Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913
30. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Beðið var eftir tilkynningu um andlát Husseins, konungs Jórdaníu
.. Reuters
FJOLDI manna safnaðist saman í gær við sjúkrahúsið þar sem Hussein liggur og bað fyrir honum.
herra ísraels, sagði í gær, að allir
ísraelar bæðu fyrir honum.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sagði hann „mikinn leiðtoga,
sem áunnið hefði sér virðingu alls
heimsins".
Pótt Hussein væri orðinn mjög
sjúkur, rétti hann Bill Clinton
hjálparhönd við Wye-samningana
milli Israela og Palestínumanna í
október sl. en síðan hafa Israelar
frestað framkvæmd þeirra. Mun
dauði Husseins auka enn á óviss-
una um framtíð samkomulagsins
og raunar um þróunina í Miðaust-
urlöndum.
Vandfyllt skarð
Shimon Peres, sem var utanríkis-
ráðherra Israels er hann undirritaði
ásamt Hussein friðarsamninga milli
landanna 1994, sagði í gær, að hann
byggist við, að Abdullah myndi feta í
fótspor foður síns sem baráttumaður
fyrir friði. Hann sagði þó, að erfitt
yrði að fylla það skarð, sem Hussein
léti eftir sig. „Hann hefur ekki að-
eins verið þjóð sinni eins konar foð-
urímynd, heldur okkur öllum.“
Fjöldi manna beið fyrir utan
sjúla-ahúsið í Amman í gær og bað
fyrir Hussein. „Við getum ekki ver-
ið heima þegar hann er sjúkur og
hjörtum okkar blæðir," sagði einn
þeirra. „Ef gráturinn gæti hjálpað
myndum við breyta strætunum í
ólgandi fljót.“
Búist er við, að allt að 40 þjóðar-
leiðtogar muni fylgja Hussein til
grafar.
■ Reyndasti leiðtogi/42
Meðvitundar-
laus og ekki
hugað líf
Amman. Reuters.
FJÖLSKYLDA Husseins, kon-
ungs Jórdaníu, var við sjúkrabeð
hans í gærkvöld en þá hafði hann
verið úrskurðaður „læknisfræði-
lega látinn“. Er hjarta hans haldið
gangandi með tækjum en haft er
eftir heimildum, að fjölskylda hans
hafi tekið ákvörðun um að taka
þau ekki úr sambandi. Margir
þjóðhöfðingjar og aðrir frammá-
menn víða um heim vottuðu í gær
fjölskyldu hans og jórdönsku þjóð-
inni samúð sína vegna yfirvofandi
andláts þessa friðflytjanda eins og
hann hefur verið kallaðurj jafnt
meðal gyðinga sem araba. I 47 ár
hefur hann verið tákn festu og
stöðugleika í því umróti, sem ein-
kennt hefur arabaríkin, og mun
dauði hans ekki aðeins valda
óvissu í landi hans, heldur einnig í
öllum þessum heimshluta.
Fjölskylda Husseins, þar á meðal
Noor drottning og synir hans, var á
sjúkrahúsinu en samkvæmt heim-
ildum var ágreiningur um siðferði-
legar hliðar þess að taka úr sam-
bandi tækin, sem héldu við
hjartslættinum. Vegna þess hefði
verið ákveðið að gera ekkert og
bíða heldur hins óhjákvæmilega.
Hussein hefur barist við krabba-
mein um sjö mánaða skeið og hefur
verið reglulega til meðferðar í
Bandaríkjunum. Gekkst hann þar
undir beinmergskipti fyrr í vikunni
en þegar ljóst var, að þau myndu
ekki bera árangur var hann fluttur
heim í gær að eigin ósk til að deyja.
Jórdanskir stjórnmálamenn og yf-
irmenn öryggismála komu saman í
gær til að skipuleggja útförina en
einnig hefur öryggisgæsla í landinu
verið hert til að tryggja, að valda-
skiptin fari vel fram. Við af Hussein
tekur sonur hans, Abdullah, 37 ára
gamall.
„Dásamlegur maður“
Þjóðarleiðtogar víða um heim
fóru í gær fógrum orðum um
Hussein, sem lifað hefur af 12
banatilræði, stríð og valdaránstil-
raunir og ávallt verið sem klettur í
hafínu þótt hann hafi ekki alltaf
verið í náðinni, hvorki hjá sinni eig-
in þjóð, öðrum arabaríkjum né á
Vesturlöndum.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, kallaði Hussein „dásamlegan
mann, baráttumann fyrir friði“ og
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
Viðræður um Kosovo eiga að hefjast í Frakklandi í dag
Illa horfir með friðarferlið á N-írlandi
Serbar neita að ræða
við fulltrúa KLA
París. Reuters.
