Morgunblaðið - 11.11.1998, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 11.11.1998, Blaðsíða 66
,»■66 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 FOLK I FRETTUM MORGUNBLAÐIÐ Buðu 150 vin- um sínum í bíó ► FYRIR skömmu var haldin sérstök sýning fyrir vinnnings- hafa fermingarleiks Háskóla- bíós og Fíns miðils. Þrír heppn- ir þátttakendur sem fermdust í vor, Heimir Hjartarson, Ólafur Thors og Ólöf Rúnarsdóttir, unnu miða fyrir sig og 50 bestu vini sína á einkasýningu á stór- myndinni Antz eða Maurar sem frumsýnd var um síðustu helgi. A myndinni sjást vinn- ingshafamir þrír, Heimir, Ólafur og Ólöf, en 150 maura- vinirnir þeirra voru skriðnir inn í sal. Haltu þræðinum og fylgstu með Þú getur valið úr 21 sjónvarpsstöð og 17 útvarpsrásum Þú færð hvergi betra yfirlit yfir dagskrá sjónvarps og útvarps en (sérblaði Morgunblaðsins, Dagskrá. Þar getur þú á auðveldan hátt haldið þræðinum í dagskránni. I blaðinu eru einnig fréttir, myndir og umfjöllun um þættina, kvikmyndirnar og fólkið sem kemur við sögu. Dagskránni er dreift með Morgunblaðinu annan hvern miðvikudag og ókeypis á helstu benstnstöðvar á höfuð- borgarsvæðinu. Hafðu Dagskrána alltaf við hendina. /' allri sinni mynd! Fuck spilar á afmæli Hljómalindar Kljómsveitin Fuck: Timmy Prudhomme, Kyle Statham, Geoff Soule og Ted Eliison. „Við erum svo miklir kjánar“ PLOTUYERSLUNIN Hljómalind heldui’ upp á sjö ára afmæli sitt í kvöld og á morgun, meðal annars með tónleikum bandan'sku hljóm- sveitarinnar Fuck á Gauki á Stöng. Einnig koma fram hljómsveitirnar Pornopop, Sigur Rós og Unun. Hljómsveitin Fuck hefur vakið at- hygli undanfarið, fyrst fyrir nafnið en svo fyrir tónlist sína á fjórum breiðskífum. Fuck er fjögurra manna sveit ættuð frá Bandaríkjun- um, en einn liðsmanna hennar býr í New York og hinir austur í Kaliforn- íu. Saga sveitarinnar hermir að leið- togi hennar, Kyle Statham, hafí aug- lýst eftir liðsmanni í hljómsveit og sá síðasti sem sótti um hafí verið Tim- my Prudhomme. I kjölfarið hafi þeir tveir síðan farið að starfa saman sem hafi svo skilað sér í upptökum og síð- ar hljómsveit. Hittust í fangaklefa A Netinu má aftur á móti lesa þá sögu að þeir félagar hafi í raun hist í fangaklefa og aðspurður um það í símaspjalli vHI Timmy Prudhomme hvorki játa því né neita. „Ja,“ segir hann, „hvort tveggja er eiginlega rétt, ég svaraði auglýsingu og síðan hittumst við í varðhaldi hjá lögregl- unni eða einskonar biðstofu,“ segir hann en neitar síðan að ræða það mál frekar. Timmy segir að nafn hljóm-sveit- arinnar, sem vekur jafnan á henni mikla athygli, sé til orðið eiginlega út af engu. „Það má segja að það hafi verið valið vegna þess að við erum svo miklir kjánar,“ segir hann. „En það er líka stutt og gott að muna það, hvort sem manni líkar við það eða ekki. Allar hljómsveitir langar til að nota þetta nafn, en við létum drauminn rætast." Ekki hangsað á æfingum Eins og getið er býr Timmy í New York en þeir félagar hans vest- ur i Kaliforníu. Þegar sveitin varð til bjuggu þeir reyndar allir fyrir vestan, en um það leyti sem fyrsta útgáfan kom út, snælda með nokkrum lögum, fluttist Timmy tO New York og segist fyrir vikið ekki hitta hljómsveitarfé- laga sína ýkja oft. „Yið hittumst ekki svo oft utan hljómsveitar- innar, en undanfarin ár höfum við verið á tónleikaferðum í sex til átta mánuði á hverju ári og líka