Morgunblaðið - 17.09.1999, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17 SEPTEMBER 1999 35
pltrgminMíiMli
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMTÖK
ATYINNULÍFSINS
SKIPULAG vinnumarkaðarins hefur verið að taka tals-
verðum breytingum undanfarin ár með sameiningu
verkalýðsfélaga. I gær var komið að vinnuveitendum, en
þá voru formlega stofnuð Samtök atvinnulífsins, sem leysa
Vinnuveitendasamband Islands og Vinnumálasamband
samvinnufélaganna af hólmi. Þar með er lokið þeirri skipt-
ingu í röðum vinnuveitenda, sem endurspeglaði um ára-
tuga skeið átökin í stjórnmálum og viðskiptum á velmekt-
ardögum SIS og samvinnuhreyfíngarinnar. Skipulag nýju
samtakanna er og allt annað en fyrirrennara þeirra og eiga
nú aðild að þeim sjö landssamtök ýmissa greina atvinnu-
lífsins, m.a. ný samtök tjármálafyrirtækja. Einstök fyrir-
tæki eiga ekki lengur beina aðild, en skipa sér í þau aðild-
arsamtök, sem bezt falla að hagsmunum þeirra. Stofnun
Samtaka atvinnulífsins á að leiða til sparnaðar og aukinnar
hagkvæmni jafnframt því, sem þjónusta við fyrirtækin
verður aukin frá því sem áður var.
Fyrsti formaðurinn er Finnur Geirsson og í ræðu sinni á
stofnfundinum sagði hann, að velgengni fyrirtækja og at-
vinnugreina væri forsenda gróandi þjóðlífs og bættra lífs-
kjara. Samtök atvinnulífsins muni vinna í þágu þjóðarinnar
allrar að framförum og góðum lífskjörum. Hann kvað við-
ræður fljótlega teknar upp við viðsemjendur um kjara-
samninga og markmiðið væri að fínna skynsamlegan flöt á
þeim. „Við munum setja á oddinn markmið um stöðugt
verðlag og við viljum hafa hagvöxt sem mestan. Mikilvæg-
asta forsendan fyrir hagvexti er einmitt stöðugt verðlag,"
sagði formaðurinn og benti á, að það hefði skilað sér í
bættri afkomu fyrirtækja og meiri kaupmætti launa. Fólk
virtist skilja betur samhengi milli afkomu sinnar og stöðugs
verðlags heldur en á verðbólguskeiðum undanfarinna ára-
tuga. Einnig hefði viðhorf fólks til atvinnulífs og fyrirtækja
breytzt á þeim áratug, sem er að líða, og líklega væri skýr-
ing þess sú, að hlutabréfaeign væri almennari en áður.
Finnur Geirsson kvað ný heildarsamtök vinnuveitenda
tímanna tákn og svar við þeim breytingum, sem orðið
hefðu undanfarinn áratug, sem hefði hafizt með stöðnun,
atvinnuleysi og gjaldþrotum, en breytzt í hagvaxtartímabil
samfara lítilli verðbólgu. Hann benti á, að þótt hagvaxtar-
skeiðið hefði fært landsmönnum meiri kaupmáttaraukn-
ingu en dæmi væru til síðustu áratugi væri sú önnur hlið á
þessari þróun, að á fyrirtæki hefðu verið lagðar meiri
kostnaðarhækkanir en á erlenda keppinauta þeirra. Sam-
keppnisstaðan hefði því þrengzt og afkoma í samkeppnis-
greinum farið versnandi. Raungengi krónunnar hefði því
farið hækkandi og viðskiptahalli væri mikill.
Það er ánægjulegt, að nýr formaður SA boðar undirbún-
ing að samningsgerð á almennum vinnumarkaði, því fyrstu
samningar renna út 15. febrúar nk. og síðan hver af öðrum
út árið 2000. Höfuðhlutverk vinnuveitenda og verkalýðs-
forustunnar í þeirri samningsgerð hlýtur að vera varð-
veizla þeirrar miklu kaupmáttaraukningar^ sem náðst hef-
ur, og að leggja sitt af mörkum til þess, að íslendingar geti
áfram vænzt bættra lífskjara í upphafí nýrrar aldar.
