um gæða-
stjórnun í víðasta skilningi, nýjustu
strauma og stefnur í heimi stjórn-
unar og kynntir áhugaverðir hlutir
sem stjórnendur fyrirtækja telja að
skilað hafi verulegum ávinningi. I
þessari gi'ein munum við segja frá
því helsta sem er að gerast hjá evr-
ópskum fyrirtækjum og fjallað var
um á ráðstefnunni.
Tveir aðilar héldu ráðstefnuna í
Gæðastjórnunarfélag
Islands hefur á undan-
förnum árum unnið að
þróun og kynningu á
sjálfsmati sem aðferð
við að ná bættum
rekstrarárangri.
Guðrún Ragnarsddttir
og Haraldur A. Hjalta-
son vekja athygli á
ráðstefnu sem félagið
gengst fyrir 5. nóvem-
ber nk.
sameiningu. Evrópusamtök gæða-
stjórnunarfélaga (European Organ-
isation for Quality, EÓQ) hafa ár-
lega haldið ráðstefnu með svipuðu
sniði, en aðildarfélög að þeim sam-
tökum eru 31 talsins frá jafnmörg-
um löndum. Hinn aðilinn er Evr-
ópska gæðastjórnunaríélagið (e.
European Foundation for Quality
Management, EFQM) en það félag
veitir árlega Evrópsku gæðaverð-
launin og eru félagsmenn þar aðal-
lega evrópsk fyrirtæki. Gæðastjórn-
unarfélag Islands hefur í rúman
áratug verið þátttakandi í EOQ en
gerðist nýverið félagi í EFQM.
Á ráðstefnunni kom fram mikil
áhersla á sjálfsmat og líkan Evr-
ópsku gæðaverðlaunanna hjá
nokkrum helstu íyrirlesurunum.
Líkanið er á ensku nefnt Business
Excellence og verður ekki auðveld-
lega þýtt á íslensku - hér á landi hef-
ur GSFI þróað Innskyggni sem er
hliðstætt því líkani. Æðstu stjórn-
endur fyrirtækja á borð við Renault,
Dassault, IBM og Lloyds komu þeim
skilaboðum skýrt á framfæri að
Excellence h'kan EFQM væri for-
senda fyrir þeim góða árangri sem
þeirra fyrirtæki hefðu náð. Með því
væri sameinað öflugt umbótastarf,
skýr stefna og markmið, skilvirk
vinnuferli, athygli á starfsmannamál
og ánægju viðskiptavina. I sjálfsmati
er síðan metið hvemig stjórnun
þessara þátta hefur skapað þann ár-
angur sem náðst hefur í rekstrinum.
Sumir þeiira kváðu reyndar svo
sterkt að orði að það væri annað
hvort „Business Excellence or
Business Exit“, þ.e. að tileinka sér
líkanið eða heltast úr lestinni.
I sjálfsmatslíkaninu felst mjög
margt og var í ýmsum erindum
komið inn á ýmsa þá þætti sem þar
er tekið á, m.a. stjórnun starfs-
mannamála og sérstaklega hvemig
hægt væri að rækta hæfni starfs-
manna og þar með hæfni fyrirtækj-
anna. Forstjóri Hilti fyrirtækisins
kynnti t.d. niðurstöður ítarlegra
rannsókna í íyrirtækinu sem sýndu
bein tengsl á milli ánægju starfs-
manna og ánægju viðskiptavina og
þar með hagnaðar fyrirtækisins.
Niðurstaðan kom ekkert á óvart, en
skilaboðin voru mjög sterk: til að
viðskiptavinir nái að verða ánægðir
þarf að byrja á því að vinna í starfs-
mannamálum og tryggja að starfs-
menn séu ánægðir.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
Hæst á ráðstefnunni bar afhend-
ing Evrópsku gæðaverðlaunanna. I
ár var það TNT fyrirtækið í Bret-
landi sem fékk aðalverðlaunin en
undanfarin þrjú ár hefur fyrirtækið
komist í verðlaunasæti án þess að
vinna. Verðlaunin í hópi lítilla og
meðalstórra fyrirtækja hlaut Land:
hotel Schindlerhof í Þýskalandi. í
hópi lítilla og meðalstón-a dóttur-
fyrirtækja hlaut Beko Ticaret frá
Tyrklandi verðlaunin.
