Morgunblaðið - 17.09.1999, Page 24

Morgunblaðið - 17.09.1999, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Friðargæslusveitirnar munu sýna fulla hörku Darwin, Dili, Jakarta. Reuters. ÁSTRALSKIR og breskir hers- höfðingjar sem leggja nú drög að því að senda friðargæslusveitir til Austur-Tímor sögðu í gær að þeir hefðu áhyggjur af hugsanlegum aðgerðum indónesíska hersins er til landsins væri komið. Leyniað- gerðir indónesískra hermanna og vígasveita á A-Tímor eru ekki óþekktar og sögðu hershöfðingj- arnir að slíkar sveitir hefðu gerst sekar um fjölmörg víg á undan- förnum vikum, með fullu samþykki Indónesíustjórnar. Sögðu áströlsk hermálayfirvöld, sem munu stjórna aðgerðum friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á A- Tímor, að ef þörf krefði myndu þau sýna fulla hörku í störfum sín- um. Stjórnvöld í Jakarta fordæmdu í gær framgöngu Ástralíustjórnar í málefnum A-Tímor og lýstu því yf- ir að tvíhliða öryggissáttmálar ríkj- anna væru nú ekki lengur í gildi. „Ríkisstjórn Indónesíu harmar framferði Ástralíu sem hefur skað- að tvíhliða sáttmála ríkjanna," sagði Feisal Tanjung, ráðherra í ríkisstjórn landsins í gær. Ástralíustjórn hefur á undan- förnum árum eytt andvirði tug- milljóna króna í þjálfun og aðstoð við uppbyggingu indónesíska hers- ins í fjölmörgum liðsforingjaskól- um í Ástralíu. Hefur þjálfunin m.a. beinst að Kopassus sérsveitum Indónesa, þeim hinum sömu sem talið er að hafi stað fýrir leynileg- um aðgerðir á A-Tímor. Ástralíu- stjórn lét af stuðningi sínum við Kopassus-sveitirnar í október á síðasta ári er ljóst þótti að þær stóðu á bak við mannréttindabrot. Indónesar reyna að dreifa athyglinni Stjómmálaskýrendur sögðu að svo virtist sem stjórnvöld í Jakarta væru að dreifa athyglinni frá ástandinu í innanríkismálum lands- ins með því að varpa rýrð á Ástral- íustjórn. Talsverð mótmæli hafa verið undanfarna daga fyrir utan skrifstofu SÞ í Jakarta og hafa andstæðingar sjálfstæðis A-Tímor haldið því fram að SÞ hafi hagrætt úrslitum kosninganna í þá vera að tæp 80% A-Tímorbúa styddu sjálf- stæði. Á skiltum mótmælenda stóð: „Ástralskir hermenn verið vel- komnir til A-Tímor. Verið er að grafa grafir ykkar.“ Wiranto, yfirmaður Indónesíu- hers, sagði í gær að enn væri ekki ljóst hvenær hersveitir han myndu halda á brott frá A-Tímor. „Við er- um að leggja drög að brotthvarfí sveitanna en það er að miklum hluta háð því hve skjótt hinar alþjóðlegu sveitir koma og halda hlutleysi sínu,“ sagði Wiranto í gær. Chris Barrie, yfirmaður herafla Ástralíu, varaði Indónesíustjóm við því í gær að hersveitir SÞ myndu ekki hika við að beita hörðu ef þau mættu mótspyrau indónesíska hersins er til A-Tímor væri komið. Jafnframt lagði hann áherslu á að aðgerðir friðargæslu- sveitanna gætu verið skammvinnar og skilvirkar ef Indónesístjórn sýndi fulla samvinnu. „Ef við fáum ekki þá samvinnu sem til þarf þá munum við þurfa að hefja harðar hernaðaraðgerðir og það verður talsverð áskorun en við eram til- búnir að taka henni.