AÐGERÐIR BOÐAÐAR
DAVIÐ Oddsson, forsætisráðherra, lýsti því yfír í ræðu
sinni á stofnfundi Samtaka atvinnulífsins, að ríkis-
stjórnin muni grípa til fjölþættra aðgerða til að draga úr
þenslu í efnahagslífínu og þar með úr verðbólgu. Davíð
sagði m.a.:
„Nú er svo komið, að óhjákvæmilegt er að hægja nokkuð
á efnahagsstarfseminni svo verðbólga fari ekki úr böndun-
um. Verðmælingar síðustu mánaða gefa fullt tilefni að
brugðizt sé við með markvissum hætti. Og það verður gert.
Þannig verður ríkissjóður rekinn með verulegum afgangi á
næsta ári, s'kuldir ríkisins verða greiddar hratt niður, ýms-
um framkvæmdum ríkisins verður frestað um hríð og al-
mennur sparnaður verður örvaður. Til að mynda verður
dreifð sala ríkiseigna meðal annars nýtt til að binda fé. Þá
verður stjórn peningamála miðuð við að tryggja stöðugt
verðlag.“
Þessi yfírlýsing forsætisráðherra er mjög mikilvæg, því
hún sýnir, að ríkisstjórnin hyggst grípa til samræmdra að-
gerða gegn verðbólguþróuninni. Það er ánægjuefni fyrir
landsmenn alla, enda er stöðugleiki í efnahagslífínu for-
senda framfara og bættra lífskjara.
Nýjar rannsóknir leiða í ljós áhrifarík lyf við hjartabilun og kransæðasjúkdómi
Munu draga úr tíðni dauðs-
falla og hjartauppskurða
Morgunblaðið/Þorkell
Þórður Harðarson sérfræðingur í hjarta- og æðasjúkdómum, prófessor í lyflækningum við Háskóla Islands og
sviðstjóri lyflækningadeildar Landspítalans.
Á þennan hátt er virkni lyfsins Spironolactons táknuð á kynningarbækl-
ingi fyrirtækisins Searle sem stóð að rannsókninni. Lyfið var áður notað
sem þvagræsilyf en dugar nú gegn hjartabilun þar sem það hamlar fram-
leiðslu hormóns sem stuðlar að vökvasöfnun í líkamanum.
Reuters
Albönsk böm í Kosovo gráta við útför Föður þeirra sem féll í átökum við serbneska hermenn í aprfl. Börn í hér-
aðinu eiga erfitt uppdráttar og mörg þeirra hafa upplifað skelfingu, sem þau eiga erfitt með að komast yfir.
Sálarmein eru
alvarlegustu
meinin í Kosovo
Þrjár viðamiklar rann-
sóknir sem kynntar hafa
verið á árinu benda ein-
dregið til þess að draga
megi verulega úr dánar-
tíðni af völdum hjartabil-
unar og kransæðasjúk-
dóms með réttri lyfja-
notkun. Þórður Harðar-
son prófessor, sérfræð-
ingur í hjarta- og æða-
sjúkdómum, sagði Geir
Svanssyni frá niðurstöð-
um rannsókna á þekkt-
um lyfjum sem notuð
eru í nýjum tilgangi.
HJARTABILUN og
kransæðasjúkdómur eru
skæðir sjúkdómar og dánar-
tíðni af þeirra völdum há.
Það telst því til tíðinda að þrjár nýjai-
rannsóknir á þekktum lyfjum benda til
þess að hægt sé að draga úr dauðsföll-
um, allt að þriðjungi, með nýrri og réttri
notkun þeirra. Sum þessara lyfja hafa
þegar verið tekin í notkun og öðrum
verður væntanlega beitt innan tíðar.
Þórður Harðarson sérfræðingur í
hjarta- og æðasjúkdómum og sviðstjóri
Iyflækningadeilda Landspítalans segir
að líðandi ár hafi verið viðburðaríkt
hvað varðai’ hjartalækningar. Niður-
stöður þriggja nýrra rannsókna breyti
horfum sjúklinga með hjartasjúkdóma.
