Morgunblaðið - 08.01.1999, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skólayfírvöld og lögregla með viðbúnað vegna kröftugra sprenginga innan veggja Hagaskóla
Alvarlegt til-
ræði við ör-
yggi nemenda
og starfsfólks
ALVARLEGT ástand hefur skap-
ast í Hagaskóla á undanförnum
dögum vegna ítrekaðra spreng-
inga á skoteldum innan veggja
skólans. Hefur skólahald raskast
dag hvern frá áramótum vegna
þessa. Skólastjóri Hagaskóla hef-
ur óskað eftir nærveru lögreglu í
dag til að tryggja eðlilegt skóla-
starf í skólanum. Stjórnendur
Hagaskóla líta á þessi atvik sem
alvarlegt tilræði við öryggi nem-
enda og starfsmanna og hefur
lögreglan fengið málið til með-
ferðar.
Brottvísun sex nemenda náði
ekki fram að ganga
Skólastjómendur brugðust m.a.
við sprengingunum með því að
gera sprengjuleit í töskum allra
nemenda og í vösum og var sex
nemendum í framhaldi af því vísað
úr skólanum í eina viku. Að sögn
Flosa Kristjánssonar, aðstoðar-
skólastjóra Hagaskóla, sneri
Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborg-
ar hins vegar þeirri ákvörðun við
þar sem ekki hefði verið gætt and-
mælaréttar skv. stjómsýslulögum
og komu umræddir nemendur í
skólann á ný sl. miðvikudag. Er
mikil óánægja meðal stjórnenda og
kennara Hagaskóla vegna þessá
þar sem þeir telja sig ekki hafa
vald til að beita agaviðurlögum
vegna ástandsins. Var málið til um-
ræðu á löngum fundi kennara, full-
trúa Fræðslumiðstöðvar Reykja-
víkur og lögreglunnar í gærdag.
Bar að gæta andmælaréttar við
ákvörðun um brottvísun
Gerður G. Óskarsdóttir fræðslu-
stjóri segir að Fræðslumiðstöðin
hafí ekki ógilt ákvörðun um brott-
vísun nemendanna en skólastjóri
hafi ráðfært sig við Fræðslumið-
stöðina og verið bent á að gæta
þyrfti andmælaréttar samkvæmt
stjómsýslulögum þegar ákvörðun
um brottvísun væri tekin. Það
hefði svo verið gert. Gerður sagði
ástandið mjög alvarlegt þar sem
nemendur hefðu kveikt í skoteld-
um innan dyra skólans dag eftir
dag. Fulltrúar Fræðslumiðstöðvar,
bamavemdamefndar og lögreglan
hefðu verið starfsmönnum skólans
til aðstoðar vegna þessa máls und-
anfama daga.
„Þetta er mjög alvarlegt mál og
með ólíkindum að þetta skuli ger-
ast. Það er mesta mildi að enginn
slasaðist. Það er á ábyrgð forelda
að fylgjast með því að böm þeirra
fari ekki með skotelda í skólann.
Það þarf að taka á þessu með ein-
hveijum hætti. Við lítum þetta mál
mjög alvarlegum augum. Þarna er
um að ræða meira ofbeldi af hálfu
bamanna en við emm vön og
kannski er það að færast í vöxt,“
sagði Gerður.
Skoteldi kastað inn í þéttskipaða
þvögu nemenda
Að sögn Flosa Kristjánssonar
byijuðu sprengingamar strax eftir
jólafrí á mánudaginn með því að
kveikt var í svokölluðum Signal-
skoteldi í ruslafótu í mannlausu
anddyri skólans. Annarri kraftmik-
illi sprengju var svo sleppt lausri í
anddyrinu á þriðjudaginn og að
þessu sinni innan um fjölda nem-
enda. Á miðvikudaginn vom tvær
sprengjur til viðbótar sprengdar
innan um fjölda bama í anddyri
skólans en þá var skoteldi kastað
beint inn í þéttskipaða þvögu nem-
enda, að sögn hans. Flosi sagði það
mikla mildi að enginn hefði slasast
af völdum þessa enn sem komið
væri.
„Það er einhver hulinn verndar-
máttur sem vakir yfir okkur. Á
mánudaginn fletti ein svona
sprenging sundur mslatunnu úr
blikki en þá var anddyrið mann-
laust,“ segir Flosi. Hafa sprenging-
amar valdið nokkmm skemmdum,
m.a. brotnaði rúða í kröftugri
sprengingu.
