Morgunblaðið - 08.01.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.01.1999, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SVONA gerum við í ESB. Morgunblaðið/Sverrir Engeyjargarður lengdur í REYKJAVÍKURHÖFN er um þessar mundir unnið að lengingu Eyjagarðs, skjólgarðs sem gengur út frú Örfírisey og út í Engeyjar- sund. Að sögn Hannesar Valdi- marssonar, hafnarstjóra í Reyiga- vík, verður einnig byggð bryggja innan garðsins sérstaklega ætluð olíuskipum. Skipin munu þá geta Iagst við bryggju þar sem olíunni verður dælt um lagnir á yfir- borðinu. Eins og stendur, og tíðkast heíúr í áratugi, hafa skip legið við festar og losað olíu um leiðslur sem liggja neðansjávar. Með tilkomu nýju bryggjunnar verður afgreiðsl- an mun öruggari og hraðvirkari. Olíuskipið Maerskbiscai á vegum MacKinney Mærsk Moller lá úti fyr- ir Engeyjargarði í vikunni á meðan það losaði olíu. Styrkveitingar Rannsóknarráðs íslands Tæknimaður í fyrirtæki Hörður Jónsson Um þessar mundir er verið að auglýsa styrki sem Rann- sóknarráð íslands veitir fyrirtækjum til þess að ráða tæknimenn til starfa. Fyrstu styrkir af þessu tagi voru veittir árið 1994 og það fyrirtæki sem fékk fyrsta styrkinn var Is- lenskt franskt eldhús, sem hlaut þennan styrk samtals í þrjú ár. Næstu fyrirtæki sem hlutu styrk voru Bakkavör, Silfurstjarnan, Genis hf. Element sem þá hét RKS Skynjaratækni og fiskvinnslufyrirtækið Fisk- co. Hörður Jónsson er for- stöðumaður Tæknisjóðs Rannsóknarráðs Islands. Hvers vegna var farið að veita þessa styrid? Ástæðan fyrir því að farið var að veita styrki af þessu tagi var að Rannsóknarráð taldi að auka þyrfti móttökugetu fyrir- tækja í iðnaði tU þess að taka við tækniþekkingu og stuðla þannig að hraðari uppbyggingu fyrir- tækjanna og aukinni framleiðni. A sínum tíma kom í Ijós við athugun að tiltölulega fáir tæknimenn störfuðu í fyrirtækjum og má þar sérstaklega nefna matvælafyrii-- tæki svo sem eins og í fiskvinnslu- fyrirtækjum. Við flytjum út um 1200 þúsund tonn af vörum og fá- um fyrir þetta um 120 milljarða króna sem þýðir að meðalverð út- flutningsafurða okkar er um 100 krónur á hvert kOógramm. Þyrft- um við að auka útflutnings- verðmætin á hvert kfiógramm um- talsvert ef vel ætti að vera. - Hvert er hlutverk tækni- manna í þessu ferli? Fyrirtæki geta sótt um styrk tO þess að ráða tæknimann í fullt starf og greiðir Tæknisjóður upp- hæð sem nemur hálfum launum sérfræðingsins. Við veitingu styrkjanna njóta þau fyrirtæki forgangs sem hafa í þjónustu sinni tiltölulega fáa tæknimenn en hafa að öðru leyti bolmagn og forsend- ur tO nýsköpunar og ráðning tæknimannsins geti stuðlað að umtalsverðri breytingu á tækni- stigi fyrirtækisins og bætt sam- keppnishæfni þess. - Hver er reynslan af þessum styrkveitingum ? Eg held að ég geti fullyrt að reynslan af að hafa tæknimenn í störfum sé mjög góð, sem sést á því að þau fyrirtæki sem réðu tæknimann í byrjun með styrk frá sjóðnum hafa fastráðið starfs- mennina eftir að styrkveitingunni lauk. Samhliða má geta þess að velta