Morgunblaðið - 08.01.1999, Page 54
‘ 54 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Dýraglens
U-J-D
EN A NNAP EK. ÚRP j
' 'A TENINGONO/M
P.EGAR KtzMUIZ AÐ
r Sípusiy jo'la-
r k'nlt'l IMKIÍ I
Hundalíf
þaS t/esður efA/áam, n?e& /weijatT)
degifiarn sem ija<jr a2 ko/na,)
ser t vinnu/ta,
Veg/W' þess, ai effy fer
ekhC, mun, sá, hiruv sanu^.
Ferdinand
Smáfólk
YE5, MÁAM.. I 50LPMY
WHOLE COLLECTlON OF COMIC
BOOK5,.5EE?HEREl5THEMONEli/!
NOD, I CAN BUy TH05E 6L0VE5
FORTHATGIRLl LIKE...
i'vebeenshopping uiithmy
MOTHER..LOOK, r JU5T
Já, frú, ég seldi allt teikni-
myndabókasafnið mitt... Sérðu?
Hérna eru peningarnir! Nú get
ég keypt hanskana handa stelp-
Junni sem ég er hrifínn af...
Bjarni Kalla! Hvað ert þú að
Pála Jóna! gera hér?
Ég hef verið að versla með
mömmu minni... Sjáðu, ég
var að kaupa þessa hanska!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
HLUTI af sjókorti af Faxaflóasvæðinu frá 1788. Hér má sjá, að Grótta
er tangi út úr Seltjarnarnesi.
Tvö hundruð ár frá því
Grótta varð eyja
Frá Heimi Þorleifssyni:
NÆSTU nótt, aðfaranótt 9. janú-
ar, eru liðin 200 ár frá því að
Grótta á Seltjamamesi breyttist
úr nesi eða tanga í eyju. Petta
gerðist í miklu óveðri og sjávar-
flóðum, sem venjulega em kennd
við Bátsenda sunnan við Sand-
gerði, þar sem gamall verzlunar-
staður lagðist af. Veðri þessu er
lýst af Magnúsi Stephensen í
Minnisverðum tíðindum 18. aldar.
Þar segir, að veðrið hafí skollið á
skömmu eftir miðnætti nóttina
milli 8. og 9. janúar 1799 og verið í
fyrstu á sunnan, en vindur gekk
síðan til útsuðurs og loks til vest-
urs. Storminum fylgdi ofsaregn,
skmggur og leiftranir, og var „sem
himinhvelfingin þrykktist niður að
jörðunni". Stórstreymt var og því
gífurlegt brim og sjávargangur.
Rúmum áratug áður en þetta
ofsaveður skall á vom danskir sjó-
mælingamenn í Gróttu og töldu þá,
að liðlega þrír metrar væm milli
flóðafara á norðurtanganum. Ljóst
er af ýmsum heimildum, að tang-
inn hefur mjög rýmað á 18. öld.
Hefur hann þannig verið orðinn
æði mjósleginn þegar flóðin miklu
gengu yfír hann og bmtu hann nið-
ur. Og landbrotið varð víðar en í
Gróttu þessa nótt. Allar jarðir á
framanverðu Seltjamarnesi urðu
fyrir skemmdum og íbúar í Gróttu
og á Eiði urðu að yfirgefa heimili
sín. Sjór flæddi þvert fyrir Fram-
nesið innan við Lambastaði, þ.e.
nálægt núverandi mörkum Sel-
tjarnarnesbæjar og Reykjavíkur,
og var þar hvorki fært yfir hestum
né mönnum, að sögn Geirs Vídalíns
biskups, sem þá bjó á Lambastöð-
um. Auk skemmda af völdum sjáv-
arflóða urðu veralegar skemmdir á
húsum og bátum í naustum. Meðal
þeirra húsa sem fuku var kirkjan í
Nesi við Seltjöm, en hún fór „öld-
ungis um koll ofan að gmndvelli“
og dreifðist brak úr henni víðs veg-
ar um Seltjarnames.
HEIMIR ÞORLEIFSSON,
Seltjarnarnesi.
Hvað gera þingmenn
Austurlands fyrir okkur?
Frá Guðna Þór Elíssyni:
HVAÐ finnst hinum almenna kjós-
anda í Austurlandskjördæmi að
þingmennimir geri fyrir okkur?
Hugsi nú hver fyrir sig.
Hér á eftir koma mínar persónu-
legu ályktanir.
I dag eigum við fímm þingmenn,
þar af fjóra í ríkisstjórnarflokkum
og ættu þeir að vera valdamiklir.
Formaður Framsóknarflokksins
og utanríkisráðherra. Formaður
fjárlaganefndar, nefndarmaður í
fjárlaganefnd. Formaður Byggða-
stofnunar. Græningi? I nýjum
rauðgrænum flokki.
Við íbúar í Austurlandskjör-
dæmi eram vel settir með áhrifa-
menn, en mér finnst að við fáum
ekkert út úr þeim bara fyrir okkur.
Halldór hefur nóg að gera við að
stjórna landinu (og berjast við Ást-
þór).
Jón hamast við að skila halla-
lausum fjárlögum.
Egill stjómar Byggðastofnun.
Ambjörg gerir hvað?
Hjörleifur gerh- hvað?
Nú ættu þingmennimir okkar að
bretta upp ermarnar og gera eitt-
hvað bara fyrir okkur.
Hættið að tala um stóriðju og
virkjanir sem koma kannski og
snúið ykkur að mörgum minni mál-
um. T.d. flutningi á skipastól Haf-
rannsóknastofnunar til Reyðar-
fjarðar. 1. þrep: Nýja skipið verður
með heimahöfn á Reyðarfirði.
Ef þið þingmenn hjálpið okkur
ekki við þetta þá koma duglegir
þingmenn frá Norðurlandi og setja
þetta á Akureyri.
Páll Péturson hjálpaði Sauðár-
króki mikið, hann sér um sína.
Máltækið segir: Nýir vendir
sópa best.
I janúar verður prófkjör í Aust-
urlandskjördæmi hjá Sjálfstæðis-
flokknum. Ég ætla að velja Ólaf
vélstjóra frá Djúpavogi í 1. sætið,
það er komin tími til að fá vélstjóra
á þing.
Með von um að árið 1999 verði
gott fyrir okkur Austfirðinga.
GUÐNI ÞÓR ELÍSSON,
Fííúbarði 2, Eskifh’ði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.