Morgunblaðið - 11.11.1998, Síða 48

Morgunblaðið - 11.11.1998, Síða 48
t48 MIÐVIKUDAGUR ll. NÓVEMBER 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ ORSAKIR BUFERLA- FLUTNINGA í FYRRI grein minni um stöðu byggðamála varaði ég við hættu á sívaxandi landflótta frá mörgum svæðum landsbyggðar- innar. Ef menn vilja bregðast við þessu með markvissum hætti er ->nauðsynlegt að átta sig á því hverjar helstu or- sakir brottflutnings eru. I þessari grein mun ég segja frá nið- urstöðum rannsóknar á orsökum búferla- flutninga á íslandi sem ég hef unnið að fyrir Byggðastofnun á síð- ustu misserum. Óánægja leiðir til brottflutnings Rannsóknin á orsök- um búferlaflutninga byggðist á víð- tækum könnunum meðal íbúa allra ^landsbyggðarkjördæmanna. Fólk var spurt um ánægju og óánægju með 24 þætti lífskjara og búsetu- skilyrða, auk þess sem fólk er flutt hafði milli landshluta á tímabilinu frá 1992-96 var spurt um helstu ástæður búferlaflutninga sinna. Til að gera langa sögu stutta má segja að kannanir þessar hafl sýnt, að ná- in tengsl eru milli ánægju íbúa með lífskjör og fólksfjöldaþróunar í við- komandi byggðarlagi. íbúar tapast frá svæðum þar sem fólk hefur yfir fleiri þáttum lífskjara að kvarta, en ^fólki fjölgar þar sem íbúar eru al- mennt ánægðari með kjör sín og skilyrði. Þótt landsbyggðin í heild hafí tapað miklum fjölda íbúa á síðustu árum þýðir það ekki að íbúar séu óánægðari með allt á landsbyggð- inni. Ibúar stærri þéttbýlisstaða landsbyggðarinnar eru margir ánægðari með lífskjör og búsetu- skilyrði sín en íbúar höfuðborgar- svæðisins. Það á til dæmis við um Akranes, Sauðárkrók, Akureyri, Selfoss og Hveragerði. Minnst er ánægjan meðal íbúa á minni þétt- býlisstöðum, einkum í sjávarút- vegsbyggðunum. Almennt eru íbú- ar landsbyggðarinnar ánægðari en -^íbúar höfuðborgarsvæðisins með umhverfl sitt, veðurfar og opinbera þjónustu, svo sem dagvist barna, grunnskólamál, heilsugæslu og þjónustu við aldraða. (Nánar má lesa um þetta í bók minni Búseta á Stefán Ólafsson íslandi, sem Byggðastofnun gaf út sl. vetur.) Vandinn á landsbyggðinni teng- ist sérstökum svæðum og sérstökum aðstæð- um, þar með talið þeim miklu breytingum sem orðið hafa á skipan sjávarútvegsmála hér á landi á liðnum árum. Lítum nánar á viðhorf íbúa á hættusvæðum landsbyggðarinnar, það er á þeim svæðum samanlögðum sem hafa tapað meira en 10% íbúa sinna á sl. tíu árum. Viðhorf íbúa á hættusvæðunum E-vítamín eflir varnir líkamans úsið ^ Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi * og Skipagötu 6, Akureyri Á töflu 1 sem hér fylgir má sjá hvaða atriði það eru sem íbúar hættusvæðanna á lands- byggðinni eru óánægðastir með í lífskjörum og búsetuskilyrðum sín- um. Flestir íbúar þessara svæða eru óánægðir með húshitunarkostnað. Þá eru margir óánægðir með verð- lag og verslunaraðstæður, lagningu og viðhald vega, tekjuöflunarmögu- leika og atvinnutækifæri. Margir íbúar brottflutningssvæða kvarta einnig undan húsnæðisaðstæðum, sérstaklega öryggisleysi sem fylgir því að eiga og skulda í húsnæði á svæðum sem tapa fólki. Þá eru loks Atvinnumálin, segir Stefán Qlafsson, vega þyngst sem orsök brottflutnings fyrir flesta. margir sem kvarta um ófullnægj- andi atvinnuöryggi og framhalds- skólamál. Síðamefnda atriðið teng- ist m.a. þeirri byrði sem fólk hefur af því að senda börn sín í fram- haldsnám til annarra byggðarlaga, með tilheyrandi aukakostnaði. Sjá töflu 1 Þegar þessi listi mestu óánægjuat- riðanna er skoðaður í heild blasir við að íbúar á hættusvæðunum eru að segja það, að þeir telji sig bera skarðan hlut í efnalegum lífskjörum, og það byggist í reynd á raunveru- legum mun lífskjara. Þannig greiðir meðalfjölskyldan á hættusvæðunum oftast helmingi meira en íbúar höf- uðborgarsvæðisins íyrir húshitun (nálægt