Morgunblaðið - 11.11.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.11.1998, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rafaldthf Morgunblaðið/Ágúst SKEMMDIR urðu á Neskaupstað vegna vatnsveðursins um helgina. Vegir skemmdust í snjó- og aurflóðum MIKLAR skemmdir urðu í Fagra- dal á Norðfjarðarvegi á um þriggja kflómetra kafla milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar að- faranótt sl. sunnudags af völdum snjó- og aurflóða. Flóðin komu niður á mörgum stöðum, að sögn Guðjóns Þórarinssonar rekstrar- stjóra Vegagerðarinnar á Austur- landi, og ollu miklum spjöllum. Flóðin fóru yfir veginn en hann tók hvergi í sundur. Vegur- inn varð ófær en var opnaður á hádegi á sunnudag. Guðjón segir að skemmdir séu víða, fyllingar og kantar hafi flotið í burtu. Nokkurra daga vinna sé framundan við að keyra nokkra þúsund rúmmetra af jarðefni í veginn. „Ég hef verið við vegagerð í 20 ár og ég man ekki eftir viðlíka skemmdum á vegum hér,“ sagði Guðjón. Hann sagði að tjónið hlypi á nokkrum milljónum króna. Einnig urðu lítilsháttar skemmdir á veginum í Oddsdal þar sem snjóflóð féllu og vegur- inn fór í sundur í Breiðdal. Einnig urðu vegaskemmdir í Mjóadal og innansveitar f Borgarfirði. Mikið vatnsveður var á Nes- kaupstað og ui'ðu þar töluverðar skemmdir. Auk mikillar rigning- ar hlýnaði þar mikið og sá snjór sem kominn var bráðnaði ört og jók enn á vatnsflauminn. Vatn flæddi inn í fbúðarhús og fyrir- tæki, ræsi stífluðust víða svo að vatnsflaumur fór yfir húsalóðir og götur. Þá fór aðalæð Vatnsveit- unnar í sundur og var bærinn vatnslaus í um tíu tíma. Ekki varð neinsstaðar stjórtjón. Geir H. Haarde á fundi fjármála- ráðherra Norðurlanda Staða lífeyris- sjóðsmála verði athuguð FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Norð- urlanda komu saman til fundar í Ósló í fyrradag í tengslum við 50. þing Norðurlandaráðs og á fundin- um greindi Geir H. Haarde fjár- málaráðherra frá helstu áherslum af íslands hálfu á næsta ári, en þá fer ísland með formennsku í nor- rænu ráðherranefndinni. Auk hefðbundinna viðfangsefna kynnti Geir hugmyndir um sérstaka norræna athugun á efnahags- og umhverfislegu gildi náttúruauð- linda, meðal annars í tengslum við nýtingu orkulinda til uppbyggingar atvinnulífs. Ennfremur lagði hann til að fjár- málaráðherrar Norðurlanda beittu sér fyrir sérstaki-i athugun á stöðu lífeyrissjóðsmála á Norðurlöndun- um og framtíðarhorfum meðal ann- ars í ljósi þeirra aðgerða sem stjórnvöld einstakra landa, þar á meðal íslands, hefðu þegar gripið til eða væru í undirbúningi. Þetta væri sérstaklega mikilvægt með til- liti til þeirra áhrifa sem breytt ald- urssamsetning á næstu áratugum kynni að hafa á stöðu rikisfjármála og efnahagsmála almennt. I frétt frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að báðar þessar tillögur hafi fengið góðan hljómgi'unn á fundin- um. Áhrif myntbandalagsins rædd Á fundi fjármálaráðherranna var rætt um stöðu og horfur í efnahags- málum á Norðurlöndum, málefni Eystrasaltsríkjanna, málefni Nor- ræna fjárfestingarbankans og hugs- anlega aukið samstarf norrænna kauphalla og verðbréfaþinga, en til athugunar er að slíkt samstarf nái einnig til Eystrasaltsríkjanna þriggja. Þá var á fundinum fjallað um málefni Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins, og þá einkum fyrirhugaða gildistöku Efnahags- og myntbandalagsins og áhrif þess á Norðurlönd. í þessu sambandi benti Geir H. Haarde á mikilvægi þess að mark- mið myntbandalagsins næðu fram að ganga, jafnt fyrir lönd innan sem utan bandalagsins, en sviptingar á alþjóðamörkuðum að undanfómu og óvissa um framvinduna á næstu misserum gerði þetta enn brýnna. Greindi Geir frá því að íslensk stjómvöld fylgdust grannt með framvindu þessara mála. Að svo stöddu væri hins vegar ekki ástæða til að aðhafast sérstaklega í málinu, meðal annars í ljósi þess að ýmis mikilvæg viðskiptalönd íslands inn- an Evrópusambandsins munu standa utan myntbandalagsins íyrst í stað. ------+++------ Viðræður við Norsk Hydro halda áfram ÁKVEÐIÐ var á fundi svokallaðrar samræmingarnefndar Norsk Hydro og íslenskra stjórnvalda sem hald- inn