Morgunblaðið - 20.05.1999, Side 76
Aðsendar greinar á Netinu
v^j> mbl.is
_ALLTAf^ eiTTH\SA£> NÝT~T
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVLK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Islensk
áhöfn á
> Panayota
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur
og Alþjóða flutningamannasam-
bandið hafa náð samkomulagi við
Atlantsskip um að íslensk áhöfh fari
um borð í skipið Panayota í eigu
Bridgestone Shipping Ltd., sem
Atlantsskip hefur á leigu. Skipið
kom til landsins í gær með farm
fyrir varnarliðið.
Borgþór Kjæmested, hjá Alþjóða
flutningamannasambandinu, segir
að samkomulag um þetta hafi verið
handsalað í fyrradag. Forsvars-
menn Sjómannafélags Reykjavíkur
skrifuðu forsvarsmönnum Atlants-
skipa bréf 25. febrúar þar sem fyr-
'LJPirtækinu er bent á að ekki hafi verið
gerðir íslenskir kjarasamningar
fyrir háseta um borð í Panayota.
Sjómannafélagið eigi í alvarlegri
kjaradeilu við þau íslensku skipafé-
lög sem stundi siglingar til og frá
landinu með þessu fyrirkomulagi. I
bréfinu var því lýst yfir að félagið
væri knúið til aðgerða gegn þessum
siglingum næst þegar skipið kæmi
til hafnar.
Útlán íbúða-
lánasjóðs
Stefna
fram úr
fjárlaga-
heimild
ÚTLÁN íbúðalánasjóðs voru
9,4 milljarðar á fyrstu íjórum
mánuðum þessa árs og útlit er
fyrir að þau fari fram úr heim-
ild í fjárlögum sem er 23,3 millj-
arðar króna. Þau voru um 3,7
milljörðum króna hærri en á
sama tímabili í fyrra, meðallán
hafa hækkað úr 2,5 í 3 milljónir
króna og umsóknir eru 39%
fleiri.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sigurði Geirssyni hjá Ibúða-
lánasjóði hefur þó heldur dregið
úr aukningunni að undanfórnu.
Hann segir að margir íbúða-
kaupendur geri í áætlunum sín-
um ekki ráð fyrir að þurfa að
mæta neinum áföllum og marg-
ir muni lenda í erfiðleikum þeg-
ar samdráttartímabil hefst í
efnahagslífinu.
■ 66% aukning/Cl
r^j.
Borgarstjóri leggur fram nýja tillögu
til iausnar kjaradeilu kennara
Býður framl50-170
milljónir til viðbótar
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri kynnti í gær nýjar til-
lögur til lausnar kjaradeilu kenn-
ara í Reykjavík og borgarinnar.
Þær gera ráð fyrir að borgin verji
150-170 milljónum til viðbótar til
skólastarfs á næsta skólaári.
Borgarstjóri kynnti tillögurnar
fyrir kjararáði kennara í gær og á
fundi með skólastjórum í Reykja-
vík;
Á fundi Ingibjargar Sólrúnar og
skólastjóranna í gær var farið yfir
stöðuna sem blasir við, en um 200
kennarar í Reykjavík hafa sagt
upp vegna óánægju með kjörin.
„Á fundinum kynnti ég, eftir að
hafa hlustað vel á sjónarmið skóla-
stjóranna, að ég væri tilbúin að
leggja umtalsverða fjármuni í
skólastarfið á næsta skólaári. Ég
er þar að tala um 150-170 milljón-
ir til viðbótar og að þessum fjár-
munum verði varið til að bæta og
þróa skólastarf. Peningarnir
skiptist á milli skólanna og skóla-
stjórar geti eftir atvikum, eða
skólastjóri í samráði við kennara,
varið þessum fjármunum til að
kaupa af kennurum vinnu sem lýt-
ur að því að innleiða nýja starfs-
hætti í skólanum og aðlaga skóla-
starfið nýrri aðalnámskrá sem ný-
lega var gefin út.“
Hætt verði við að gera
tilraunakj ar asamning
Ingibjörg Sólrún sagði að það
væri sinn skilningur að það væri
ekki ágreiningur um það milli
borgarinnar og kennara að menn
vildu innleiða nýja starfshætti í
skólunum. Hún sagðist því ekki
telja að það væri ágreiningur um
hugmyndafræðina sem væri að
finna í þessum svokallaða til-
raunakjarasamningi sem var til
umræðu fyrr í vor. Ágreiningur-
inn væri um kennsluafsláttinn.
