Morgunblaðið - 20.05.1999, Side 22

Morgunblaðið - 20.05.1999, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 UR VERINU MORGUNBLAÐIÐ ísfélagið stefnir ríkinu vegna afnáms úreldingarreglna Sfldarsmugan Ný torfa RANNSÓKNASKIPIÐ Ámi Frið- riksson fann nýja sfldartorfu þó nokk- uð norðar í Sfldarsmugunni en veiðin hefur verið til þessa. Sfldin var stygg og erfið viðureignar en norskt rann- sóknaskip er væntanlegt á svæðið í dag til að kanna málið frekar. Hins vegar er Ami Friðriksson á landleið. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur sagði að um stakar torfur hefði verið að ræða og langt á milli þeirra en svo virtist sem önnur ganga væri á ferðinni. „Við náðum ekki sýnum því hún var mjög stygg og erfitt að eiga við svona stakar torfur með trolli en gaman verður að sjá hvað norska skipið finnur út úr þessu.“ 15 íslenskir bátar voru í Sfld- arsmugunni í gær en veiðisvæðið hef- ur færst sunnar og er nú nánast beint í austur frá Langanesi. Hjálmai- sagði að svo virtist sem sfldin væri á hraðri leið suðsuðvestur í átt að færeysku lögsögunni. í gærmorgun var búið að flaka um 60 tonn af sfld um borð í Bjarna Ólafssyni AK á tæpum tveimur sólar- hringum. Skipið hafði þá kastað tvisvar en fengið lítinn afla. Sfldin er sett í kælitanka skipsins sem lætur reka á meðan sfldin er flökuð. Vill úreldingu endurgreidda ÍSFÉLAG Vestmannaeyja hf. hefur krafið ríkissjóð um endurgreiðslu á um 145 milljónum króna vegna af- náms reglna um endmmýjun fiski- skipa með dómi Hæstaréttar í desem- ber sl. Ætla má að fjölmargar útgerð- ir sem varið hafa hundruðum milljóna króna til kaupa á úreldingarrétti á undanfórnum árum, fylgist grannt með framvindu málsins. Isfélag Vestmannaeyja hf. flutti fyrir tveimur árum nýtt skip til lands- ins, Antares VE, og keypti um 2.000 rúmmetra endumýjunarrétt tfl úreld- ingar á móti skipinu sem flutt var inn, samkvæmt reglum sem þá giltu um endurnýjun fiskiskipa. í desember sl. voru reglur um úreldingu fiskiskipa afnumdar með dómi Hæstaréttar og þurfti því ekki lengur að kaupa úreld- ingu á móti nýju skipi. Hafði ísfélagið þá keypt úreldingu fyrir um 145 millj- ónir króna og gerir nú kröfu um að fá þær endurgreiddar úr ríkissjóði. Sig- urður Einarsson, framkvæmdastjóri Isfélagsins, segir að í raun sé höfðað mál á hendur ríkinu vegna þess að úr- eldingarreglur hafi verið afnumdar. „Við sættum okkai- ágætlega við regl- umar eins og þær voru, en um leið og þær vom afnumdar voram við að eyða peningum sem við hefðum ekki þurft að eyða.“ tírelding keypt dýru verði Málið var dómtekið sl. þriðjudag og er gert ráð fyrir að ríldslögmaður skili um það greinargerð í haust. Erfitt er því að segja til um hvenær dómur fellur í málinu. Hinsvegar þykir ljóst að hópur útgerðarmanna muni fylgjast grannt með framvindu mála, enda hafa fjölmargar útgerðir varið tugum og hundraðum milljóna króna í kaup á rúmmetram vegna endumýjunar. Skömmu áður en dóm- ur Hæstaréttar féll hafði nefnd á veg- um sjávarútvegsráðherra komist að þeirri niðurstöðu að ekki skyldi breyta reglum um úreldingar fiski- skipa og að áfram mætti stækka skip um 25% við endumýjun en kaupa rúmmetra til móts við frekari stækk- un. Þannig þurftu