Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Langholtskirkja.
þessar mundir. Auk tónleikahalds
stendur Listvinafélag Hallgríms-
kirkju fyrir myndlistarsýningum í
forkirkjunni og var sýning Jóns Ax-
els, Himinn og jörð, opnuð sl.
sunnudag.
A heimasíðu kirkjunnar:
www.hallgrimskirkja.is er hægt að
fá nánari upplýsingar um starfið í
kirkjunni svo og í síma 510 1000, en
kirkjan er opin alla daga frá kl. 10
til kl. 18.
Það er von allra þeirra sem koma
að starfinu í Hallgrímskirkju að
sem flestir finni þar eitthvað við
hæfi til að styrkja trúna og auðga
andann.
Sigurður Pálsson,
Jón Dalbú Hróbjartsson.
Frá Grafar-
vogssöfnuði
NU þegar um þrír mánuðir eru til
aldamóta hefst vetrarstarf kirkj-
unnar. Það er eitt af því skemmti-
legasta við haustið að þá hefst á
nýjan leik allt félagsmálastarf eftir
sumarleyfi. Við í Grafarvogssöfnuði
viljum með þessari fréttatilkynn-
ingu kynna helstu þætti þess, undir
yfirskriftinni „Með Kristni inn í
nýja öld“. Fyrst viljum við nefna
starfið við að byggja upp kirkjuna
okkar. Það heiur gengið vel og
verður hún vígð eftir níu mánuði,
hinn 18. júní árið 2000. Vakin er at-
hygli á því að enn er möguleiki á að
gefa steina í klæðninguna, sem
minningargjöf til kirkjunnar.
Guðsþjónustur: Barnaguðsþjón-
ustur hefjast sunnudaginn 19. sept-
ember nk. kl. 11 í Grafarvogskirkju
og Engjaskóla.
Aimennar guðsþjónustur á
sunnudögum kl. 14 í Grafarvogs-
kirkju og einu sinni í mánuði í
Engjaskóla fyrir ái'amót, síðan í
nýjum hátíðarsal Rimaskóla eftir
áramót.
Yngribarnastarf: Starf KFUM
og K verður áfram í vetur fyrir
stúlkur á aldrinum 9-12 ára á
þriðjudögum kl. 18-19 og hefjast
fundirair 28. september nk. Fyrir
drengi á aldrinum 9-12 ára er starf-
ið á miðvikudögum kl. 17.30-18.30
og hefjast fundirnir hjá þeim 29.
september næstkomandi.
Nýbreytni: c„Kh-kjukrakkar“ í
Rimaskóla annars vegar og í
Engjaskóla hins vegar, semsagt
tveir hópar. Sérstakur hópur verð-
ur í vetur fyrir böm á aldrinum 7-9
ára. Yfirskrift þess starfs er
„Kirkjukrakkar" og hefjast fund-
irnir í lok september og verða þeir
nánar auglýstir síðar.
Æskulýðsfélög: Félagið mun á
komandi vetri starfa í þremur
deildum. Fyi-ir nemendur 8. bekkj-
ar verða fundir á fimmtudagskvöld-
um frá kl. 20-22 og hefjast þeir í lok
september næstkomandi í kirkj-
unni. Fyrir ungt fólk á aldrinum 16-
18 ára verða æskulýðsfundir
tvisvar í mánuði á fimmtudags-
kvöldum kl. 20-22 og fyrir ungt fólk
á aldrinum 18-20 ára verða fundir
tvisvar í mánuði á fimmtudags-
kvöldum kl. 20-22 og hefjast fund-
imir í lok september.
Nýbreytni: í Engjaskóla verða
vikulegir æskulýðsfundir unglinga
úr Engja-, Staðar-, Borgar-, Víkur-
og Rimahverfi, en auðvitað eru allir
unglingar úr Grafarvogi hjartan-
lega velkomnir. Fundirnir verða á
miðvikudagskvöldum frá kl. 20-22
og munu þeir hefjast í byrjun októ-
ber og verða í Engjaskóla eins og
áður segir.
Mömmumorgnar: Starfið hjá
þeim hefst fimmtudaginn 16. sept.
kl. 10-12 í Grafarvogskirkju og eru
þeir vikulega. Dagskráin er fjöl-
breytt. Boðið er upp á áhugaverða
fyrirlestra og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir.
