Morgunblaðið - 08.01.1999, Síða 21

Morgunblaðið - 08.01.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 21 Neten virkar hressandi ámig! ERLENT Sókn uppreisnar- manna í Sierra Leone Forseti hæstaréttar stjórnar réttarhöldum yfír Clinton NATEN -er nóg! Utsölustaðir: Hagkaup, Nt/kaup, Blómaval Akurei/ri og Reykjavík, Apótekin, verslanir KÁ, Kaupfélögin, Urð Raufarhöfn, Homabær Homafirði, Lónið Þórshöfn, Heilsulindin Keflavík, Melabúðin Neskaupsstað. Dreifing: NIKO ehf - sími 568 0945 Veffang: www.naten.is Hja okkur eru Visa- og Euroraösamningar ávísun á staögreiöslu Við rýmum lagerinn hjá okkur og bjóðum nú leðursófasett áklæðasófasett hornsófa, eldhúsborð og stóla o.m.fl. á dúndurverðií Seljum lítið útlitsgölluð húsgögn með miklum afslætti Val húsgögn Ármúla 8-108 Reykjavík Opið alla helgina! Sími581-2275 ■ 568-5375 * Fax568-5275 Hópur er stóð að morðurn á stjórnarandstæðingum í íran upprættur Skæruliðar vísa á bug fregnum um vopnahlé Freetown, London. Reuters. AHMAD Tejan Kabbah, forseti Si- erra Leone, sagði í gær að hann hefði komist að samkomulagi við Foday Sankoh, leiðtoga uppreisn- armanna, um að boða vopnahlé. Skömmu síðar bar einn leiðtoga uppreisnarmanna fregnina til baka, sagði þá ekki myndu fallast á vopnahlé nema Sankoh, leiðtogi þeirra, sem er í haldi stjórnvalda, gæfi þeim skipun um slíkt. Barist var í höfuðborginni Freetown í fyrrinótt og lágu lík víða á götunum þegar dagur rann. Ekki er ljóst um mannfall en a.m.k. tólf uppreisnarmenn og óbreyttir borgarar munu hins veg- ar hafa fallið í gær eftir að flugvél á vegum ECOMOG-friðarsveit- anna, sem að mestu em skipaðar Nígeríumönnum, varpaði sprengju í þeim hluta Freetown sem upp- reisnarmenn höfðust við. Munu ECOMOG-sveitimar nú hafa náð mestum hluta miðborgarinnar aft- ur á sitt vald en uppreisnarmenn sögðust í fyrradag hafa náð borg- inni á sitt vald. Sögðu heimildarmenn í Freetown að uppreisnarmenn hefðu notað óbreytta borgara sem varnarskildi í átökum við ECOMOG. ítrekuðu talsmenn ECOMOG fyrir íbúum að halda sig innandyra svo þeir yrðu ekki skotnir í misgripum fyrir upp- reisnarmennina. Kvaðst forsetinn Kabbah í gær vera reiðubúinn til að láta Sankoh, leiðtoga uppreisnarmanna, lausan úr haldi, en hann var dæmdur til dauða fyrir landráð á síðasta ári. Cook sakar Líberíustjórn um að styðja uppreisnarmenn Uppreisnarmenn studdu við bak herforingjastjórn þeirri sem hrifs- aði til sín völd úr höndum Kabbahs í maí 1997 en í febrúar 1998 hröktu ECOMOG-sveitirnar herforingja- stjórnina á brott og skipuðu Kabbah forseta á nýjan leik. Sakaði Robin Cook, utanríkis- ráðherra Bretlands, í gær Líberíu- stjórn um að veita uppreisnar- mönnunum liðsinni í áhlaupinu nú og sagði að þeirri aðstoð yrði þeg- ar að linna. Sierra Leone var áður bresk nýlenda og að sögn Cooks hafa Bretar fjárfest mikið þar síð- an Kabbah tók aftur við forseta- embættinu. Rehnquist þykir harður Erna O. Eyólfsóttir Hárgreiðsludama: „Ég er buin að taka inn Naten í 2 ár og finn að það virkar mjög hressandi ft/rir Ifkama minn. Ég var mjög fót og hand köld, og fann fyrir stirðleika í vöðvum og liðum. Eftir að ég fór að taka Naten að staðaldri finn ég að blóðflæðið hefur aukist og stirðleiki horfið. Ég hætti að taka Naten s.l. sumar og þá fann ég hvemig þessi gömlu einkenni komu aftur. Ég mæli með Naten fyrir alla." NATEN er ioo% hreitit, lífrænt Tiáttúruefni. Takir þú NATEN þarfnast þú engra