Morgunblaðið - 11.11.1998, Blaðsíða 72
e -■ flir
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
Drögum næst
24. nóvember
HAPPDRÆTTI
j^-Jíf HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fjármálaráðuneytið um framkvæmd
fjármagnstekjuskatts
Hagnaður af sölu
hlutabréfa jókst
um 2,4 milljarða
SKATTSKYLDUR hagnaður ein-
staklinga af sölu hlutabréfa jókst
ura 352% á milli áranna 1996 og
1997, úr 962 milljónum í 3.383 eða
um rúmlega 2,4 milljarða kr. Þá
hefur framtalinn arður einstak-
linga af hlutabréfum og stofnsjóðs-
eign á skattframtölum aukist úr
1.399 millj. kr. árið 1996 í 4.224
millj. kr. í fyrra eða um rúma 2,8
milljarða kr. Fjármálaráðuneytið
áætlar að fjármagnstekjuskattur af
söluhagnaði af hlutabréfum við
álagningu á árinu nemi 318 millj.
kr. og að skatttekjur af arði og
stofnsjóðseign nemi 397 millj. kr.
Samtals er talið að fjár-
magnstekjuskattur skili ríkissjóði
1.315 millj. kr. í ár vegna tekna á
síðasta ári. Þessar upplýsingar
koma fram í svari ráðuneytisins við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur
—■ -alþingismanns um framkvæmd
fjármagnstekjuskatts.
Jóhanna og Sighvatur Björg-
vinsson, formaður Alþýðuflokksins,
boðuðu til fréttamannafundar í
gær og héldu því fram að ríkissjóð-
ur og sveitarfélög hefðu tapað sam-
tals 1.500 milljónum króna vegna
lægra skatthlutfalls á arði og sölu-
hagnaði með upptöku fjár-
magnstekjuskatts. Alls hafi 2.600
sjálfstæðir atvinnurekendur frá ár-
inu 1996 breytt rekstri sínum yfíi' í
einkahlutafélög og þannig getað
tekið út laun sín í arði og greitt af
honum 10% fjármagnstekjuskatt í
stað 40% af reiknuðu endurgjaldi
skv. þeim reglum sem giltu fyrir
upptöku fjármagnstekjuskattsins.
Sighvatur og Jóhanna bentu á að
í svari ráðuneytisins kæmi fram að
ríki og sveitarfélög hefðu 578 millj.
kr. minna í tekjur vegna
arðgreiðslna af sölu hlutabréfa eft-
ir upptöku fjármagnstekjuskatts-
ins en verið hefði samkvæmt eldri
reglum, þar sem nú er aðeins
greiddur 10% skattur af arði í stað
40% áður.
■ Telja hið opinbera/10
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
BLONDALSHUS á Siglufirði varð alelda á skammri stundu og um tíma voru nálæg hús í hættu.
Hús eyðilagðist í eldi
irrliifírili m'rmnhl n ðið
Siglufirði. Morgunblaðið.
UM klukkan 18 í gær kviknaði í
svokölluðu Blöndalshúsi á Siglufirði
og er það gjörónýtt eftir eldinn. Húsið
sem stóð í miðbæ Siglufjarðar hefur
undanfai-in ár staðið autt en á árum
áður var þar rekin saumastofa í kjall-
ara en íbúðir voru á tveimur efri hæð-
um.
Allt tiltækt slökkvilið staðarins var
kallað út og þrátt fyrir að eldurinn
magnaðist fljótt tókst slökkviliðinu að
mestu að ráða niðurlögum eldsins á
tveimur klukkustundum.
Um tíma voru nálæg hús í hættu og
sprungu ytri rúður í íbúðarhúsi á
móti, Lækjargötu 6, og talsverður
reykur fór þangað inn. Sunnan hvass-
viðri var á Siglufirði í gærkvöldi og
skapaðist því einnig hætta af þakplöt-
um og öðru lauslegu, sem fauk af hús-
inu. Því hófust slökkviliðsmenn ásamt
starfsmönnum bæjarins þegar handa
við að rífa það sem eftir stóð af húsinu
þegar hefðbundnum slökkvistörfum
lauk, enda húsið gjörónýtt og hættu-
ástand ríkjandi vegna foks.
Eldsupptök eru enn ókunn. Að
sögn Helga Magnússonar
varaslökkviliðsstjóra, sem stjómaði
aðgerðum gekk slökkvistarfið í heild
vel og voru menn ánægðir með að tek-
ist hafði að bjarga húsum í kring en
um tíma stóð það mjög tæpt.
Hlaut aivarlega höfuðáverka í árás í Bremerhaven
BIRGIR Magnús Sveinsson ásamt unnustu sinni, Eyju Bryngeirsdóttur, og syni þeirra,
Bryngeiri Birgissyni, á heimili þeirra í Eyjum í gær.
