Morgunblaðið - 11.11.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 33
BORÐNAUTAR (hluti), 1988, eftir Katharinu Fritsch. Málað
pólýester, tré og bómull, 140 x 1600 x 175 cm.S
MEIRA AF
VALKYRJUM
COGITO, ergo sum, 1988, eftir Rosemarie Trockel.
Ullarvefur, 220 x 150 cm.
MYNDLIST
Gallerf
BLÖNDUÐ TÆKNI
Rosemarie Trockel, Katharina
Fritsch og Maria Eichhorn.
REBECCA Horn - sem um var
fjallað í greininni „Valkyrja eða nú-
tímanorn" - sker sig frá yngri
starfssystrum sínum í Þýskalandi
sökum þess tilfmningahita sem ein-
kennir skipanir - installasjónir -
hennar. Þessi ástríða sem á sér hlið-
stæðu í expressjónískri listtjáningu
starfsbræðra hennar af stríðsára-
kynslóðinni er mjög ólík þeim út-
reiknaða svala sem einkennir list
Rosemarie Trockel (f. 1952), Kat-
harinu Fritsch (f. 1956) og Mariu
Eichhorn (f. 1962). Ef til vill á þessi
greinilegi kynslóðamunur rætur að
rekja til gjörbreytts efnahags
Þýskalands eftir 1960, en Berlínar-
múrinn var staðfesting þess gífur-
lega uppgangs í Vestur-Þýskalandi
sem austur-þýsk yfirvöld töldu
verstu ógnun við kerfi sitt.
Rosmarie Trockel má þakka þá
íronísku kvennalist sem gefur kon-
um tilefni til að nota fullkomlega
kvenlega tjáningarmiðla til að
skerpa á mismun kynjanna, án þess
að útkoman sé væmin eða tilfinn-
ingaleg. Svo ólík eru verk Trockel
innbyrðis að milli þeirra eru á tíðum
engin bein tengsl. Þá nýtir hún sér
alla miðla, málaralist, veflist, járn
og stál, tilbúna hlut.i, eða ready-
made og myndbandagerð. Undir-
staða allra verka hennar er teikn-
Á VEGUM verkefnisins Tónlist íyrir
alla, samstarfsverkefnis sveitarfélaga
og menntamálaráðuneytisins, hafa
Gunnar Kvaran sellóleikari og Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari k.ynnt
fjölbreytta tónlist grunnskólabörnum
í Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu,
í Vestmannaeyjum og í Mýrdals- og
Skaftárhrepps. Dagski-áin er sniðin
að þeim áheyrendahópi sem sækir
tónleikana hverju sinni.
Almennh’ tónleikar verða í tengsl-
um við tónlistarheimsóknir í skólana
og verða tónleikar í Tónlistai-skóla
ingin, en fyrir Trockel er enginn
dagur án línu.
Eitt af þeim verkum sem feyktu
henni upp á stjörnuhimininn var
Cogito, ergo sum, frá 1988 - ofið ull-
arteppi með hinum fleygu orðum
franska 17. aldar heimspekingsins
René Descartes: „Eg hugsa, þess
vegna er ég.“ Engum þykir undar-
legt að sjá þessa fullyrðingu heim-
spekingsins skrifaða á blað; en ofin í
teppi kemur hún áhorfandanum
spánskt fyrir sjónir. Ekkert er fjær
hefðbundnum kvenlegum hannyrð-
um á borð við vefnað en djúp, heim-
spekileg hugsun um vitundina; eða
hvað?
Sama ár sýndi hún Ónefnt (6 rétt-
ir), óborganlega höggmynd úr ema-
léruðu eldavélajárni með sex eldun-
arhellum. Form höggmyndarinnar
var í fullkomnu samræmi við hvíta
teninginn, hugmynd mínimalismans
eða naumhyggjunnar um fullkomið
listrænt látleysi án allra ónauðsyn-
legra útúrdúra. En eldunarhellurn-
ar sneru þessari hreinstefnu í form-
gerð upp í fullkomna háðsglósu.
Naumhyggjan, þessi spartanska
hugsjón um endalok allrar listrænn-
ar óreiðu, steytti óvart á „ómerki-
legum“ táknheimi „skynlausrar eld-
húsmellunnar".
