Morgunblaðið - 06.02.1999, Qupperneq 54
'54 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Trausta konu
í tryggt sæti
Hilmar Ingólfsson skólastjóri skrifar:
Birna Sigurjóns-
dóttir býður sig
fram í 3.-4. sæti í
prófkjöri Samfylk-
ingarinnar sem fer
fram dagana 5.-6.
febrúar.
Birna hefur
mikla reynslu af
menntamálum,
bæði úr áratuga
starfi sínu sem kennari og aðstoðar-
skólastjóri í Kópavogi, sem og úr
starfi sínu fyrir Kennarasamband
Islands. Hún hefur verið trúnaðar-
maður kennara og setið í stjórn og
•' fjölmörgum nefndum Kennarasam-
bandsins, auk þess sem hún hefur
setið í stjórn Námsgagnastofnunar.
Birna hefur starfað með Kvenna-
listanum frá upphafi og tekið sæti á
Alþingi sem varaþingkona hans.
Hún hefur beitt sér fyrir samein-
ingu félagshyggjuflokkanna og tók
meðal annars þátt í stofnun Kópa-
vogslistans, en hún er varabæjar-
fulltrúi.
Eg vil hvetja kjósendur í Reykja-
nesi til að velja Birnu Sigurjóns-
dóttur í 3.-4. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar. Tryggjum traustri og
harðduglegri konu sæti á Alþingi.
Guðmundur
Árni styrkir
Guðrún Guðmundsdóttir, Sólvangsvegi
3, Hafnarfirði, skrifar:
í bæjarstjóratíð
Guðmundar Árna
Stefánssonar sann-
aðist það að
treysta má ungu
fólki fyrir málefn-
um aldraðra. Þ.e.
ef það býr yfir
réttu hugarfari
samkenndar og
bræðralags. Hinn
ungi bæjarstjóri stóð fyrir gríðar-
legri uppbyggingu á þjónustu fyrir
aldraða í sinni tíð í Hafnarfirði.
Hvort tveggja beint og með stuðn-
ingi við félagasamtök. Reyndar svo
að þeir sem nú hafa tekið við leyfa
sér opinberlega að kveinka sér und-
an því að þurfa að viðhalda því sem
Guðmundur Ami Stefánsson byggði
upp frá grunni. Guðmundur hefur
einnig sýnt það á þingi að hann ber
enn hag okkar fyrir brjósti. Þar
sem hann hefur hvort tveggja staðið
vörð almennt um málefni aldraðra
sem og heilsugæslumál sem varða
okkur miklu. Með því að styrkja
stöðu Guðmundar Arna og skipa
honum í 1. sæti styrkjum við stöðu
aldraðra í Reykjaneskjördæmi.
Hilmar
Ingólfsson
Guðrún
Guðmundsdóttir
Fjölbreyttur
listi
Flosi Eiríksson, bæjarfulltníi íKópa-
vogi, skrifar:
Eftir nokkuð
erfíðar fæðingar-
hríðir erum við
samfylkingarsinn-
ar búnir að koma
okkur saman um
framboð um land
allt. Það er mikil-
vægt að á listunum
séu öflugir fulltrú-
ar allra þeirra
hópa sem að samfylkingunni
standa. Þórunn Sveinbjarnardóttir
býður sig fram á vegum Kvennalist-
ans í prófkjörinu hér í Reykjanesi.
Hún hefur löngum unnið að sam-
vinnu vinstri manna allt frá því að
hún var fyrsti formaður Röskvu fyr-
ir rúmum 10 árum. Þórunn er
vinnusamur og kraftmikill dugnað-
arforkur sem er góður liðsmaður á
samfylkingarskútuna. I prófkjörinu
liggur sú skylda á okkur að velja
góðan fjölbreyttan lista og ég vil
skora á ykkur Reyknesinga að
fykjósa Þórunni Sveinbjarnardóttur í
4. sæti samfylkingarlistans.