Lofandi árangur lyfjameðferðar, sem
rannsóknimar staðfesti, sé mikilvæg
viðbót við þann árangur sem þegar hafi
náðst á undanfömum árum og komi enn
til með að lækka dánartíðni og fækka
hjartauppskurðum.
Mikilvægt lyf við hjartabilun
Fyrsta rannsóknin sem Þórður tiltek-
ur er kennd við Merit en niðurstöður
hennar vom kynntar í júní sl. Hún er
upprunnin í Svíþjóð en læknar frá 13
Evrópuþjóðum, þ.á m. Islandi, og frá
Bandaríkjunum tóku þátt í henni. Guð-
mundur Þorgeirsson prófessor og
hjartasérfræðingur á Landspítalanum
fór fyrir íslensku læknunum í rannsókn-
inni sem náði til nærri 4.000 sjúklinga
með hjartabilun en þeim var fylgt eftir í
u.þ.b. eitt ár.
En hjartabilun stafar af veikum
hjartavöðva sem getur ekki dælt blóði
nógu kröftuglega um æðar líkamans, að
sögn Þórðar. „Sjúklingar safna á sig
vökva, venjulega fyrst í lungum og fara
að mæðast óeðlilega; fyrst við áreynslu
og síðan í hvíld. Algengt er að bjúgur
setjist á ganglimi og víðar.“
Sjúklingum með hjartabilun hefur
farið mjög fjölgandi á Vesturlöndum á
undanfömum ámm, að sögn Þórðar.
„Ástæðan er meðal annars sú að mönn-
um er smám saman að takast betm' að
eiga við kransæðasjúkdóm. Nú er til
dæmis bmgðist við kransæðaþrengsl-
um á mun markvissari hátt
en áður með kransæðaað-
gerðum, kransæðavíkkunum
og lyfjum af ýmsu tagi.
Þannig að fleiri sjúklingar
ná þessu stigi sem við köll-
um hjartabilun." Vegna þessa og auk-
inna innlagna af völdum hjartabilunar
segir Þórður framfarir í lyfjameðferð
mikilsverðar bæði fyrir sjúklinginn og
samfélagið.
Gefið í ógátí með góðum árangri
Lyfið sem notað var í Merit-rann-
sókninni heitir metopropol og telst til
svokallaðra beta-blokka. „Lyfið hafði
verið í notkun í um þrjátíu ár en alls
ekki við hjartabilun. Það hefur verið
notuð til að lækka blóðþrýsting, til að
draga úr hjartaverk og hjartsláttartrufl-
unum. Beta-blokkai- hafa fram að þessu
alls ekki verið álitnir henta til að með-
höndla hjartabilun þar sem þeii' draga
úr samdráttarkrafti hjartavöðvans."
Að sögn Þórðar varð tilviljun til þess
að nýir möguleikar lyfsins uppgötvuð-
ust. „Fyrir tveimur áratugum gerðist
það að læknir í Gautaborg gaf sjúklingi
þetta lyf í ógáti og það kom í Ijós að
ástand sjúklingsins batnaði.
Upp úr því fara Svíar að at-
huga hvort lyfíð dugi við
hjartabilun," segú’ Þórður.
Fleiri rannsóknir virtust
renna stoðum undfr hug-
myndina og að lokum var ráðist í Merit-
rannsóknina til að fá endanlega úr því
skorið hvort hún stæðist.
Vegna augljóss árangui’s var rann-
sóknin síðan stöðvuð eftir eitt ár, fyrr en
ætlað hafði verið. „Sem dæmi má nefna
að heildardánartala var 7% í hópnum
sem fékk lyfið en 11% hjá þeim sem
fékk sýndarlyf eða lyfleysu. Skyndi-
dauðsföllum fækkaði líka umtalsvert.
Þau voru 79 í hópnum sem fékk lyfið en
132 í hópnum sem fékk það ekki,“ segir
Þórður. Lyfið er að hans sögn mikils-
verð viðbót við önnur lyf sem notuð hafa
verið við hjartabilun í áratugi.