útgerðarmenn að úrelda fleiri báta, annaðhvort í eigin eigu eða kaupa báta til úreldingar. Verð á úreldingarrúmmetra var mjög mismunandi en fór hæst í 85.000 krónur árið 1997. Runólfur Hall- freðsson, útgerðarmaður á Akranesi, segist munu fylgjast með framvindu mála með hugsanlega málsókn í huga. Runólfur greiddi um 120 milljónir króna fyrir úreldingu vegna endur- nýjunar á nótaskipinu Bjama Ólafs- syni AK um einu og hálfu ári áður en dómur Hæstaréttar féll. „Miðað við þær aðstæður sem þá vora var ekki hægt að sjá fram á að staðan myndi breytast." Þá segist Pétur Stefánsson, útgerð- armaður, einnig hafa lagt fram háar fjárhæðir vegna úreldingarkostnaðar vegna endumýjunar á frystitogaran- um Pétri Jónssyni RE og hann muni kanna rétt sinn til málshöfðunar. Morgunblaðið/Benedikt HALLDÓR Jónasson, skipstjóri á Sveini Benediktssyni SU, er ánægð- ur með kolmunnaveiðamar til þessa. Kolmunninn færist norðar SÆMILEGA hefur gengið á kolmunnaveiðunum suðvestur af Færeyjum undanfarna daga, en svo virðist sem kolmunninn sé að færast norðar. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva hafa ís- lensk skip landað um 18.000 tonnum af kolmunna á Islandi frá áramótum og erlend skip um 8.000 tonnum, en auk þess hafa íslensk skip landað milli 2.000 og 3.000 tonnum í Færeyjum. „Við fengum um 1.150 tonn í fimm hölurn," sagði Halldór Jónasson, skipstjóri á Sveini Benediktssyni SU, sem var á Reyðarfirði í gær og ætlaði aftur á miðin í gærkvöldi. Hann var almennt ánægður með veiðamar og sagði að það að hafa unnið með flottroll í mörg ár væri mjög góð undirstaða. „Það var bræla fyrsta daginn en svo fengum við um 120 tonn og síðan frá 200 og upp í 350 tonn í hali. Við höfum verið suð- ur og suðvestur af Færeyjum en þetta virðist vera að þokast norðar.“ Óli í Sandgerði AK var kominn með 750 tonn í gær eftir þriggja daga veiði. Hann landaði í Færeyj- um um helgina og verið var að at- huga hvort hann ætti að halda þang- að aftur í gærkvöldi. „Útlitið var ekki mjög bjart en ef dregur úr veið- inni við Færeyjar skoðum við vænt- anlega Rósagarðinn næst,“ sagði St- urlaugur Sturlaugsson hjá Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi. Hákon ÞH landaði tæplega 700 tonnum í Neskaupstað í vikubyrjun og er farinn aftur á miðin. Sighvatur Bjamason VE landaði um 1.000 tonnum í Vestmannaeyjum I fyrra- dag og fer næst á síldina, en hann hefur fengið samtals um 1.600 tonn af kolmunna. Stefán Friðriksson, út- gerðarstjóri hjá Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum, sagði að þótt eitt- hvað virtist vera af kolmunnanum hefði verið ákveðið að veðja frekar á sfldina. Júpiter og Neptúnus frá Þórshöfn era að búa sig undir að fara saman á kolmunnaveiðar. Þeir hafa verið að prófa trollin í Jökuldýpinu fyrir utan Reykjavík í vikunni, en að sögn Jó- hanns A. Jónssonar, framkvæmda- stjóra Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf., fara þeir ekki á miðin fyrr en allt verður komið í lag. „Skoti hefur ver- ið þeim til leiðsagnar og ekki verður farið á miðin nema hann fari með. Annars verður farið í nokki’a sfldar- túra.“ § Melka MENSWEAR HAGKAUP Mejra úrvaí - betri kaup

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.