Morgunblaðið - 17.09.1999, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Mannréttindadómstóll Evrópu í Strasbourg segir bótamál tækt til meðferðar
Sönnunarbyrði snúið við
er bótakröfu var hafnað?
I svari íslenska ríkisins sagði að sýknudómur hefði ekki hreinsað
málsaðila af grunsemdum vegna afmarkaðra kæruatriða
I áliti Mannréttindadómstóls Evrópu kemur fram að mál íslensku
konunnar veki flóknar lagaspurningar.
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL
Evrópu hefur komist að þeirri niður-
stöðu að mál íslenskrar konu gegn
íslenska ríkinu sé tækt til meðferðar.
Konan áfrýjaði málinu til dómstóls-
ins eftir að kröfu hennar um skaða-
bætur vegna gæsluvarðhalds, sem
hún var sett í vegna rannsóknar á
kókaínmáli árið 1989, var hafnað.
I áliti dómstólsins, sem hefur að-
setur í Strasbourg, segir að þetta
mál veki flóknar lagaspurningar,
sem leiða eigi til lykta með því að
kanna forsendur kæru stefnanda án
þess þó að lagður sé dómur á verð-
leika málflutnings aðila.
Meðal þess, sem til er tekið í
ályktuninni, er að Hæstiréttur ís-
lands hafí þegar hann fjallaði um
bótakröfu stefnanda í nóvember
1995 komist að þeirri niðurstöðu að
stefnandi væri ekki líklegri til að
vera saklaus en sekur: „Með öðrum
orðum er sönnunarbyrðin hvað varð-
ar þennan þátt sett á stefnanda,"
segir í álitinu og því er síðan bætt við
að hvað annað, sem segja megi, þá
brjóti þetta í bága við 6. grein Mann-
réttindasáttmála Evrópu, sem hefur
lagagildi á íslandi.
Lögreglan í Reykjavík hóf í apríl
1989 rannsókn á smygli og dreifingu
eins kílós af kókaíni, sem smyglað
var til landsins með því að fela það í
varadekki bifreiðar, sem var flutt til
Iandsins haustið 1988. Stefnandi og
sambýlismaður hennar voru hand-
tekin í maí og var sambýlismaðurinn
talinn vera einn af höfuðpaurunum.
Stefnandi var látinn laus á ný, en yf-
irheyrður tvisvar áður en gefin var
út handtökuskipun 3. júní og kveðið
á um að hann skyldi sitja í tveggja
vikna gæsluvarðhaldi, sem síðan var
framlengt um mánuð. Stefnandi var
látinn laus 5. júlí 1989.
Þrír menn voru dæmdir í málinu,
sambýlismaður stefnanda í þriggja
og hálfs árs fangelsi. Stefnandi var
sóttur til saka og meðal annars gefið
að sök að hafa látið sambýlismann
sinn hafa 666 dollara til fíkniefna-
kaupa með það í huga að hagnast á
sölu þeirra. Var stefnanda gefið að
sök að hafa vitað af smyglinu og vit-
að að fé, sem hann hafði milli handa,
var fengið með sölu á efninu, sem
smyglað var til landsins. Þá var hún
ákærð fyrir að hafa neytt kókaíns.
Málið gegn stefnanda var höfðað í
desember 1992 og féll sýknudómur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í janúar
1993. Hafði konan neitað því að hafa
vitað til hvers ætti að nota pening-
ana og þótti ekki hafa tekist að færa
sönnur á hið gagnstæða. Hún var
einnig sýknuð af ákærunni um kóka-
ínneyslu þar sem langt þótti liðið og
aðeins hefði komið til fjársektar.
Konan stefndi ríkinu fyrir ólög-
lega og ónauðsynlega handtöku og
gæsluvarðhald í júní 1993 og var
kröfunni hafnað í Héraðsdómi
Reykjavíkur í júní 1994. Málinu var
áfrýjað til Hæstaréttar, sem hafnaði
kröfunni í nóvember 1995, meðal
annars fyrir þær sakir að þau skil-
yrði laga um meðferð opinberra
mála frá 1974 um að líklegra teldist
að viðkomandi væri saklaus en sekur
væri ekki uppfyllt. Vitni hefðu borið
að hún hefði verið viðstödd við af-
hendingu peninganna og þeim hafi
verið ljóst til hvers átti að nota þá.
Ekki hafi verið að sjá að hún væri
líklegri til að vera saklaus en sek af
þessu framferði og því staðfesti
Hæstiréttur dóm undirréttar.
Ákvæði breytt
í áliti Mannréttindadómstólsins er
vísað til þess að lögum um meðferð
opinberra mála hafi verið breytt fyrr
á þessu ári og hefur ákvæðið um að
sá, sem í hlut eigi, skuli fremur telj-
ast saklaus en sekur nú verið fellt
niður.
Sú grein Mannréttindasáttmála
Evrópu, sem stefnandi vísar til,
hljóðar svo: ,AUir, sem sakaðir eru
um glæpsamlegt athæfi, skulu taldir
saklausir þar til sekt þeirra hefur
verið sönnuð með Iögum.“
Islenska ríkið hélt því fram í svari
til Mannréttindadómstólsins að
þetta atriði hefði aldrei verið nefnt í
bótakröfu hennar og því hafi hún
ekki reynt til þrautar að fá úrlausn
mála sinna heima fyrir. Þá leggur
ríkið áherslu á að stefnandi hafi,
þrátt fyrir að breytingar hafi verið
gerðar á mannréttindaákvæðum
stjómarskrárinnar, meðal annars til
samræmis við ofangreint ákvæði
mannréttindasáttmálans, þegar mál-
ið kom fyrir Hæstarétt, ekki vísað til
þeirra.
