Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 32

Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 32
32 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ KONUR OG STJÓRNMÁL íslenskar konur vilja auka hlut sinn í stjórnmálum Fullur helming- ur lands- manna íslenskar stjórnmálakonur vilja rjúfa gler- þakið, sem hefur valdið því að þær eru enn minna en 30% þingmanna, eftir að þeim fjölgaði hratt á tímabili. Ragnhildur Sverr- isdóttir ræddi við konur, sem hafa sjálfar staðið í eldlínu stjórnmálanna og fjallar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum. VÉR konur erum fullur helmingur lands- manna. Vér erum full- ur helmingur kjós- enda. Það erum vér, sem berum undir brjósti og ölum upp kynslóðina, sem taka skal arf- inn að oss látnum. Vér getum því eigi verið skeytingarlausar um það, hvemig sá arfur verður. Hvemig landi voru og þjóð verður skilað í hendur þeima, er koma eftir vom dag.“ Með þessum orðum hvöttu kon- ur kynsystur sínar til að styðja sér- stakan kvennalista við alþingis- kosningar árið 1922. Nógu margar konur svömðu kallinu til að koma efsta frambjóðanda listans, Ingi- björgu H. Bjarnason, inn á Alþingi, fyrstri kvenna. A því sama þingi eru konur nú, 77 ámm síðar, rúm- ur fjórðungur þingmanna. Þeim fjölgaði umtalsvert í kjölfar fram- boðs sérstaks kvennalista, annars í röðinni, árið 1983, eða úr 5% þing- manna í 15% og nú leggja allir stjórnmálaflokkar aukna áherslu á hlut kvenna í stjómmálum. Fyrir sveitarstjórnarkosning- arnar sl. vor var hmndið af stað þverpólitísku verkefni að fram- kvæði Jafnréttisráðs undir kjör- orðinu „Sterkari saman“. Eftir kosningamar 1994 vora konur 25% fulltrúa í sveitarstjórnum, en eftir síðustu kosningar er sú tala komin í 29%. Átakið leið þó fyrir að ekki vora háar fjárhæðir til ráð- stöfunar. Elín R. Líndal, formaður Jafnréttisráðs, lýsti því yfír að þörf væri á enn sterkara og víð- tækara átaki. I nóvember sl. var skipuð nefnd sem ætlað er að auka hlut kvenna í stjórnmálum. Allir flokkar standa að nefndinni, auk fulltrúa Jafnrétt- isráðs og Kvenréttindafélags Is- lands. í gi-einargerð með þings- ályktunartillögunni um skipan nefndarinnar er vísað til þess, að stjórnmálakonur annars staðar á Norðurlöndum telji að þverpóli- tískar aðgerðir, sem skipulagðar voru þar upp úr áttunda áratugn- um til að benda á mikilvægi þátt- töku kvenna í stjómmálum, hafí haft afgerandi áhrif á hve hlutur kvenna í stjómmálum lagaðist á þessum áram. Nefndin vakti strax athygli með auglýsingaátaki, þar sem leiðtogar stjórnmálaflokka vora sýndir í óvenjulegu ljósi; forsætisráðherra með háhælaða kvenskó, fulltrúi Kvennalistans á karlaklósetti o.s.frv. Skoðanir vora skiptar um auglýsingaherferðina, en hún náði tvímælalaust augum landans og vakti athygli á störfum nefndar- innar, auk þess sem hún undii'- strikaði að allir forystumenn flokkanna styddu átakið. Undan- farið hefur nefndin birt sjónvarps- auglýsingar, þar sem lögð er áhersla á slagorðið: „Ef þú velur ekki fulltráa þinn mun einhver annar velja fulltráa sinn sem full- tráa þinn.