“ Friðargæslusveitir Ástrala munu stjórna aðgerðum. Friðargæslusveitir SÞ á A- Tímor (Interfet) munu að öllum líkindum koma til landsins um eða rétt eftir helgina og verða undir stjórn Ástrala. Búist er við að allt að 8.000 hermenn verði í liði SÞ og munu þeir koma úr ýmsum áttum. Aðallega verður um hersveitir As- íu- og Kyrrahafsríkja að ræða en bresk og bandarísk stjórnvöld hafa einnig heitið þátttöku sinna sveita. Bretar sögðu í gær að um 250 liðs- menn úr Ghúrka-hersveitum sínum myndu verða sendir til A-Tímor og Henry Shelton, yfirmaður samein- aðs herafla Bandaríkjanna, sagði í gær að um 100 bandarískir her- menn yrðu sendir til landsins. Talið er að um 4.500 ástralskir hermenn munu bera hitann og þungann af aðgerðum SÞ á A-Tímor. Sjö látast í skotárás í Texas og sjö liggja særðir á sjúkrahúsi Reuters Hugað að sárum fórnarlamba utan við kirkjuna í Fort Worth. Árásarmaður bað fórnar- lömbin að sýna stillingu Fort Worth, Texas. AP, AFP. ÁTTA manns liggja í valnum eftir að byssumaður hóf skothríð á hóp ungmenna sem voru við guðsþjón- ustu í Texas í fyrrakvöld. Atburð- urinn átti sér stað um klukkan 7 að staðartíma í Wedgewood-babtista- kirkjunni í Fort Worth, þar sem um 150 ungmenni vora samankom- in. Byssumaðurinn, sem var klæddur í svartan jakka og galla- buxur, skaut sjö manns til bana áð- ur en hann svipti sig lífi. Að auki liggja 7 manns særðir á sjúkrahúsi, þar af fjórir alvarlega. Tveir hinna særðu, 41 árs kona og 38 ára karl- maður, era sagðir vera á batavegi. „Við vorum að syngja sálm og þá allt í einu var dyranum hrundið upp og skoti hleypt af,“ segir sjón- arvottur sem komst lífs af. Annað vitni segir að maðurinn hafi verið mjög rólegur, reykt vindling og beðið fólk um að sýna stillingu, áð- ur en hann hóf skothríðina. Enn aðrir sjónarvottar segja að maður- inn, sem notaði hálfsjálfvirka vél- byssu, hafi bölvað og hrópað níð- yrði um trúarbrögð og babtista- kirkjuna á meðan hann vann ódæð- isverkið. Maðurinn mun hafa tæmt nokk- ur skothylki inni í kirkjunni en er síðan sagður hafa sest á aftasta bekk hennar og skotið sjálfan sig í höfuðið. Hann hét Larry Green Ashbrok, 47 ára íbúi í Fort Worth, en ekki er vitað hvaða ástæður lágu að baki ódæðinu. Bifreið í eigu mannsins, þar sem krossmark hafði verið málað á rúðu, fannst á bílastæði við kirkjuna. Skömmu eftir að ódæðismaður- inn svipti sig lífí, sprakk sprengja á svölum inni í kirkjunni en skaðaði ekki þá sem þar voru enn á lífi. Lögregla óttaðist að maðurinn kynni að hafa falið sprengiefni inn- an klæða og af þeim sökum var sprengjuleitarvélmenni sent fyrst á vettvang. Ekki var unnt að fjar- lægja lík sex fórnarlamba og lík árásarmannsins úr kirkjunni með- an leitin stóð yfir og um tíma var talið að fleiri lík gæti verið að finna þar. Tíunda morðárásin á árinu Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, flutti í gær ávarp þar sem hann sagðist harma atburðinn og vottaði aðstandendum hinna látnu samúð sína. Fylkisstjóri Texas, George W. Bush, sagði, þar sem hann var staddur í Detroit í gær, að árásin væri harmleikur og sagð- ist biðja fyrir hinum látnu og að- standendum þeirra. Móðir bams sem lifði árásina af og var sjálf stödd í öðra herbergi í kirkjunni þegar ódæðismaðurinn hóf skothríðina, sagði að maðurinn hefði verið holdtekja Satans. „Eg held að Satan vilji ekki að guð sé lofsunginn og Satan var örugglega að verki hér,“ er haft eftir konunni. Tíunda árásin á þessu ári Árásin í Fort Worth er sú tíunda í röðinni sem gerð er í Bandaríkjun- um á þessu ári. Alls hafa 46 manns verið myrtir í alls 9 morðárásum, þar á meðal börn, og