Morgunblaðið - 08.01.1999, Síða 60

Morgunblaðið - 08.01.1999, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ *60 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 1 JOHN CARPENTER'S Ein vinsælasta mynd Carpenter’s „Briljantín og Bítlahár" á Blönduósi Dansleikur í kvöld með hlj ömsveit Mlagnúsar Kjartanssonar. Miðaverð 850 kr. Afmælisfagnaður í tilefni 50 ára afmælis André Backman verður fyrr um kvöldið. Arna og Stefán FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Jón Sigurðsson GUÐMUNDUR Karl Ellertsson í mikilli sveiflu og nýtur aðstoðar Ardísar Ólafar Víkingsdóttur og Hugrúnar Hallgrímsdóttur. Konur fengu í hnén og karlar urðu klökkir Blönduósi - Leikfélag Blönduós frumsýndi rokksýningu sem ber heitið „ Briljantín og bítlahár" í félagsheimilinu á Blönduósi á ann- an í jólum. Á frumsýningu komust færri en vildu en fyrirhugaðar eru fleiri sýningar yflr hátíðarnar. Þátttakendur í þessum sýningum er blómi tónlistarmanna á Blönduósi og rifja þeir upp tónlistarstemn- ingu áranna 1960 til 1980. Gífurleg stemmning ríkti í Félagsheimilinu og var ekki laust við að konur á fimmtugsaldri fengju í hnén þegar hin endurvakta „landsþekkta" hljómsveit Sveitó flutti Paul Anka lagið, „Diana“. Fleiri þekkt lög úr tónlistarsögu þessa tímabils mætti nefna sem bræddu hjörtu áheyrenda og létu þeir flytjendur svo sannarlega vita af því. Hafi einhver haldið að „gömlu“ rokkararnir væru út- brunnir og rykfallnir þá hefur það verið rækilega afsannað og þessi "! sýn- ing sýndi það ennfremur að framtíðin er björt á þessu sviði því unga fólkið stóð sig með stakri prýði. Heilsteypt plata STJÖRNUBÍÓ FRUMSÝNING Blóðsugur John Carpenter s JAMES WOODS FYRSTA HROLLVEKJA ÁRSINS Frá meistara hrollvekjunnar kemur ný tegund hins illa. TOJVLIST Geisladisknr SECOND 1 Geisladiskur Dead Sea Apple. Sveit- ina skipa Addi Dodd, Carl Johann Carlsson, Hannes Heimir, Steinarr Logi Nesheim og Haraldur Vignir. 011 lög og textar eru eftir meðlimi sveitarinnar. DSA records gefur út og dreifir. DEAD SEA APPLE er ein þeirra sveita sem herjað hafa á erlendan mai'kað og ein fárra sem reynt hafa við þann bandaríska. Hún gaf nýver- ið út aðra geislaplötu sína sem ber einmitt nafnið Second 1. Fyrir nokki'um árum var rokkið talið feigt fyrirbæri, að raftónlist og popp væri að taka yfír endanlega, rokksveitum í þyngri kantinum fækkaði enda, en rokkið hefur þó hingað til verið ódrepandi og sækir í sig veðrið um þessar mundir heldm' en hitt. Dead Sea Apple leikur þungt rokk, minnir á stundum á sveitir eins og Seattle-sveitina Alice in Chains og samlíking við hina sálugu Jet Black Joe er óumflýjanleg. Rokkið sem sveitin leikur er sérbandarískt fyrh'bæri í raun, mjög í ætt við gamla þungarokkið og er því ekki að undra að meðlimir líti til vöggu þess- arar tónlistar, íslenskur markaður er a.m.k. allt of lítill fyrir þessa tegund tónlistar líkt og flestar aðrar tónlist- artegundir. Geislaplatan telur ellefu lög í svipuðum stíl, gítarinn er alls- ráðandi auk raddar, rokkið er þó Morgunblaðið/Kristinn Hljómsveitin Dead Sea Apple. ekki af þyngstu gerð, oft hefur raf- magnaðri tónlist heyrst, hljóðgervlar koma einnig við sögu sem og óraf- magnaðir gítarar. Textasmíðai' og allur texti á umslagi era á ensku, enda er geislaplatan líklega að miklu leyti ætluð tO kynningar erlendis. Dead Sea Apple er metnaðai-full hljómsveit eins og fram hefur komið og endurspeglast það á Second 1, all- ur hljóðfæraleikur er til fyrirmynd- ar. Sveitin er þétt og flestar laga- smíðar vel úthugsaðar, einkum er gítarsamspil vel heppnað en gítar- leikur er auðvitað aðal slíkrar tón- listar og til lítils að halda úti rokk- sveit ef gítarleikurinn væri hráka- smíð. Allar útsetningar eru fag- mannlega af hendi leystar og nær hnökralausar, lagasmíðai'nar eru þó ekki frumlegar, uppbygging þeirra og útfærslur flestar hafa heyrst áðm' og ekki er hægt að nefna nein ein- stök dæmi því þetta er nær algilt. Sveitin hefur þó skapað sér sinn eig- in stíl, aðallega í hljóm og raddsetn- ingu, þótt annar söngvari sveitarinn- ar minni á stundum á söngvara hljómsveitarinnar bandai'ísku Off- spring. Best heppnuðu lögin á geislaplötunni eru lögin 1 hit, Wa- sted sem er úrvals rokklag og Rock on a Subway Track hvar kveður við annan tón í lagasmíðum með brassi og rólegri stemmningu. Dead Sea Apple tekst best upp í hörðustu lögum plötunnar en ekki vel í hægari lögum, þar á meðal eru lögin Tasmania og Turn it Around sem hefst svo „Can this be better th- an before / in the eold ashes of this war / is this a life we choose / or a hangmans noose“. Texti lagsins er sá versti á plötunni auk þess sem ball- öður eiga vart við í dag, ekki á rokk- plötum a.m.k. Hljómur á plötunni er heldur ekki sannfærandi, kannski er ófullkomnu hljóðveri um að kenna en hann er holur og ekki nægilega þétt- ur. Umslag geisladisksins er hins vegar ágætt, þótt það sé nokkuð líf- laust. Dead Sea Apple gerir sitt besta og tekst oft vel upp. Þar er á ferðinni metnaðarfull hljómsveit sem á fullan rétt á sér, en tónlist hennar er þó tónlist fárra og ekki vænleg til vinsælda hér á landi. Það er þó auka- atriði ef tónlistin er gerð af metnaði og áhuga frekar en gróðahugsjón. Gísli Árnason Þessi glænýja hrollvekja meistarans er: blóðug, ruddaleg, gróf, erótísk, ofsafengin og töff rétt eins og aðdáendur Carpenters vilja hafa hana. James Woods sem málaliði Vatíkansins þarf á öllum sínum kröftum að halda því hann þarf að kljást við 600 ára gamia vampíru og aðra liðsmenn hins illa. ATH! Myndin er stranglega bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Undirbúðu þig fyrir dögun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.