Morgunblaðið - 20.05.1999, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 20.05.1999, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ * 62 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 Dýraglens Ferdinand //!\x- \ •% Smáfólk / OUR FIR5T 6AAÁE OF THE 5EA50N í WHAT DO WE NEEP TO WIN ? C0URA6E, FOKTITUPE ANP PEDICATION! MOU) PIP YOU KNOU) THAT? n ^ I WR0TE POWN WHAT Y0U5AIP LA5TYEAK.. 1 3~2,? Jm Fyrsti leikurinn okkar á Ieiktímabilinu! Hvað þurfum við að ávinna okkur? Hugrekki, hugprýði og hollustu! Hvernig vissirðu þetta? Ég skrifaði niður það sem þú sagðir í fyrra.. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Aðför? Frá Kjartani Valgarðssyni: HALLDÓR Ásgrímsson hélt því fram daginn eftir kosningar að gerð hefði verið aðfór að sér á sjón- varpsstöðvunum. Undir þetta tóku aðrir stjómmálaforingjar og gagn- rýndu mjög fréttamenn fyrir það hvernig þeir héldu á málum í að- draganda kosninganna. Fréttamennimir em ekki yfír gagnrýni hafnir. Það er hægt að gagnrýna þá fyrir að hafa ekki fylgt betur eftir þessum hluta um- ræðuþáttarins með formanni Framsóknai-flokksins. Halldór Asgrímsson var sjávar- útvegsráðherra til margra ára og aðalhöfundur gjafakvótakerfisins. Hann var spurður eitthvað á þá leið hvað hann ætti mikilla hags- muna að gæta í sjávarútvegsfyrir- tæki fjölskyldu hans fyrir austan og hvort þau eignatengsl væm ekki óheppileg fyrir mann í hans stöðu. I stað þess að svara skýrt og skorinort, brást hann hinn versti við og fór að tala um hluti sem komu málinu ekkert við, að hann hefði tekið þátt í stofnun hlutafé- lagsins að beiðni föður síns vegna þess að þá þurfti minnst fímm til að stofna hlutafélag. Og hér kemur að hlutverki fréttamannanna. Hvers vegna spurðu þeir hann ekki nánar út í þetta: Var hann þá ekki fullgildur eigandi að þeim hlut sem hann skráði sig fyrir, og hefur væntan- lega greitt? Eða var hann bara eigandi á pappímnum? Er hann ekki endurskoðandi? Hvers vegna seldi eða „afskráði“ hann þá sig ekki fyrir þessum hlut þegar lög um einkahlutafélög tóku gildi? Hvers vegna þessi feluleikur með eignaraðild hans að fyrirtækinu? Hvers vegna grípur hann til þess- arar skýringar þegar ljóst er að hann er erfíngi að stómm hluta fyrirtækisins? Tal hans um aðför að sér er blátt áfram hlægilegt. Enginn heldur því fram að hann hafí barist fyrir þessu kerfi til að hygla sjálfum sér fjárhagslega. Þetta era hins vegar fullkomlega eðlilegar spurningar og stjórn- málamanninum fyrir bestu að allri tortryggni sé eytt. Oft ber á því að menn skilja ekki hvað hugtakið hagsmunaárekstur þýðir. Tal um „hættu á hagsmuna- árekstri" ber þess vott. Algengt er að menn haldi að það sé í lagi að sitja beggja megin borðsins, bara að þeir notfæri sér það ekki. Menn halda einnig að ef bent er á hags- munaárekstur, þá sé verið að saka þá um óheiðarleika. Svo er ekki. Þegar menn sitja beggja megin borðs, þá er það hagsmunaárekst- ur. Þegar utanríkisráðherra þáði laxveiðiboð íslenskra aðalverk- taka, þegar fyrirtækið hafði einka- rétt á framkvæmdum á Keflavíkur- flugvelli, þá var það hagsmunaá- rekstur, hvort sem fyrirtækið græddi á því eða ekki. Þetta er mikilvægt að hafa í huga. Maður veltir því fyrir sér eftir framlag stjónvarpsstöðvanna til umræðunnar fyrir kosningar, hvert hlutverk stjómendur þátt- anna hafi ætlað þeim. Eg held að stjómendumir hafi ætlað þeim að vera vettvangur gagnrýninnar um- ræðu. Það mistókst hins vegar al- veg og varð í stað þess önnur teg- und flokkakynningar. Enda sagði formaður Framsóknarflokksins í einhverjum þættinum það skoðun sína að hann væri kominn til að kynna sjónarmið sín og flokksins, og þess vegna er hann nú argur yf- ir því að hafa fengið spumingar sem hann hafði ekki hugsað sér að svara. Betra væri að hafa það á hreinu fyrirfram ef þessum þáttum er ekki ætlað að vera annað en hugguleg teboð. Gott, vel menntað, áræðið og upplýst fjölmiðlafólk er afar nauð- synlegt fyrir lýðræðið, lýðræðis- lega og upplýsta umræðu. Stjóm- völd og stjómmálamenn þurfa betra aðhald en þeir hafa nú. KJARTAN VALGARÐSSON, Bræðraborgarstíg 19, Reykjavík. Kjaradómur Frá Sigurði Sigurðarsyni: NÚ ÞEGAR kjaradómur hefur fellt dóm sinn um kjör alþingis- manna, ráðherra og fleiri yfir- manna í íslensku þjóðlífi er vert að hugsa aðeins til baka og skyggnast inn í kosningaloforð flokkanna. Bæði Vinstri-grænir og Sam- fylkingin stóðu fastar á því en fót- unum að jafna skyldi kaupmátt landsmanna og er það hið besta mál. En hvar em efndimar þegar þau fá tækifæri á silfurfati daginn eftir kosningar? Hefði ekki verið sterkt í upphafi kjörtímabilsins að hafna þessari launahækkun með tilliti til lægstu launa landsmanna? Ætluðu þessir sömu flokkar ekki að hefja bætur og eldri manna líf- eyri til vegs og virðingar? Hvernig er þá betra að byrja en með því að neita óviðeigandi 30% launahækk- un hæstu launa opinberra starfs- manna? Þessir þingmenn sem þiggja þessa launahækkun þvert ofan í stefnu flokka sinna hljóta að segja af sér og taka pólitíska ábyrgð á þessum gerðum sínum því að þeir vom ekki búnir að vera þingmenn í margar klukkustundir þegar þeir settust við allsnægtar- borðið og vilja ekki fara þaðan. Hvar er ste63fnan sem kosin var 8. maí? SIGURÐUR F. SIGURÐARSON, Torfufelli 25, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.