Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 10

Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 10
10 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra afhendir Sigurbergi Sveinssyni, verslunareiganda Fjarðarkaupa, og Ragnheiði Pétursdótt- ur Melsteð, eiginkonu Magnúsar Scheving, viðurkenningarnar. Viðurkenningar á Tannverndardegi Rætt um að fjölga borgarráðs- fulltrúum úr fímm í sjö Vísað til ann- arrar umræðu í borgarstjórn Prófkjör á Suðurlandi Tíu bjóða sig fram TÍU bjóða sig fram í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins á Suðurlandi en það fer fram í dag, laugardag. Kjörstöð- um verður lokað klukkan 20 í kvöld og atkvæði talin á Selfossi þegar öll kjörgögn hafa borist þangað. Jón Örn Arnarson, formaður yfírkjör- stjórnar, vonast til að unnt verði að byrja talningu upp úr miðnætti og að úrslit liggi fyrir um klukkan hálftvö um nóttina. Eftirtaldh' frambjóðendur eru í kjöri, í sömu röð og á prófkjörsseðli: Þórunn Drífa Oddsdóttir, Stein- grímsstöð, Grímsnes- og Grafnings- hreppi; Kjartan Þ. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri, Hlöðutúni, Ölfusi; Arni Johnsen, alþingismaður, Vest- mannaeyjum; Kjartan Bjömsson, rakari, Selfossi; Kristín S. Þórarins- dóttir, hjúkrunarforstjóri, Þorláks- höfn; Ólafur Björnsson, lögfræðing- ur, Selfossi; Víglundur Kristjánsson, hleðslumeistari og vektaki, Hellu; Óli Rúnar Ástþórsson, fram- kvæmdastjóri, Selfossi; Drífa Hjart- ardóttir, bóndi, Keldum, Rangár- vallahreppi, og Jón Hólm Stefáns- son, bóndi, Gljúfri, Ölfusi. Atkvæðisrétt eiga allir félags- bundnir sjálfstæðismenn í Suður- landskjördæmi, sem þar eru búsettir og hafa náð 16 ára aldri á prófkjörs- daginn. Einnig þeir, sem skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn á prófkjörsdag- inn, en þeir þurfa að hafa náð 18 ára aldri við alþingiskosningamar í vor. Auk þess þeir stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í kjördæminu við kosn- ingarnar og undirrita stuðningsyfir- lýsingu við Sjálfstæðisflokkinn sam- hliða þátttöku í prófkjörinu. Kjörstaðir verða um allt Suður- landskjördæmi. A öllum stærri stöð- unum eru þeir opnir frá 10 til 20 en á minni stöðunum er opnað síðar. MAGNÚSI Scheving og Fjarðar- kaupum voru í gær veittar viður- kenningar fyrir að hafa stuðlað að bættri tannheilsu þjóðarinnar. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, afhenti viðurkenningarnar fyrir hönd Tannverndarráðs í tilefni af Tannverndardeginum í Fjarð- arkaupum í gær. Fjarðarkaup hlutu viðurkenn- inguna fyrir að hafa ekki sælgæti við kassana, en þá reglu hefur verslunin haft í 25 ár. í fréttatil- kynningu segir að sælgæti við búðarkassa geti vakið upp vonir og freistingar barna og unglinga, sem bíða eftir að foreldrar þeirra fái afgreiðslu. Magnús fékk viðurkenninguna fyrir að hafa verið góð fyrir- mynd barna og unglinga. Fyrir- lestrar hans, leikritið Latibær og fjölskylduspilið Latador hafa haft það meginmarkmið að stuðla að heilnæmu líferni barna og unglinga. í fréttatilkynningu segir: „Tannskemmdir eru enn al- gengari hér en í nágrannalönd- unum. Það hve erfiðlega geng- ur að fækka tannskemmdum hefur eflaust fleiri en eina skýr- ingu. Neysla sætinda skiptir án efa mestu máli, en hver Islend- ingur borðar að jafnaði um 16 kg af sælgæti og drekkur um 131 lítra af gosdrykkjum á ári enda eru víða úti á landi einn söluturn á hverja 200 íbúa og í Reykjavík er hlutfallið einn á móti 500.“ SAMÞYKKT var í borgarstjórn á fimmtudag að vísa til annarrar um- ræðu tillögu borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans þess efnis að fjölgað verði um tvo fulltrúa í borg- arráði. Við fyrri umræðuna lýstu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins sig mótfallna þessari fjölgun. Síðari umræða fer fram á næsta borgarstj órnarfundi. Helgi Hjörvar, borgarfulltmi Reykjavíkurlistans, mælti fyrir tillögunni en hún er til komin vegna úrskurðar félagsmálaráðu- neytisins þess efnis að það sé hlut- verk formanns borgarráðs að stjórna fundum. Hugmynd borg- arfulltrúa Reykjavíkurlistans er að kjörnir verði sjö menn í borgar- ráð í stað fimm eins og nú er. Það myndi þýða að borgarstjóri yrði einnig kjörin í borgarráð sem fjórði maður Reykjavíkurlistans. Sjálfstæðismenn myndu fá einn fulltrúa til viðbótar við þá tvo sem fyrir eru. Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, lýsti andstöðu sinni við tillöguna og lagði fram bókun þar sem segir m.a. að tillaga meirihlutans séu viðbrögð við úrskurð félagsmála- ráðuneytis um fundarstjóm borg- arstjóra í borgarráði. „Meirihlut- inn velur þann kost að fjölga borg- arráðsfulltrúum til að kjósa borg- arstjóra inn í borgarráð í stað þess að hann taki sæti eins hinna þriggja núverandi fulltrúa Reykja- víkurlistans. I þessum efnum eins og öðrum er niðurstaðan sú sama, að þenja út báknið. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru mótfallnir fjölgun fulltrúa í borgarráði." Til að koma í veg fyrir argaþras og málavafstur í bókun sem Ingibjörg Sólrán Gísladóttir borgarstjóri lagði fram um málið segir meðal annars: „Ur- skurðurinn var þeim annmarka háður að hann tók ekki á því efnis- atriði sem um var deilt. Til að koma í veg fyrir frekara argaþras og málavafstur kýs meirihlutinn að taka af öll tvímæli um rétt borgar- stjóra til að stjóma fundum borg- arráðs. Samhliða hefur þess verið farið á leit við félagsmálaráðuneytið að það beiti sér fyrir breytingu á fjórðu málsgrein 38. greinar sveit- arstjómarlaganna svo ekki þurfi að deila um túlkun hennar. Það er hins vegar afar athyglisvert að sjálfstæðismenn skuli telja að fjölgun í borgamáði um einn full- tráa úr þeirra hópi feli í sér sér- staka og ógnvekjandi útþenslu á bákninu." Jón Ólafsson um uppbyggingu nýrra íbúða- og atvinnusvæða í Arnarneslandi Mikil eftirspurn, en óljóst verð á lóðum Nýtt hverfí á að rísa á austanverðu Arnarnesi á næstu árum. Spurn- ing er hvað lóðir þar munu kosta og veltir Jóhannes Tómasson fyrir sér verði og hvernig uppbyggingu á svæðinu verður háttað. UPPBYGGING á nýju hverfi á aust- ari hluta Amarness í Garðabæ, þ.e. bæði sunnan og norðan hæðarinnar, stendur nú fyrir dyrum eftir að Jón Olafsson keypti landið. Skipulag á syðri hluta svæðisins gerir ráð fyrir 384 íbúðum í fjölbýli og einbýli og á nyrðri hlutanum er einkum gert ráð fyrir þjónustu og léttum iðnaði en nokkrum íbúðum einnig. Kaupverð á Amarneslandi hefur ekki verið gefið upp og er samkomu- lag um það milli seljenda og Jóns Olafssonar, eiganda Skífunnar, að láta það liggja í þagnargildi. Varpað hefur verið fram tölunni 700 milljón- ir króna fyrir þá 44 hektara sem um ræðir. Suðursvæðið er um 34 hekt- arar og út frá 700 milljóna króna kaupverði má gera ráð fyrir að það hafí kostað um 540 milljónir. Sé því deilt á 384 íbúðir koma um 1.400 þúsund krónur á íbúð en gera verð- ur ráð fyrir að einbýlishúsalóðir yrðu seldar á talsvert hærra verði, jafnvel tvöföldu. Sé bætt við um 2,9 milljónum í gatnagerðargjald er heildarverð einbýlishúsalóðar farið að halla í 6 milljónir króna. Það er nærri tvöfalt hærra lóðaverð en lengstum hefur tíðkast í Garðabæ. Sé kaupverð landsins hins vegar umtalsvert lægra verður minni verð- munur á lóðum sem bærinn hefur til ráðstöfunar og lóðum úr Arnames- landi. í framhaldi af þessu má velta fyr- ir sér hvort mikil hækkun á lóða- verði muni ekki hafa einhverjar af- leiðingar fyrir samfélagið til fram- búðar. Hvað með bygginga- og framfærsluvísitölur og áhrif þeirra á fjölmargt í verðlaginu? Verða þessi heildaráhrif jákvæð eða nei- kvæð? Enn má varpa fram þeirri spurningu hvort og hvernig fast- eignamat landsins breytist nú þegar nýting þess er framundan. Þegar hafa 70 aðilar lýst áhuga Jón Ólafsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann óttaðist ekki að geta ekki selt lóðirnar þótt þær yrðu hugsanlega eitthvað dýr- ari en