eytt nokkrum tíma í æfingar og upptökur svo við eyðum vissulega talsverðum tíma saman. Þegar við eigum aftur á móti frí frá hljómsveitinni hittumst við ekki, eða að minnsta kosti hitti ég ekki félaga mína; vel má vera að þeir hittist fyrir vestan." Timmy segir að það hafi eflaust sitt að segja með samheldni sveitar- manna að þeir eru ekki alltaf hittast þegar þeir eru ekki í hljómsveitar- stússi. „Kannski fengjum við leið hver á öðrum ef við ættum allir heima í sama smábænum og kynni mín af öðrum hljómsveitum hafa reyndar sannfært mig um að það sé hið besta mál að við skulum ekki hittast oftar en raun ber vitni,“ segir Timmy og bætir við að það hafi líka sína kosti þegar kemur að því að semja eða taka upp. „Þegar við á annað borð hittumst, hvort sem það er til að taka upp eða semja lög, er- um við samankomnir einmitt til þess en ekki til að slæpast og drekka bjór saman. Þannig nýtum við tímann miklu betur og vinnum af ki’afti í stað þess að hangsa og drekka nokkra bjóra í upphafi æfingar og síðan hangsa og fá sér bjór í lok hennar eins og sveitir sem eru alltaf að hittast gera svo gjarnan.“ Ekki alltaf hljóðfærí í fanginu Fyrsta útgáfa Fuck kom út sum- arið 1994 og fyrsta breiðskífan, Pretty ... Slow, tveimur árum síðar. Sama ár kom út önnur breiðskífa, Baby Loves a Funny Bunny, og Par- don My French, í mars á síðasta ári. I haust kom síðan út ný breiðskífa, Conduct. „Við sönkum að okkur hug- myndum hver í sinu lagi á milli þess sem við hittumst, en þegar komið er í hljóðverið skiptumst við á þeim og búum til lög. Þannig eru lagahlut- arnir misgamlir; sumt sem ég lagði til málanna til að mynda var mánað- argamalt þegar við byrjuðum að taka upp, en öðru hafði ég velt fyrir mér í nokkur ár.“ Timmy segir að þeir félagar hafi spreytt sig á samstarfi við aðrar sveitir, sem sé bráðhollt, en alla jafna sé lítill tími aflögu fyrir slíkt. „Þegar við erum ekki beinlínis að taka upp eða spila er nóg að gera varðandi hljómsveitina. Gott dæmi um það er þetta samtal okkar, en áð- an var ég líka að ganga frá leigu á sendibíl í Amsterdam, Kyle er heima hjá sér að pakka plötum, en við höf- um fyrir sið að selja sérpakkaðar plötur á tónleikum okkar, og svo má telja. Það er því í ýmsu að snúast þótt ekki sé maður alltaf með hljóð- færi í fanginu.“ Hræddir og kvíðnir Timmy segir að þeir félagar séu spenntir fyrir fyrirhugaðri Islands- ferð, „en við erum líka hræddir og kvíðnir, því við þekkjum engan sem hefur komið til Islands hvað þá að við þekkjum neina hljómsveit sem hefur leikið þar á tón- leikum. Okkur fannst það frábær hugmynd að byrja tónleikaferð okkar um Evrópu á ís- landi, en eftir því sem nær dregur höfum við fyllst kviða, því við vitum ekkert um land og þjóð“, segir Tim- my áhyggjufullur. Eftir að hafa verið sannfærður um að á Islandi sé ekki ýkja kalt, að minnsta kosti ekki miðað við vetrar- hörkur í New York, og innfæddir vinsamlegir er honum létt og hann segir að þeir Fuck-félagar muni gera sitt besta til að skemmta íslenskum áheyrendum, ekki síst til að tryggja það að þeir vilji sjá hljómsveitina aft- ur á tónleikum. Fuck leikur á tónleikum á Gauki á Stöng í kvöld og til upphitunar verða Pornopop og Unun. A morgun hita upp Pornopop og Sigur Rós. „Allar hljómsveitir langar til að nota þetta nafn, en við létum drauminn rætast.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.