Þvagræsilyf fær nýtt hlutverk
Önnur rannsókn sem kynnt var nú í
ágúst kom verulega á óvart, að sögn
Þórðar. Lyfið sem rannsakað var heitir
spironolactone (Aldactone) og er svo-
kallað þvagræsilyf sem losar vökva úr
líkamanum. „Þetta lyf höfum við þekkt í
áratugi en notkun þess hefiir minnkað
vegna þess að það eru komin önnur og
öflugri þvagi-æsilyf. Þess má þó geta að
Magnús Kai’l Pétursson hjartasérfræð-
ingur hefur verið talsmaður þess að
þetta lyf kunni að vera áfram mjög mik-
ilvægt.“
Lyfið hamlar, að sögn Þórðar, fram-
leiðslu hormóns sem líkaminn framleiðir
og heitir aldosterón. En hormón þetta
stuðlar að vökvasöfnun í líkamanum.
„Það eru til önnur lyf sem gera það
sama en þau hamla ekki jafnt og þétt
gegn aldósteróni heldur toppótt,“ segir
Þórður.
Þátttakendur í rannsókninni voru
663 talsins, allir með svæsna hjartabil-
un. Rétt eins og fyrrnefnda rannsóknin
vai' hún stöðvuð fyrr en áætlað hafði
verið, vegna augljóss árangurs. Sjúk-
lingum var fylgt eftfr í allt að þrjú ár
og í ljós kom að dánartíðni af völdum
hjartabilunar var 37% í lyfleysuhópn-
um á móti 27% í hópnum sem fékk
spironolactone.
„I ljós kom að innlögnum hjá þeim
sjúklingum sem fengu lyfið fækkaði
um 30% og þá mætti ætla að væri kom-
inn talsverður fjárhagslegur ávinning-
ur; þessir sjúklingar liggja oft lengi á
spítulum,“ segir Þórður og bendir á að
þessi ávinningur komi til viðbótar þeim
ávinningi sem fengist hefur með öðrum
lyfjum sem að jafnaði eru notuð.
„Þarna erum við komin með tvo mikils-
verða lyfjaflokka, beta-blokka og
spiralactone, sem hafa veruleg áhrif til
þess að draga úr dánartíðni af völdum
hjartabilunar," segir Þórður.
Niðurstöður rannsóknarinnai' á
spironolactone þóttu svo mikilvægar að
virtasta læknatímarit heims, New Eng-
land Journal of Medicin, braut reglur
sínar og birti þær á Netinu áður en þær
birtust í tímaritinu sjálfu sem kom út 2.
þessa mánaðar.
Ný meðferð við
ki-ansæðasjúkdómum
Þriðja rannsóknin var gerð heyrin-
kunnug á Evrópuþingi hjartalækna sem
haldið var í Barselónu á Spáni um síð-
ustu mánaðamót. Lyfíaflokkm-inn sem
prófaður var í þeirri rannsókn er kallað-
ui' „angiotensin ummyndunarblokkar".
En nú snerist rannsóknin um meðfei'ð
kransæðasjúkdóms fi-ekai' en hjartabil-
unar. „.Angiotensin er efni sem við fram-
leiðum öll í líkama okkar og er eitt
sterkasta efni sem þekkt er í náttúrunni
til að draga saman æðar. Það var vitað
að þetta lyf víkkaði æðar en ef til vill
hefði það önnur og flóknari áhi-if á æða-
veggi sem gæti leitt til þess
að sjúklingum vegnaði bet-
ur.
Lyf í þessum flokki hafa
nú þegai’ staðfest ágæti sitt
við meðhöndlun á hjartabil-
un og era notuð í stórum stíl í þeim til-
gangi. Þau duga einnig gegn háum blóð-
þrýstingi þar sem útvíkkun æða lækkai'
hann og minnkar þar með hættu á heila-
blæðingum.
Vísbendingai' höfðu komið fram í eldri
rannsóknum um að lyfið kynni að draga
úi’ kransæðastíflu. En í rauninni var af-
skaplega lítið í þekktiá verkun þessara
lyfja sem gaf til kynna að svo væri virki-
lega raunin,“ segir Þórður. Af þessum
sökum var ákveðið að ráðast í stóra
rannsókn til að fá úr því skorið.