mánaðarlaunum verka- manns á ári), einnig fyrir daglegar nauðsynjar heimilisins vegna hærra vöruverðs, og fyrir framhaldsskóla- göngu bama sinna. Þá finnst íbúum þessara svæða tekjuöflunarmögu- leikai- sínir og atvinnutækifæri ófull- nægjandi. Þessu til viðbótar má segja frá því, að í rannsókn á umfangi fátæktar á sl. tíu ár- um, sem ég gerði ásamt Karli Sig- urðssyni á Félags- vísindastofnun, kom fram að um 13% íbúa landsbyggðar- innar hafa tekjur undir fátæktar- mörkum (einkum fólk í landbúnaði og sjávarútvegi), en samsvarandi tala fyrir höfuðborgar- svæðið er 7%. Það er því raunveruleg- ur munur á efnaleg- um kjörum á lands- byggðinni og höfuð- borgarsvæðinu, á heildina litið. Þegar sérstak- lega var spurt um hvað hafi versnað í búsetuskilyrðunum á síðastliðnum fimm áram nefna flestir íbúar hættusvæð- anna atvinnumál. Það tengist einkum breytingunum í sjávarútvegi, sem við komum nánar að síðar í greininni. Hvað ræður brottflutningi? En varla er við því að búast að flestir flytji af landsbyggðinni ein- ungis vegna mikils húshitunar- kostnaðar, þótt hann sé slæmur viðureignar. Sú almenna óánægja með nokkra þætti lífskjara sem fram kemur meðal íbúa hættu- svæðanna grefur almennt undan vilja til að búa á þessum svæðum, því þau virðast ekki vera sam- keppnishæf til búsetu í hugum íbú- anna, þegar kjör era borin saman við það sem býðst á höfuðborgar- svæði og stærstu þéttbýlisstöðum. Þegar á hinn bóginn er spurt hvaða eitt atriði ráði mestu um brottflutningsáform, meðal fólks sem segist ætla að flytja brott á næstu tveimur áram, nefna flestir atvinnumál. Hinn almenni lífskjarasaman- Mynd 1: Brottflutningsáform íbúa landsbyggðarinnar Greint eftir atvinnugreinum sem þeir starfa við Hlutfall (%) í hverri atvinnugrein sem segjast ætla að flytja brott á næstu 2 árum Landbúnaður Fiskveiðar Fiskvinnsla Annar iðnaður Opinber þjónusta \ferslun, þjón., samgöngur Tafia 1: Viðhorf íbúa á hættusvæðum til lífskjara og búsetuskilyrða í byggðarlögum sínum Það sem flestir eru óánægðir með segjast óánægðir með viðkomandi þátt Húshitunarkostnaður 78% Verðlag og verslunaraðstæður 69% Lagning og viðhald vega 58% Tekjuöflunarmöguleikar 52% Atvinnutækifæri 49% Húsnæðiskostnaður almennt 49% Framboð hentugs húsnæðis 45% Atvinnuöryggi 43% Framhaldsskólamál 43% Aðstaða til afþreyingar 38% Vöruúrval 37% Skemmtanalíf 37% Menningarlíf 35% Hætta vegna náttúruhamfara 34% Þjónustuúrval 32% Ruðningur vega á vetrum 29% Aðstaða til íþróttaiðkunar 28% Flugsamgöngur 27% Dagvistunarmál 24% Heilbrigðisþjónusta 22% Veðurfar í byggðarlaginu 21% Grunnskólamál 20% Þjónusta við aldraða 14% Hætta af völdum umferðar og ofbeldis 8% Heimild: Landshlutakönnun búsetuskilyrða, vorið 1997. Hættusvæðin eru þau byggðariög á landinu samanlögð sem tapað hafa meira en 10% Ibúa á slðastliönum 10 árum. Cosmea^ BLÓMLEG LÍNA A F SNYRTIVÖRUM FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA KYNNING í LYFJU, LÁGMÚLA í DAG O G Á MORGUN K L . I 4 - I 8 . BLÓMLEGUR KAUPAUKIl ^ Pharmaco LYFIA burður veikir búsetuna á lands- byggðinni, en atvinnumálin vega þyngst sem orsök brottflutnings fyrir flesta. Næstmikilvægasta ástæða brottflutnings af lands- byggðinni er menntunaraðstæður, og snertir sá þáttur einkum unga fólkið sem hyggur á nám á háskóla- stigi eða annað framhaldsnám. Sí- vaxandi sókn í framhaldsnám hefur gert þennan þátt afdrifaríkari fyrir búsetuþróunina á landsbyggðinni í seinni tíð. Þannig virðist ljóst að samspii milli óhagstæðrar atvinnuþróunar og óhagstæðs samanburðar á nokkram þáttum lífskjara skýri að stærstum hluta hinn mikla og vax- andi brottflutning íbúa frá ýmsum svæðum landsbyggðarinnar. Lítum nánar á þátt atvinnuþróunarinnar. Áhrif breytinga í sjávarútvegi Flestum er kunnug langtíma- hnignun atvinnutækifæra í land- búnaði