lóðir sem bærinn býður fram miðað við þær undirtektir sem hann hefur fengið. Kringum 70 manns hafa haft samband við hann síðustu daga, einstaklingar og fulltráar verktaka og fyrirtækja sern lýst hafa áhuga á lóðakaupum. „Eg ótt- ast ekki undirtektirnar því ef ég vildi hefja sölu lóðanna strax sýnist mér ég geta lokið henni á nokkrum vikum,“ sagði Jón. Hann sagði næstu vikur fara í það að ræða nánar við bæjaryfirvöld, setja fram áætlun um uppbygging- una og leggja hana formlega fyrir yfirvöld. Kvaðst hann búast við góðri samvinnu við bæjaryfirvöld og ekki eiga von á neinum vandamál- um. Hraði uppbyggingarinnar myndi ráðast af sölu einstakra lóða en hann kvaðst ekki geta sagt á þessari stundu hvort hverfið myndi byggjast hratt upp, kannski á næstu tveimur eða þremur árum eða á ára- tug eða lengri tíma. ' Þá sagði Jón Ólafsson einnig óráðið hvort þess yrði freistað að ná fram fleiri íbúðum en 384 á suður- svæði Ai-nameslands sem þegar hefur verið gert ráð fyrir í skipulagi svæðisins. Hann sagði norðurhlut- ann enn óskipulagðan og því óráðið hversu margar lóðir yrðu þar og hvernig þær skiptust. Ibúar Garðabæjar eru nú tæplega 7.900 og má gera ráð fyrir um 1.300 nýjum íbúum í hinu nýja Arnarnes- hverfi þegar suðurhluti þess verður fullbyggður. Það þýðir 16% aukn- ingu en spurning er á hversu löng- um tíma það gerist. Bæjaryfírvöld Garðabæjar hafa síðasta áratuginn stýrt uppbyggingu bæjarins þannig að til úthlutunar hafa verið kringum 50 íbúðir á ári og nægt framboð er framundan. Eirík- ur Bjarnason bæjai’verkfræðingur segir það þægilegan hraða, þá geti bæjaryfírvöld fylgt jafnt og þétt eft- ir með uppbyggingu á nauðsynlegri þjónustu. Hægt er að ímynda sér að bæði bærinn og fjárfestar Arnarnes- lands bjóði fram lóðir á næstu árum og er hugsanlegt að samkomulag takist um að bærinn bjóði fram 20-30 lóðir og að annar eins fjöldi verði boðinn í Arnarneslandi. Það myndi þýða að það tæki um 15 ár að úthluta þeim 384 íbúðum sem þar eru. Bæjaryfirvöld vilja bjóða fram lóðir sem valkost á móti Arnarnes- landinu, lóðir sem trálega yi’ðu ódýrari en þar bjóðast. Trálegt er að fjárfestar í Arnar- neslandi vilji fá fjárfestingu sína til baka á skemmri tíma en 15 árum og að því megi búast við mun hraðara framboði en bæjaryfirvöld kjósa. Áhrif af hraðari fjölgun íbúa yrðu einkum skarpari toppar í leikskólum og skólum bæjarins. Skólar í Garða- bæ eru þegar einsetnir og ætla bæj- aryfirvöld sér að vera búin að út- rýma biðlistum leikskóla í síðasta lagi á næsta ári. Ekki þarf að reisa nýjan skóla fyrir væntanleg böm í Árnarneslandinu, þau myndu sækja Hofsstaðaskóla. Samvinna bæjaryfirvalda og fjárfesta Eiríkur Bjarnason segir nauðsyn- legt að ná samvinnu milli bæjaryfir- valda og þeirra sem komi til með að byggja upp Arnarneslandið og myndu aðilar ræða saman á næst- unni með opnum huga. Gera megi ráð fyrir að landið yrði byggt upp í þremur áfóngum, að íbúðum yrði út- hlutað í samræmi við það og götur lagðar í samhengi við greiðslu gatnagerðargjalda. Benti Eiríkur á að óhentugt væri fyrir bæinn að leggja í fjárfestingu í nýjum hverf- um áður en lóðum væri úthlutað og gatnagerðargjöld fengjust greidd. Nefndi hann sem dæmi að enn væri óráðstafað um 10% lóða á vestari hluta Arnarness en fasteignagjöld af húsum sem þar gætu átt eftir að rísa yrðu kringum fjórar milljónir króna á ári. Sé málið skoðað í víðu samhengi má telja það kost að hefja nú upp- byggingu og nýtingu á þessu svæði sem skipulagt hefur verið sem íbúða-, þjónustu- og að nokkru sem atvinunnusvæði. Það er vel í sveit sett hvað varðar samgöngur um allt höfuðborgarsvæðið þjóðfélagslega hagkvæmara og kostnaðarminna að nýta svæði sem þetta í stað þess að þurfa að dreifa byggðinni enn meira. Má því vænta þess að framundan sé röskleg uppbygging á landi sem vaxið hefur að verðmæti nú þegar hreyfing er komin á nýja nýtingu þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.