Morgunblaðið - 03.11.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 47^
P
AÐSENDAR GREINAR
Að breyta gögn-
um í upplýsingar
GÖGN eru ekki sama
og upplýsingar. Gagna-
grunnur er safn gagna
sem geymd hafa verið
þannig að vinna megi úr
þeim upplýsingar. Til
sölu eru margvísleg
kerfi sem sérstaklega er
ætlað að halda utanum
gögnin, tryggja öiyggi
þeirra og auðvelda út-
vinnslu. Þessi kerfí hafa
verið kölluð gagna-
grunnskerfi. Þannig er
stór greinarmunur á
gögnum og upplýsing-
um. Þegai' talað er um
„upplýsingasamfélagið“
er í raun verið að tala
um „gagnasamfélagið".
Gögn eru úti um allt en miklu minna
er af upplýsingum.
Til að skerpa enn á þessum mun
á gögnum og upplýsingum tek ég
eitt nærtækt dæmi. Símanúmera-
birtir sýnir úr hvaða símanúmerum,
einu eða fleirum, hefur verið hringt.
Númerið sem við sjáum í birtinum
er gagn sem ekki verður að upplýs-
ingum fyrr en við flettum upp á eig-
anda númersins eða við þekkjum
eigandann. I þessu dæmi þarf ein-
hverja sérstaka aðgerð til að breyta
þessum gögnum í upplýsingar.
Einnig má líkja gagnagrunni við
raforkuvirkjun. Orka fallvatnanna
er beisluð og komið á það form að
hún nýtist til ýmissa gagnlegra
hluta. Þannig er Islensk erfðagrein-
ing eins og álver sem vill nýta sér
auðlindina eftir að hún hefur verið
beisluð.
Einkaleyfi íslenskr-
ar erfðagreiningar á að
snúast um heimild til
að breyta gögnum í
upplýsingar. Þetta
einkaleyfi getur verið
skilyrt og tímabundið
og varðað ákveðin
gögn. Þannig er hægt
að veita öðrum t.d. ís-
lenskum vísindamönn-
um aðgang að einhverj-
um öðrum hluta gagn-
anna til úrvinnslu.
Uppbyggingu og rekst-
ur gagnagrunnsins á að
bjóða út á eiga að vera í
höndum óháðs aðila,
sömuleiðis dulkóðunin.
A Islandi eru íyrirtæki
með langa reynslu að baki sem sér-
hæfa sig í slíkum rekstri.
Skipulag gagnavinnslu í þróuðum
Auk ÍE ættu fulltrúar
hagsmunaaðila ásamt
fagmönnum úr hópi
almennings, segir
Guðni B. Guðnason,
að sjá um rekstur
gagnagrunnsins.
gagnasafnskerfum byggist á eftir-
farnadi þrískiptingu:
1. Eigéndum gagna
2. Notendum gagna
3. Rekstraraðila gagnagrunns
Guðni B.
Guðnason
1. Eigendur gagna
Eigandi gagna er oftast fulltrúi
þeirra/þess sem verður til þess að
gögnin verða til. í hefðbundnu stóru
deildaskiptu fyi-irtæki er eigandi
gagnanna sú deild sem stýrir þeirri
starfsemi þar sem gögnin urðu til.
2. Notendur gagna
Notendur gagnanna eru þeir sem
hafa fengið heimild eigandans til að
breyta gögnum í upplýsingar. Sú
heimild getur verið skilyrt t.d. um
ákveðinn tíma. í þessu sambandi er
gerður samningur á milli notanda
og eiganda.
3. Rekstraraðili gagnagrunns
Rekstraraðili gagnagrunnsins sér
um daglegan rekstur grunnsins, í
samræmi við fyrirmæli eiganda út-
hlutar rekstraraðili aðgangsréttind-
um og sér til þess að öryggiskröfu
sé fullnægt. Rekstraraðili er því
einungis bundinn af samningi við
eiganda en ekki notanda.
Þegar íslenska ríkið og Alusuisse
gerðu samning varðandi álfram-
leiðslu í Straumsvík var ekki samið
um að Alusuisse byggði upp og ræki
Búrfellsvirkjun. Að sama skapi eiga
uppbyggingin og rekstur gagna-
grunns ekki að vera í höndum ís-
lenskrar erfðagreiningar þótt auð-
vitað ætti IE að eiga fulltrúa í þeim
hópi sem byggir upp gi’unninn.
Þennan hóp eiga að skipa fulltrúar
hagsmunaðila ásamt fagmönnum úr
hópi eiganda (almennings). Að öll-
um líkindum myndi ríkja mun meiri
sátt um þessa tilhögun. Alveg eins
og stóriðjan hefur greitt fyrir virkj-
anaframkvæmdir á íslandi á verðið
sem greitt er fyrir aðgang að þess-
um gögnum að borga upp uppbygg-
ingu grunnsins. Mér er það óskilj-
anlegt að umræðan hafi aldrei kom-
ist í þennan fai-veg.
Höfundur er tölvunarfræðingur og
framkvæmdastjóri Álits ehf.
'víoam
SÝNISHORNIÐ
SÝNISHORNIÐ er OPIN SJÓNVARPSRÁS
sem þú færð sjálfkrafa aðgang að
þegar þú tengist breiðbandinu.
Sýnishornið næst einnig á kapalkerfi
Rafveitu Hafnarfjarðar. í Sýnishorninu eru kynntar þær
stöðvar sem í boði eru á Breiðvarpinu. Hver stöð er send
út opin í heilan mánuð að jafnaði og þannig gefst góður
tími til að kynna sér efni hennar.
SÝNISHORN ‘
í NÓVEMBER
'[unofifflM
í nóvember verður eurosport íþróttarásin kynnt í
Sýnishominu. eurosport sendir út úrvals íþróttaefni
allan sólarhringinn á Breiðvarpinu.
FÓTBOLTI
Eurosport sýnir beint frá Evrópukeppni félagsliða í fótbolta í
nóvember. Einnig er hægt að fá góða yfirsýn yfir síðustu leiki hverju
sinni þegar sýnd eru mörk vikunnar í þættinum Eurogoals.
HNEFALEIKAR
Á hverjum þriðjudegi er bein útsending á boxi í hæsta gæðaflokki.
Auk þess eru sýndar upptökur úr eldri keppnum á öðrum tímum.
SKÍÐI
í seinni hluta nóvember hefjast beinar útsendingar frá skiðamótum
í bestu og glæsilegustu brekkum Evrópu. Meðal keppenda á mótum
í vetur verður skíðakappinn Kristinn Bjömsson.
LYETTNGAR
í nóvember verður sýnt beint frá heimsmeistarakeppninni í
lyftingum sem fram fer í Lahti í Firmlandi. Þá verður einnig sýnt
frá keppninni Sterkasti maður heims í Las Vegas.
ALLAR HINAR ÍÞRÓTTIRNAR
Á Eurosport er hægt að fylgjast með öllum hugsanlegum íþróttum,
s.s. kappakstri, tennis, pilukasti, golfi, snóker, frjálsum íþróttum,
trukkatogi og þannig væri endalaust hægt að telja.
fritt
KOSTNAÐARMAT
20.000 HEIMILIEIGA ÞESS NU KOST
AÐ TENGJAST BREIÐBANDINU OG
MUNU ÞÚSUNDIR HEIMILA BÆTAST
VIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM.
Hringdu strax
OG KYNNTU frÉR MÁLID!
QT*rn 7474
Opið allan sólarhringinn
BREIÐVARPIÐ
SjáNVAKPSÞIÓNUSTA SÍMANS