Gæðastjórnunarfélag íslands hef-
ur á undanförnum árum unnið að
þróun og kynningu á sjálfsmati sem
aðferð við að ná bættum rekstrarár-
angri. Félagið er aðili að Islensku
gæðaverðlaununum sem veitir verð-
laun á grundvelli sjálfsmatslíkans-
ins Innskyggnis, en þau verðlaun
vom veitt í fyrsta skipti á síðasta
ári. Nokkur íslensk fyi'irtæki hafa
tekið sjálfsmat upp og miðað við
skilaboð evrópskra stjórnenda á
ParísaiTáðstefnunni er það afar
hyggilegt val.
Fimmtudaginn 5. nóvember mun
GSFÍ gangast fyrir ráðstefnu sem
ber yfirskriftina „Mat á stjórnunar-
árangri - kjölfesta í betri rekstri" á
Grand Hótel. Fyi'irlesarar verða
bæði innlendir sem erlendir. For-
stjóri Bruhn/Canon AS í Danmörku
og fyi'rverandi forstjóri Milliken í
Evrópu munu segja frá reynslu
sinni af sjálfsmati og þýðingu þess
fyrir fyrirtækin sem bæði hafa unn-
ið til gæðaverðlauna. Auk þess
munu stjórnendur íslenskra fyrir-
tækja fjalla um sjálfsmat og mun
þar m.a. verða skýrt frá hvernig það
nýtist við stefnumörkun og áætl-
anagerð. Þessi notkun sjálfsmats
var einmitt rædd sérstaklega í
París og mun án efa fá meiri athygli
á komandi misserum.
Guðrún Ragnarsdóttir, gæðastjóri
Landsvirkjunar og varaformaður
GSFÍ, Haraldur A. Hjaltason, sviðs-
stjóri hjá VSÓ Ráðgjöf og formaður
GSFÍ.
BUSETI
Búseturéttur til sölu
Umsóknarfrestur til 10. nóvember
2ja herb.
Suðurhvammur 13,Hafnarfirði
67m‘ íbúð, 102 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.441.066
Búsetugjald kr. 27.432
Miðholt 9, Mosfellsbæ
2
70m íbúð,302 Félagslegt lán
3ja herb.
Skólatún 4, Álftanesi
2
93m íbúð, 101
Búseturéttur
Búsetugjald
Félagslegt lán
kr. 1.251.024
kr. 33.279
Breiðavík 7, Reykjavík
Almennt lán
Búseturéttur
Búsetugjald
kr. 1.096.323
kr. 29,087
77m" íbúð, 201
Búseturéttur
Búsetugjald
kr. 866.749
kr. 46.886
3ja herb.
Frostafold 20, Reykjavík
78m" íbúð, 502 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.051.556
Búsetugjald kr. 38.733
Frostafold 20, Reykjavík
78m’ íbúð, 705 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.051.556
Búsetugjald kr. 38.733
Garðhús 4, Reykjavík
92m" íbúð, 101 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.539.593
Búsetugjald kr. 36.412
4ra Iierb.
Garðhús 6, Reykjavík
115m" íbúð, 201 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.941.384
Búsetugjald kr. 43.417
Miðholt 5, Mosfellsbæ
94m’ íbúð,i03 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.470.294
Búsetugjald kr. 40.420
4ra herb.
Berjarimi 1, Reykjavík
2
87m íbúð,202
Búseturéttur
Búsetugjald
Félagslegt lán
kr. 1.501.415
kr. 44.283
Frostafold 20, Reykjavík
2
88m íbúð, 506
Búseturéttur
Búsetugjald
Félagslegt lán
kr. 1.577.426
kr. 41.667
Frostafold 20, Reykjavík
2
88m" íbúð, 60i
Búseturéttur
Búsetugjald
Félagslegt lán
kr. 1.138.795
kr. 42.617
Frostafold 20, Reykjavík
88m" íbúð, 606 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.138.795
Búsetugjald kr. 42.617
Búseturéttur veitir öruggt og gott húsnæði á
viðráðanlegu verði. Oft fyrsta skerfið að kaupum á
almennum markaði.