Heppinn að lenda hjá
færustu sérfræðingum
BIRGIR Magnús Sveinsson, há-
—íseti af togaranuin Breka VE, sem
varð fyrir hrottafenginni árás í
Bremerhaven í Þýskalandi í lok
ágúst er kominn heim til Vest-
mannaeyja. Hann hlaut alvarlega
höfuðáverka í árásinni og er með
35 sentimetra langan skurð á
höfði, frá enni aftur á hvirfil og
niður fyrir hægra eyra, eftir að-
~ ~gerðir sem hann gekkst undir.
Birgir segist hafa verið hepp-
inn að hafa lent í höndunum á
færustu sérfræðingum á þessu
sviði og það hafi örugglega
bjargað lífi sínu. Jafnframt segir
hann að skjót viðbrögð strax eft-
ir árásina hafi skipt sköpum.
Birgir var þegar fluttur á
gjörgæslu á sjúkrahúsi í Bremer-
haven og gekkst strax undir
mikla höfuðaðgerð. Hann á enn
talsvert í land með að ná fullri
heilsu en hann útskrifaðist af
sjúkrahúsi í Bremerhaven sl.
fimmtudag.
Talið er að árásarmaðurinn
hafi barið Birgi í höfuðið með
sverum rafmagnsstreng en árás-
arvopnið hefur ekki fundist.
Skjót viðbrögð/10
Dómstóll Evrópusambandsins í Lúxemborg
Fulltrúi Islands
leggur orð í belg
MARTIN Eyjólfsson, lögfræðingur í
sendiráði íslands 1 Brussel, kemur
fyrir dómstól Evrópusambandsins í
Lúxemborg í dag og reifar sjónar-
mið Islands í máli sem þar er til
forúrskurðar. Er þetta í fyrsta skipti
sem íslenska ríkið lætur til sín taka
mál sem er fyrir dómstólnum og eins
og vænta má í fyrsta skipti sem ís-
lenskur lögfræðingur flytur þar mál.
Málið sem hér um ræðir er sænskt
að uppruna og er rekið fyrir héraðs-
dómi Stokkhólms. Snýst það um rétt
málshöfðenda til launa vegna
gjaldþrots fyrirtækis í eigu tengdra
aðila. Atvik í málinu gerðust áður en
Svíar gengu í Evrópusambandið en
eftir að samningurinn um evrópska
efnahagssvæðið tók gildi. Telja máls-
höfðendur sig eiga rétt til vangold-
inna launa úr hendi ríkisins á grund-
velli tilskipunar 80/987/EBE um rétt
launþega við gjaldþrot en sú tilskip-
un var tekin upp í EES-samninginn
á sínum tíma. Sænsk lög voru hins
vegar ekki samræmd tilskipuninni
fyllilega fyrr en í ársbyrjun 1997.
Oskaði héraðsdómurinn eftir forúr-
skurði ESB-dómstólsins um það
meðal annars hvort túlka bæri 6. gr.
EES-samningsins svo, að fordæmi
þess sama dómstóls frá árinu 1990
um skaðabótaskyldu aðildarríkja,
sem ekki lögleiddu réttilega tilskip-
anir ESB (Francovich-málið), gilti á
öllu evrópska efnahagssvæðinu.
Þau ríki sem hafa látið málið til sín
taka auk Svíþjóðar og framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins eru
Frakkland, Noregur og Island. Er
það meginafstaða Svía, Norðmanna
og Islendinga að ESB-dómstóllinn
sé ekki bær til að fjalla um málið og
því beri að vísa því frá.
Tilviljunin hagar því svo, að mjög
svipað mál er nú rekið fyrir EFTA-
dómstólnum í Lúxemborg. Þar
leitaði Héraðsdómur Reykjavíkur
ráðgefandi álits í máli gegn íslenska
ríkinu á því hvort ákvæði í íslenskum
gjaldþrotalögum væri í samræmi við
fyrrgreinda tilskipun og ef svo teld-
ist ekki vera hvort það varðaði þá ís-
lenska ríkið skaðabótaábyrgð, að
hafa ekki lögleitt tilskipunina rétti-
lega.
Vonir um lausn í
deilu meinatækna
SAMNINGALOTA í meinatækna-
deilunni stóð fram á tólfta tímann í
gærkvöldi. Að sögn Guðmundar G.
Þórarinssonar, stjórnarformanns
Ríkisspítala, eru líkur á því að
nokkur fjöldi meinatækna undirriti
ráðningarsamning eftir hádegi í
dag.
Guðmundur sagði að samninga-
lotan í gær hefði gengið út á að
skýra ýmis atriði tilboðsins til
meinatækna sem fyi'ir hafi legið.
„Uppsagnir meinatækna eru ein-
staklingsbundnar og það er okkar
mat að þessu hafi lokið þannig að þó
nokkrar muni undirrita ráðningar-
samning, væntanlega eftir hádeg-
ið,“ sagði Guðmundur.