Morgunblaðið - 08.01.1999, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.01.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 25 LISTIR Samsýning sex listamanna í Nýlistasafni Norðurleið - Suðurleið SAMSÝNING fímm þýskra lista- manna og eins frá Frakklandi verð- ur opnuð í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b, á morgun, laugardag, kl. 16. Yfirskrift sýningarinnar' er Nord Sud Fahrt eða Norðurleið - Suður- leið og eiga þar verk Ulrich Diirren- feld, Ulrike Geitel og Ralf Werner frá Köln, Erwin Herbst og Joaehim Fleischer frá Stuttgart og Domin- ique Evrard frá Frakklandi. Ulrich Diirrenfeld vinnur með málverk og myndbönd, Dominique Evrard með ljósmyndir, Joachim Fleischer með hreyfanlega ljósskúlptúra, Ulrike Geitel með málverk, þrívíð verk og innsetning- ar, Erwin Herbst með skúlptúra og Raif Werner, sem er tónskáld og tónlistarmaður, með hljóðskúlptúra og samsetningar. Ralf mun einnig fremja gerning á opnun á „raf- selló“. Hljóðverk hans er hinn ósýnilegi þráður sem tengir öll verkin á sýningunni, segir í frétta- tilkynningu. Tveir listamannanna hafa sótt landið heim tvisvar áður og dvalið í listamiðstöðinni í Straumi, þar sem þau hafa einnig dvalið nú frá því í byrjun desember. Verkin eru að hluta til unnin á ís- landi og að hluta í heimalöndum listamannanna. Ennfremur segir: „Kjarni hóps- ins hóf að starfa saman að sýning- um árið 1995 með samsýningu í Hamborg, síðan fylgdu fleiri sýn- ingar í kjölfarið, en við hverja sýn- ingu breytist samsetning listamann- anna örlítið eftir kringumstæðum, þ.e.a.s. sýningarstaðnum og eðli þess rýmis sem tekist er á við. Norðurleið - Suðurleið er nafn á umferðaræð sem tengir borgirnar Köln og Stuttgart í Þýskalandi, en getur, eins og nafnið bendir til, átt við hvaða fjarlægð sem er. Það hef- ur ekki neina skírskotun til verka listamannanna. Samvinna þeirra er byggð á þörf listamanna til að sýna verk sín óháð stjórn utanaðkomandi aðila, þörfinni fyrir að skapa sér vettvang og grundvöll til að koma hverjum og einum á framfæri með einstaklingsbundið framlag, sem í gegnum samvinnuna verður mynd í myndinni. Samsetning verkanna er það ferli sem síðan lýkur mynd- byggingunni. Líkja má vinnu þeirra við djassspuna, þar sem allir leika af fíngrum fram þegar verkið er flutt en að baki sækir hver í sinn brunn.“ Sýningin er m.a. styrkt af Au- svartiges Amt, Bonn, Insitut fur Auslandsbeziehungen, Stuttgart, Kunstler Bedarf Boesner, Köln, Hans Christian Scheerer, Tutt- lingen, Wurth AF, Kunzelsau, Ald- ente Zahnloabor, Fellbach, og Straumi listamiðstöð í Kafnarfírði. Sýningin er opin daglega nema mánudaga frá kl. 14-18 og lýkur sunnudaginn 31. janúar. Aðgangur er ókeypis. Uthlutun úr Menn- ingarsjóði Visa ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Menn- ingarsjóði Visa í sjöunda sinn. Þeir sem fengu úthlutun voru: A sviði tónlistar, Blásarakvintett Reykjavíkur, á sviði ritlistar, Einar Kárason, rithöfundur, á sviði leik- listar, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir, leikkona, á sviði myndlistar og barnamenningar, Sigrún Eld- járn, listmálari, á sviði vísinda, Mar- grét Guðnadóttir, prófessor, og á sviði þjóðmenningar fékk Vestur- farasetrið á Hofsósi úthlutun. Verðlaunin í ár námu 1.800.000 FRÁ úthlutun úr Menningarsjóði Visa. kr. sem skiptust í sex jafna hluta. Einar S. Einarsson, framkvæmda- Sjóðsstjórnina skipuðu: Sólon R. stjóri Visa, og Jón Stefánsson, org- Sigurðsson, stjórnarfomaður Visa, anisti og kórstjóri. Með vífíð í Lúkunum á Selfossi 71iboð baðherbergissett! Kr. 23.000,- stgr. Ath. Öll hreinlætistæki hjá okkur eru framleidd hjá sama aðila sem tryggir sama litatón á salerni, salernissetu, handlaug og baðkari. V Ath. Baðkar. 170 x 70 cm. Salerni með stút í vegg eða gólf. Hörð seta og festingar fylgja. Handlaug á vegg. Stærð 55 x 43 cm VERSLUN FYRIR ALLA ! Við Fellsmúla Sími 588 7332 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 [ÍBÍ. RAÐCREtÐSLUR LCMýártW Við bjóðum upp á Dansnámskeið sem hefjast 9. og 11. janúar nk. Öll námskeiðin eru 12 skipti. Barna og unglingaflokkar eru á laugardögum eða þriðjudögum. Verð á námskeiðunum eru: 3-5 ára kr. 3.500.-, 6-8 ára kr. 5.000,-, 9 ára og eldri kr. 6.000,- Ath. Systkinaafsláttur 25%. Gömludansanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna á mánudögum kl. 20.00 og kl. 21.00 Verð krónur 6.000.-, LEIKFÉLAG Selfoss frumsýnir gamanleikinn Með vífíð í lúkunum í kvöld, föstudag, kl. 20.30 í leikhúsinu við Sigtún. Leikritið er eftir breska leikritaskáldið Ray Cooney og er í þýðingu Árna Ibsen. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson. Átta leikarar taka þátt í sýningunni en um 30 manns koma að henni á einn eða annan hátt. Verkið er breskt og fjallar um leigubílstjóra sem á tvær konur og öll þau vandræði sem fylgja þeim ævintýrum og hefur verið sýnt víða um heim. Leikstjórinn, Jón St. Kristjánsson, útskrifaðist sem leikari frá Guildford School of Acting and Dance árið 1989. Hann hefur nú leikstýrt á annan tug leiksýninga bæði hjá atvinnu- og áhugamönnum og leikið á öllum stærstu sviðum landsins. Síðustu ár hefur hann unnið í Hafnarfjarðarieik- húsinu. Ray Cooney er eitt vinsælasta gamanleikjaskáld Breta á seinni hluta þessarai’ aldar. Auk þess að hafa sent frá sér fjölda leikrita, einn eða í sam- vinnu við aðra, á hann að baki langan og glæsilegan feril sem leikari, leik- stjóri og leikhússtjóri. Verk Cooneys hafa verið þýdd á yfír 20 tungumál og eru leikin vítt og breitt um heiminn. Næstu sýningai’ eru sunnudaginn 10. og fímmtudaginn 14. janúar og hefjast kl. 20.30. Opið hús Gömludansarnir annað hvert miðvikudagskvöld frá kl. 20.30 - 23.00 hefst miðvikudaginn 20. janúar n.k., frjáls mæting. Allt dansáhugafólk velkomið. Upplýsingar og innritun í síma 587-1616 eftir kl. 14.00 alla daga. Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14a. VIÐ BJÓÐUM •• L lEILDðOLUVI FRfl R nicqrette TO054PtoK ■■ S. 553-5212 lórvio^i W íön u ih muuFífiTl nö tt r-jvii a t
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.