Morgunblaðið - 20.05.1999, Síða 1
111. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
NATO vísar
klofnings-
fréttum á bug
Belgrad, Bonn, Róm. Reuters, AFP.
TALSMENN Atlantshafsbanda-
lagsins fullyrtu í gær að stefna þess
gagnvart Kosovo skilaði árangri og
vísuðu á bug frásögnum þess efnis,
að klofningur væri kominn upp í
röðum NATO-ríkjanna. Sögðu þeir
loftárásirnar, sem nú hafa staðið í
nærri tvo mánuði, vera við það að
buga herstyrk Serba.
Tilraunum til að finna leið til
samningslausnar á Kosovo-deilunni
var haldið áfram af miklu kappi í
gær. Sérlegur erindreki Rússlands-
stjómar í málefnum Júgóslavíu,
Viktor Tsjernomyrdín, hóf viðræður
í Belgrad við Slobodan Milosevic Jú-
góslavíuforseta og í Bonn var málið
rætt á fundi G8-hópsins, samtaka
sjö helztu iðnríkja heims auk Rúss-
lands.
Talsmaður sendinefndar Rússa
þar, Borís Majorskí, viðurkenndi
fyrir fjölmiðlafólki að allnokkuð
bæri enn í milli afstöðu Rússa og
fulltrúa vesturveldanna til þess
Færeyjar
Engar stúd-
entshúfur?
Þdrshöfn. Morgunblaðið.
VERA kann að ný verkfallsógn
valdi því að engar stúdentshúf-
ur sjáist á götum Færeyja
þetta vorið. Færeyskir fram-
haldsskólakennarar hóta að
hefja verkfall í vikunni, en verði
af því falla meðal annars niður
lokapróf stúdentsefna.
í gærmorgun höfnuðu samn-
ingamenn kennara málamiðlun-
artilboði um nýjan kjarasamn-
ing. Verði viðræður ekki teknar
upp að nýju fyrir miðnætti á
morgun, fimmtudag, leggja
kennarar niður störf. I gær var
ekki útlit fyrir annað en að
verkfall hæfist.
hvernig fara bæri að til að koma á
friði í Kosovo.
„Svo lengi sem loftárásimar halda
áfram (...) er ekki hægt að tala um
niðurstöður viðræðna okkar sem frá;
gengið plagg,“ sagði Majorskí. í
sterkri mótsögn við þetta sagði Stro-
be Talbott, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, eftir viðræður
við Tsjernomyrdín og Martti Ahtisa-
ari, forseta Finnlands, í Helsinki fyrr
um daginn, að enginn gmndvallará-
greiningur væri lengur milli Rússa
og Bandaríkjamanna í deilunni.
Horft til forystu
Bandaríkjamanna
Brezkir ráðamenn bragðust við
fregnum þess efnis, að þeir þrýstu
nú á um að meiri áherzla yrði lögð á
undirbúning þess að senda landher
inn í Kosovo. Robin Cook utanríkis-
ráðherra sagði NATO verða að
koma sér saman um á hvaða punkti
deilunnar aðstæður teldust réttar
til að landher ætti erindi inn í
Kosovo. Tony Blair forsætisráð-
herra sagðist setja traust sitt á að
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
„gerði það rétta“.
Clinton hefur fram að þessu eytt
öllu tali um að beita landher í her-
förinni gegn Júgóslavíu og Frakkar
hafa einnig ítrekað lýst sig andvíga
slíku. Og Gerhard Schröder, kanzl-
ari Þýzkalands, sagðist ekki hafa trú
á því að landher yrði beitt; fyrir því
væri öragglega ekki meirihluti á
þýzka þinginu.
ítalska þingið samþykkti í gær
ályktun, þar sem hvatt er til þess að
hlé verði gert á loftárásum NATO
og stuðningi lýst við áskoran
Massimo D’Alemas forsætisráð-
herra um friðaráætlun fyrir Kosovo,
þar sem Sameinuðu þjóðunum væri
ætlað stórt hlutverk.
■ Serbar/26
■ Hernaðaríhlutun/38
Reuters
Hollands-
stjórn seg-
ir af sér
Haag. Reuters, AP.
STJÓRN Hollands ákvað í gær að
segja af sér eftir að Wim Kok for-
sætisráðherra mistókst að fá einn af
stjórnarflokkunum, miðflokkinn
D66, til að hætta við að slíta stjóm-
arsamstarfinu. Stjómin féll vegna
deilu um tillögu þess efnis að stjórn-
arskránni yrði breytt þannig að
hægt yrði að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um ákveðin mál og kjósend-
ur fengju vald til að hnekkja ákvörð-
unum þingsins.
Með afsögninni er samsteypu-
stjórn Koks, sem var mynduð fyrir
tæpu ári, ein af skammlífustu ríkis-
stjórnunum í sögu Hollands. Ekki
var Ijóst í gær hvort ný stjóm yrði
mynduð eða hvort boða þyrfti til
kosninga, en Kok gaf í skyn að síðari
kosturinn yrði ofan á. „Kjósendur
verða að fá að segja sitt álit.“
D66 er með 14 af 97 þingsætum
stjómarflokkanna þriggja í neðri
deild þingsins. Hinir stjómarflokk-
arnir tveir hafa meirihluta í neðri
deildinni og geta því myndað nýja
stjóm en ekki er víst að þeir geti
starfað saman án miðflokksins, sem
hafði oft dregið úr togstreitu milli
Verkamannaflokks Koks og hægri-
manna í WD.