Flosi
Ein’ksson
Davíð er Golí-
at okkar tima
Guðfinna Emma
Sveinsdóttir
Guðfinna Emma Sveinsdóttir, kennari,
skrifar:
Eg treysti Sam-
fylkinginunni til að
sigra Davíð. Eg
treysti Samfylk-
ingunni fyrir fram-
tíð sona minna og
annarra íslenskra
bama. Ég treysti
Sámfylkingunni
fyrir umönnun for-
eldra minna og
annarra aldraðra sem hafa byggt
upp þjóðfélag okkar. Ég treysti
Samfylkingunni til að leiða mig og
þjóðina inn í nýja öld uppfulla af
tækifærum fyiir alla, ekki eingöngu
fyrir útvalda. Ég treysti Samfylk-
ingunni fyrir sameignum þjóðarinn-
ar og til að tryggja að fiskurinn í
sjónum, hálendi landsins og upplýs-
ingar um sjúkdóma mína, kosti og
galla verði ekki eign innlendra eða
erlendra áhættufjárfesta. Síðast en
ekki síst treysti ég Rannveigu Guð-
mundsdóttur til að veita lista Sam-
fylkingarinnar á Reykjanesi forystu
og vera í forystusveit Samfylkingar-
innar í komandi kosningum.
Ég kýs Rannveigu í 1. sætið.
Kjósum Birnu!
Kristín Jónsdóttir, arkitekt og bæjar-
fulltrúi, skrifar:
í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Reykjaneskjör-
dæmi á föstudag
og laugardag er
hægt að velja úr
stórum hópi
mætra manna og
kvenna. Ég vil
nota tækifærið og
minna á Birnu Sig-
urjónsdóttur, aðstoðarskólastjóra
og varabæjarfulltrúa í Kópavogi, en
hún býður sig fram í 3.-4. sæti list-
ans. Kynni okkar Birnu hófust þeg-
ar samstarf Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalista fór af
stað hér í Kópavogi, og höfum við
unnið saman innan Kópavogslist-
ans. Birna er ákveðin og skoðana-
föst og fylgir góðum málum vel eft-
ir, en auk þess að vera varabæjar-
fulltrúi er hún fulltrúi Kópavogslist-
ans í húsnæðisnefnd. Birna hóf
l störf við Snælandsskóla í Kópavogi
strax að loknu kennaranámi, og hef-
ur hún verið aðstoðarskólastjóri þar
frá 1984. Einnig hefur hún starfað
mikið innan kennarasambandsins
og setið í stjórn Námsgagnastofn-
unar. Ég tel að nú á upplýsingaöld
eigi Bima, með sína reynslu, þekk-
ingu og menntun erindi inn á Al-
^þingi íslendinga.
Guðmundur
Árni, okkar
fulltrúi
Steinunn Guðmundsdóttir, húsmóðir
og skrifstofumaður, skrifar:
Ungt fólk og
barnafólk,
áhugamál þess og
vandamál eiga
kraftmikinn
málsvara þar sem
Guðmundur Árni
er. f hans tíð tók
t.d. Hafnarfjörður
forystu hvað
varðar
æskulýðsstarf. Svo mörgu nýju var
komið á legg að of langt mál væri að
telja hér. Enn eru aðrir langt að
baki, en líta til Hafnarfjarðar um
fyrinnyndir. Samtímis þessu stóð
Guðmundur fyi-ir byltingu í
byggingu leikskóla og margfaldaði
aðstöðu íþróttafélaganna.
Á Alþingi hefur hann beitt sér í
húsnæðismálum. Ég er af þeirri
kynslóð sem þurft hefur að greiða
öll sín lán í topp með hávöxtum og
verðtryggingu. Guðmundur Ámi er
líka af þeirri kynslóð, öfugt við
helstu keppinauta hans. Við eigum
að fela þeim forystu sem þekkja vel
vandamál nútíma barnafólks og
velja Guðmund Árna í fyrsta sæti.
