Morgunblaðið - 11.11.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 49>y
Prófkjör
Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999.
Greinarnar eru birtar i heild á Netinu www.mbl.is
Vill bæta
skattakerfið
Lilju Hallgrímsdóttir f.v. forseti bæj-
arst/ornar í Garðabæ skiifar:
Ég hef þekkt
Markús árum sam-
an og veit að hann
er hámenntaður í
hagfræði, stærð-
fræði og eðlisfræði.
Samt eru það aðrir
eiginleikar sem ég
met mest í fari
hans. Markús er
drengskaparmað-
ur. Hann hefur látið til sín taka inn-
an Sjálfstæðisflokksins og alltaf
verið talsmaður hagsmuna almenn-
ings. Pekktastur er hann fyrir bar-
áttu sína fyrir endurbótum á kvóta-
kerfínu í sjávarútvegi. Markús hef-
ur látið til sín taka innan Sjálfstæð-
isflokksins og alltaf verið talsmaður
hagsmuna almennings. Þekktastur
er hann fyrir baráttu sína fyrir end-
urbótum á kvótakerfinu í sjávarút-
vegi. Ég ætla að styðja hann í 2.
sætið í prófkjörinu og hvet aðra til
að gera það einnig.
►Meira á Netinu
Þingmann
úr Kópavogi?
Hrafn Sæmuadsson, fyrrverandi at-
vinnumáiafulltrúi, skrifar:
Einn af þeim
mönnum sem tekið
hafa þá áhættu að
leggja að veði per-
sónulegar stundar-
vinsældir þegar
þess var þörf og
þoriri að vinna eftir
sannfæringu sinni
og faglegu mati er
Gunnar Birgisson.
Hinn gríðarlegi vöxtur Kópavogs
undanfarin ár hefur orðið undir for-
ustu Gunnars. Sá vöxtur sem nú er
búinn að gera Kópavog að „miðju“
þéttbýlisins þar sem vaxtarbroddur
atvinnu og viðskiptalífs verður á
næstu árum. Sá grunnur sem mun
meðal annars standa undir velmeg-
un og blómlegu lífi í Kópavogi í
framtíðinni.
Ég vil skora á Kópavogsbúa að
sýna þá víðsýni að veita Gunnari
brautargengi í prófkjörinu á laugar-
daginn sem tryggi honum forustu-
hlutverk á Alþingi.
►Meira á Netinu
Lilja
Hallgrímsdóttir
Hrafn
Sæmundsson
Arna Ragnar
i 2. sætið
Pétur Bjömsson, formaður Týs, F.u.s.
íKópavogi, skrifar:
Á þeim árum sem
Ámi Ragnar Árna-
son hefur setið á
Alþingi hefur hann
sýnt það í verki að
hann ber bæði
hagsmuni Reykja-
neskjördæmis og
allrar þjóðarinnar
fyrir brjósti.
Stefnumál Áma
Ragnars bera vott um ferskleika og
skilning á hagsmunum þjóðarinnar
og sanna að hann er góður valkost-
ur. Þess vegna veiti ég honum
stuðning minn í 2. sætið í prófkjör-
inu nk. laugardag og hvet þig, les-
andi góður, til að gera það einnig.
►Meira á Netinu
Stefán
á þing
Ómar Jónsson bæjarfulltrúi
Stefán Þ. Tómas-
son framkvæmda-
stjóri Utvegs-
mannafélags Suð-
umesja hefur verið
varaþingmaður sl.
fjögur ár. Hann
hefur kynnst náið
starsháttum Al-
þingis, býr að góðri
menntun og víð-
tækri starfsreynslu, m.a. á sviði fé-
lags- og sveitarstjórnamála.
Stefán er mjög áhugasamur um
allt sem hann tekur sér fyrir hend-
ur og er mjög fylginn sér. Hann bið-
ur um stuðning í þriðja til fjórða
sæti á listanum og vil ég hvetja fólk
til að veita honum góðan stuðning.
►Meira á Netinu
Pétur
Björnsson
Ómar
Jónsson
Sterk
forusta
Sigurður Björnsson óperusöngvari,
skrifar:
Árni M. Mathiesen
er sá frambjóðandi
í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins á
Reykjanesi sem ég
efast ekki um að er
vel hæfur til for-
ystu. Raunar tel ég
hann einn af fram-
bærilegustu þing-
mönnum flokksins
á landsvísu um þessar mundir.
Meðal þeirra málaílokka sem
Árni hefur beitt sér fyrir er sann-
gjarnara og einfaldara skattkeríi.
Hann er og talsmaður þess að af-
nema skuli tvtsköttun á lífeyris-
sparnað fólks. Það er ekki sann-
gjarnt að þeir sem nú þiggja eftir-
laun þurfi að greiða skatt af lífeyri
sínum, skatt af peningum sem þeg-
ar hefur verið greiddur.
