Morgunblaðið - 11.11.1998, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Niðurstöður mælinga á landslagi undir Langjökli koma vísindamönnum á dvart
Aður
ókunn
Qöll og
gígar
MÆLINGAR sem gerðar voru á
yfirborði Langjökuls og þykkt ís-
breiðunnar sumarið 1997 leiða í ljós
að jökullinn er um 100 m hærri en
fram kemur á nýlegum landakort-
um og að undir jöklinum leynast áð-
ur ókunn fjöll og gígar. Einnig kom
í ljós að þykkt íssins er að meðaltali
200 m en þykkastur er hann 680 m.
Raunvísindastofnun Háskóla Is-
lands, í samvinnu við Landsvirkjun
og Hitaveitu Reykjavíkur, stóð fyrir
kortlagningu Langjökuls og höfðu
Helgi Björnsson, jöklafræðingur og
Finnur Pálsson, verkfræðingur við
Raunvísindastofnun HI, yfirumsjón
með rannsókninni. Gert var kort af
yfirborði jökulsins og botni hans, en
rannsóknirnar voru liður í könnun á
vatnasvæði Pingvallavatns.
Dyngja stærri en Skjaldbreiður
„Niðurstöður mælinganna sýna í
fyrsta lagi að Baldjökull, sem er
norðurhluti Langjökuls, og Bláfells-
jökull, sem er suðurhluti hans, eru
báðir um 100 m hærri en fram kem-
ur á nýlegum landakortum.
Baldjökullinn nær 1.450 m hæð og
hinn um 1.430 m. Ástæðurnar fyrir
þessum mikla mun eru þær að það
er erfitt að gera kort af jöklum með
hefðbundnum aðferðum við korta-
gerð, þ.e.a.s. með flugmyndum. Auk
þess hafa jöklarnir breyst með
breytingum í loftslagi og við fram-
hlaup. Þessar niðurstöður um hæð
Langjökuls eru til dæmis mikilvæg-
ar varðandi blindflug, en væntan-
lega hefur lágmarksflughæð á
svæðinu alltaf verið miðuð við
Eiríksjökul, sem er 1.675 m,“ segir
Helgi Björnsson jöklafræðingur.
Helgi segir að undir syðri hluta
jökulsins sé dyngja stæm en
Skjaldbreiður, og hafi það komið á
óvart. Þvermál hennar er 10 km og
hefur hún myndast þegar enginn
jökull var á svæðinu. „Um 10 km
norðaustan við dyngjuna, er mikill
stapi, myndaður við gos undir jökli,
og er hann ekki minni en Eiríksjök-
ull. Saman mynda dyngjan, stapinn,
Geitlandsjökull og Hafrafell heljar-
mikið hálendi í vestanverðum jökl-
inum. Annað sem kom á óvart er 15-
20 km langur og nær 10 km breiður
fjallshryggur undir Baldjökli, sem
er nyrsti hluti Langjökuls.
Geitlandsjökull, dyngjan, stapinn og
hryggurinn undir Baldjökli mynda
hæsta hluta botnsins, og eru þessi
fjöll á beinni línu í norðaustur frá
Þórisjökli."
400 m djúpur gígur undir ísnum
„Einnig ber að nefna að undir
austanverðum jöklinum eru þrjár
djúpar dældir sem ná niður fyrir
700 m, væntanlega gígar. Tvær
dældimar eru hvor sínum megin við
Skriðufellið og falla skriðjöklar að
Hvítárvatni niður þær. Þriðja og
mesta dældin er norðvestan við
Hrútfell og eru 400 m frá þeim gíg-
botni upp á barma fjallshryggsins
mikla undir Baldjökli," segir Helgi.
Hæð jökulsins var mæld með
GPS-gervitunglamælingum, sem
búa yfir allt að 2 m nákvæmni.
Þykkt ísbreiðunnar var mæld með
íssjá sem notuð hefur verið við slík-
ar mælingar sl. 20 ár. íssjáin sendir
útvarpsbylgjur gegnum jökulinn og
endurkastast þær frá undirlaginu
og berast upp á yfirborð á ný. Tím-
inn sem ferð bylgjunnar tekur er
mældur og dýptin mæld út frá því.