annarra vítamína eða fæðubótarefna! Khatami talinn hafa styrkt stöðu en sanngjarn dómari sma gegn harðlínumönnum Teheran. Reuters. The Daily Telegraph. HÓFSAMIR stuðningsmenn Mo- hammads Khatamis, forseta Irans, kröfðust í gær umbóta á öryggis- lögreglunni eftir að í ljós kom að dauðasveitir á hennar vegum stóðu að morðöldu gegn stjórnarand- stæðingum á síðasta ári. Khatami þykir hafa styrkt stöðu sína eftir að sveitirnar voru upprættar. Upplýsingamálaráðuneyti Irans tilkynnti á þriðjudag að hópur „svikulla, óábyrgra og afvega- leiddra" manna hefði staðið að mannránum og morðum á frjáls- lyndum rithöfundum og stjórnar- andstæðingum á síðustu mánuð- ÍÆST starfsmönnum ráðuneytisins t málsins. Morðaldan ■'■káÍfli hófst í nóvem- Etoiush Þegar Foruhar, leið- togi lítils stjómarandstöðuflokks þjóðernissinna, og eiginkona hans, Parvaneh, fundust stungin til bana í Teheran. Skömmu síðar var rit- höfundi, sem áður hafði unnið með stjórnarandstæðingum erlendis, rænt og hann myrtur. I desember fundust svo lík tveggja frjáls- lyndra í'ithöfunda, Mohammads Jafars Pouyandehs og Mo- hammads Mokhtaris, og eins rit- höfundar að auki er saknað. Til hans hefur ekki spurst síðan í ágúst í fyrra, og er talið víst að hann hafi verið myrtur. Stöðug togstreita Handtökur morðingjanna þykja til marks um að Khatami hafi styrkt stöðu sína í baráttunni við heittrúaða harðlínumenn, en stöðug togstreita hefur verið þeirra í milli æ síðan hann tók við forsetaembættinu. Morðin eru tal- in hafa verið framin að undirlagi andstæðinga Khatamis, sem þykir frjálslyndur á íranska vísu, og með því að brjóta þessa atlögu að valdi hans á bak aftur þykir forsetinn hafa sýnt að hann hafi náð yfir- höndinni. A síðasta ári mátti Khatami þola að einn helsti stuðningsmaður hans, borgarstjórinn í Teheran, var dæmdur til fangelsisvistar, auk þess sem innanríkisráðherra hans var vikið úr embætti. Washington. Reuters. WILLIAM Rehn- quist, forseti hæsta- réttar Bandaríkj- anna, stjómar rétt- arhöldunum yfír Bill Clinton Banda- ríkjaforseta, sem hófust formlega í öldungadeild þings- ins í gær. Gegnir hann lykilhlutverki í réttarhaldinu, þar sem hann mun stjórna vitnaleiðsl- um og úrskurða um sönnunargögn og ýmis lagaatriði. Rehnquist, sem er 74 ára gamall, hefur setið í hæstarétti í 27 ár og verið for- seti réttarins síðan 1986. Þykir hann nokkuð íhaldssamur, og harður en sann- gjarn dómari. Hann er sagður einn slyngasti lög- fræðingur Banda- ríkjanna, þó oft hafi hann á sér yf- irbragð viðutan prófessors. Sagðar eru sögur af því að hann leiðrétti hik- laust lögmenn sem fara rangt með staðreyndir máls- ins, stöðvi ræður lögmanna sem fara fram úr tímamörkum, og þaggi af röggsemi niður í háværum gestum í dómsalnum. Rehnquist Rehnquist er mikill áhuga- maður um sagnfræði og ritaði fyrir nokkrum árum bók um réttarhöld í öldungadeildinni um ákærur til embættismissis á hendur dómaranum Samuel Chase árið 1805 og Andrew Johnson Bandaríkjaforseta árið 1868. Hann ætti því að vera gjörkunnugur meðferð slíkra mála og vel búinn undir réttar- höldin yfir Clinton. Þótt Rehnquist hafi skiljan- lega ekki látið neitt uppi um af- stöðu sína til Clinton-málsins, má draga vissar ályktanir út frá þeim ummælum í bókinni að þingið verði að nota valdið til málshöfðunar til embættismiss- is sparlega, og varast að láta stjórnast af pólitík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.