Reuters
ÞÚSUNDIR Albana gengu um götur Tirana, höfuðborgar Albaníu, í
gær til að Iýsa yfir stuðningi við þjóðbræður sína í Kosovo. Skoraði
fólkið á NATO að tryggja réttindi þeirra með vopnavaldi.
Ofgahópar
sagðir undirbúa
ódæðisverk
London. Reuters.
VIÐRÆÐUR serbneskra embætt-
ismanna og fulltrúa albanska meiri-
hlutans í Kosovo eiga að hefjast í
dag í kastala skammt fyrir utan
París en aðalsamningamaður Serba
sagði í gær, að ekki yrði rætt við
fulltrúa KLA, Frelsishers Kosovo,
sem hann kallaði „hryðjuverka-
menn“.
Ratko Markovic, aðalsamninga-
maður Serba, sagði í gær í París, að
þeir myndu ekki ræða við „hiyðju-
verkamenn“, hvorki beint né með
milligöngu sáttasemjara. Kvaðst
hann þá eiga við fulltrúa KLA.
„Vesturlönd geta ekki neytt neitt
ríki til að semja við hryðjuverka-
menn og við erum reiðubúnir að taka
afleiðingunum," sagði Markovic.
Viðræður í uppnámi?
Serbar neituðu í gær fulltrúum
KLA um að fara með öðrum í
nefndinni frá Kosovo til Parísar og
báru því við, að þeir hefðu ekki skil-
ríki. Akváðu þá aðrir í nefndinni að
vera um kyrrt í Pristina, höfuðstað
Kosovo. Christopher Hill, fulltrúi
Bandaríkjastjómar, og aðrir full-
trúar vestrænna ríkja hafa mót-
mælt þessu harðlega og fáir vilja
trúa því enn, að Serbar ætli sér að
spilla viðræðunum áður en þær
hefjast.
Samkvæmt tillögu stórveldanna
munu Kosovo-Albanir fá sjálfstjórn
í þrjú ár en ekki fullt sjálfstæði eins
og þeir hafa krafist. Serbar hafa
hins vegar vísað á bug tillögu um að
30.000 manna herafli NATO-
ríkjanna gæti friðarins í þennan
tíma.
Viðræðumar í Rambouillet verða
fyrir luktum dyrum og með líku sniði
og viðræðumar í Dayton í Ohio, sem
bundu enda á Bosníustríðið. Hafa
deiluaðilar fengið tveggja vikna frest
til að komast að samkomulagi.
BRESKIR ijölmiðlar greindu frá
því í gær að lögreglulið á megin-
landi Bretlands væri í viðbragðs-
stöðu vegna hættunnar á því að
öfgahópar kaþólikka á Norður-ír-
landi efndu til ódæðisverka þar á
nýjan leik, jaftivel í miðborg
London. Var því haldið fram að yfir-
lýsing Irska lýðveldishersins (IRA)
í fyn-adag, um að klofningshópar
hefðu stolið vopnum frá IRA,
merkti í raun að IRA reiknaði með
að þessum vopnum yrði beitt á allra
næstu dögum eða vikum.
Mikil undiralda er nú í friðar-
ferlinu á N-írlandi og hefur fjöldi
ódæðisverka síðustu vikurnar ver-
ið til marks um það. Nokkur
minniháttar sprengjutilræði hafa
verið framin, án þess þó að nokkur
hafi særst alvarlega, svokallaðar
„refsibarsmíðar" hafa aukist og
jafnframt vakti morðið á IRA-
uppljóstraranum Eamon Collins í
síðustu viku menn til vitundar um
að friður væri langt frá því að vera
í höfn á N-írlandi.
Var jafnvel haft eftir ónefndum
fulltrúa bresku leyniþjónustunnar
að ekki væri útilokað að IRA
myndi binda enda á vopnahlé sitt,
sem varað hefur frá því í júlí 1997.
Martin McGuinness
svartsýnn
Afvopnun öfgahópanna er sem
fyrr það vandamál sem helst gerir
lýðveldissinnum erfitt fyrir en
sambandssinnar vilja ekki hleypa
Sinn Féin, stjómmálaanni IRA, í
heimastjómina fyrr en IRA byrjar
afvopnun. Sagðist Martin McGu-
inness, aðalsamningamaður Sinn
Féin, í viðtali við The Guardian í
gær alls ekki getað beðið IRA um
að afvopnast, allra síst nú þegar
blikur væm á lofti.
Munu öfgahópar sambandssinna
einnig hafa verið á ferli að undan-
fömu og sagðist David Ervine,
leiðtogi PUP-flokksins, stjórn-
málaarms UVF-samtakanna, við-
búinn hinu versta. „Næstu sjö dag-
ar gætu orðið afar örlagaríkir.“