31
Morgunblaðið/Ásdís
ÓFREMDARÁSTAND hefur skapast í Hagaskóla vegna þess að nemendur hafa sprengt skotelda innan
veggja hans og hefur lögregla verið kölluð til vegna málsins.
Leitað í öllum töskum nemenda
Flosi sagði að rætt hefði verið
við nemendur í öllum bekkjum
skólans strax á mánudagsmorgun-
inn um slysavarnir og óvarlega
meðferð skotelda. Eftir að stór
sprengja sprakk innan skólans
tóku starfsmenn sig til og leituðu í
töskum hjá öllum nemendum skól-
ans og gerðu upptækar hvellhett-
ur, skotelda og blys. „Við vísuðum
handhöfum þess heim í viku en
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur sneri
því hins vegar við og lét okkur éta
það ofan í okkur. Þá magnaðist
þetta um allan helming. Ósvífnin í
meðferð hættulegra skotelda fékk
þar með grænt ljós. Það voru sex
nemendur sendir heim en þeir voru
komnir í skólann aftur eftir japl,
jaml og fuður í gærdag (miðviku-
dag). Rökin voru þau að þetta
stæðist ekki stjómsýslulög og að
gæta yrði andmælaréttar foreldra
og íleira í þá veru,“ sagði FIosi.
Foreldrar á vakt á göngum
Að sögn hans var ein öflug
sprengja sprengd í skólanum
skömmu fyrir hádegi í gær en sá
sem þar var að verki hefur játað
verknaðinn. Eru margir nemendur
óttaslegnir vegna þess ástands sem
skapast hefur í skólanum, að sögn
Flosa. Foreldrafélag Hagaskóla
hefur boðið stjórnendum skólans
að vera starfsmönnum til halds og
traust til að gæta öiyggis í skólan-
um, að sögn hans. Á síðustu dögum
var fenginn hópur foreldra úr for-
eldrafélagi skólans til að vera á
gangavakt. Þá hafa allmargir nem-
endur beðist undan því að þurfa að
mæta í skólann.
í gær var haldinn kennarafund-
ur í Hagaskóla með fulltrúum
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar og lögreglu þar sem farið
var yfir málið. „Þar kom fram mjög
sterkt að skólastjómendur eru óá-
nægðir með stöðu sína að því er
varðar beitingu agaviðurlaga ýmis-
konar. Telja þeir sig bundna og
keflaða,“ segir Flosi.
Að hans sögn eru það um tíu
nemendur af alls 546 nemendum
skólans, sem bera beint eða óbeint
ábyrgð á sprengingunum. „Við er-
um því að glíma við vanda sem að-
eins lítið brot af öllum nemenda-
fjöldanum er ábyrgur fyrir," sagði
hann.
í bréfi sem einn nemenda skólans
sendi Morgunblaðinu í gær lýsir
hann miklum áhyggjum nemenda
vegna ástandsins í skólanum og seg-
ir m.a.: „Þessar sprengjur og fleiri,
hafa verið að spundrast í ruslatunn-
um, eða svo eiga þær allavega að
gera, en þær fljúga úr ruslatunn-
unni algjörlega stjómlausar vegna
þess að prikið hefur verið fjarlægt,
og springa í loftinu rétt hjá nemend-
um sem hafa fengið varanlegar hell-
ur í eyrun. Eitt skiptið var það að
sprengja („signal") sprakk ofan í
blikkruslatunnu sem stóð nokkrum
metram frá glugga einum á gangin-
um. Ruslatunnan flattist út og rúðan
brotnaði í mél.“
Með tárin í augunum
af skelfíugu
Þá segir í bréfinu að vegna þessa
hafi allt nám fallið niður eftir há-
degi einn daginn og nemendur yfir-
gefið skólann vegna slysahættu og
ótta kennara um öryggi sitt og
nemendanna, „og í enda skóladags-
ins í dag vora margir með tárin í
augunum af skelfingu og vilja alls
ekki koma aftur í skólann á meðan
þetta ástand er,“ segir í bréfinu.
JÓHANN N. Jóhann-
esson, tyrrum formað-
ur frjálsíþróttadeildar
Ármanns, er látinn, 92
ára að aldri.
Jóhann fæddist í
Reykjavík en fluttist
út í Viðey átta ára
gamall og ólst þar upp
til sextán ára aldurs.
Árið 1928 gekk
hann í Glímufélagið
Armann og varð
stjórnarmaður í félag-
inu ári síðar. Fimmt-
án árum síðar var
stofnuð frjálsíþróttadeild í félag-
inu og gerðist Jóhann formaður
hennar. Því starfi gegndi hann í
rúm fjörutíu ár. I þrjú ár sat
hann einnig í íþróttaráði Reykja-
víkur.
