Morgunblaðið - 08.01.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
i
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 47
stórt skarð í ykkar fjölskyldu. Minn-
ing um gott fólk lifir, fólk sem hefur
gert okkur öll ríkari við að hafa
fengið færi á að kynnast því og um-
gangast; fólk sem vildi öllum vel og
létgott af sér leiða.
Eg kveð þig elsku nafni, megir þú
hvíla í friði.
Guðlaug Sigurðardóttir.
Við andlát Guðlaugs frænda opn-
ast hugurinn fyrir minningar og
samverustundir liðinna ára. Minn-
ingar um góðan dreng sem var
gæddur eðlislægum Iéttleika, sem
hann notaði óspart, skop sem hann
gat sett fram á þann hátt að áheyr-
endur gengu óðar á vit glaðværðar
og gleði. Gulli gerði þetta á sinn sér-
staka hátt, aldrei var hallað á
nokkurn mann, heldur teknir þættir
úr hinu daglega lífi. Þegar vinir og
vandamenn komu saman gat Gulli
rökrætt af gamansemi og þó reynt
væri að hefja mótsögn gat það verið
all erfitt vegna orðheppni hans.
Hann hafði alltaf svar á reiðum
höndum og gat gert umræðuna enn
gamansamari og gat þá mörgum
orðið svarafátt. Þegar síldarbræðsl-
an í Þorlákshöfn var byggð bað yfir-
smiðurinn mig að útvega sér smiði
eða lagtæka menn. Eg útvegaði hon-
um þrjá menn og var Gulli einn af
þeim, þá ungur og með því fyrsta
sem hann fór að heiman. Þegar þeir
mættu var Gulli með gamla sög og
hamar og þegar ég innti hann eftir
því hvort ekki hefði verið betra að
koma með nýja sög hló hann og
sagði að góðir smiðir væru alltaf
með gömul verkfæri. Þegar bygg-
ingu verksmiðunnar lauk bað yfir-
smiðurinn þessa þrjá menn að koma
með sér í áframhaldandi verk á
Reykjavíkursvæðinu. Þann yngsta
taldi hann þó alveg sérstakan, því
hann hefði lag á því að hafa mann-
skapinn í góðu skapi og þá gengi allt
betur.
Það var athylgisvert að sjá hvað
Gulli hafði gott lag á börnum, jafn-
vel þótt hann þekkti þau lítið. Hann
tók þau í fangið og ræddi málin og
var þá grátur fljótur að hverfa fyrir
hlátri.
Gulli og Ninna reistu sér heimili á
Hvolsvelli, þar ræktuðu þau mjög
fallegan garð þar sem snyrti-
mennskan ber þeim fagurt vitni.
Þegar Selsættin fékk land í landi
Seljalandssels var Gulli á heima-
velli. Hann gróðursetti græðlinga af
heiman og ræktaði sinn blett þannig
að hann gæti verið vel sleginn og
trjábeðin nytu sín. Það var létt and-
rúmsloftið þegar hann var mættur
með fjölskylduna, konuna, dæturn-
ar þrjár og litlu prinsana sína tvo,
sem báru auðsjáanlega mikla virð-
ingu fyrir hinum stolta afa sínum.
Það var mikið áfall fyrir alla fjöl-
skylduna þegar ljóst var að Gulli
væri kominn með illvígan sjúkdóm,
sjúkdóm sem læknavísindin kynnu
engin svör við. í mörg ár háði hann
sína baráttu eins og honum var lag-
ið, þrátt fyrir þrautir og margt ann-
að sem þessu fylgir, var það honum
mikils virði að halda áfram sinni
vinnu. Gulli lést, langt um aldur
fram, þann 2. janúar sl.
Blessuð sé minning Guðlaugs
Friðþjófssonar.
Sigurður Helgason.
+
Útför mannsins míns,
ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR,
Engjavegi 77,
Selfossi,
er lést 3. janúar sl., fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 9. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aöstandenda,
Sjöfn Halldóra Jónsdóttir.
Móðursystir okkar,
ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
áður Egilsgötu 22,
andaðist á Landakotsspítala þriðjudaginn 29. desember síðastliðinn.
Útför hennar fór fram í kyrrþey.
