Morgunblaðið - 11.11.1998, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsemi Sjúkrahúss Þing-
eyinga kynnt á Þórshöfn
Þórshöfn - Félagar frá styrktarfé-
lagi Sjúkrahúss Þingeyinga á Húsa-
vík komu til Þórshafnar fyrir
skömmu til að kynna félagið og um
leið þá þjónustu sem sjúkrahúsið
hefur að bjóða. Erindi þeirra var
fróðlegt og augljóst að Sjúkrahús
Þingeyinga á þarna traustan bak-
hjarl.
í máli Svölu Hermannsdóttur, for-
manns félagsins, kom fram að í fé-
laginu eru um 300 félagar; félaga-
samtök og fyrirtæki og er tilgangur
félagsins eingöngu að vera stuðn-
ings- og styrktaraðili Sjúkrahúss
Þingeyinga. Fjáröflun félagsins er í
formi félagsgjalda og sölu minning-
arkorta, að ógleymdum gjöfum, stór-
um og smáum, frá einstaklingum og
félagasamtökum.
Félagið hefur reynst sjúkrahúsinu
ómetanleg stoð og afhent gjafír eins
og sjúkralyftu, monitortæki, tölvur
auk margs annars en síðasta verk-
efni félagsins var að útvega mjög
fullkomin tæki á sviði meltingar- og
ristilrannsókna. Þetta var mjög dýrt
verkefni, að sögn formanns, eða um
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
FRIÐFINNUR Hermannsson, framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Þingey-
inga, Svala Hermannsdóttir, formaður styrktarfélagsins, og Ásgeir
Böðvarsson, læknir, lengst til hægri.
7 milljónir króna, en Húsavíkurbær
veitti stóran styrk til þeirra kaupa.
Á Húsavík er því í dag fullkomn-
asta rannsóknarstofa meltingar- og
ristilsjúkdóma á landinu og til starfa
er kominn mjög fær sérfræðingur á
þessu sviði, Ásgeir Böðvarsson,
læknir, sérfræðingur í lyflækning-
um og meltingarsjúkdómum.
Það sem ekki síst vakti athygli
áheyrenda á Þórshöfn var þegar for-
maður félagsins upplýsti að einnig
hefði verið veitt fjárhagsaðstoð til að
útbúa aðstöðu fyrir aðstandendur
sjúklinga eða þá sem koma til rann-
sóknar án þess að þurfa að leggjast
inn á sjúkrahúsið. Verið er að inn-
rétta herbergi í gamla sjúkrahúsinu,
sem sambyggt er orðið því nýja og er
eflaust kærkomið fyrir þá sem lengra
eru að komnir til að nýta þjónustu
sjúkrahússins. Þar verður aðstaða til
eldunar en einnig verðm- hægt að
kaupa fæði í mötuneyti sjúkrahússins
fyrir þá sem það kjósa.
Að sögn Friðfinns Hermannsson-
ar, framkvæmdastjóra Sjúkrahúss
Þingeyinga, hefur styrktarfélagið
verulega stutt við stofnunina og
hjálpað til við að snúa vörn í sókn.
Það er staðreynd að öryggi og vellíð-
an íbúa hér á norðausturhorninu
byggist ekki síst á góðri heilbrigðis-
þjónustu, ásamt mennta- og menn-
ingarmálum, sagði Svala Hermanns-
dóttir, formaður félagsins, í lok er-
indis síns og var góður rómur gerður
að máli hennar hér á Þórshöfn.
Endur-
bætur á
Skeiðar-
árbrú
Hnappavöllum - Að undan-
förnu hefur brúarvinnu-
flokkur Vegagerðarinnar
undir stjórn Jóns Val-
mundarsonar, Vík, unnið
að endurbótum á gólfí á
öllum eldri hluta Skeiðar-
árbrúar sem er rúmir 700
metrar. Skipt er um allt
slitgólfíð og annað timbur
eftir þörfum. Að lokum
eru settar járnmottur sem
festar eru með um 115
þúsund skrúfum.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Morgunblaðið/Silli
SNORRI Pétursson var
frummælandi á fundi Ný-
sköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Nýsköpun-
arsjóður at-
vinnulífsins
kynntur
Húsavík - Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins boðaði til hádeg-
isverðarfundar á Húsavík um
síðustu helgi að Hótel Húsavík
og var fundurinn vel sóttur af
forsvarsmönnum fyi-irtækja í
héraði.
Á fundinum kynnti Snorri
Pétursson, einn af sérfræðing-
um sjóðsins tilgang hans og
stai’fsemi í ítarlegu erindi,
greindi frá forverum Nýsköp-
unarsjóðs og hlutverki hans
nú. Ymsar spurningar voru
lagðar fyrir frummælanda
sem hann svaraði og út af
þeim spunnust nokkrar um-
ræður.