Jóhann var áberandi í íþróttalíf-
inu um 1930 og varð meðal annars
margfaldur íslands-
meistari í hlaupum. Á
móti á Alþingishátíð-
inni 1930 vann hann í
800 og 1500 metra
hlaupi og 110 metra
grindahlaupi.
Jóhann vann um
árabil hjá Reykjavík-
urhöfn og Sænska
frystihúsinu en hóf
störf hjá Mjólkursam-
lagi Reykjavíkur 1938
og sá um dreifingu
mjólkurafurða. Þar
vann hann þar til
hann hætti störfum fyrir aldurs
sakir.
Jóhann var kvæntur Þórnýju
Guðrúnu Þórðardóttur, sem einnig
var íþróttamanneskja og starfaði
að málefnum Ármanns. Þórný lést
árið 1982. Þau Jóhann áttu þrjú
böm.
TVEIR mjög harðir árekstrar
urðu á svæði lögreglunnar í Kefla-
vík laust eftir klukkan 13 í gær og
varð talsvert eignatjón á bifreiðum.
Meiðsli á fólki vora minniháttar.
Fyrri áreksturinn varð á horni
Skólavegs og Sólvallagötu í Kefla-
vík um klukkan 13.06 í gær, en þar
lentu tveir bílar saman á gatnamót-
unum. Við áreksturinn hentist önn-
ur bifreiðin á girðingu við Heil-
brigðisstofun Suðumesja og var
því ekki langt að flytja ökumenn-
ina, en annar þeirra kenndi eymsla
eftir óhappið. Hann fékk að fara
heim eftir nánari skoðun. Flytja
þurfti báðar bifreiðirnar í burtu
með dráttarbíl.
Án bflbeltis í veltu
Um tuttugu mínútum síðar lentu
tveir bílar saman á Sandgerðisvegi.
Önnur bifreiðin var í framúrakstri
og ók á móti bifreið úr gagnstæðri
átt. Þegar ökumaður bifreiðarinnar
sem tók framúr sá að hann myndi
ekki ná aftur inn á sinn vegarhelm-
ing ók hann yfir á vegaröxlina og
skömmu síðar skullu bifreiðirnar
saman, farþegamegin.
Við atvikið valt fyrmefnda bif-
reiðin og lenti utan vegar, en öku-
maður hennar var ekki í bílbelti.
Hann var rænulaus þegai* að var
komið en rankaði við sér skömmu
síðar. Hann var fluttur á sjúkrahús
með sjúkrabíl ásamt farþega úr
hinum bílnum sem reyndist ökkla-
brotinn, en meiðsli þeirra reyndust
ekki alvarleg. Bifreiðimar
skemmdust talsvert.
Þá hafði lögreglan á Keflavíkur-
flugvelli afskipti af tveimur einstak-
lingum vegna tilraunar til smygls
um hlið varnarliðsins í gær, annars
vegar íslendingi og hins vegar
vamarliðskonu. í öðra tilvikinu var
um að ræða fjórar lengjur af sígar-
ettum og hins vegar matvörar fyrir
um 170-180 dollara, sem þykir tals-
vert há upphæð til slíkra innkaupa
á svæði varnarliðsins.
Prófkjör framsóknar
í Reykjavík
Kosning
hafín
ATKVÆÐASEÐLAR í prófkjöri
Framsóknarflokksins í Reykjavík
verða sendir til flokksbundinna
framsóknarmanna í borginni í
dag. Atkvæðagreiðslu lýkur nk.
föstudag og er reiknað með að
talningu ljúki í síðari hluta
þarnæstu viku.
Um 2.500 framsóknarmenn hafa
rétt til að kjósa í prófkjörinu. Þar
af gengu um 1.000 nýir félagar í
flokkinn fyrir prófkjörið. Jón Ingi
Einarsson, formaður kjörstjórnar,
sagði að þessir nýju félagsmenn
hefðu verið samþykktir af fram-
sóknarfélögunum. Aðspurður neit-
aði hann því að dæmi væra um
menn í þessum hópi sem einnig
væra flokksbundnir í öðram flokk-
um. Kjörstjórn myndi hins vegar
fylgjast með því að fólk úr öðrum
flokkum hefði ekki áhrif á niður-
stöðu prófkjörsins.
Andlát
JOHANN N.
JÓHANNESSON
Tveir mjög harðir
árekstrar í Keflavík