Ellen og Helga Áberg.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARÍA DÓRÓTHE JÚLÍUSDÓTTIR,
er lést á heimili sínu laugardaginn 2. janúar,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 9. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Ingi Ólafsson,
Margrét Guðmundsdóttir Lange, William Lange,
Ósk M. Guðmundsdóttir, Páll Gíslason,
Ólafur H. Guðmundsson,
Einar S. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÖRN PÉTURSSON,
Hafnarstræti 47,
Akureyri,
lést á Kristnesspítala laugardaginn 2. janúar.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 11. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sundlaugarsjóð Kristnesspítala.
Ólöf Þóra Ólafsdóttir,
Ólafur Haukur Arnarson, Sigurlaug Alda Þorvaldsdóttir,
Hjördís Arnardóttir, Jón Grétar Ingvason,
afabörn og langafabörn.
+
Faðir minn, tengdafaðir og bróðir okkar,
GUÐBJÖRN WIUM HJARTARSON,
Flétturima 19,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 1. janúar
síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Áskirkju
mánudaginn 11. janúar kl. 10.30.
Að fá að vinna með Guðlaugi á
þriðja áratug eru forréttindi. Manni
sem var ætíð árrisull, hreinskilinn,
fastur fyrir en alltaf í góðu skapi,
ekki hvað síst ef etthvað var að veðri
og þurfti að atast í snjómokstri,
opna fjallvegi eða kíkja í Þórsmörk-
ina. Manni sem var svo leiftursnögg-
ur og hraður í tilsvörum að viðmæl-
endur stóðu höggdofa. Manni með
óbilandi kjark sem aldrei brást,
hvorki í átökum við náttúruöflin né
ólæknandi sjúkdóm. Sjúkdóm sem á
mörgum árum vann á skrokknum,
en fékk andann aldrei bugað. Slíka
mannkosti er ekki hægt að kaupa
með peningum og lærast ekki í há-
skólum. Kæri vinur, nú er komið
skarð í mannflóruveginn sem verður
vndfyllt. En minning um góðan
dreng lifir.
Aðstandendum vottum við dýpstu
samúð.
Ágúst Ánnann og Jón Smári.
Guðrún Wium Guðbjörnsdóttir,
Friðrik Þór Snorrason,
systkini og aðrir aðstandendur.
+
Elskulegur sonur minn, fóstursonur, bróðir og
dóttursonur,
KJARTAN MAGNÚSSON,
lést miðvikudaginn 6. janúar.
Björg Kjartansdóttir, Freysteinn G. Jónsson,
Þórður Á. Magnússon, Dorota Gil,
Ásta Margrét Magnúsdóttir,
Ásta Bjarnadóttir.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN EINARSSON,
Hofi,
Eyrarbakka,
lést á heimili sínu laugardaginn 2. janúar.
Útför hans fer fram frá Eyrarbakkakirkju laug-
ardaginn 9. janúar kl. 14.00
Hjördís Sigurðardóttir
Björgvin Konráðsson, Sigurbjörg Árnadóttir,
Jónína Konráðsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Konný B. Leifsdóttir, Einar Grétar Einarsson,
Hinrik Sigurjónsson,
Ólafur J. Sigurjónsson, Jessica Sigurjónsson,
Friðrik Sigurjónsson, Þuríður Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elsku maðurinn minn og faðir okkar,
FRIÐVIN JÓHANN SVANUR JÓNSSON,
Suðurbraut 3,
Hofsósi,
lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks að morgni
þriðjudagsins 5. janúar.
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir,
Elín Vilborg Friðvinsdóttir,
Heimir Örn Friðvinsson,
Valur Smári Friðvinsson,
Halldór Frosti Friðvinsson
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR,
dvalarheimilinu Seljahlíð,
áður Eskihlíð 12a,
lést miðvikudaginn 6. janúar.
Eysteinn Einarsson, Sigríður Sigurðardóttir,
Ásgeir Einarsson, Björg Sigurðardóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir, Jóhann G. Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar,
SIGURJÓNA MARTEINSDÓTTIR
frá Þurá í Ölfusi,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn
7. janúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Karítas Óskarsdóttir,
Svanborg Óskarsdóttir,
Þórir Óskarsson.
tr
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN BJARNASON,
er lést á heimili sínu laugardaginn 2. janúar,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðju-
daginn 12. janúar kl. 13.30.
Sólveig Maríusdóttir,
Matthildur Jónsdóttir,
Bjarni Jónsson,
Guðný Jónsdóttir.
+
BERGUR ÓSKARSSON,
Strönd,
Rangárvöllum,
lést á jóladag, 25. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjörtur Kristjánsson.