Morgunblaðið - 20.05.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 51
_- >
Ríkisstjórn Islands
krafin svara
Á HVERJUM morgni vöknum
við við útvarpsfréttir af hernaði í
Júgóslavíu. Annars vegar segir frá
ofsóknum á hendur Albönum og
hins vegar frá árásum NATO-ríkj-
anna. í dagblöðum er sömu sögu að
segja. Ég staðnæmist við tvær
fréttir.
Lögmætt skotmark
Á forsíðu Morgunblaðsins sl.
sunnudag segir eftirfarandi í frétt-
er fjallað um hugsanleg eftirköst
stríðsins í ljósi þeirra vopna sem
beitt er. í Morgunblaðinu birtist
mjög fróðleg grein ekki alls fyrir
löngu eftir Stefán Gíslason um-
hverfísfræðing þar sem þessi þáttur
var gerður að umræðuefni. í grein-
inni í Guardian er vísað í ummæli
ýmissa umhverfissamtaka í sunnan-
verðri Evrópu og sérfræðinga á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
hafa af því þungar áhyggjur að
stríðið hafi þegai- valdið alvarlegri
mengun á grunnvatni á þessum
slóðum en bent hefur verið á að á
stríðssvæðinu sé að fínna stærstu
grunnvatnslindir í þessum hluta
Evrópu. Þá sé Dóná þegar illa
menguð af olíu og eiturefnum en
fólk á stórum landssvæðum reiði sig
á vatn úr þessari mestu á Evrópu
sem rennur um tíu ríki. í Dóná sem
öðrum ám er mikið farið að bera á
dauðum fiski og er verið að rann-
saka hvort þessu valdi sprenging-
amar eða mengun af eiturefnunum
sem flæða út í ána. Það gefur auga-
leið að það segir fljótlega til sín þeg-
ar olíuhreinsistöðvar og efnaverk-
smiðjur eru sprengdar í loft upp.
I umfjöllun breska blaðsins er
vakin athygli á því að vísindamenn
hafi greint fimmtánföldun díoxíns
og annarra eiturefna í andrúmsloft-
inu. Þessi eiturefni setjast í fituvefí
líkamans og skaða erfðaefni hans.
Þá er ekki síður alvarlegt að uran-
íumkúlur sem notaðar eru í stríðinu
munu að öllum líkindum valda
óbætanlegu tjóni þegar fram líða
stundir. Þessar kúlur eru ekki mjög
geislavirkar en verða að dufti við
sprengingu. Andi fólk duftinu að sér
veldur það krabbameini. Þessi vopn
voru notuð í Persaflóaárásunum og
hafa sérfræðingar í heilbrigðismál-
um haldið því fram að stóraukinn
barnadauði, hvítblæði og vanskapn-
aður hjá nýfæddum bömum í Suð-
ur-írak eftir 1991 sé til kominn
vegna þessara vopna.
Forætisráðherra og utanrflds-
ráðherra svari
Bandaríkjastjórn hefur viðurkennt
að þessum vopnum sé beitt í Jú-
góslavíu af NATO-ríkjunum. Eitt
þessara ríkja er ísland. Við emm
ábyrg fyrir þessum hernaði. Hvernig
réttlætir íslenska ríkisstjómin þessar
aðgerðir? Hvemig ætla íslenskir ráða-
menn að svara þeim börnum sem í
framtíðinni fæðast vansköpuð vegna
þeirra vopna og þess hernaðar sem nú
er beitt af fullkomnu miskunnarleysi í
Júgóslavíu? Utanríkisráðherra og for-
sætisráherra em krafðir svara.
Höfundur er alþingismaður.
Ögmundur
Jónasson
Stríð
Hvernig ætla íslenskir
ráðamenn að svara
þeim börnum sem í
framtíðinni fæðast van-
sköpuð, spyr Ogmund-
ur Jónasson, vegna
þeirra vopna og þess
hernaðar sem nú er
beitt í Júgóslavíu?
um frá Reuter og AP fréttastofun-
um: „Talsmenn Atlantshafsbanda-
lagsins staðfestu í gær að herflug-
vélar þess hefðu gert árás á þorpið
Korisa í suðvesturhluta Kosovo á
föstudag, þar sem samkvæmt
serbneskum heimildum a.m.k. 84
kosovo-albanskir flóttamenn létu
lífið. Loftárásum NATO á skotmörk
í Júgólavíu var fram haldið í gær af
fullum þunga. Eftir rannsókn á full-
yrðingum Serba um að NATO bæri
ábyrgð á dauða slíks fjölda
óbreyttra borgara sögðu talsmenn
bandalagsins að þorpið hefði verið
lögmætt skotmark þar sem her
Serba hefði notað það sem herbúðir
og stjórnstöð fyrir hernaðaraðgerð-
ir.“
Hér kveður við svipaðan tón og
heyrst hefur frá yfirvöldum í
Belgrad sem kveðast hafa átt í
höggi við hryðjuverkamenn og rétt-
læta ofsóknir sínar á hendur al-
menningi í því ljósi. Með öðrum orð-
um einnig þau eru væntanlega að
fást við „lögmæt" skotmörk.
Deytt og mengað til framtíðar
Daginn eftir, mánudaginn 17.
maí, birtist fróðleg en jafnframt
ógnvekjandi frásögn í breska blað-
inu Guardian. Þar er greint frá
eyðileggingunni sem hernaðurinn
hefur þegar valdið en sérstaklega
Aösendar greinar
á Netinu
v^mbl.is
_A.LLTAf= e/TTH\SA& A/ÝTT
Gegnheilt parket
--9-----I-----
| Eik, fura og Merbeau
Hvít máfning
| 5 litrar matt
— L-x Ln1'7LÍÍI<=L"
HAGKAUP
Meira úrval - betrikaup