“ Þær konur, sem staðið hafa í eld- línu stjómmálanna undanfarin ár, eru sammála um að umtalsverð viðhorfsbreyting hafi átt sér stað. Nú heyra þær ekki lengur raddir um að konur eigi ekki erindi í stjórnmál. Þær segja hins vegar að langur vegur sé þar til konur standa þar jafnfætis körlum og að það gerist ekki af sjálfu sér. Ef hugur fylgi máli hjá flokkunum hljóti staðan þó að batna. Þær era ekki sammála um hvort ástæða sé til að setja „kvóta“ á konur í störf- um innan flokkanna og á framboðs- listum og þær era ósáttar við að oft sé litið á konur sem „fulltráa kvenna“ á framboðslistum, þar sem nægilegt sé að hafa eina til tvær til að hlýða kalli tímans, á meðan karlar á sömu listum fái óá- reittir að njóta sín sem fulltráar sjómanna, bænda, verslunai-manna o.s.frv. Þó telja þær að breytingar á þessu sé helst að sjá í sveitar- stjórnum, þar sem konur séu í æ ríkari mæli fulltrúar í krafti þátt- töku sinnar í félagsmálum og at- vinnumálum staðarins, en ekki vegna langra starfa innan flokk- anna. Þær fari því inn á sömu for- sendum og karlarnir, sem veki oft fyrst athygli fyrir störf sín og hafí í framhaldi af þeim afskipti af mál- efnum sveitarfélagsins. Jöfn þátttaka er lýðræðismál Nefndin, sem hefur það hlutverk að auka hlut kvenna í stjórnmálum, hefur gert víðreist undanfarið og blásið til funda í flestum kjördæm- um og mun funda í þeim öllum fyr- ir kosningar í vor. Konur hafa tekið starfi nefndarinnar vel og margir karlar líka. Það styrkir tvímæla- laust störf nefndarinnar að allir flokkar stóðu að samþykkt þingsá- lyktunartillögunnar um stofnun hennar, sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður nefndarinnar, mælti fyrir. Siv segir enda ljóst að al- menningur skynji að jöfn þátttaka karla og kvenna í stjórnmálum sé lýðræðismál. Það hafi komið skýrt fram í skoðanakönnun, sem unnin var á vegum skrifstofu jafnréttis- mála í samvinnu við Gallup á síð- asta ári, þar sem 80% aðspurðra sögðust vilja auka hlut kvenna í stjórnmálum, eða 92,5% þeirra sem afstöðu tóku. Meirihlutinn, 53%, lýsti sig fylgjandi sérstöku átaki stjómmálaflokkanna til að ná því markmiði. „Flokkarnir bera mikla ábyrgð í þessu máli, því þeir hafa verið tregir til að taka það föstum tök- um,“ segir Siv Friðleifsdóttir. „Stjómmálastarfið miðast við karla og kjördæmaskipanin hefur gert konum erfíðara að komast að. Fáir komast inn af hverjum lista og þeir sem hafa þegar markað sér sess standa sterkar að vígi. Það era oft- ast karlmenn. Konur hafa frekar komist inn af listum í Reykjavík og Reykjanesi. Ef landið væri eitt kjördæmi, þá væri staðan allt önn- ur. Sjálfstæðisflokkurinn fékk síð- ast 25 þingmenn, 21 karl og 4 kon- ur. Flokkurinn myndi aldrei bjóða upp á lista, þar sem konur væra aðeins í fjóram sætum af 25 og Framsóknarflokkurinn myndi setja fleiri konur en 3 í 15 manna hóp. Þetta á við um alla flokkana." Valgerður Sverrisdóttir, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra í næstu kosningum og er formaður þingflokksins, segir einnig að við væntanlega breytingu á kjör- dæmaskipan, sem áformað er að taki gildi fyi'ir þingkosningar árið 2003, opnist fleiri möguleikar fyrir konur. „Ef staðan verður sú, að flokkar sjá fram á að fá fjóra menn kjörna af lista, þá er af og frá að þeir stilli honum þannig upp að fjórir karlar skipi efstu sætin.