Kristm
Jónsdóttir
Steinunn
Guðmundsdóttir
Kjósum Sigriði
í prófkjörinu
Eggert Gautur
Gunnarsson
Eggert Gautur Gunnarsson, tækni-
fræðingur, Kópavogi, skrifar:
Ég vil eindregið
hvetja fólk til að
styðja Sigríði Jó-
hannesdóttur í
prófkjörinu í
Reykjaneskjör-
dæmi en hún sæk-
ist eftir öðru sæti.
Sigríður er mjög
góður þingmaður
og hefur sýnt það
og sannað þau þrjú ár sem hún hef-
ur verið þingmaður að hún er mjög
verðugur fulltrúi kjördæmisins.
Hún sýndi mjög gott fordæmi
þegar hún ákvað að sækjast eftir
öðru sætinu í stað þess fyrsta þar
sem Alþýðuflokksmenn hefðu jafn-
an verið sterkari í kjördæminu. Það
er mjög biýnt í samfylkingarmálum
að fólk gæti þess að halda jafnvægi
milli fulltrúa flokkanna svo að list-
inn verði trúverðugur sem samfylk-
ing og laði að sér breiðan hóp kjós-
enda. Það er einnig nauðsynlegt að
við uppröðun á framboðslista ríki
jafnvægi milli byggðarlaga í kjör-
dæminu og Sigríður er eini fulltrúi
Suðurnesja sem á möguleika á að
vera í efstu sætum listans. Það er
því góður kostur að velja Sign'ði í
annað sæti og tryggja Alþýðu-
bandalaginu verðugt þingsæti, Suð-
urnesjunum þingmann og öllu kjör-
dæminu góðan fulltrúa sem hefur
reynslu, hugsjónir, dug og heiðar-
leika að leiðarljósi en allt þetta er
nauðsynlegt veganesti fyrir Sam-
fylkinguna inn í kosningarnar í vor.
Fleiri konur
á þing
Sigrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi f
Kópavogi, skrifar:
Á framboðslista
Samfylkingarinnar
í Reykjavík verða
fimm af átta efstu
sætum listans
skipuð konum. Það
eru gleðileg tíðindi
fyrir alla sem
barist hafa fyrir að
fjölga konum á Al-
þingi. I prófkjörinu
á Reykjanesi bjóða átta frambæri-
legar konur sig fram. Tvær þeirra,
Birna Sigurjónsdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir, stefna á 3.- 4.
sæti. Þær hafa báðar starfað lengi í
Kvennalistanum, báðar eru vara-
þingkonur og hafa unnið ötullega að
framgangi Samfylkingarinnar. Þór-
unn er stjórnmálafræðingur að
mennt. Hún var fyrsti formaður
Röskvu og hefur m.a. unnið við
hjálparstörf erlendis. Birna er að-
stoðarskólastjóri og hefur gegnt
trúnaðarstörfum fyrir Kennarasam-
bandið. Báðar eru öflugar talskonur
kvenfrelsis, jöfnuðar og félags-
hyggju sem ég vil hvetja kjósendur
til að styðja í prófkjörinu um næstu
helgi.
►Meira á Netinu
Sigrún
Jónsdóttir
Guðmund Árna
á íhaldið
Ingvar Sigurðsson lögfræðingur,
skrifar:
Við erum svo
lánsöm hér á
Reykjanesi að fjöl-
margir frambæri-
legir einstaklingar
gefa kost á sér til
framboðs í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar. Það er þó
ekki nóg þegar í
baráttuna er kom-
ið, jafnaðarmenn á öðrum vængn-
um, og íhald og auðvald hins vegar.
Þá þurfum við öflugan og kjark-
mikinn einstakling. Þar er Guð-
mundur Árni bestur. Það er auðvelt
að vera pólitíkus í framvarðasveit
meðan hvergi reynir á, en þegar lín-
ur skerpast tekur alvaran við. Hann
hræðist ekki gagnrýni en er trúr
sinni sannfæringu og styrkir hvern
Ingvar
Sigurðsson
þann málstað sem snýr að réttinda-
málum alþýðufólksins.
