Morgunblaðið - 17.09.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 17.09.1999, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gert ráð fyrir tugum lendinga Boeing 757 í Reykjavík á hverju ári Urræði í undantekningum við sérstakar aðstæður í HÖNNUNARFORSENDUM Almennu verk- fræðistofunnar hf. um endurbyggingu Reykjavík- urílugvallar er gert ráð fyrir tugum lendinga Boeing 757-þotna á áii en að sögn Þorgeirs Páls- sonar flugmálastjóra eru hverfandi líkur á að komi til jafnmargra lendinga svo stórra véla á vellinum. Notast yrði við flugbrautina sem liggur frá norðri til suðurs, sem er óbreytt fyrirkomuiag frá því sem verið hefur til þessa, en Reykjavíkurflugvöll- ur er varaflugvöllur fyrir millilandaflug og m.a. gert ráð fyrir lendingum Boeing 757. „Brautin verður endurbætt tO muna þannig að hún verður sterkari og betur í stakk búin að taka við þessari umferð, en við reiknum ekki með í reynd að þessar vélar þurfi að lenda á vellinum nema í einstaka tOvikum," segir Þorgeir. Þorgeir kveður sig ekki reka minni til að vélar af þessari tegund hafi nokkurntíma þurft að lenda í Reykjavík. „Það er raunar svo að vara- flugvellir eru sárasjaldan notaðir og yrði nánast algjör undantekning ef Reykjavíkurflugvöllur myndi þurfa að anna flugumferð sem ætluð er fyrir Keflavík. Ég hygg þó að útfrá tæknOegum forsendum sé ekkert því tO fyrirstöðu að slíkar vélar geti lent á vellinum og hann er fullgOdur og nothæfur sem varaflugvöllur. Menn eru hins veg- ar ekki sérstaklega áfjáðir í slíkar lendingar mið- að við núverandi ástand brautanna," segir Þor- geir. Meiri kröfur annarra véla Hann segir að samkvæmt áætlunum um Reykjavíkurflugvöll sem varaflugvöll sé aðallega miðað við að lent yrði stórum vélum þar ef EgOs- staðaflugvöllur og Akureyrarflugvöllur væru báðir lokaðir vegna erfiðra veðurskOyrða. „Það verður að vera tO staðar varaflugvöllur ef aðal- flugvöllur er lokaður og það getur verið af fleiri ástæðum en vegna veðurs, t.d. hafi flugvöllur lok- ast vegna þess að vél hafi bilað á miðri flugbraut eða hlekkst á af einhverjum ástæðum. Boeing 737 flugvélar hafa margsinnis lent á Reykjavíkurflugvelli og þó að um minni vél sé ræða, gerir hún í raun og veru meiri kröfur tO lendingar og flugtaks á vellinum frá tæknilegu sjónarmiði. Hjólabúnaður Boeing 757 er með stæiTa hjólastell en Boeing 737 og dreifir því þunganum yfir stærra svæði. Sömuleiðis má nefna að á árum áður lentu Boeing 727 vélar hér á vellinum, og þær eru ekki miklu minni en Boeing 757 í dag,“ segir Þorgeir. Glæsifley í Reykjavík Faghópur leik- skólastjóra Laun í leikskól- um of lág MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn faghóps leikskóla- stjóra: „Stjóm faghóps leikskóla- stjóra harmar það ástand sem skapast hefur á mörgum leik- skólum. Skortur á starfsfólki og sífelld óvissa um hvort leik- skólastarfíð verður með eðli- legum hætti frá degi tO dags skapar óviðunandi óöryggi fyrir börnin. Leikskólaárin eru mikdvægustu mótunarár barnsins og því brýnt að þau búi við öryggi. Grunnvandi leikskólanna er of lág laun starfsfólks. Mörg sveitarfélög hafa gripið til aðgerða til að bæta ástandið sem hefur þó ekki alls staðar skilað þeim árangri sem vonast var td. Stjórn faghóps leikskóla- stjóra skorar á þau sveitarfé- lög sem ekki hafa nú þegar gripið til ráðstafana sem duga að grípa til aðgerða nú þegar.“ Þórshöfn í Færeyjum 120 sýna á „Vestnorden44- ferðakaup- stefnunni FERÐAKAUPSTEFNAN Vestnorden Travel Mart 1999 verður haldin dagana 22.-24. september. Þetta er í 14. sinn sem þessi kaupstefna er hald- in og er hún að þessu sinni í Þórshöfn í Færeyjum. Að henni standa Ferðamálaráð Færeyja, Grænlands og fs- lands. Sýnendur eru um 120 frá vestnorrænu löndunum þremur: Færeyjum, Græn- landi og íslandi. A annað hundrað kaupendur frá Bret- landi, Þýskalandi, Frakk- landi, Sviss, Austurríki, Hollandi, Belgíu, Ungverja- landi, Tékklandi, Póllandi, Bandaríkjunum og Kanada, Astralíu auk Skandinavíu- landanna hafa tilkynnt þátt- töku sína á kaupstefnunni. SÍÐASTA skemmtiferðaskip sumarsins, Silver Cloud, hélt úr Reykjavíkurhöfn klukkan 18 í gærkvöld eftir rúmlega sólar- hrings viðdvöl hér á landi. Skipið, sem siglir undir fána Bahamaeyja, er allt hið glæsi- legasta. 