Morgunblaðið - 08.01.1999, Page 33

Morgunblaðið - 08.01.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 33 HESTAR Ljósmynd/Jane Clarke HÓPURINN sem kallar sig American Icelandic Horse Group kemur inn á svæðið. Islenskir hestar í sjón- varpi í yfír 100 löndum Hópur eigenda ís- lenskra hesta í Kali- forníu tók þátt í stórri skrúðgöngu á hestum sínum í Pasadena í Kali- forníu á nýársdag. Mette Dresser sagði Asdísi Haraldsdóttur að um ein milljón manna hefði fylgst með þegar skrúðgangan fór hjá, en henni var sjón- varpað til yfír 400 millj- óna manna. I tengslum við útsendinguna var sýnt myndband þar sem hópurinn sýndi hestana í reið. L " BETSY Covert á Brúnhildi til vinstri og Mette Dresser á Feng til hægri. I skrúðgöngunni voru hestamir einnig skreyttir rósum. MARK og Mette Dresser sem búa í Malibu í Kali- fomíu söfnuðu saman hópi fólks í'yrir nokkrum árum til að taka þátt í skrúðgöngunni sem nefnd er Pasadena Toumament of Roses. Þetta var í þriðja sinn sem hópur- inn, 11 menn og hestar, tók þátt í göngunni en hún var nú gengin í 110. sinn. Mette Dresser sagði í samtali við Morgunblaðið að um 80 hópar hestafólks hefðu sótt um þátttöku í ár en aðeins 25 komist að. Auk þess taka aðrir hópar þátt í göngunni, svo sem hljómsveitir. Flekamir sem era notaðir í göngunni era skreyttir rósum og er aðeins leyft að nota ekta blóm og lauf. íslensku hestarn- ir vora skreyttir rauðum rósum og knapamir vora í skrautlegum bún- ingum í víkingastíl. Mikill áhugi er hjá almenningi að sjá gönguna og koma margir sólarhring áður en hún hefst til þess að taka frá upp- áhalds staðinn sinn og sofa þar um nóttina til þess að missa ekki af neinu. Mette sagði að því fylgdi heilmik- ill undirbúningur að sækja um þátt- töku. En skrúðgangan væri góður vettvangur til að kynna íslenska hestinn og það væri áhugamál þeirra að sem flestir kynntust þessu hestakyni. Senda þyrfti inn umsókn fyrir 1. júlí ár hvert. Henni þarf að fylgja mynd af hverjum þátttak- anda í búningi sem sýnir hvemig hann muni líta út á hesti sínum í skrúðgöngunni. Svo það er eins gott að enginn hætti við þegar á hólminn er komið. Svar berst síðan í lok ágúst. Nokkram dögum fyrir skrúð- gönguna var haldin fjölskylduhátíð sem nokkram hljómsveitum og þremur hópum hestafólks var boðið að taka þátt í. Hópi íslensku hest- anna var boðið að sýna þar hestinn í reið, ekki bara á feti eins og í skrúðgöngunni. CBS sjónvarps- stöðin tók sýninguna upp á mynd- band sem sýnt var ýmist fyrir eða eftir útsendinguna frá göngunni. Sagði Mette þetta hafa verið stór- kostlega auglýsingu fyrir íslensku hestana þar sem hægt var að sýna þessum gífurlega fjölda sjónvarps- áhorfenda hvað í þeim býr. Hún sagði að þrátt fyrir að ekki sé víst hve margir hafi í raun og vera séð þessa útsendingu væri ómetanlegt að fá þessar mínútur af útsending- artíma svona stórrar sjónvarps- stöðvar. Mark Dresser keypti fyrsta ís- lenska hestinn sinn árið 1988. Mette er frá Danmörku og hafði stundað hestamennsku þar. Hún fluttist til Bandaríkjanna fyrir fimm áram og komst þá í kynni við íslenska hesta. Þau eiga sex íslenska hesta og segj- ast vera dugleg að ríða út. Mette segir mjög gott að hafa íslenska hesta í Kalifomíu; að vísu þui-fi að raka þá yfir vetrartímann, en þeir virðast þola hitann mjög vel. Hún segir áhugann á íslenskum hestum sífellt vera að aukast og að fólk viti meira um þetta hestakyn. Fyrir fimm áram hafi fólk yfirleitt spurt hvaða hrossakyn þetta væri ef þau hittu fólk á fómum vegi. Nú verði hún í auknum mæli vör við að fólk þekki hestakynið. Hópur þeirra sem eiga íslenska hesta í Kalifomíu heldur mikið sam- an. Fer saman í útreiðar, skemmtir sér og fer saman á sýningar og námskeið, en áhugi á þeim er mikill. Mette segir að betri hestar komi nú til Kalifomíu í kjölfar aukinnar þekkingar fólks á hestakyninu og hæfni eigendanna. Auk þess vill fólk nú eiga fleiri hesta. Áhuginn sé svo mikill innan hópsins að þegar nýir íslenskir hestar era fluttir inn á svæðið fari flestir að skoða og heilsa upp á þá. Búið að ráða Agúst Sigurðsson AGUST Sigurðsson, doktor í kyn- bótafræðum, hefur tekið við starfi hrossaræktarráðunautar Bænda- samtaka Islands frá og með áramót- um. Agúst hefur verið í fullu starfi hjá Bændasamtökunum sem kyn- bótafræðingur og hefur annast út- reikninga á kynbótamati fyrir hrossaræktina og nautgriparæktina á undanfornum áram. Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtakanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að hér væri ekki um nýráðningu að ræða heldur færðust verkefni Agústs til. Ágúst myndi fyrst um sinn hafa aðsetur áfram á búi sínu á Kirkjubæ á Rangárvöllum, en óvíst væri um framhaldið. Aðspurður sagði Sigurgeir að Bændasamtökin myndu ásamt Ágústi og fagráði hrossaræktar fara yfir og ef til vill endurskipuleggja starfssviðið að einhverju leyti, t.d. með tilliti til hversu mikil þátttaka hrossaræktarráðunautar verður í kynbótadómum. Hins vegar er Ijóst að Ágúst verður í fararbroddi á því sviði. g, lausum fótstigum og Dual-Force hristingi Peir sem kaupa Playstation Racing Wheel fá 1 .OOO,- afslátt af hvaða Playstation bílaleik sem er. TEKUR ÞU TÖLVU A MicroSoft Precision Pro MicroSoft Game Pad Frábær í öllum Finn King'sQuGst8 Baldurs Gate Loksins er hann kominn! Frábær hlutverkaleikur. Leikur á 5 npiclaHidmml Nýjsti leikurinn f hinni klassfsku King's Quest seriu. Frábært ævintýri. f£ol cViu? s fyuU Populous lll Tomb Raider III pu leiKur guo og snýrð jaroar- búum til að trúa áþig og eyðir quðlevsinaium. Lara Croft í frábærum 3D skot- og ævintýraleik. ENEMY OF THE STATE MARGMIÐLUNARDISKUR Allir sem kaupa PC leik fá frábæran margmiðlunardisk um stórmyndina "Enemy of the State" sem sýnd er í Sambíóunum. Cl , Opið laugardag kl. 10:00-16:00 og sunnudag kl. 13:00 -17:00 BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444 BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarfirði • Sími 550 4020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.