Að mínu mati skilur fyrst á milli
góðra stjórnmálamanna og aumra,
þegar aðstæður krefjast kjarks og
heilinda, við mótlæti og róg. Guð-
mundur Árni hefur alla tíð starfað í
þágu jafnaðarmanna. í starfi jafnt
sem tómstundum í sviðsljósinu og í
kyrrþey. Hann er okkar maður í
fyrsta sæti.
Kjósum Jón
Gunnarsson
hafði lítið verið framkvæmt í sveit-
arfélaginu undangengin ár, en samt
var fjárhagurinn bágborinn. Undir
styrkri stjórn Jóns tókst að snúa
þessu við og síðan þá hefur m.a.
verið byggt íþróttahús og sundlaug,
nýr leikskóli og giunnskólinn
stækkaður um helming. Á sama
tíma varð viðsnúningur í fjármálum
hreppsins og er hann í góðu lagi í
dag. Jón nær árangri í því sem hann
tekur sér fyrir hendur og þannig
menn þurfum við á Alþingi. Ég vil
hvetja ykkur til að setja Jón í 2.
sætið á lista Samfylkingarinnar í
komandi prófkjöri.
Kristinn G. Þormar, varaformaður
sjómannadeildar VSFK.
Jón Gunnarsson
hefur vakið athygli
í Alþýðuflokknum
fyrir einarða and-
stöðu sína við
kvótakerfið í sjáv-
arútvegi. Hann
hefur stýrt mál-
efnahópum á
fiokksþingum
flokksins í sjávar-
útvegsmálum og það hefur verið
oftar en ekki fyrir hans framlag að
sátt hefur náðst um stefnu og
áherslur í þessum mikilvæga mála-
flokki. Við þurfum menn eins og
Jón Gunnarsson á Alþingi, menn
sem eru frjóir í hugsun og tilbúnir
að standa og falla með skoðunum
sínum. Ég er í engum vafa um, að
inni á Aiþingi mun Jón halda áfram
baráttu sinni gegn séreignarkerfi á
kvótum og ekki unna sér hvíldar
fyrr en fullur sigur hefur náðst og
auðlindin komin í hendur réttmætra
eigenda. Með því að kjósa Jón
Gunnarsson í 2. sæti á lista Sam-
fylkingar í Reykjaneskjördæmi í
prófkjörinu um helgina, tryggjum
við okkur duglegan og einarðan
baráttumann á Alþingi, mann sem
hefur lifað og hrærst í sjávarútvegi.
Dugleg hug-
sjónakona
Heiðrún Sverrisdóttir leikskóla-
kennari skrifar:
Dagana 5. og 6.
febrúar fer fram
opið prókjör Sam-
fylkingarinnar í
Reykjanesi, eiga
kjósendur þá
möguleika á að
velja hóp öflugra
fulltrúa í forystu-
sveit sem móta
munu nýtt stjórn-
málaafl. Margt úrvalsfólk býður þar
fram krafta sína og þeirra á meðal
er Sigríður Jóhannesdóttir alþingis-
maður. Ekki fer á milli mála að þar
fer dugleg hugsjónakona, sem situr
á Alþingi til að þjóna alþýðu þessa
lands. Sigríður hefur verið ötull
talsmaður þeirra sem eilíft þurfa að
berjast fyrir rétti sínum i þjóðfélag-
inu. Hún hefur einnig verið ötull
talsmaður í mennta- og menningar-
málum inni á Alþingi. Það þarf að
auka hlut kvenna á Alþingi, en nú
eru konur einungis 25% þeirra sem
þar sitja. Ég vil hvetja Reyknesinga
til að taka þátt í prófkjörinu um
næstu helgi og tryggja Sigríði Jó-
hannesdóttur þar öruggt sæti.