I áliti Mannréttindadómstólsins er
bent á að stefnandi hafi ekki átt þess
kost að áfrýja dómi Hæstaréttar
samkvæmt íslenskum lögum. Þá sé
ekki hægt að setja það, sem skilyrði
fyrir því að allar leiðir hafi verið
reyndar, að lögmaður stefnanda leið-
beini réttinum. Það sé meginhlut-
verk og ábyrgð hæstaréttar að beita
og láta í ljósi túlkun sína á fyrr-
nefndum ákvæðum laganna um með-
ferð opinberra mála. Það sé því ekki
ástæða til að hafna meðferð málsins
að ekki hafi allar leiðir verið reyndar
heima fyrir.
Rikið segir sýknudóm ekki
hreinsa af grunsemdum
Islenska ríkið segir einnig í svari
sínu til dómstólsins að sterkur grun-
ur leiki á um að stefnandi hafi átt
beina og glæpsamlega aðild að
smyglmálinu, þótt hún hafi aðeins
verið kærð fyrir tvö afmörkuð atriði,
það er að hafa látið af hendi 666 doll-
ara til kaupa á kókaíni og að hafa
notað kókaín í tvö skipti. I ljósi þess
hve afmarkaðar þær kærur, sem hún
var sýknuð af, hafi verið leggur ís-
lenska ríkið áherslu á að fráleitt sé
að sýknudómurinn hafi hreinsað
hana af öllum þeim grunsemdum,
sem leiddu til þess að hún var sett í
gæsluvarðhald.
Jón Steinar Gunnlaugsson er lög-
maður stefnanda og gagnrýndi
hann í gær að ríkið skyldi halda því
fram að konan væri sek um meira
en hún væri ákærð fyrir. Hann
spurði hvers vegna hún hefði ekki
verið ákærð fyrir það, sem hún
væri sek um, og hvort síðan væri
hægt að viðhalda rétti til að smyrja
sökum upp á fólk upp frá því. Hann
fagnaði því hins vegar að þetta mál
skyldi hafa leitt til þess að lögunum
um sönnunarbyrðina skyldi hafa
verið breytt og sagði að það hefði
verið gert eftir að Mannréttinda-
nefnd Evrópu, sem nú hefur verið
sameinuð Mannréttindadómstóln-
um, hefði tekið bráðabirgðaákvörð-
un um að málið væri tækt og gefið
íslenska ríkinu kost á að svara. Það
hefði opnað augu manna hér heima
fyrir og ríkisstjórnin lagt frumvarp
um að breyta lögunum fyrir Al-
þingi.
Jón Steinar sagði að áður en málið
yrði tekið fyrir í Strasbourg yrði í
samræmi við réttarfarsreglur reynt
að leita sátta. Umbjóðandi sinn og ís-
lenska ríkið myndu kanna hvort ná
mætti samkomulagi um viðhlítandi
bætur. Hann hefði enn ekkert heyrt
frá ríkinu, en hann teldi líklegt að
það myndi gerast fljótlega.
Sjö dómarar Mannréttindadóm-
stólsins fjölluðu um málið, þeirra á
meðal Gaukur Jörundsson.
Spaugstof-
an ekki á
skjánum
í vetur
EINKAHLUTAFÉLAGIÐ
Spaugstofan var lagt niður með
formlegri auglýsingu í nýjasta ein-
taki Lögbirtingablaðsins. Að sögn
Arnar Amasonar leikara er um
formlega aðgerð að ræða en þeir
Spaugstofufélagar séu síður en svo
hættir samstarfi jafnvel þótt sjón-
varpsþátturinn verði ekki á dag-
skrá í vetur.
Öm segir að félagið hafi verið
stofnað árið 1988 í kringum rekstur
þess samstarfs sem var í kringum
sjónvarpsþætti Spaugstofunnar.
Þegar einkahlutafélagslögin komu
til sögunnar var hins vegar hag-
stæðara íyrir hvem og einn meðlim
að stofna félag í kringum sinn eigin
rekstur. Spaugstofufélagið var þó
aldrei lagt niður, fyrr en nú.
Hlé eftir tíu ára samstarf
I vetur verður fyrsti veturinn í
tíu ár sem Spaugstofan verður ekki
á sjónvarpsskjánum. Þeir Spaug-
stofufélagar hafa þó ekki slitið
samstarfí hver við annan jafnvel
þótt þeir séu að fást við ólík verk-
efni; sumir skrifi leikrit en aðrir
stýri þeim.
Öm vinnur um þessar mundir að
mótun áramótaskaupsins ásamt
öðrum valinkunnum grínumm
landsins, en Öm mun leikstýra
skaupinu í ár. Aðspurður hvort
Spaugstofan muni einhvem tímann
koma saman aftur sagðist hann
ekki vilja útiloka það og benti á
dæmi þess í samtímanum þar sem
margar hljómsveitir og skemmti-
kraftar komi fram aftur saman eft-
ir langt hlé.
----------------
LÖGREGLAN á Snæfellsnesi gerði
í gær upptæk fimm grömm af hassi
í Stykkishólmi.
Um hálf sexleytið í gær stöðvaði
Lögreglan á Snæfellsnesi mann
sem var á leið til Stykkishólms, en
borist hafði ábending um ferðir
hans. Hann var með fimm grömm af
hassi í fórum sínum og viðurkenndi
að eiga efnið.
Málið telst upplýst og manninum
hefur verið sleppt.
Hass gert
upptækt í
Stykkishólmi
Aætlaður fyrsti vinningur í sexföldum potti á morgun!
n'rí-MvnífHi -lilMiÍWMM