og áhrif hennar á búsetu í dreifbýli. Sveitirnar hafa verið að tæmast hægt og sigandi alla þessa öld. Fátt nýtt hefur gerst í þeirri neikvæðu þróun á síðustu árum og skýrir viðvarandi fækkun bænda einungis mjög lítinn hluta af nú- verandi heildartapi landsbyggðar- innar á íbúum til höfuðborgar- svæðisins. Áhrif þróunar sjávarút- vegsins virðast hins vegar vera orðin mun meiri en áður var. Þess hefur gætt allt frá því að störfum við fiskvinnslu hætti að fjölga um 1980, og á síðustu árum hefur bætt í tap sjávarbyggðanna svo um munar. Rannsóknir mínar benda ákveðið til þess að búseta sé að öðra jöfnu viðkvæmust í sjávarútvegsbyggð- unum, einkum í minni þorpum og kaupstöðum á landsbyggðinni. Markaðsvæðing sjávarútvegsins, með myndun einkaeignarréttar á veiðiheimildum og frjálsu framsali þeirra á markaði, hefur breytt grundvelli búsetu í mörgum sjávar- byggðum eftir 1990, einkum hvað snertir hag fiskvinnslufólks. Þar sem stærri hluti íbúanna starfar við sjávarútveg hefur íbúaþróunin ver- ið neikvæðari og brottflutningur meiri (fylgni milli umfangs sjávar- útvegs í atvinnulífi byggða og fólks- fækkunar er r=0,9 sem telst mjög hátt í félagsvísindalegum rann- sóknum). Þannig er hlutfall íbúa sem starfa við sjávarútveg hæst á Vestfjörðum og þar hefur íbúatapið verið hlut- fallslega mest, en næsthæst er hlut- fall sjávarútvegsstarfa á Austfjörð- um og þaðan hafa næstflestn- íbúar tapast á tímabilinu eftir 1990. Kjör- dæmi sem byggja í minna mæli á störfum við sjávarútveg hafa tapað hlutfallslega færri íbúum. Þróunin í sjávarútvegsbyggðun- um virðist því skýra stóran hluta af breyttum aðstæðum í búsetuþróun landsbyggðarinnar, þ.e. vaxandi óöryggi um framtíðarstörf í fisk- vinnslu og smábátaútgerð vegna hættu á sölu veiðiheimilda úr byggðarlaginu, flutningur fisk- vinnslu út á sjó og minnkandi tekjuöflunarmöguleikar. Sjá mynd 1 Sérstaða fiskvinnslufólks í bú- setubreytingunum kemur vel í ljós á mynd 1 sem hér fylgir með. þar er sýnt hve stór hluti starfsfólks í einstökum atvinnugreinum á lands- byggðinni segist ætla að flytja brott úr byggðarlagi sínu á næstu tveimur áram. Um 20% fólks sem var starfandi við fiskvinnslu vorið 1997, eða einn af hverjum fimm, sögðust ætla að flytja brott úr byggðarlagi sínu á næstu tveimur árum, og var það áberandi hærra í fiskvinnslu en í öðram atvinnugreinum. Um 9% sjómanna sögðust ætla brott en að- eins um 5% bænda. I öðram grein- um var hlutfallið frá 10-15%. I þessu sambandi er rétt að hafa i huga að nokkur hluti fólks flytur alltaf frá höfuðborgarsvæðinu út á land til að starfa við opinbera þjón- ustu og í öðrum þjónustu- og versl- unarstörfum, í stað þeirra sem flytja brott. Hins vegar er fátítt núorðið að fólk flytji frá höfuðborg- arsvæðinu til að starfa við fisk- vinnslu á landsbyggðinni. Þess vegna hefur í vaxandi mæli þurft að flytja inn erlent farandverkafólk til að manna fiskvinnsluna á lands- byggðinni. Þessi mikla tíðni brott- flutningsáforma meðal fiskvinnslu- fólks stefnir því áframhaldandi bú- setu í mörgum sjávarbyggðum í mikla hættu. Niðurstaða Þegar allt er saman tekið er ljóst, að versnandi atvinnuaðstæð- ur á landsbyggðinni, einkum í sjáv- arbyggðunum, og óhagstæður sam- anburður við nokkra þætti lífskjara á höfuðborgarsvæðinu skýrir stærstan hluta hins aukna brott- flutnings af landsbyggðinni á síð- ustu árum. Hægt er að stemma stigu við hnignun búsetunnar á landsbyggð- inni með markvissum byggðaþró- unaraðgerðum og jöfnun búsetu- skilyrða. Um leiðir í þeim efnum mun ég fjalla í þriðju og síðustu grein minni um stöðu byggðamála, sem væntanlega mun birtast í Morgunblaðinu á næstunni. Höfundur er prófessor við Háskóla íslands og forstöðumaður Fólagsvfsindastofnunar Háskólans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.