Morgunblaðið - 20.05.1999, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 53 .
________IIMRÆÐAN______
Foreldrar - Læknar
- Alþingismenn
„Á ÉG að gæta bróð-
ur míns?“ Þetta flaug
mér í hug, þegar ég las
samþykkt frá lands-
fundi Sjálfstæðisflokks-
ins hinum síðasta. Ég
gríp hér inn í fréttina,
þar sem ályktað er, að
það sé á valdi hvers ein-
staklings að velja og
hafna hvaða íþrótt hann
stundar hverju sinni.
Hnefaleikar eru stór-
hættuleg íþrótt og mun
ég sýna fram á það hér
á eftir, en eftirfarandi
klausa hefur verið þýdd
fyrir mig úr blaði
Breska læknafélagsins.
Olympískt box eykur hættuna á
heilaskaða vegna þess að boxari er
dæmdur út frá því hversu mörgum
höggum hann kemur á andstæðing-
inn, þannig að takmarkið er að koma
eins mörgum höggum á andstæðing-
inn og mögulegt er á þeim tíma sem
lotan stendur yfir. Margir bardagar
á nokkrum dögum þýðir að þeir sem
komast lengst þurfa að þola stans-
laus högg á mjög stuttum tíma og ef
heilinn hefur orðið fyrir hinum
minnsta skaða í fyrri bardögum þá
gæti það auðveldlega leitt til dauða.
Olíkt líkamlegum skaða er ekki
hægt að sjá heilaskaða í hringnum
og ekki græðist heilinn af sjálfu sér.
Nútíma læknisfræðileg tækni
sýnir hátt yfir allan vafa að krónísk-
ur heilaskaði hlýst af endurteknum
höggum sem allir hnefaleikarar fá
hvort sem þeir eru atvinnumenn eða
áhugahnefaleikarar.
Mörg dæmi eru um langtímaáhrif
eftir hnefaleika svo sem minnisleysi,
höfuðverkur lélegt jafnvægi og sam-
hæfing og óskýr talandi.
Breska læknafélagið vill banna
hnefaleika jafnt hjá atvinnu- og
áhugamönnum því læknisfræðilegar
sannanir eru fyrir því að heilaskaði
er algengur í báðum tilfellum ...“
„... A meðan líkaminn er varinn af
beinum, húð og fítu og vöðvum er
heilinn aðeins varinn af höfuðkúp-
unni og tengist henni að innanverðu
með háræðum og fínum taugum.
Þegar boxari fær högg beint á höf-
uðið snýst höfuðið
mjög snögglega og fer
síðan í venjulega stöðu
á mun hægari hraða.
Að auki hreyfast mis-
munandi svæði heilans
á mismunandi hraða og
veldur þetta allt mikl-
um hræringum í heil-
anum. Þetta veldur
skemmdum, til dæmis
á yfirborði heilans sem
slæst í innra lag höfuð-
kúpunnar; tauganet
rifna; spenna milli
heilavefjar og háræða
geta valdið blæðingum;
þrýstibylgjur geta
valdið mismunandi
blóðþrýstingi til hinna ýmsu hluta
heilans og einnig geta myndast blóð-
kekkir inni í heilanum."
Mistök lífs míns
Ein stærstu mistök lífs míns voru
þau að ég byrjaði að æfa hnefaleika
Hnefaleikar
Ein stærstu mistök lífs
míns voru þau, segir
Marteinn B. Björgvins-
son, að ég hóf hnefa-
leika 15 ára gamall.
15 ára gamall, á árinu 1944. Ég
keppti nokkrum sinnum um íslands-
meistaratitilinn og innanfélagstitil.
Þar að auki keppti ég oft fyrir
bandaríska herinn, sem hélt hnefa-
leikakeppni á Hálogalandi. Einnig
keppti ég á Keflavíkurflugvelli og
fleiri stöðum úti á landi. Mér telst
til, að ég hafi keppt hátt í 50 sinnum
alls. Seinna í lífi mínu, nánar tiltekið
23 árum eftir að ég hætti í hnefaleik-
um, fór að bera á hjá mér minnis-
leysi og miklum höfuðverk. Síðan
ágerðist það þannig, að ég var far-
inn að gleyma svo miklu, að ég var
orðinn hættulegur sjálfum mér og
vinnufélögum mínum. A sama tíma
fór einnig að bera á krampaflogum.
Þetta ágerðist sífellt og var ég far-
inn að nota mikið magn af sterkum
verkjalyfjum og flogaveikislyfjum. Á
endanum varð ég að hætta í minni
iðngrein sem var húsgagnasmíði, en
var jafnframt ófær um að sinna létt-
um störfum.
Gagnrýni
Ég stenst ekki mátið að gagnrýna
Ómar Ragnarsson og Bubba fyrir
þeirra þátt í að endurnýja áhuga
manna fyrir hnefaleikum, þó ég hafi
ekkert á móti þessum mönnum að
öðru leyti. Mér þótti leitt þegar Óm-
ar fór að líkja hnefaleikum við
knattspyrnu, þegar hann í sjónvarp-
inu sagði, að tveir tengdasynir hans,
sem leika knattspymu, yrðu oft
vankaðir við að skalla bolta í knatt-
spymuleikjum. Ég hef síðan spurt
fimm valinkunna knattspymumenn
um það, hvort þeir verði oft fyrir því
að vankast við að skalla bolta. Að-
eins einn þeirra tjáði mér, að hann
hefði orðið fyrir því nokkrum sinn-
um á sínum ferli.
Bubba vil ég gagnrýna fyrir lýs-
ingar hans á hnefaleikum sem sýnd-
ir em á sjónvarpsstöðinni Sýn. Ég
vil leyfa mér að segja, að Bubbi hafi
mjög lítið vit á hnefaleikum, því oft
notar hann röng orð eða nöfn yfir
þau högg, sem hann er að lýsa.
Lokaorð
Að lokum vil ég beina orðum mín-
um að foreldrum, læknum og alþing-
ismönnum, og þá sérstaklega lækn-
um, um að leggja mér lið í baráttu
minni gegn hnefaleikum. Læknar
hafa faglega þekkingu á og reynslu
af skaðsemi hnefaleika. Þeir geta
því orðið að miklu liði við að sann-
færa þá sem hlut eiga að máli um að
hnefaleikar em íþrótt sem ekki á
rétt á sér.
Hnefaleikur er harmleikur, sem
oft býður upp á örkuml og dauða.
Ekki verður um að ræða frekari
skrif af minni hálfu um þetta efni, þó
svo að grein þessari verði svarað.
(Með aðstoð við ritun vegna titr-
ings í hendi og talerfiðleika).
Höfundur er húsgagnasmiður.
Marteinn B.
Björgvinsson
Shellys skór
verð kr. 6.900
Difference sandalar
verð kr. 4.500
Henne sandalar
verö kr. 8.900
Bull Boxer skór
verð kr. 4.900
Bull Boxer skór
verð kr. 4.900
FRABÆRIR SUMARSKOR
MIKIÐ ÚRVAL AF
FÍNNI SKÓM OG SANDÖLUM
Tökum upp
nýjjar sendingar
daglega.
SAUTJAN
SKODEILD
Laugavegí 91. sími 511 1727.
Kringlunni. sími 533 1727.
Veður og færð á Netinu ^mbl.is
4Í.LWF errrH\sA& nýti
NÓATXJN
" NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR ( BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
HEIMASÍÐA NÓATÚNS WWW.noatUn.ÍS
stórhumrr
798
1