mikill fjöldi hefur særst. Fyrr í vikunni vora þrír drepnir í skotárás í Los Angel- es þegar 42 ára gamall maður hóf skothríð á sjúkrahúsi í borginni. í síðasta mánuði voru þrír drepnir af ungum manni í Alabama og viku áður höfðu þrettán manns beðið bana í skotárás verðbréfamiðlara í Atlanta. Nokkrir þingmenn í öldunga- deild Bandaríkjaþings beita sér nú fyrir því að efnt verði til rannsókn- ar er standi í heilt ár og rannsaki það sem aðstoðarmaður eins þing- manns kallaði „hnignun banda- rískrar menningar.“ Samt sem áð- ur era stjórnmálamenn vestra, einkum repúblikanar, tregir til að viðurkenna að greiður aðgangur að skotvopnum í Bandaríkjunum valdi einhverju um tíðar morðárásir að undanfömu. Nýleg skoðanakönnun banda- ríska vikuritsins Newsweek sýnir að 81% Bandaríkjamanna telji að ástæðunnar sé að leita í því að for- eldrar hafi bragðist skyldum sín- um. Önnur meginástæða árásanna er samkvæmt könnun blaðsins of- beldi í fjölmiðlum. Tveir þriðju að- spurðra segja að hertar reglur um byssueign í landinu muni geta fækkað glæpum og sami fjöldi er einnig íylgjandi því að lög verði sett er banni framleiðslu, sölu og eign á hálfsjálfvirkum vélbyssum. Reut«rs Benjamin Netanyahu með eig- inkonu sinni, Söru. Netanyahu- hjónin yfir- heyrð vegna fjármála- misferlis Bat Yam, Tel Aviv. Reutcrs, The Daily Tel- egraph. BENJAMIN Netanyahu, fyrr- verandi forsætisráðherra Isra- els, og eiginkona hans, Sara, voru á miðvikudag yfirheyrð af ísraelsku lögreglunni vegna meints fjármálamisferlis. Lögreglan hóf rannsókn málsins eftir birtingu fréttar í dagblaðinu Yediot Ahronot, þar sem fullyrt var að Netanyahu hefði í stjórnartíð sinni látið ríkið borga fyrir þjónustu sem iðnaðarmaður hafði innt af hendi fyrir hann persónulega. Að sögn blaðsins nam reikning- ur vegna þessa nær 7 milljónum ísl. kr., en aðeins hafði fengist heimild fyrir greiðslu tíunda hluta þeirrar upphæðar. Hjónin voru yfirheyrð hvort í sínu lagi og stóð yfirheyrslan yfir í að minnsta kosti sjö klukkustundir. Netanyahu hef- ur algjörlega vísað því á bug að hann hafí brotið af sér og hefur farið fram á opinbera rannsókn á ásökununum. Iðnaðarmaðurinn, Avner Amedi, mun hafa sinnt ýmsum verkum fyrir Netanyahu-hjón- in, meðal annars flutt húsgögn milli skrifstofu forsætisráðherr- ans og heimilis hans, bónað gólf og gert við raftæki. I umfjöllun Yediot Ahronot segir að Ámedi hafi ekki sent reikninginn til ísraelska ríkisins fyrr en eftir að Netanyahu beið ósigur í kosningunum siðasta vor. Hann var á þriðjudag handtekinn og dæmdur í tveggja sólarhringa gæsluvarðhald vegna málsins. Mögulegt að ákæra fyrir mútur Haft var eftir sérfræðingum í ísraelskum lögum að ef rann- sókn leiddi í Ijós að misferli hefði átt sér stað kunni ákæra að vera lögð fram á hendur Amedi fyrir að múta opinberum embættismanni, og á hendur Netanyahu fyrir að þiggja mút- ur. ísraelska lögreglan mæltist til þess árið 1997 að Netanyahu yrði ákærður fyrir misferli í starfi. Þá hafði hann reynt að hafa áhrif á rannsókn spilling- armáls er snerti samflokks- mann hans, með því að skipa dómara sem ljóst var að myndi vísa málinu frá. Ríkissaksókn- ari ísraels úrskurðaði þó að ekki væru nægar vísbendingar fyrir hendi til að leggja fram ákæru á hendur Netanyahu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.