Lofandi niðurstöður
Svarið lét ekki á sér standa í þessari
gífurlega stóra rannsókn sem stóð yfir í
3-4 ár og náði til 9.000 sjúklinga: Fækk-
un dauðsfalla var á bilinu 25-30% og
fækkun á heilaáföllum veruleg. Þessar
niðurstöður hafa mikla þýðingu, að sögn
Þórðai’, og geta haft áhrif á líf og heilsu
þúsunda einstaklinga.
Enn er þó ekki komið að því að lyfið
verið tekið í notkun. „Við eigum eftir að
melta niðurstöður rannsóknarinnar og
sjá hana á prenti. Ég geri ráði fyrir að
hún verði birt sem forgangsverkefni hjá
einhverju virtu tímariti á næstunni,
sennilega innan tveggja mánaða. Og þá
mun fylgja skæðadrífa af ritstjórnar-
greinum og bréfum þai' sem rannsóknin
verður krufin og menn reyna að koma
sér niður á hvaða ályktanir megi draga
af henni.
En sé að marka þessar niðurstöður
sem eru gífurlega marktækar tölfi'æði-
lega, þá er útlit til þess að mjög stór
hópur sjúklinga með kransæðasjúkdóm
muni hafa gagn af þessu lyfi,“ segir
Þórðm-. Hann telur ekki útilokað að
byrjað verði að nota lyfið í litlum mæli
hérlendis mjög fljótlega, jafnvel áðm- en
endanlegri umfjöllun verði lokið.
Stórstígar framfarir
á undanförnum árum
Að sögn Þórðar koma nýju rannsókn-
irnai' þijár í kjölfarið á einhverri mestu
byltingu í meðferð hjartasjúkdóma sem
hefur orðið á síðustu ái'atugum. Um er
að ræða 5 ára gamla rannsókn sem Is-
lendingar tóku þátt í, sömuleiðis undir
forystu Guðmundar Þorgeirssonar. En
rannsóknin sýndi fram á ávinning þess
að lækka kólesteról með lyfjum.
„Þetta era svokölluð statín sem draga
úi' kólesterólframleiðslu lift-ar. Við höfð-
um alltaf átt von á því að þessi lyf kæmu
að gagni hjá sjúklingum sem hefðu
verulega hátt kólesteról í blóði en í ljós
kom að obbinn af kransæðasjúklingum
hefur ávinning af notkun þeirra þótt kól-
estrólmagn í blóði þeirra sé ekki um-
fi’am meðallag," segir Þórður.
Hann segir að mjög margir íslenskir
sjúklingar séu komnir á statín-lyf en
þyrftu að vera mun fleiri. Sennilega fái
það aðeins um 40% af þeim sem þyrftu.
Sama sé þó uppi á teningnum í ná-
gi-annalöndunum. „Það tekur tíma að
taka upp nýja siði í læknismeðferð. En
ég tel að það sé eitt það mikilvægasta
sem bíður íslenski'ar læknastéttai' núna;
að koma notkun þessara, og hinna fyrr-
nefndu lyfja, í góðan farveg,“ segir
Þórður.
Aukaverkanir frekar vægar
Aukaverkanir af ofangreindum lyfj-
um eru frekar vægar, að sögn Þórðar.
„Þær eru sáralitlar af völdum kól-
esteróllækkandi lyfja. Af hinum eru
aukaverkanir heldur meiri. Hand- og
fótkulda og lágs blóðþrýstings verður
vart við notkun beta-blokkara. Notkun
spironolactone getur orsakað brjósta-
stækkun hjá karlmönnum og minnk-
andi kynhvöt. Lyfið angiotensin veld-
ur hins vegar hósta hjá 10-15% sjúk-
linga, sem var dálítið óvænt aukaverk-
un.“
Þórður segir að nýju lyf-
in séu mikilsverð viðbót í
baráttunni gegn hjarta-
sjúkdómum þar sem hafi
orðið mikið ágengt á und-
anförnum árum. Lyfin
muni draga úr dánartíðni og hjarta-
uppskurðum og hafi þegar gert það.