„Við ókum um allan jökulinn með
þetta tæki og skráðum samfellda
þykkt hans. Samanlagt ókum við
1.000 km á Langjökli sem samsvar-
ar að ekinn hafi verið 1 km á hvern
ferkílómetra hans,“ segir Helgi.
Auk könnunar á landslagi undir
jöklinum hefur afkoma hans verið
könnuð sl. tvö ár. Helgi segir að á
síðasta jökulári, sem gert var upp
nú í haust, hafi komið í ljós að jök-
ullinn hafði tapað sem jafngildir 1,7
m af vatni á árinu. „Ai'ið áður var
tapið 1,3 m, þannig að jökullinn hef-
ur rýmað verulega tvö síðastliðin
ár, og sama má segja um aðra jökla
hér á landi. Astæða rýmunarinnar
er ekki raMn til hlýnunar heldur
lítillar vetrarúrkomu þessi tvö ár,
en því valda óvenjulegar brautir
lægða,“ segir Helgi.
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Buenos Aires
Akvörðun um undanþágutillögu
Islendinga frestað til næsta þings
ÁKVEÐIÐ var í gær á fundi vís-
inda- og tækninefndar á fjórða þingi
aðildarríkja rammasamnings Sam-
einuðu þjóðanna um loftslagsbreyt-
ingar að fresta ákvörðun um tillögu
íslendinga um undanþágu stórra
verkefna er valda losun gróður-
húsalofttegunda til næsta þings,
haustið 1999. Samkvæmt frétt í
netútgáfu ástralska dagblaðsins
Sydney Morning Herald hafa
Ástralir lýst stuðningi við tillögu ís-
lendinga af þeirri ástæðu að
áströlsk fyrirtæki ætli að fjárfesta í
fyrirhugaðri magnesíumverksmiðju
sem reist verði hér á landi. Tals-
maður fyrirtækjanna segir þó að
þau hafi ekki beðið yfirvöld um að
styðja tillögu íslendinga.
I blaðinu kemur fram að ýmsir
óttist að tillagan geti orðið fordæmi
sem leiddi til þess að fleiri iðnríki
reyndu að komast undan skuldbind-
ingum sínum. Umhverfisverndar-
samtök sögðu meðal annars að svo
gæti farið að Ástralir myndu leita
eftir undanþágu vegna vinnslu olíu
úr leirsteini í héraðinu Queensland,
en þar er áætlað að séu olíubirgðir
að verðmæti um 35 þúsund millj-
arða íslenskra króna.
Ekki margar nýjar ákvarðanir
Guðmundur Bjamason umhverf-
isráðherra segir að ekM ríki miMl
bjartsýni um að margar nýjar
ákvarðanir verði teknar á loftslags-
ráðstefnunni. Á ýmsum sviðum hafí
mál þokast fram á við og verði
væntanlega til áframhaldandi um-
fjöllunar síðar á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna.
Guðmundur segir að íslenska
sendinefndin á ráðstefnunni hafi
svarað ítarlega öllum spurningum
sem að henni hefði verið beint um
framkvæmd og þýðingu undan-
þágutillögunnar. Guðmundur
sagðist hafa fundið í samtölum við
fulltrúa annarra ríkja að þeir væru
mjög ánægðir með hvernig fulltrúar
íslands hefðu svarað og unnið að
málinu.
Umfjöllun um gróðurbindingu
ekki stöðvuð
Meðal þeirra mála sem hafa verið
til umfjöllunar á ráðstefnunni er
áhrif gróðurbindingar á loftslag.
Halldór Þorgeirsson, deildarstjóri í
umhverfisráðuneytinu, sagði að
ákveðið hefði verið að fela vísinda-
nefnd Sameinuðu þjóðanna (IPCC)
að taka saman skýrslu um bindingai--
málin. Sú skýrsla yrði hins vegar
ektó tilbúin fyri' en í maí árið 2000.