Nýir félagsmenn velkomnir
Nánari upplýsingar á skrifstofu Búseta hsf. Opið frá kl. 8.30 til 15.30. nema miðvikudaga 8.30 til
kl. 12.00. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember kl. 15.30. íbúðirnar eru til sýnis á umsóknar-
tímanum eftir samkomulagi. Með umsóknum þarf að skila skattframtölum síðustu 3ja ára ásamt
ijölskylduvottorði frá Hagstofu.
Uthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta og staðfesta úthlutun sína.
Búseti hsf. Skeifunni 19
s í m i 5 2 0-5 788
www.buseti.is
Friður byggist
á festu
ÞAÐ ER merkileg
sú árátta mannsins, að
vilja alltaf ráða yfir öll-
um í kringum sig og
eyðileggja það, sem
honum er gefið. Hver
hefur leyft ykkur
þetta?
Er einhvers staðar
skrifað, að þið eigið
það, sem í nánd ykkar
er? Það alræðisvald,
sem þið eignið ykkur,
finnst hvergi.
Stjórnarskrá landa
var gjörð til varnar
mannkyni og þörfum
þess. Enginn einn get-
ur notað hana sér til
framdráttar. Allt fylgi þjóðar
byggist á þeim lögum sem hún
býður.
Allir vilja hafa lög í
landi, segir Gylfi
Sveinsson, og geta
treyst því að þau haldi.
Mannkynið á það vit að gefa sér
reglur, dýrin hafa óskráð lög, sem
þau fylgja kynslóð eftir kynslóð án
umhugsunar. Það er leitt þegar
einstaklingar misnota vald sitt og
brjóta á öðrum í nafni þjóðar sinn-
ar og svífast einskis sér til fram-
dráttar.
Ef hægt er að brjóta lög í nafni
valdsins og komast upp með það
finnast engin lög lengur. Ef æðstu
mönnum þjóðar stendur á sama
um stjórnarskrá sína og forsmá
hana með því að láta misnota hana;
þá eru þeir ekki stjórnendur. I
raun eru þeir meðsekir og hræddir
einstaklingar.
Það er enginn maður
svo blindur að hann
sjái ekki hvað verið er
að gera, og enginn svo
latur, að hann láti það
viðgangast. Allir þurfa
að aga sig, hvar svo
sem þeir eru staddir í
metorðastiganum.
Hver og einn hefur
sjálfan sig að dæma
fyrir mistök sín, ekki
aðra. Ef einhver vill
láta gott af sér leiða, þá
gerir hann það eftir
lögum landsins. Yfir-
gangur einstaklinga
skal ekki viðgangast, ef
vel skal leiða ríkis-
stjórn. Það vill enginn vita sig svik-
ara við land og þjóð, vegna brota
annarra, og vera meðsekur vegna
afskiptaleysis. Látið ekki skrum-
skælda einstaklinga vaða taum-
laust yfii' allt. Gefið til kynna þekk-
ingu ykkar og sannið það, sem rétt
er.
Stjórnarskrá er heilög hverju
landi, og ber að halda skilyrðis-
laust. Ef verndumm hennar mis-
tekst, þá er ekkert efth'. Líf ykkar
byggist á þeim sannleika, sem
skrifaður er og trú manna á þjóð
sinni verður að halda.
Þeir sem landið byggja þurfa að-
stoð jafnt í stóru sem smáu og ef
þeir komast að því að grunnurinn er
að hrynja, þá gefast þeir upp. Frið-
ur byggist á festu, það er akkeri
þjóðanna. Þið komist aldrei frá
þeirri staðreynd að allir vilja hafa
lög og geta treyst því að þau haldi.
Þeir vilja geta gengið að því vísu að
þeir séu öruggir á leið sinni um lífið,
svo lengi sem reglur eru haldnar.
Höfundur er forstöðumaður
reiknistofu.