„Islenskir hjartalæknar hafa verið
þekktir að því að vera mjög opnir fyrir
nýjungum og stundum hlotið ámæli
fyrir. En reynslan hefur sýnt að aðrar
Evrópuþjóðir hafa oftast verið á sömu
siglingu og við þó það hafi gengið
svona heldur hægar en hjá okkur,“
segir Þórður að lokum.
AÐ eru sálarmeinin, sem eru
alvarlegustu meinin eftir
stríðið í Kosovo," segir
Hannu Vuori, sem fer með
uppbyggingu heilbrigðismála í
Kosovo og er því nokkurs konar heil-
brigðismálaráðherra svæðisins. Hann
tekur þátt í endurappbyggingu á veg-
um Sameinuðu þjóðanna, sem Frakk:
inn Bernard Kouchner stýrir. „I
fyrstu var talað um að verkefnið tæki
sex mánuði, en mér sýnist sextán til
sautján mánuðir vera nær lagi,“ segir
þessi hlýlegi Finni.
Vuori er læknir og á að baki tutt-
ugu ára starf á vegum Alþjóða heil-
brigðismálastofnunarinnar, WHO,
meðal annars á Balkanskaga og þekk-
ir því svæðið, sem hann segir óstöðugt
bæði í stjórnmálalegu og heilsufars-
legu tilliti. „Tölur um heilbrigðismál
sýna slæmt ástand. Lífslíkur hafa ver-
ið undir meðaltali, ungbarnadauði tíð-
ur og örlað hefur á berklum, en það er
ekki neyðarástand og farsóttir hafa
ekki komið upp, til dæmis í flótta-
mannabúðum, en þær era nú úr sög-
unni,“ segir Vuori.
Vandinn nú er að fá Kosovobúa til
að starfa saman að endurskipulagn-
ingu heilbrigðiskerfisins. Reynslan
frá Bosníu og víðar sýnir að það gildir
að fá heimamenn tO að taka hlutina í
eigin hendur, ekki að velvOjaðir út-
lendingar geri hlutina fyrir þá.
Vantraust leiddi til tvískipts
heilbrigðiskerfís
Vantraust Serba og Kosovo-Albana
hvon-a í garð annarra kemur líka
fram í heObrigðiskerfinu að sögn Vu-
ori. Gamla heilbrigðiskerfið vai' byggt
á sjúkrahúsum og lyfjagjöfum, ekki á
heilsugæslu og forvörnum. Sjúkra-
húsin voru fremur fullkomin, en
heilsugæslustöðvar illa mannaðar og
illa búnar.
Þegar stríðið braust út stofnuðu
Kosovo-Albanar samtök, kennd við
móður Teresu, sem var albönsk. Sam-
tökin voru rekin fyrir erlent söfnunar-
fé og ráku um hundrað heilsugæslu-
stöðvar. Albanai' notuðu því aðeins
hið opinbera kerfi ef þeir þurftu á al-
varlegum aðgerðum að halda, þar sem
samtökin réðu ekki yfir fullkomnum
sjúkrahúsum.
Teresu-samtökin sáu einnig um að
kenna læknum, svo alls hafa um 600
læknanemai' lært þar eða eru við
nám. Vandinn er að nemarnir hafa
lært við framstæðar aðstæður og ekki
Vandinn víð uppbygg-
ingu heilbrigðiskerfísins
í Kosovo er vantraust
íbúanna hvers í annars
garð og sálarmein stríðs-
ins, segir Hannu Vuori í
samtali við Sigrúnu
Davíðsdöttur.
fengið verkþjálfun, þar sem samtökin
ráku ekki eiginlega spítala. „Þetta eru
oft duglegir krakkar, en vandinn er
hvernig taka eigi á þeim vanköntum,
sem á náminu hafa verið,“ segh' Vu-
ori.
Annar vandi í kjölfar þjóðernisað-
skilnaðarins er að með friðnum vOja
margir albanskir læknar snúa aftur tO
starfa á sjúkrahúsum. „En læknir,
sem ekki hefur skorið upp í átta ár, er
ekki lengur hæfur,“ bendir Vuori á,
„og því þarf að ráða fram úr því
hvemig eigi að manna heObrigðiskerf-
ið upp á nýtt og endurmennta þá, sem
ekki hafa getað haldið kunnáttunni
við.“
Bólusetning í molum
vegna vantrausts
Vantraustið milli Serba og Kosovo-
Albana tók á sig margar myndir. „Það
var orðrómur um að Serbar notuðu
tækifærið, þegar þeir bólusettu al-
bönsk börn og gerðu þau ófrjó,“ segir
Vuori.