Hann sagði að umræða á ráðstefn-
unni hefði snúist um að tryggja að
umfjöllun á vettvangi samningsins
stoppaði ekki um þetta atriði meðan
verið væri að taka saman þessa
skýrslu. Þetta hefði tetóst. Undir-
nefnd samningsins myndi fjalla um
stefnumarkandi atriði samningsins
sem vísindanefndin gæti ekki tetóð á.
Halldór sagði að Island hefði
beitt sér talsvert í þessari umræðu
og lagt fram tillögu sem átti þátt í
að menn hefðu orðið sammála um
að halda áfram umræðu um gróður-
bindingu. Hann sagði jákvætt að
komið hefði verið í veg fyrir að um-
ræða um þetta mál stöðvaðist í tvö
ár, en ákveðin hætta hefði verið á
því.
Halldór sagði að þau mál sem
fjallað væri um á ráðstefnunni væru
mörg hver mjög umfangsmikil og
erfið. Það væri erfitt að fá þjóðirnar
til að aðgreina eitt mál frá öðru.
Þær væru ektó tilbúnar til að af-
greiða einstök mál nema að það
fengist fram niðurstaða í öðrum
málum. Það væri því á þessari
stundu ekki mikil bjartsýni um
árangur á fundinum. Halldór minnti
hins vegar á að undir lok Kyoto-ráð-
stefnunnar hefði ekki verið mikil
bjai-tsýni um að það yrði nein bókun
afgreidd á fundinum. Það væri því
ekki útilokað að óvæntur árangur
næðist.
I dag hefst ráðherrafundur á ráð-
stefnunni í Buenos Aires, en ráð-
stefnunni lýkur á fóstudag.
Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maður, sem situr fundinn, segir að
íslendingar neyðist til að taka
ákvörðun um hvort þeir undirriti
Kyótóbókunina um losun gróður-
húsalofttegunda án þess að hafa
fengið samþykki fyrir undanþág-
unni, en lokafrestur til undirritunar
samningsins er til 15. márs 1999.
Aksturs-
gjald
hækkar í
annað sinn
á árinu
FERÐAKOSTNAÐARNEFND
hefur auglýst hækkun á aksturs-
gjaldi rítósstarfsmanna sem tók
gildi um síðustu mánaðamót. Er
almennt gjald nú fyrir hvern ek-
inn kílómetra 36,45 kr. en vai'
36,15. Hækkunin er 0,82%.
Síðasta hækkun á akstursgjaldi
var 1. júní þegar það hækkaði úr
35,15 í 36,15 kr. eða 2,8%.
Þá hefur orðið lækkun á
greiðslu dagpeninga ríkisstarfs-
manna á ferðalögum innanlands.
Frá 1. júní síðastliðnum voru
greiddar 9.300 kr. fyrir gistingu
og fæði í sólarhring en frá 1.
nóvember lækkaði þessi upphæð
í 7.500 krónur. Fyrir gistingu í
einn sólarhring eru nú greiddar
3.800 en voru í sumar 5.500, fyrir
fæði í heilan dag eru greiddar nú
3.700 krónur en voru 3.800 og
fyrir fæði hálfan dag 1.850 krón-
ur en voru 1.800 kr.
Hærri dagpeningar á sumrin
Dagpeningar á ferðalögum
innanlands hafa síðustu fjögur
árin verið hærri á sumrin en á
vetrum. Sigríðui' Vilhjálmsdótt-
ir, ritari ferðakostnaðarnefndar,
segir það haí'a verið tekið upp
fyrir nokkrum árum að breyta
dagpeningagreiðslunum í sam-
ræmi við breytingar milli sumar-
og vetrarverðs hótelanna. Væri
verðið kannað reglulega tvisvar
á ári, í maí-júní og á haustin og
breyttist verðið yfirleitt 1. júní
og 1. nóvember.
ÆBi
Kosningafundur
Gimimr Jöjrgbsorj
í kvöld kl. 20:30
Félagsheimili Kópavogs
Það vantar kraft
í kjördæmið!