“ í skýrslu nefndar forsætisráð- hen-a, sem fjallaði um breytingar á kjördæmaskipun og tilhögun kosn- inga til Alþingis, var sérstaklega fjallað um hlut kvenna og lögð áhersla á mikilvægi þess að breyt- ingar á kjördæmaskipun og kosn- ingafyrirkomulagi torveldi ekki þá þróun í átt til aukinnar stjómmála- þátttöku kvenna sem orðið hafí á undanfömum áram og áratugum, heldur þvert á móti stuðli frekar að því að konur taki sæti á Alþingi. Nefndin bendir á, að rannsóknir sýni talsverða jákvæða fylgni milli ákveðinna þátta kosningaskipulags og fjölda kvenna á þingi. „Ér þar aðallega um að ræða hlutfallskosn- ingar og stór kjördæmi," segir í skýrslunni. Kvennalistinn fjölgaði konum á öðrum listum Konur, hvar í flokki sem þær standa, eru sammála um að fram- boð Samtaka um kvennalista í sveitarstjórnarkosningum og í þingkosningum árið 1983 hafi haft mikil áhrif til að fjölga konum í stjórnmálum. Áður en Kvennalist- inn kom til sögunnar höfðu konm' verið 5% þingmanna fjögur síðustu kjörtímabil og þar áður 2-3%. Kvennalistinn hækkaði þetta hlut- fall í 15% í einum kosningum, með því að fá þrjá þingmenn kjörna og flokkarnir, sem fyrir vora, sáu að þeir þurftu að auka hlut kvenna, þó ekki væri nema til að halda sjálfír fylgi sem ella rynni til Kvennalist- ans. Eftir næstu kosningar, 1987, vora konur 21% þingmanna, enda Kvennalistinn þá með 6 þingmenn, þá 24% og loks 25%, þrátt fyrir þverrandi fylgi Kvennalistans, sem fékk þrjár konur kjörnar. Á yfir- standandi kjörtímabili hefur þessi tala lítillega hnikast til, fór mest í 28,6%, þegar konur komu inn á þing í stað karla, en konur hafa einnig horfið af vettvangi og karlai' komið í þein-a stað. „Kvennalistinn gerði vissulega ákveðið gagn í þessum málum og fjölgaði konum á listum hinna flokkanna," segir Arnbjörg Sveinsdóttir, sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Austur- landskjördæmi eftir afgerandi sig- ur í prófkjöri. Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, tekur undir að tilvera Kvennalistans, og þær konur sem talað hafl máli hans, hafí haft mikil áhrif í íslensk- um stjórnmálum. „Um það leyti sem Kvennalistinn kom fram á sjónarsviðið var sterk kvenna- hreyflng innan Alþýðubandalags- ins, en af einhverjum ástæðum skilaði hún ekki sama árangri og sérframboð kvenna." Konur benda einnig á að eftir tímabil, þar sem allir flokkar bættu stöðu kvenna, virðist sem stöðnun hafi færst yfir. Stökkin urðu a.m.k. ekki eins stór og í byrjun. Litill stuðningur við kynjakvóta Þrátt fyrir að konur í stjórnmál- um tali margar um að illt skuli með illu út reka era þær almennt ekki fylgjandi hugmyndum um að settar verði reglur um fjölda kvenna á framboðslistum, eða að listar verði „fléttaðir", þ.e. kona í einu sæti, karl í því næsta og svo koll af kolli. Slíkt yrði án efa erfitt í framkvæmd hjá flokkum, þar sem starfið er fastmótað og „goggunarröðin“ ljós, þ.e. karlar og konur bíða eftir að röðin komi að þeim eftir áralangt starf innan flokkanna. Flokkarnir hafa þó margir sett ákveðna kvóta innan flokksstarfsins. Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag hafa sett sér þær reglur að hlutfall annars kynsins skuli ekki vera minna en 40% við val á stjórnum og nefndum á veg- um flokksins. Framsóknarflokkur- inn hefur sett fram jafnréttisáætl- un sem beinist að því að 40% markmiðinu skuli náð árið 2000 og innan Sjálfstæðisflokksins hefur Landssamband sjálfstæðiskvenna þrýst á um aukinn hlut kvenna, m.a. með stuðningsyfirlýsingu við konu í embætti varaformanns flokksins. Af nýjum framboðum er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.