sumra fyrirtækjanna hefur aukist umtalsvert á tímabilinu. - Hvaða menntun hafa slíkir tæknimenn yfirleitt? Þótt við köllum þetta tæknimenn í fyrirtæki þá meinum við að við styriy'um ráðningu starfsmanns sem hjálp- ar fyrirtækinu að leysa vandamál og auka framleiðnina. I vissum tilvikum gæti það rétt eins verið málfræðing- ur eða heimspekingur eins og tæknimenntaður maður. En í flestum umræddum styrkjum hafa þetta verið tæknifræðingar eða verkfræðingar. - Eru umsóknir yfírleitt marg- ar? í fyrra tO dæmis fengum við 24 umsóknir frá alls konar fyrirtækj- um og veittum ellefu styrki. Fyrir- tækin sem við styrktum þá voru Myllubrauð, Skósmíðastofa Gísla Ferdinandssonar, Kælismiðjan Frost, Hampiðjan, Islandslax, Vélsmiðja Péturs Auðunssonar, ► Hörður Jónsson er fæddur 1.10 1931 í Reykjavík. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1952 og Iauk efnaverkfræði frá háskól- anum í Edinborg árið 1957. Hann starfaði frá þeim tíma til 1962 hjá Iðnaðardeild atvinnu- deildar Háskólans/Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins. Næstu sex ár vann hann hjá Korkiðjunni/PIastiðjunni á Eyr- arbakka við plastframleiðslu. Næstu ellefu ár starfaði Hörður hjá Iðnþróunarstofnun og síðan til 1985 hjá Iðntæknistofnun. Frá 1985 til ‘89 hjá Norræna Iðnaðarsjóðnum í Stokkhólmi og Ósló. Frá 1989 hefur Hörður starfað hjá Rannsóknarráði Islands. Hann er kvæntur Þor- gerði Brynjólfsdóttur hjúkrun- arfræðingi og eiga þau fjóra syni. Hraðfrystihús Þórshafnar, Kjarnafæði á Akureyri, Fóður- verksmiðjan Laxá og Þörunga- verksmiðjan. Ef við lítum lengra aftur má kannski skipta fyrirtækj- unum sem styrki hafa fengið í tvo hópa, annars vegar fyrirtæki sem náð hafa ákveðinni stærð og eru að hefja írekari nýsköpun og hins vegar fyrirtæki sem við köllum sprotafyrirtæki - sem sprottið hafa út úr rannsóknastofnunum og háskólum, svo sem eins og. t.d. Genis, Stjörnu Oddi og ísteka. El- ement mætti einnig flokka undir þennan hatt. - Hvernig fyrirtæki hyggist þið helst styrkja í ár? Stefna okkar er að mestu óbreytt, við munum áfram leggja áherslu á að styrkja starfandi fyr- irtæki sem hafa tiltölulega fáa tæknimenn í þjónustu sinni en hafa að öðru leyti bolmagn og for- sendur til nýsköpunar. Þá leggj- um við fremur áherslu á starfandi fyrirtæki heldur en sprotafyrir- tækin. Hugsanlegt er þó að sú breyting verði á styrkveitingum nú að veittir verði styrkir til þess að ráða það sem við köllum tæknimann á vettvangi og myndi hann þá þjónusta fleiri en eitt fyrirtæki í skyldum grein- um. Geta má þess að Tæknisjóður Rannsóknarráðs íslands hefur til ráðstöfunar um 200 milljónir króna á ári til styrkveitinga, um 80% af þessum peningum fara til svokallaðra verkefnastyrkja þar sem lögð er áhersla á nýnæmi og líklegan ávinning. Sjóðurinn styð- ur einnig sókn fyrirtækja og stofnana til þátttöku í fjölþjóðleg- um rannsóknum á þróunarverk- efnum á vegum Evrópusam- bandsins. „Stuðlar að hraðari upp- byggingu og aukinni framleiðni“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.