Morgunblaðið - 11.11.1998, Side 68

Morgunblaðið - 11.11.1998, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ ^)8 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 HASKOLABIO HASKOLABIO Hagatorgi, simi 530 1919 FYR/fi 990 PUNKTA--------------------------------T----------------------------- FEIWUlelÓ Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 www.samfilm.is Atburðarásip er^ ^ hrod og m.u ktaek. HANN HEFUR 14.000 VITNI OG ENGINN SA HVAÐ GERDIST Hafðu augun hm þér því það er glæpur i uppsiglingu beint fyrir frnman nefió ó þér og 14,000 boxáhorfendum. Mngnoíur spennulryllir eflir einn mesin snilling kvikmyndnsögunnar, Brían De Palmn (Untouchables, Mission Impossible) meó Iveimur fremstu leikurum samtimans i aihlulverkunum, óskarsverðaunahafanum Nicolas Cnge (The Rock) og Gary Sinise (Forrest Gumpl. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05. b.í, 16. bddigital Sýnd kl. 9 og 11. B.i. 12. fe| ’ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Camero Dia att Diilon Frá leikstjómum Dumb and Dumber og Kingpin kemur gamanmynd ársíns. S MáBiNG^bouT the PARENTTRA foriíldraGILDRAN 1. Sýnd kl. 4.40, 7 og 9.20. -Mk ••Fyndnasta mynd oilra tíma" Sýnd kl. 5, 6.30, 9 og 11.20. Fólk Bellatrix spilar á Mean Fiddler ►BELLATRIX heldur útgáfutón- leika í Water Rats í Lundúnum föstudaginn 9. nóvember. Upphit- unarhljómsveitir eru Misericord og Scratchwood en sú fyrrnefnda er stofnuð af fyrrverandi trymbli Divine Comedy. Bellatrix heldur svo kynningar- tónleika í Mean Fiddler í Dublin fimmtudaginn 26. nóvember en breiðskífa sveitarinnar er væntan- leg á markað þar í janúar. Eftir það verður Bellatrix á tón- leikaferðalagi á Islandi fram að jólum og eftir áramót heldur sveit- in utan í tónleikaferð um Evrópu. Engin kvik- myndahátíð í ár UNDANFARIN ár hefur Kvik- myndahátíðin í Reykjavík verið hald- in í októbermánuði. I ár verður eng- in hátíð, því hún færist yflr í janúar á næsta ári. „Við eigum í mjög góðu samstarfi við bíóhús borgarinnar, og stjórn- endur þeirra lögðu til að hátíðinni yrði frestað,“ segir Anna María 'Karlsdóttir framkvæmdastjóri hátíð- arinnar. Ástæðan er sú að þeir töldu sig ekki hafa tíma né tjöld til að sinna hátíðinni sem skyldi á meðan þeir væru að sýna stórmyndir eins og nú. Þeir hafl hagsmuna að gæta að kynna vel þær myndir sem þeir senda á Kvikmyndahátíð Reykjavík- ur, það séu stærstu listrænu mynd- imar sem þeir hafl verið að kaupa inn. Hátíðin verður svo aftur haldin síðsumars 1999 og er áætlað að álið- inn ágústmánuður verði framtíðar “ ^verustaður Kvikmyndahátíðar Reykjavíkur. „Það er heppilegasti tíminn fyrir hátíðina, því sum- arsmellimir frá Bandaríkjunum verða ekki komnir, auk þess sem við verðum á undan stóru kvikmyndahá- tíðunum úti í heimi og þannig aukast líkurnar á því að fá bæði nýrri og stærri kvikmyndir til sýningar,“ Sagði Anna María að lokum. Kate Moss á heilsuhæli FYRIRSÆTAN Kate Moss inn- ritaðist í síðustu viku á heilsu- hæli vegna ofþreytu. „Ég hef unnið allt of stíft upp á síðkast,- ið og verið of mikið úti á líf- inu,“ segir hún í viðtali við Lundúnablaðið Mirror. „Ég var óánægð með þá stefnu sem Iff mitt hafði tekið og ákvað að staldra aðeins við og gera upp líf mitt og framtíð ... Þetta er rétti staðurinn til að öðiast næði og ró og bytja að hugsa minn gang.“ Dagblaðið hafði eftir „vini“ Moss að hún hefði ekki verið í eiturlyfjum en hún hefði „hall- að sér dálitið mikið að flösk- unni“. Undanfarið heftir hún verið mikið í félagi við bræð- uma Liam og Noel Gallagher úr Oasis. „Liam og Noel gætu þurft að flnna sér nýjan leik- félaga,“ bætti „vin- urinn“ við. h í1 ” „ . V’ f V !U . ____ » •■'cLíaíta, k'i' * * * xé „Eg hef unnið allt of stíft upp á síð- kastið og verið of mikið uti á lífinu". Vinsælt að vera í kór UNGLIST ‘98 er ekki með öllu lokið íuji an3 og um helgina var haldið kóramót framhaldsskólanna í Islensku óperunni. Alls átta kórar tóku þátt í mótinu og sungu þeir saman í upphafi og lok mótsins. Það var því ansi þröngt á svið- inu í Óperunni þeg- ar 200 ungmenni komu sér þar fyrir til að syngja ekki minni lög en ísland ögrum skorið, Eg að öllum háska hlæ, Vísur Vatnsenda- Rósu og Úr útsæ rísa íslandsfjöll. Marteinn H. Friðriksson stjóm- andi kór Menntaskólans í Reykjavík segir það mjög vinsælt að vera í kór meðal framhaldsskólanema, þau sýni mikinn áhuga. Það geti þó verið erfitt að fá krakkana til að mæta á æfíngar á próftímum, annars gangi það vel í flestum skólum. „Það er ekki mikil hefð fyrir kór- starfi í MR þar sem nemendur koma SMASKÓR sérverslun með barnaskó, f bláu húsi v/Fákafen, s. 568 3919 oft langt að, og lögð er ríkari áhersla á aðrar greinar en list- ir, segir Marteinn, „en ég er með góða krakka sem hefur verið mjög gaman að starfa með.“ Hann nefnir Menntaskólann í Hamrahlíð sem dæmi um skóla sem alltaf hefur átt góð- an kór, þar er tón- listarbraut og alveg frábær kórstjóm- andi, Þorgerður Ingólfsdðttir, og muni það miklu. „Þetta er í fjórða sinnið sem Unglist býður okkur að halda kóramót og allar líkur á því að það endurtaki sig að ári. Það er mjög ánægjulegt því það er erfltt að fá nógu stórt húsnæði á viðráðan- legu verði undir öll þessi söngglöðu ungmenni," sagði Marteinn að lok- um. EINBEITT ungmenni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.