„Fyrir þessu var enginn fótur, en
það var auðvelt fyrir stjómmálamenn
að hræða illa upplýst fólkið og afleið-
ingin vai' að bólusetning hefur verið í
molum á svæðinu."
Nú er að hefjast mikið átak í
Kosovo til að bólusetja um 640 þús-
und böm og unglinga. Óstaðfestur
grunur er um lömunarveikitilfelli,
sem Vuori segir vonandi rangan. Bor-
ið hefur á berklum, sem erfitt er að
ráða við sökum þess að hinir sjúku
hafa fengið lyf, en ekki lokið meðferð
og því er hætta á lyfjaónæmi.
Erlent fé kemur
hagkerfinu af stað
Aðstæður í Kosovo eru óðum að
komast í samt lag. Vatn og rafmagn
er fyrir hendi, sorpið er hfrt, síminn
innan svæðisins virkar, en símasam-
bandið við umheiminn er af skornum
skammti. „Allt þetta er ókeypis, því
það eru engir skattar innheimtii', enn
sem komið er, en verður brátt. Engir
peningar era í umferð í Kosovo nema
fé, sem kemur frá útlöndum,“ segir
Vuori. Þeir sem hafa tekjur, til dæmis
veitingahúsa- og hóteleigendur og
þeir sem starfa fyrir erlend samtök,
eiga góða daga í skattleysinu og mun-
ur á högum þessa fólks og svo hinna
stóreykst.
Við svæðamörkin er farið að inn-
heimta tolla, svo þar safnast allt að
500 þúsund þýsk mörk á dag, rúmlega
tuttugu milljónir íslenskra króna.
íbúarnir geta fengið 100-400 mörk á
mánuði, eftfr menntun og starfs-
reynslu, en Vuori segir það ekki mik-
ið, því verðlag fari hækkandi, ekki síst
vegna þess að erlend samtök borgi vel -
og keppi um húsnæði. „En þetta er
óhjákvæmilegur fylgifiskur uppbygg-
ingarstarfsins og mun lagast,“ segir
Vuori.
Mestur hluti fjárins kemur frá Evr-
ópusambandinu og einstökum Evr-
ópulöndum, einkum Bretlandi og ítal-
íu. „Bandaríkjamenn leggja ekki mik-
ið til, því þeir segjast hafa borgað fyr-
ir stríðið og nú verði Evrópa að borga
fyrir friðinn,“ segir Vuori.
Kosovobúar verða að taka
málin í eigin hendur
Eftir stríðið í Bosníu beindist at-
hyglin að vandamálum kvenna, sem
orðið höfðu fyrir skipulögðum nauðg-
unum og mikil hjálp barst konunum
frá öðram löndum. „En við áttuðum
okkur einnig á hve takmörkuð hjálp
felst í útlendingum með menntun á
sviði geðverndar - þeir tala ekki málið
og hafa aðeins skamma viðdvöl," segir
Vuori. „Átakið nú beinist að því að
þjálfa heimamenn í að taka á þessum
málum sjálfir og það er ekki auðvelt í
þjóðfélagi, þar sem ekki tíðkast að
tala um slík mál.“
Börnin eiga einnig erfitt uppdráttar
og mörg hafa upplifað skelfingu, sem
þau eiga erfitt með að komast yfir.
„Við leitumst við að mennta fólk, bæði'
kennara og foreldra, í að koma auga á
einkenni um sálarstríð barna og
bregðast rétt við. Reynslan sýnir að
andleg áföll, sem hljótast af stríði,
koma oft fram á næstu kynslóð, því
jafnvel þótt börnin hafi sjálf sloppið
við áföll alast þau oft upp við óleyst
áföll foreldranna. Þessu reynum við_,
að taka á.“
Hefur áhrif á
líf og heilsu
þúsunda
Fækkun
dauðsfalla á
bilinu 25-30%