Katharina Fritsch heggur engu
óvægilegar að kerfisbindingu nú-
tímans og ískyggilegri þróun allrar
stjórnunar til sviplausrar samsemd-
ar. í hinu sláandi verki sínu Tisch-
gesellschaft, eða „Borðnautar",
einnig frá 1988, sitja 32 sviplausar
og einsleitar pólýester-styttur á tré-
bekkjum við tréborð með tölvuofnu
mynstri. Það er varla hending að
Rangæinga á Hvolsvelli miðvikudag-
inn 11. nóvember kl. 20.30. í safnað-
arheimili Landakirkju, Vestmanna-
eyjum, fóstudaginn 13. nóvember kl.
20.40.
Á efnisskrá kvöldtónleikanna eru
sónötur íyiir selló og píanó, nr. 5 í e-
moll eftir Vivaldi og op. 69 í A-dúr
eftir Beethoven, Fantasiestúcke op.
73 eftir Schumann auk vel þekktra
smáverka fyrir selló og píanó. Dag-
skrána hafa þau Gunnar og Selma
flutt áður fyrir nemendur á Suður-
nesjum og í Kópavogi.
stytturnar skuli vera í karlmanns-
líki. Alltént bendir það til þess að
Fritsch telji kassalaga ofurskipu-
lagningu og vélrænan fábreytileik
öðru fremur sök karlaveldisins.
„Rottukóngur" hennar, eða Rat-
King, frá 1993, er óbeint og snöggt-
um óhugnanlegra framhald af sömu
hugmynd. Sextán, tæplega þriggja
metra háar, svartar pólýester-rott-
ur mynduðu hring í miðju stórs sal-
ar í húsnæði Dia Foundation i New
York, þar sem skipanin var fyrst
sýnd. Rotturnar hringa saman hal-
ana og bíða átekta í árásarstöðu svo
sýningargestir stóðu sem höggdofa
í allri sinni smæð. Listakonan gefur
ekkert uppi um inntak verksins, en
lætur áhorfendum eftir að geta í
eyðurnar. Eru þetta meindýr hnatt-
væðingarinnar; rússneska mafían
eða risasamsteypan ósigrandi?
Verk Mariu Eichhorn geta einnig
fengið hjörtu sýningargesta til að
slá örar, eða stöðvast endanlega,
eins og sannaðist á Ljóni í tómu
íými, frá 1990, sem hún sýndi á sýn-
ingunni „Metropolis" í Berlín, 1991.
Undirritaður var lengi að ná sér eft-
ir að mæta óvænt þessu uppstopp-
aða óargadýri. Þannig sanna þýskar
listakonur að þær láta sér ekki allt
fyrir brjósti brenna. Síst af öllu láta
þær um sig spyrjast að þær standi
starfsbræðrum sínum að baki hvað
snerpu, frumleik og áræði varðar.
Einar Áskell
í Hellubíói
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barna-
leikritið Góðan dag Einar Áskell!
eftir Guniilu Bergström í Hellubíói
fimmtudaignn 12. nóvember kl. 17
sem byggt er á bókum um Einar
Áskel. Leikgerð er eftir Pétur Eg-
gerz sem jafnframt er leikstjóri og
er unnið í samráði við höfundinn.
Tónlistin í sýninguni er eftir Georg
Riedel. Leikmynd gerir Bjarni
Ingvarsson og Katrín Þorvaldsdótt-
ir sér um búninga og brúðugerð.
Þýðing söngtexta er eftir Þórarin
Hjartarson, en að öðru leyti er leik-
gerðin byggð á þýðingum Sigrúnar
Ái’nadóttur. Leikarar eru Skúli
Gautason og Pétur Eggerz.
PALLALVFTUR
ÞÓR HF
rsdF Reykjavík - Akureyri
Reykjavík: Ármúla 11 - sfmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
SúrefiiLsvörur
Karin
Herzog
• vinna gegn
öldrunareinkennnm
• enduruppbyggja húðina
• vinna á appelsínukúð
og sliti
• vinna á ungiingabólum
• viðhalda ferskleika
luiðarinnar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Laugarnes Apóteki,
í dag kl. 14-18
Kynningarafsláttur
PÉTUR PÉTURSSON
LJÓSMYNDASTÚDÍÓ
Laugavegi 24 101 Reykjavík
Sími 552 0624
Halldór Björn Runólfsson
Nýr valkostur kjósenda,
veljum Hólmfríði
Skarphéðinsdóttur
í 5. sæti.
Stuðningsmenn
Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi 14. nóv. 1998
Tónlist fyrir alla
Tónleikar á Hvolsvelli
og í V estmamiaeyjum