►Meira á Netinu
Slys ef Mark-
úsi yrði hafnað
Gunnlaugur A. Jónson prófessor í
guðfræði skrifar:
Markús Möller er
að mínu mati í hópi
allra greindustu
Islendinga. Hann
er doktor í
hagfræði, mjög
hugmyndaríkur,
auk þess að vera
drengur góður,
strangheiðarlegur
og ósérhlífinn.
Það er mikilvægt að til starfa á
Alþingi veljist hæfileikaríkt fólk, og
þar mættu gjarnan sitja fleiri vel
menntaðir hagfræðingar. Markús
hefur hagsmuni allra stétta að
leiðarljósi og fylgir þar með
sjálfstæðisstefnunni í sinni bestu
mynd. Veitum Markúsi stuðning
sem nægir í 2. sætið.
►Meira á Netinu
Gunnlaugur A.
Jónsson
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
böm kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir ki.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kdrkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Samverustund
eldri borgara kl. 14. Biblíulestur,
bænastund, kaffiveitingar. TTT-
starf (10—12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra bama kl. 10-12.
Fræðsla: Svefn og svefnvenjur.
Jóna Margrét Jónsdóttir hjúknm-
arfræðingur. Starf fyrir 9-10 ára
kl. 16.30. Starf fyrir 11-12 ára kl.
18.
Fella- og Ilólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9
ára bömum í dag kl. 16.45-17.45 í
safnaðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT)
börnum kl. 17.45-18.45.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma
567 0110. Léttur kvöldverður að
bænastund lokinni.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrii'bæn-
ir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13. Allir velkomnir.
Bænar- og íhugunarstund kl. 18.
Laugarneskirkja. Fundur
„Kirkjuprakkara" (6-9 ára böm)
kl. 14.30. Fundur TTT (10-12 ára)
kl. 16. Fundur æskulýðsfélagsins
(13-15 ára) kl. 20. Fundur kl. 20.30
með foreldrum fermingarbarna í
Laugarnes-, Langholts- og Grens-
áskirkju haldinn í Langholtskirkju.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Fræðsla: Lífið eftir fæð-
ingu. Ungar mæður og feður vel-
komin. Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 14-16. Sr. Ágúst Sigurðsson á
Prestbakka sýnir litskyggnur frá
Israel. Umsjón Kristín Bögeskov
djákni. Bænamessa kl. 18.05. Sr.
Frank M. Halldórsson. Poppmessa
kl. 20.30 í umsjón fermingarbama.
Prestai-nir.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk-
arar“ starf fyrir 7-9 ára böm kl.
16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl.
17.15. Æskulýðsfundur kl. 20.
VitaMineraf
18 vítamín og steinefni
Fæst í apótekum
Tilboðsdagar
fram til 27. nóv.
Nýbýiavegi 30,
(Dalbrekkumegin),
sími 554 6300.
www.mira.is
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðai'-
stund í hádegi í kirkjunni kl.
12-12.30. Æskulýðsstarf, eldri
deild kl. 20-22 í minni Hásölum.
Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið
hefst með borðhaldi í Kirkjulundi
kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl.
22. Námskeiðið er ft'æðsla um
kristna trú fyrir hjón og einstak-
linga..
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Mömmumorgnar í safnaðarheimil-
inu.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Fjölskyldusamvera k. 18.30 sem
hefst með léttri máltíð á vægu
verði. Kl. 19.30 er kennsla og þá er
skipt niður í deildir. Allir hjartan-
lega velkomnir.
HVEE MÍNÚTA FRÁ
KL. 8 TIL 19 Á DAGTAXTA
Kvöld- og næturtaxti verður
óbreyttur, 48 kr./mín.
MARAÞON
fjölvítamín
Vrtamín og steinefnf fyrir
íþrótta- og athafnafólk
/IMECALUX
Gott hillukerfi tryggir hámarks nýtingu á
plássi hvort sem er i bilskúr eða vörugeymslu.
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi sem
henta þinum þörfum.
Mjög gott verð!
Lyftitæki og trillur færðu einnig hjá okkur.
Lagcrlausnir eru okkar sérgrein
MECALUX
- gæði fyrir gott verð
V
SUNDABORG 1 • SlMI 568-3300
y
e
Tilboð baðherbergissett!
Kr. 25.000,- stgr.
170 x 70 cm.
Handlaug á vegg.
Stærð 55 x 43 cm
Ath. Öll hreinlætis-
tæki hjá okkur eru
framleidd hjá
sama aðila sem
tryggir sama
iitatón á salerni,
salernissetu,
handlaug og
Salerni með stút í vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja.
VERSLUN FYRIR ALLA I
Vift Fellsmúla
Sími 588 7333