Morgunblaðið - 17.09.1999, Side 1

Morgunblaðið - 17.09.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913 210. TBL. 87. ARG. FOSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Þótt verulega hafi dregið úr vindstyrknum eru flóðin, sem Floyd olli, víða þau mestu á öldinni. Eru fjögur banaslys rakin til þess. Hér er verið að bjarga konu úr bíl, sem er umflotinn vatni, skammt frá Shallotte í N-Karólínu. Þúsundir manna missa heimili sín í óveðrinu Jacksonville. Reuters. FELLIBYLURINN Floyd geyst- ist yfir Norður-Karólínu í Banda- ríkjunum fyrir dögun í gær, varð fjórum mönnum að bana, eyðilagði hús og olli miklum flóðum á stóru svæði. Hundruð þúsunda manna voru án rafmagns þegar óveðrið gekk yfir. James Hunt, ríkisstjóri Norður- Karólínu, sagði að þúsundir íbúa ríkisins hefðu misst heimili sín í óveðrinu. Hann taldi að tjónið gæti numið hundruðum milljóna dala, tugum milljarða króna. Floyd var kominn til Virginíu síðdegis í gær og olli usla í Virg- inia Beach og fleiri byggðarlögum við ströndina. Vindhraðinn hafði þá minnkað verulega og var að- eins 130 km á klukkustund. Er hann nú flokkaður sem hita- beltisstormur. Yfirvöld í norðausturhluta Bandaríkjanna höfðu þó allan var- ann á. Skólar voru lokaðir í Wash- ington, New York og fleiri borgum og gefnar voru út stormviðvaranir í byggðarlögum á austurströnd- inni, allt norður að Plymouth í Massachusetts. Allt að þriggja metra ölduhæð Floyd kom að landi á Cape Fear klukkan þrjú í fyrrinótt að staðar- tíma, klukkan sjö í gærmorgun að íslenskum tíma. Vindhraðinn var þá 177 km á klukkustund. Síðdegis í gær stefndi lægðin norðnorðaustur á um 38 km hraða á klukkustund. Búist var við að stormurinn myndi snúast í norð- austur og minnka smám saman þegar hann færi inn í landið. Flug- og lestarsamgöngur fóru úr skorðum vegna óveðursins á austurströndinni og ringulreið var á mörgum flug- og lestar- stöðvum. Úrhellisrigning fylgdi fellibyln- um og ölduhæðin við ströndina var allt að þrír metrar. Flóðin voru mest í austurhluta Norður-Kar- ólínu og á vegum við ströndina náði sjórinn upp að mitti. Stífla við stöðuvatn í Pitt-sýslu brast af völdum flóðanna og björgunar- sveitir urðu því að flytja flóttafólk úr nálægu neyðarskýli. „Við höfum þegar fengið fregnir um fjögur dauðsföll og mesta hættan er sú að þessi miklu flóð, hin mestu á öldinni, verði til þess að fleiri hætti sér á strandsvæðin til að reyna að komast í hús sín eða á aðra staði,“ sagði Hunt. 400.000 manns án rafmagns Ríkisstjórinn bætti við að um 400.000 manns væru án rafmagns og hartnær 90 vegir hefðu eyðilagst eða skemmst af völdum flóðanna. Dauðsföllin fjögur urðu vegna bílslysa sem rakin eru til óveðurs- ins. Einn maður beið bana af völd- um fellibylsins þegar hann geystist yfir Bahamaeyjar á þriðjudag. Þegar Floyd náði hámarki á mánudag var hann á meðal öflug- ustu fellibylja sem geisað hafa á Atlantshafínu og bandarísk yfirvöld voru því með mikinn viðbúnað. 