„Ég er að vonast eftir að við
getum nálgast málið frá nýju sjón-
arhorni með því að vinna okkur í
þessa átt án þess að það sé gerður
tilraunakjarasamningur. Þetta sé
gert með því að kaupa vinnu af
kennurum í hverjum skóla fyrir
sig á grundvelli gildandi kjara-
samnings og ráðningarsamnings.“
■ Tilraunasamningur/12
Mokveiði á
Reykjaneshrygg
FuIIfermi
á 14 dögum
„ÞAÐ HEFUR verið mjög góð veiði
síðustu vikumar og virðist lítið vera
að draga úr henni,“ sagði Ásmund-
ur Ásmundsson, skipstjóri á Víði
EA, í gær en skipið var þá að út-
hafskarfaveiðum á Reykjanes-
hrygg. „Veiðin hefur verið mjög góð
hjá flestum, um 20-30 tonn í hali eft-
ir 10-12 klukkustunda tog. Við erum
búnir að vera nákvæmlega hálfan
mánuð í túmum og náum líklega að
fylla skipið á næstu klukkutímum.
Við gemm síðan ráð fyrir að verða í
landi á föstudagsmorgun," sagði Ás-
mundur.
Leyfilegur heildarafli Islendinga
á Reykjaneshrygg á þessu ári er 45
þúsund tonn og því má búast við að
hratt gangi á kvótann meðan veiðin
er góð. Nú er 21 íslenskur togari við
veiðar á svæðinu, flestir um 20-30
mflur innan íslensku landhelginnar
en fjölmörg erlend skip em einnig
utan h'nunnar, aðallega frá Portúgal
og Spáni en einnig frá Rússlandi og
Eystrasaltsríkjunum.
Morgunblaðið/Ómar
SH endurskipuleggur starfsemina og lokar starfsstöð á Akureyri
Fyrrverandi bæj-
arstjóri segir
ákvörðunina svik
JAKOB Björnsson, fyrrverandi bæj-
arstjóri Akureyrar, sagði i gær að
ákvörðun Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna um endurskipulagningu,
sem meðal annars felur í sér að
starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri
verður lögð niður um mánaðamótin,
væri svik.
„Mér þykir þetta afar sárt og tel
þetta í raun hreinustu svik miðað við
það sem um var talað, þetta átti að
vera uppbygging til framtiðar en
ekki skammtímadúsa, sem kippt yrði
burt við fyrsta tækifæri,“ sagði Jak-
ob, sem var bæjarstjóri þegar sam-
komulag var gert um uppbyggingu
SH í atvinnulífi bæjarins. Stærsti
einstaki liðurinn hefði verið flutning-
dMirinn á skrifstofunni norður og nú,
^xjórum árum síðar, ætti að loka
henni.
Hann benti á að bæjarstjórnin
hefði staðið við sinn hluta samkomu-
lagsins, m.a. með þvi að halda sig til
hlés varðandi stjómun í málefnum
ÚA.
Endurskipulagning SH, sem
ákveðin var á fundi í gær, felur í sér
að störfum fækkar um 19 alls, átta á
Akureyri og 11 í Reykjavík, og verða
starfsmenn alls 73 í stað rúmlega 100
á liðnu ári.
Róbert Guðfinnsson, formaður
stjómar SH, sagði að vissulega hefðu
væntingar verið gerðar tfl starfs-
stöðvarinnar á Akureyri, en frá því
gengið hefði verið frá þessu sam-
komulagi hefðu orðið örar breytingar
í sjávarútvegi, fyrirtækjum fækkað
og þau stækkað þannig að þörf fyrir
þjónustu væri minni. Hann sagði að á
sínum tíma hefðu menn haft fulla trú
á að hægt yrði að byggja upp starf-
semina á Akureyri en ör þróun gerði
að verkum að ekki væri þörf fyrir svo
stóra sölumiðstöð.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, sagði í
gær að dapurlegt væri að horfa á eft-
ir þeim .störfum, sem nú hyrfu, en
ekki mætti gleyma að SH hefði gert
mikið í atvinnulífinu á Akureyri.
„Hvort sem mönnum líkar betur eða
verr verða menn að þola þær breyt-
ingar, sem orðið hafa í þessum
rekstri,“ sagði hann og bætti við að
umdeilanlegt væri hvort verið væri
að ganga á bak gefnum fyrirheitum.
■ Fyrirtæki verða/14
Kátir
krakkar á
Hjallaróló
ÞEIM brá heldur betur í brún
krökkunum á Hjallaróló í
Kópavogi þegar undarlegur
fugl birtist í sandkassanum hjá
þeim. Þau virtu hann vel fyrir
sér um stund, bæði frá upp-
réttu sjónarhorni og á hvolfi. í
sömu andrá mundaði skrýtni
fuglinn undarlegt tæki sem
hann var með um hálsinn og
smellti af.