Það er nýbreytni að það
sem verið er að vinna sunnan
heiða sé kynnt fyrir norðan en
slíkt er vel þegið.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
FRÁ aðalfundi Þróunarstofu Austurlands sem haldinn
var á Hótel Héraði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
SIGURJÓN Pétursson flytur erindi og aðrir á myndinni eru Guðjón Petersen,
Ólafur Hilmar Sverrisson og Snorri Þorsteinsson.
Egilsstaðir - Þróun-
arstofa Atvinnuþró-
unarfélags Austur-
lands hélt aðalfund
sinn á Hótel Héraði.
Stofan flutti starf-
semi sína á sl. ári
frá Seyðisfirði til
Egilsstaða í húsakynni Byggðastofnunar á
Egilsstöðum sem stórbætti vinnuumhverfi
starfsmanna.
Tímamót í uppbyggingu byggðaþróunar-
starfs urðu á sl. ári er Byggðaþróunarsvið
Byggðastofnunar var flutt á Sauðárkrók og
Byggðabrúin svonefnda var opnuð. Rætt var
um byggðabrúna en hún er samstarf Byggða-
stofnunar og Atvinnuþróunarfélaga í landinu.
Byggðabrúin opnar nýjar leiðir til marghátt-
aðra samskipta í gegnum gagnvirkan fjar-
fundabúnað. Sá búnaður hefur m.a. myndað
samskiptabrú til Vopnafjarðar og milli
Hornafjarðar og Egilsstaða en á Hornafirði
er nú komin góð
vinnuaðstaða fyrir
starfsmenn stofunn-
ar þegar þeir dvelja
þar. Þróunarstofa
Austurlands er því
orðin hluti af þróun-
arsamfélagi sem að
standa öll atvinnuþróunarfélög á landsbyggð-
inni, Byggðastofnun, háskólar og ýmsar rann-
sókna- og tæknistofnanir. Ennfremur hafa
Atvinnuþróunarfélagið og SSA gert samning
við Byggðastofnun þar sem félaginu eru falin
víðtækari verkefni en áður en félagið mun
annast byggðaþróunarverkefni á starfssvæði
sínu.
Auk samstarfs við Byggðastofnun er lögð
áhersla á samstarf og tengsl við sveitarfélög,
opinberar stofnanir og aðila sem áhrif geta
haft á þróun byggðar. Framkvæmdastjóri
Þróunarstofu Austurlands er Gunnar Vignis-
son.
Stykkishólmi - Fyr-
ir tveimur árum
þegar sveitarfélögin
tóku yfir rekstur
grunnskólanna varð
breyting á starf-
semi Fræðsluskrif-
stofu Vesturlands.
Akraneskaupstaður dró sig út úr samstarfinu
og stofnað var Byggðasamlag um Skólaskrif-
stofu Vesturlands þar sem öll önnur sveitarfé-
lög á Vesturlandi sameinuðust um þennan
rekstur.
Mánudaginn 2. nóvember sl. var haldinn í
Stykkishólmi 3. aðalfundur Byggðasamlags-
ins. Gestur fundarins var Sigurjón Pétursson,
deildarstjóri grunnskóladeildar Sambands ísl.
sveitarfélaga. Hann gerði grein fyrir starf-
semi þeirrar deildar en þar er efst á baugi
fjarkennsla og endurmenntunarmál kennara.
Snorri Þorsteinsson, forstöðumaður Skóla-
skrifstofunnar, og Guðjón Petersen, formaður
Byggðasamlagsins,
fóru yfir starfsem-
ina á síðasta ári.
Hjá skólaskrif-
stofunni starfa 6
starfsmenn, sál-
fræðingar, tal-
meinafræðingur og
kennslufulltrúar. Lögð var fram fjárhagsá-
ætlun næsta árs og var hún ekki afgreidd,
heldur á að fara nánar yfir hana og afgreiða
hana á aukafundi fljótlega.
Tillaga kom fram um að Reykhólahreppur
fengi aðild að Byggðasamlaginu, en hreppur-
inn hefur notið þjónustu Skólaskrifstofunnar,
en afgreiðslu var frestað. Þá á að endurskoða
samþykktir Byggðasamlagsins með hliðsjón
af reynslu og starfi Skólaskrifstofunnar.
Ný stjórn Byggðasamlagsins var kosin og
urðu miklar breytingar á henni, fjórir af fimm
stjórnarmönnum hættu. Nýr formaður er Oli
Jón Gunnarsson frá Borgarbyggð.
Þróunarstofa
Austurlands víkk-
ar starfsemi sína
Fjarkennsla
og endurmennt-
unarmál kennara
,
i
^BSH£