148 svefnklefar eru ÖLDRUNARÞJÓNUSTA sjúkra- húsanna í Reykjavík verður með op- ið hús fyrir almenning á Landakoti helgina 18. og 19. september, í til- efni af „Ari aldraðra". Húsið verður opið kl. 13-16 báða dagana. Þar verður starfsemi og stefna öldrunar- þjónustunnar kynnt og aðstaðan sýnd. Forseti Islands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Ingibjörg Pálma- dóttir, heilbrigðis- og trygginga- málai-áðherra og Magnús Péturs- son, forstjóri sjúkrahúsanna í Reykjavík, verða viðstödd opnunina á laugardaginn kl. 13 og flytja ávörp. í fréttatilkynningu segir: „Sjúkra- hússhluti öldrunarþjónustunnar snýst um það að greina, meðhöndla og endurhæfa aldraða með fjölþætt um borð í skipinu og eru flestir þeirra með einkasvölum. Þá eru sundlaug, gufubað, æfinga- salur, kvikmyndasalur og spilavíti um borð. 198 manns eru í áhöfn skipsins sem tekur 315 farþega. 37 skemmtiferðaskip komu veikindi, þannig að þeir nái bestu hugsanlegri færni í athöfnum dag- legs lífs. Markmiðið er að styðja aldraða til sjálfsbjargar og búsetu heima, svo lengi sem kostur er. Þótt aldraðir þurfi að hafa vistaskipti og flytja á elli- og hjúkrunarheimili, er engu síður reynt að auka færni þeirra sem mest, svo þeir fái notið lífsins þar sem ríkulegast. Þannig má segja að öldrunarþjónusta sjúkrahúsanna sé stöð milli sjúkra- húsanna og heimila fólks, þar sem öldruðum býðst lengri tími en mögu- legt er að veita í bráðaþjónustunni og hægt er að greiða úr fjölþættum vandamálum þeirra. Öldrunarþjónusta sjúkrahúsanna leitast við að vera i fararbroddi varðandi rannsóknir, þróunarverk- hingað til lands í sumar og eru það heldur færri skip en í fyrrasumar, en þá komu 43 skemmtiferðaskip til Iandsins. Samkvæmt upplýsingum Hafn- arþjónustunnar hafa 30 skip þegar boðað komu sína næsta sumar. efni og gæðaumbætur í öldrunar- þjónustu á Islandi. Rannsóknar- verkefni í öldrunarfræðum sem starfsmenn hafa unnið verða kynnt á veggspjöldum í skálum á 1., 2., og 3. hæð á Landakoti.“ Á opna húsinu kynna einnig starf- semi sína allmörg félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki í þjónustu aldraðra. Þar má nefna Heima- hjúkrun, Félagsþjónustu aldraðra, Heyrnar- og talmeinastöðina, Hlíða- bæ, Félag eldri borgara og Félag aðstandenda alzheimerssjúklinga. í boði verður ráðgjöf fyrir al- menning, blóðþrýstingur mældur og ýmis fræðsla veitt. Kaffiveitingar verða á þremur stöðum í húsinu og harmonikkan þanin að hætti húss- ins. • • Oldrunarþj ónustan á Landakoti kynnt MINNISPENINGURINN í hlutföllunum 2 á móti 1. Minnis- peningur um kristni í1000 ár í TILEFNI af 1000 ára kristni á Islandi og að höfðu samráði við viðskiptaráðuneyti og kristnihátíðarnefnd gefur Seðlabanki Islands út sérsleg- inn minnispening úr gulli. Á annarri hlið hans er skjaldar- merki íslenska lýðveldisins en á hinni hliðinni mynd af húni á bagli eða biskupsstaf sem fannst á Þingvöllum 1957. Bagalinn er talinn frá fyrstu öld íslenskrar kristni og er einn elsti kirkjugripur sem fundist hefur hér á landi. Minnispeningurinn er úr gulli að 9/10 hlutum, 8,65 g að þyngd eða kvartúnsa af hreinu gulli og er 23 mmm í þvermál. Hann verður löglegur gjald- miðill að verðgildi 10.000 krón- ur, að aðeins verða slegin 3.000 eintök í sérunnninni gljásláttu. Peninginn teiknar Þröstur Magnússonar, teiknari FIT, en sláttu annast Den kongelige mynt í Noregi. Söluverð peningsins verður 15.000 kr. en hann verður í vandaðri viðaröskju með kynn- ingartexta á íslensku og ensku. Ráðgert er að hefja sölu á inn- lendum og erlendum markaði í janúar árið 2000. Fram að þeim tíma er hægt að panta peninginn hjá rekstrardeild Seðlaþanka Islands. Ágóði af útgáfu minnispen- ingsins rennur í Þjóðhátíðar- sjóð, eins og af fyrri minnis- peningaútgáfum, en sjóðurinn var stofnaður 1977 og veitir ár- lega styrki til varðveislu og vemdar þjóðlegra menning- arminja. Gallup Skiptar skoð- anir um alda- mótin FLESTIR telja að aldamótin verði um næstu áramót eða tæplega 66% þeirra sem svör- uðu í skoðanakönnu Gallups. Rúmlega 33,5% telja þau verða um áramótin 2000 og 2001 en tæplega 1% segja þau verða á öðrum tíma. I könnun Gallups kemur fram að tæplega 73% fólks á aldrinum 18-24 ára telja að aldamótin verði um næstu ára- mót en tæplega 53% þeirra sem eru 55-75 ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.