■ Kjósendur áttu/26
Barak minntur
á skuldbindingar
Jerúsalem, Washington. AFP.
Kosninga-
baráttan haf-
in í Indónesíu
STUÐNINGSMENN indónesíska
„Lýðræðisflokksins - Baráttu“
fara fylktu liði eftir breiðstræti í
Djakarta, höfuðborg Indónesíu, í
gær. Þúsundir áhangenda alls 48
sljórnmálaflokka, sem bjóða fram
í þingkosningunum er fram fara í
landinu 7. júm nk., tóku þátt í
fjöldagöngu um götur Djakarta í
gær til að marka upphaf kosn-
ingabaráttunnar. Vonir standa til
að þetta verði fyrstu sannarlega
frjálsu kosningarnar í Indónesíu
frá því landið hlaut sjálfstæði.
PALESTINUMENN hvöttu í gær
nýkjörinn forsætisráðherra Israels,
Ehud Barak, til að bregðast fljótt
við, afhenda Palestínumönnum þeg-
ar land á Vesturbakkanum og
sleppa hundruðum palestínskra
fanga, eins og Israelar skuldbundu
sig til í samningunum sem kenndir
eru við Ósló. A sama tíma varaði
Abdullah Jórdaníukonungur við því
að kæmust friðarumleitanir í Mið-
Austurlöndum ekki á skrið á nýjan
leik í kjölfar þingkosninganna í Isra-
el mætti búast við því að Palestínu-
menn sýndu óþolinmæði sína í verki.
„Við viljum engar samningavið-
ræður, við viljum einfaldlega að fyr-
irliggjandi samningum sé hrint í
framkvæmd,“ sagði Ahmed Qorei,
forseti þings Palestínumanna, í
gær, tveimur dögum eftir stórsigur
Baraks á Benjamin Netanyahu,
leiðtoga Likud-flokksins, í forsætis-
ráðherrakosningum í Israel.
■ Mikil ólga/24
Dúman samþykkir Stepashín í embætti forsætisráðherra
Gefur
heit u:
þjóðmnt fyrir-
m bætt lífskjör
Moskvu. Reuters, AFP.
DÚMAN, neðri deild rússneska
þingsins, samþykkti Sergej Stepas-
hín í embætti forsætisráðherra með
miklum meirihluta atkvæða í gær.
Nýi forsætisráðherrann lofaði að
bæta lífskjör milljóna Rússa sem
hafa orðið fyrir barðinu á efnahags-
þrengingunum eftir hran Sovétríkj-
anna.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
hafði tilnefnt Stepashín í embættið
eftir að hafa rekið Jevgení Prímakov
í vikunni sem leið. Tilnefningin var
samþykkt með 301 atkvæði, en
a.m.k. 226 þingmenn af 450 þurftu
að styðja hana. Aðeins 55 þingmenn
greiddu atkvæði gegn Stepashín.
„Þetta er mikill sigur fyrir forset-
ann, annar sigur hans á einni viku,“
sagði fulltrúi Jeltsíns í dúmunni,
Alexander Kotenkov. Fjóram dögum
áður hafði tilraun andstæðinga for-
setans til að svipta hann embættinu
með málshöfðun farið út um þúfur.
Forsetinn hefði getað leyst upp
dúmuna og boðað tO kosninga innan
þriggja mánaða ef hún hefði hafnað
tilnefningunni. Vladímír Ryzhkov,
leiðtogi miðflokksins Heimili okkar
er Rússland, sagði að dúman hefði
átt einskis annars úrkosti en að sam-
þykkja tilnefninguna. „Samkvæmt
stjómarskránni er það forsetinn sem
ákveður hver verður skipaður for-
sætisráðherra. Það þjónar engum
tilgangi að streitast á móti.“
„Þetta þýðir eitt. Við eram sam-
einaðir í umhyggjunni íyrir landi
okkar og þjóð, þannig að land okkar
megi loksins verða eðlilegt, sið-
menntað, auðugt og öflugt," sagði
Stepashín eftir atkvæðagreiðsluna.
Forseti dúmunnar, kommúnistinn
Gennadí Seleznjov, kvaðst ánægður
með loforð nýja forsætisráðherrans
en var ekki viss um að hann gæti
efnt þau. Stepashín ræddi við
Jeltsín í tvær klukkustundir í Kreml
eftir atkvæðagreiðsluna og kvaðst
þurfa um það bil viku til að mynda
nýja stjórn.
Nýtt Stjörnustríðsæði
TVEIR aðdáendur Stjörnustríðs-
kvikmyndanna, búnir sem geim-
stormsveitarmenn, ræða við lög-
reglu fyrir utan kvikmyndahús í
New York í fyrrinótt, er nýjasta
Stjörnustríðsmyndin, „Episode 1
- The Phantom Menace", var
frumsýnd. Þúsundir manna höfðu
lagt á sig að bíða vikum saman
fyrir utan kvikmyndahús í
Bandaríkjunum og Kanada til að
tryggja sér miða á frumsýningu
þessarar fyrstu Stjörnustríðs-
myndar í 16 ár.
Þótt gagnrýnendur færu ekki
fögrum orðum um myndina virtust
aðdáendurnir ánægðir. „Þetta er
það frábærasta sem ég hef
nokkurn tímann séð,“ sagði ungur
Ástrali, sem beið í 6 vikur fyrir ut-
an bíó í HoIIywood til að verða ör-
ugglega í hópi frumsýningargesta.