var í Noregi um helgina að halda áfram viðræðum um bygg- ingu álvers á Reyðarfirði. Að sögn Finns Ingólfssonar iðn- aðarráðherra var á fundinum jafn- framt ákveðið að nota næstu mán- uði til þess að fara yfir „ýmsa um- hverfisþætti sem snúa að byggingu álversins á Reyðarfirði og miðað við það að hafa einhverjar slíkar niðurstöður tilbúnar um mitt næsta ár,“ svo vitnað sé beint í orð ráðherra. SUJ segir sig úr Grósku FUNDUR í sambandsstjóm Sam- bands ungra jafnaðarmanna sam- þykkti á laugardaginn úrsögn úr Grósku. í tilkynningu frá SUJ seg- ir að mikið hafi verið deilt um til- lögu um að slíta aðild SUJ að Grósku en það hafi verið samþykkt með 8 atkvæðum gegn 4 og fjórir sátu hjá. í tillögunni, sem samþykkt var, segir að við stofnun hafi SUJ verið einu samtökin sem áttu stofnaðild að Grósku. ,Á- þeim tíma sem er liðinn frá stofnun Grósku hefur hún aukið sjálfstæði sitt og því telj- um við óeðlilegt að tengsl SUJ og Grósku haldist óbreytt." tírsögn úr Æskylýðs- sambandi Islands Af öðrum málum sambands- stjómarfundarins má nefna að samþykkt var úrsögn úr Æskulýðs- sambandi íslands, sem SUJ telur að séu úrelt samtök með ómark- visst hlutverk. Þá harmaði fundur- inn ófrávíkjanlegar kröfur lands- fundar Kvennalista um framboðs- mál sameiginlegs framboðs jafnað- armanna. Sambandsstjórn SUJ tel- ur að val á framboðslistum verði að taka mið af styrk flokkanna í hverju kjördæmi fyrir sig. „Sá styrkur verður aðeins mældur með opnu prófkjöri," segir í ályktun. Eitt af níu samfélagslegum verkefnum Shell vfða um heim Cas! ypur ovws atesuntl teetetsik soew#^ and ycjtfí nottc;© a<tsftvááisf>t) smtoftg. A distínet fatek ■n {ofcyícy. Ara th<# it'-os.t c4*e*;i w wíiv oí- ootuö WÍ98 to &iovifiegí} iww* hawe. Wt xvanttxj th«ccí Ki m toe Hw it« paaaWft k» ypm ttööS n HitQv ttui'.iLHíry. Mpat inHX>rtör.%. -«ve haa to inafcs* thom soí •t- "itíi macíotts Hkb ’hÆ ff’öt ttavít •i'iicH.t ths om ot trw roost «iwaiVif tg cwtacts 1 rtavs í»«í im'Oív«tí áv' says KBSiinrs. ‘it sttows w« m ds»xí son’-ethntíj posiiM tor tbe coexnvttiíy. Sáyiinc gootí tot tl't’ Bnvtrcíutiení m' ctccbt t! tat piítnítttg trees i tot a gtan! Kutm are tttutla avaiiobte fit cur S«VIC6 swttoos - atd cotttply vtittt stoct ruKsa Fot iratetKe. they twvtt to oe oottttnilted totíatititig an aœa tto stttalliif tivttt tliteo hactaros, aiso ha» tc FJALLAÐ er um skógræktarátakið Skógrækt með Skeljungi í nýjum bæklingi sem Royal Dutch/Shell Group of Companies gefur út. í NÝIÍTKOMNUM bæklingi sem Royal Dutch/Shell Group of Companies hefur sent frá sér er fjallað um Skógrækt með Skelj- ungi, en það er átak sem Skeljung- ur hefur unnið að með Skógrækt ríkisins síðustu fimm ár og hefur félagið veitt hátt í 60 milljónir króna til skógræktarverkefna. Shell starfar í 120 löndum og eru í bæklingnum rakin níu dæmi um þátttöku fyrirtækisins f samfélags- legum verkefnum víðsvegar um heim. I kaflanum um Island kemur fram að frá landnámi hafi gengið á skóga landsins og að nú sé svo komið að náttúran geti ekki séð um endurnýjun þeirra. Skeljungur átak Skeljungs vekur athygli hafi því ákveðið að taka upp sam- starf við Skógrækt ríkisins og er haft eftir Kristni Björnssyni for- sijóra Skeljungs, að í fyrstu hafi verið ákveðið að auka áhuga al- mennings á skógrækt með því að auðvelda aðgang að þeim litlu skógum sem fyrir eru. Lagðir hafa verið göngustígar og komið upp bekkjum og borðum. Næsta skref hafi verið að mæta auknum áhuga almennings á skóg- rækt með því að hvetja til gróður- setningar og hefur fyrirtækið styrkt einstaklinga með plöntugjöf- um. Að sögn Kristinns hafa viðtök- ur farið fram úr björtustu vonum og hafa árlega milli 150 til 200 verkefni hlotið stuðning og um milljón græðlingum verið dreift. Sækja verður um styrk fyrir plönt- um og gilda strangar reglur um út- hlutun. Er þess krafist að land til gróðursetningar sé ekki minna en þrír hektarar og fylgja verður ráð- leggingum starfsmanna Skógrækt- ar rfldsins um plöntuval. Fram kemur að verkefnið hafi hlotið góð- ar viðtökur og að þegar megi merkja aukinn skógræktaráhuga meðal almennings.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.