3,5 milljónum manna var skipað að flýja heimili sín og voru það mestu fólksflutningar frá upphafi í sögu Bandaríkjanna. ■ Mikið tjón/22 Atökin í Dagestan Skæruliðar með liðs- safnað Makhachkala, Moskvu. AFP, AP. ALLT að 1.500 íslamskir skærulið- ar eru nú saman komnir við landa- mæri Tsjetsjníu og Dagestan-hér- aðs í Rússlandi, að því er talsmaður rússneska innanríkisráðuneytisins skýrði frá í gær. Talið er að skæru- liðamir bíði færis að gera innrás í Dagestan. Enginn vafi þykir leika á því að fylgismenn þeirra beri ábyrgð á sprengjutilræði í Volg- odonsk í Rússlandi í gær, þar sem að minnsta kosti 17 manns létust. Borís Jeltsín Rússlandsforseti gaf í gær fyrirmæli um að öryggis- gæsla við landamærin yrði aukin. Igor Sergejev, innanríkisráðherra Rússlands, sagði að rússneskt her- lið væri í viðbragðsstöðu og tilbúið að hrinda árás skæruliða. Kaupsýslumaðurinn Borís Ber- ezovskí, sem hefur mikil sambönd í Norður-Kákasuslöndunum, sagði í gær, að búast mætti við sprengjutil- ræðum lengi enn. Tsjetsjensku skæruliðarnir teldu sig ekki hafa neinu að tapa enda væru Rússar berskjaldaðir fyrir hermdarverkum af þessu tagi. Meira en 300 manns hafa farist í sprengjutilræðum að undanfömu. ■ Að minnsta kosti/23 Reuters Oll framhlið þessa fjölbýlishúss í borginni Volgodonsk í S-Rúss- landi tættist burt er bflsprengja sprakk fyrir framan það í gær. A.m.k. 17 manns fórust. MikiII gígur er þar sem bfllinn stóð. Fellibylurinn Floyd geysist yfír Norður-Karólfnu og Virginfu Skúratov, fyrrverandi ríkissaksóknari í Rússlandi, um reikningana í Bank of New York Bankar fengu IMF-lánið Moskvu, Washington. Daily Telegraph, Reuters. UM 175 milljarðar ísl. kr., sem Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, lánaði rússneskum stjórnvöldum, fóru í raun aldrei til Rússlands, heldur voru þeir lagðir beint inn á reikninga ýmissa rússneskra banka erlendis. Kom þetta fram í fyrradag hjá Júrí Skúratov, sem var ríkissaksóknari í Rússlandi þar til Borís Jeltsín, forseti landsins, vék honum frá fyrir skömmu. Mad- eleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að Bandaríkin gætu ekki lengur tekið þátt í aðstoð við Rússland nema stjórnvöld þar beittu sér af alvöru gegn spillingunni í landinu. Skúratov segir, að rússneski seðlabankinn hafi selt rússneskum bönkum IMF-gjaldeyrinn á mjög hagstæðu gengi í fyrrasumar og hafi féð verið lagt inn á reikninga þeirra í Bank of New York. Skúratov er í raun að segja, að féð hafi verið notað til að bjarga rússnesku bönkunum í stað þess að styrkja gengi rúblunnar og hann gefur í skyn, að bankamennirnir hafi vitað fyrir, að gengið yrði fellt í ágúst í fyrra og einnig, að rússn- eska ríkið ætlaði ekki að greiða sumt af skuldum sínum. Losuðu sig við skuldabréfin I júlí í fyrra var tilkynnt, að IMF ætlaði að lána Rússum rúmlega 10.000 milljarða ísl. kr. og var von- ast til, að það myndi draga úr lík- um á hruni í fjármálalífi landsins. Af hruninu varð samt sem áður mánuði síðar en Skúratov segir, að af fyrstu greiðslunni, 197 milljörð- um kr., hafi 175 milljarðar farið í að bjarga 18 stórum bönkum. Féð hafi þeir notað til að losa sig við skammtíma ríkisskuldabréf enda hafi ríkissjóður tilkynnt fljótlega, að þau yrðu ekki greidd. Bank of New York hefur verið mikið í fréttum að undanförnu vegna hugsanlegs peningaþvættis og hefur ýmislegt verið nefnt í því sambandi, m.a. að þar hafi verið á ferðinni hluti af IMF-lánum til Rússlands. Raymond Kendall, yfirmaður Al- þjóðalögreglunnar, Interpol, sagði í Genf í gær, að peningaþvættis- málið í New York væri það um- fangsmesta, sem stofnunin hefði nokkru sinni kynnst. Það auðveld- aði heldur ekki rannsóknina, að svo virtist sem spillingin í Rússlandi næði til manna í æðstu stöðum og því væri engrar hjálpar að vænta þaðan. Ekki væri einu sinni hætt- andi á að veita Rússum upplýsing- ar af ótta við, að þær lentu í röng- um höndum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.