Hciðrún
Sverrisdóttir
Jón Gunnars-
son í 2. sætið
Þóra Bragadóttir, oddviti Vatnsleysu-
strandarhrepps, skrifar:
Ég starfaði með
Jóni Gunnarssyni í
hreppsnefnd
Vatnsleysustrand-
arhreþps í tvö
kjörtímabil og tók
síðan við af honum
sem oddviti
hreppsins við síð-
ustu kosningar eft-
ir að hann hafði
ákveðið að hætta, eftir 12 ár í sveit-
arsjórn. Það var ákaflega gaman að
starfa með Jóni og lærði ég mikið á
þeim tíma um hvernig hægt er að
reka lítið sveitarfélag með jafn öfl-
ugum hætti og raun ber vitni. Þegar
við tókum við stjórnartaumunum
Þóra
Bragadóttir
Nýtum
þekkinguna -
kjósum Skúla
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur,
lektor við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Islands, ski-ifar:
Neyslusjúkdóm-
ar eru vandi nútíð-
ar og framtíðar,
samfara breyttum
samfélagsháttum.
Fíkniefnaneysla og
önnur ofneysla er
þar veigamikill
þáttur. Skúh
Thoroddsen lög-
fræðingur hefur
aflað sér menntunar á því sviði og
er nafnkunnur erlendis af störfum
sínum þar fyrir hönd íslenskra
stjórnvalda. Hann hefur og rekið
sjúkrastöðvar í þrem löndum og átti
sæti í stjórn Sjúkrasamlags Reykja-
víkur og í stjórn Borgarspítalans.
Skúli er einnig nákunnugur bar-
áttumálum verkafólks og var lög-
fræðingur verkamannafélagsins
Dagsbrúnar um árabil. Þeir sem
hafa áhuga á því að leiða þekkingu
og reynslu til vegs í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar næstkomandi laug-
ardag hafa því góðan kost þar sem
Skúli er.
Stuðlum að framgangi hans í
prófkjörinu.
Veitum Birnu
brautargengi
G. Elsa Einarsdóttir, formaður for-
eldrafélags Snælandsskóla, skrifar:
Birna Sigurjóns-
dóttir, aðstoðar-
skólastjóri
Snælandsskóla,
býður sig fram í
3.^4. sæti Samfylk-
ingarinnar í
Reykjanesi. Kynni
mín af Bimu gegn-
um starf foreldra-
félagsins í
Snælandsskóla sannfæra mig um að
reynsla hennar og viðhorf nýttust
vel á Alþingi.
Birna kynnir sér málin vel, er
málefnaieg og setur mál fram af
metnaði en ekki með ofstopa eða yf-
irgangi. Slíku er því miður of sjald-
an til að dreifa í pólitískri umræðu
og ekki vanþörf á að á því verði
breyting. Birna hefur yfirgrips-
mikla þekkingu á skólamálum í
gegnum starf sitt og fjölmörg trún-
aðarstörf á þeim vettvangi. Hún
hefur tekið virkan þátt í stjórnmál-
um og er því vel undir það búin að
vera öflugur málsvari sinna stefnu-
mála.
Ég hvet Reyknesinga til að veita
Birnu stuðning í 3.^. sæti Samfylk-
ingarinnar.
Jón Gunnars-
son á þing
Vigdfs Siguijónsdóttir, verkakona og
ritari Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis, skrifar:
Baráttan í prófkjöri Samfylking-
arinnar stendur nú sem hæst í
Reykjaneskjördæmi. Ibúamir eru
nú að gera upp við sig hvemig raða
skuli á listann og er ég ein af þeim
og úr vöndu er að ráða, þar sem fjöl-
margir hæfir einstaklingar hafa gef-
ið kost á sér í prófkjörið. Einn af
þeim sem gefið hafa kost á sér er
Jón Gunnarsson, ungur maður af
G. Elsa
Einarsdóttir