Morgunblaðið - 20.05.1999, Qupperneq 70
-J 70 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Klámblaðakóngurinn Hugh
Hefner rasar út
Bryður viagra
og er með fjórar
í takinu
ÞEGAR gestir óku upp að lúxusvillu
glaumgosans Hughs Hefner í
Beverly Hills fyrir nokkrum árum
skelltu flestir upp úr er þeir sáu var-
úðarskiltið „börn að leik“ við heim-
reiðina því Hugh var þekktur fyrir
að vera flest annað en fjölskyldu-
maður á árum áður. Nú geta gestim-
ir hætt að brosa því ýmislegt hefur
breyst á undanfórnum mánuðum.
Maðurinn sem sagður er vera faðir
kynlífsbyltingarinnar í heiminum
hefur sagt skilið við einkvænislífið og
skiltið hefur fengið nýja áletrun:
„Leikfélagar að leik“ eða „Playmates
at Play“.
Hugh sem áður var nefndur „kon-
ungur kynlífsins“ og stofnaði Play-
boy-veldið á sínum tíma, hefur snúið
aftur til fyrri lífshátta 73 ára að aldri
og segist aldrei hafa verið jafn ham-
ingjusamur. Hina auknu orku þakk-
ar hann viagra-lyfinu sem hann segir
bestu endurhæfingu sem völ er á í
dag. Ástarlífið blómstrar og hann er
í sambandi við fjórar konur í einu,
eineggja tvíbura og tvær vinkonur
þeirra. Hugh leggur áherslu á að þau
geri allt saman og að kynlífið sé
betra en nokkru sinni. „Við erum
eins og fjölskylda, það er engin af-
brýðisemi... ég hef aldrei notið lífs-
ins sem nú,“ fullyrðir Hugh alsæll.
Snúningsrúmið snýr aftur
Á landareign hans í Beverly Hills
er klúbbhús með nokkrum litlum
svefnherbergjum þar sem speglar
eru á loftum og veggjum. í húsinu er
einnig óvenjulegt kúluspil með smá-
um eftirlíkingum af playboy-leikfé-
lögum er stynja af unaði er stálkúlan
smellur á þeim.
Smiðir vinna um þessar mundir
HUGH Hefner er núna staddur
á kvikmyndahátfðinni í Cannes
og er að sjálfsögðu með fjórar
dömur upp á arminn.
LEIKFÉLAGAR hafa ætíð verið í upáhaldi hjá Hugh. Hér er hann
árið 1988 með fýrrverandi eiginkonu sinni, Kimberley Conrad.
hörðum höndum við að koma aftur
upp hinu goðsagnakennda snúnings-
rúmi sem var alþekkt á heimili
kóngsins í Chicago á árum áður.
Rúmið er hægt að berja augum á
sýningu á Playboy varningi er opnuð
verður í júní, ásamt kúluspilinu, kan-
ínubúningum og öðrum hlutum.
Fyrrum eiginkona Hughs, Kim-
berley Conrad, var eitt sinn leikfé-
lagi Playboy en hjónabandi þeirra
lauk fyrir rúmu ári. Þau höfðu verið
gift í nokkur ár og alla tíð trú hvort
öðru og eiga saman tvö börn. Kim-
berley flutti úr steinhöll hans og í
gestahúsið á landareigninni er þau
skildu. Hugh tók skilnaðinn mjög
nærri sér og dró sig í hlé um tíma.
„Hún er núna stúlkan í næsta húsi.
Ég elska hana enn,“ segir hann al-
varlegur og verður hugsi um stund.
Leið eins og safngrip
í heilan áratug fór Hugh varla út
fyrir hússins dyr og var farið að líða
eins og safngrip. Bestu vinir hans
hvöttu hann til að bregða sér af bæ
og komast aftur í tengsl við raun-
veruleikann. Að Hughs sögn drógu
þau hann með sér á skemmtistað þar
sem hann hitti tvíburana Sandy og
Mandy Bentley sem síðar kynntu
hann fyrir vinkonum sínum Brande
og Jessicu.
► BIÐIN eftir nýju Stjörnustríðs-
myndinni er á enda hjá þúsundum
aðdáenda í Bandarfkjunum því
þegar klukkan sló tólf á mið-
nætti á þriðjudag var „Star
Wars: Episode I: The Phantom
Menace" frumsýnd í rúmlega
2.000 kvikmyndahúsum um allt
landið. Víða var myndin sýnd
stanslaust f heilan sólarhring
til að svala þörf æstra aðdá-
enda er gátu með engu móti
„Vinur minn er læknir og hann gaf
mér viagra í afmælisgjöf. Þetta er
besta gjöf sem ég hef fengið. Með
því get ég stundað kynlíf sem ég gat
aðeins látið mig dreyma um áður.“
Hann segir lyfið og vinkonur hans
fjórar gera það að verkum að honum
líður eins og krakka á ný. „Ég myndi
ekki vilja hafa hlutina öðruvísi á
neinn hátt. Við fórum öll út saman
og þær eru allar nánar vinkonur.
Það glæðir sambandið unaði. Tví-
burarnir hafa aldrei áður verið með
sama manninum svo að þetta er ynd-
islegt.“ Klámblaðakóngurinn mikli
er því kominn á fulla ferð aftur á efri
árum, hamingjusamari og vinsælli
meðal kvenna en nokkru sinni fyrr.
á
beðið
lengur eftir að berja
geimheljur sínar augum.
Líkur eru á að myndin hafi sleg-
ið aðsóknarmet og hafi halað inn
hærri upphæð en Júragarður
Stevens Spielberg gerði á sfnum
fyrsta sýningardegi. Miðasala fór
af stað 11. maí og styður þessar
getgátur, en uppselt varð fljótlega
í flest kvikmyndahús á frumsýn-
inguna og sums staðar alla fyrstu
sýningarvikuna.
Frumsýningargestir mættu
margir hverjir í búningum í kvik-
myndahúsið Arbey Brady í New
York. Eftir frumsýningu brá leik-
stjórinn George Lucas sér í frí og
ferðafélagi hans var enginn annar
en Steven Spielberg. Nú velta
margir því fyrir sér hvort þeir séu
með eitthvert stórkostlegt kvik-
myndaverk í uppsiglingu.
NIKE BUÐIN
Laugavegí6
Stjörnustríð um öll Bandaríkin
Lágl lyfjaverð
fjeíKi’ skipt sköpum...
Apétekið
Rrautryðjendur að
Ueyrá lytjaverði
Tvær saman,
stór og lítil vaxfylling
Veró áðnr 1.150kr.
Verd nil 699kr,
Tllbodid glldir 20. maí til 25. maí
® (M {mMxm&Mæ sMn dJægjœ
■NNhiKMMIðHkíaiALUiAI
Laugavegi 40,
simi 561 0075.
- .‘S J / \ F J> t J -
mbl.is
_/\LLTA/= EITTH\SA£3 /VÝTT