Kyrrðarstundir: Kyrrðarstundir
í Grafarvogskirkju verða í hádeg-
inu á miðvikudögum ld. 12 með alt-
arisgöngu og fyrirbænum. Boðið er
upp á léttan hádegisverð. Allir vel-
komnir. Stundirnar hefjast 6. októ-
ber nk.
Æðruleysismessur verða á dag-
skrá vetrarins.
Námskeið Sr. Önnu Sigríðar
Pálsdóttur verður eftir áramót og
fjallar um að „búa einn“.
Safnaðarfélagið: Hjá því er að
hefjast tíunda starfsárið, en starf-
semi félagsins hefur haft góð áhrif
á allt safnaðarstarfið. Félagið er
öllum opið, konum og körlum, og
eru félagsgjöld engin. Fundir fé-
lagsins eru fyrsta mánudag í hverj-
um mánuði og er dagskrá þeirra
fjölbreytt. Fyrsti fundurinn verður
mánudaginn 4. október kl. 20.30 í
kirkjunni. Gestur fundarins verður
Höskuldur Frímannsson, mun
hann flytja erindi sem heitir „Láttu
drauminn rætast". Einnig verður
vetrarstarfið kynnt.
Eldri borgarar: Þátttakendum í
þessu starfi fer fjölgandi og er það
von okkar að enn bætist í þennan
góða hóp. Eldri borgarar hittast í
kirkjunni á hverjum þriðjudegi kl.
13.30, en starfið hefst með því að
farið verður í haustferð að Sólheim-
um í Grímsnesi þriðjudaginn 28.
september kl. 10 og er mæting við
Grafarvogskirkju. Skráning í ferð-
ina er í síma 587-9070 á milli kl.
9:00 og 17:00 alla virka daga.
Sorgarhópur: Hópur sem hittist
reglulega í nokkrar vikur og fjallar
um sorg og sorgarviðbrögð mun
starfa í vetur, líkt og síðastliðna
vetur. Prestar kirkjunnar sjá um
skráningu í hópinn og hefst starfið
mánudaginn 31. janúar 2000 kl. 20
og verður tíu næstu mánudaga þar
á eftir.
Bænahópur: Á hverju sunnu-
dagskvöldi kl. 20 hittist bænahópur
í kirkjunni og er hann öllum opinn.
Al-Anon: Al-Anon er með fundi á
föstudagskvöldum kl. 20:00 og AA-
hópur hittist á laugardagsmorgnum
kl. 11 og sunnudagsmorgnum kl.
11:00 í Lionssalnum í kirkjunni.
Fermingarbörn: Væntanleg
fermingarböm eru beðin að mæta
samkvæmt stundaskrá vikuna 19,-
25. september, og eru tímasetning-
ar tilkynntar í viðkomandi skólum.
Kirkjukórar: Kirkjukórinn hefur
þegar hafið vetrarstarfið undir
stjórn Harðar Bragasonar, org-
anista og kórstjóra. Mun Sigrún
Þórsteinsdóttir organisti einnig
starfa með kórnum. Kórinn, sem er
orðinn fjölmennur, getur þó enn
bætt við góðum karlaröddum. Stór
verkefni eru framundan, meðal
annars tónleikar og vígsla kirkj-
unnar 18. júní 2000.
Barnakór og Unglingakór: Hafa
hafið vetrarstarfið undir stjórn
Oddnýjar J. Þorsteinsdóttur, kór-
stjóra og organista. Bamakórinn er
fyrir börn frá sjö ára aldri og er
hægt að bæta við nýjum meðlimum,
æfingar eru á mánudögum kl.
16.30. Unglingakórinn er með æf-
ingar á fimmtudögum kl. 18. Starf
kóranna hefur verið blómlegt og
fjölbreytt. Skemmtileg verkefni eru
framundan, m.a. tónleikar og vígsla
kirkjunnar.
Kirkjusel: Þessa dagana er verið
að vinna að því að koma upp
„Kirkjuseli" í Engjahverfi. Þar hef-
ur tekist góð samvinna við borgar-
yfirvöld.
Ráðinn hefur verið til safnaðar-
ins Guðrún Karlsdóttir guðfræð-
ingur, og mun hún ásamt prestun-
um hafa yfirumsjón með æskulýðs-
starfi kirkjunnar.
Símatímar prestanna eru frá kl.
11-12, þriðjudaga til föstudaga, og
viðtalstímar eftir samkomulagi.
Símanúmer Grafarvogskirkju er
587-9070 og 587-9080.
Starfsmenn Grafarvogskirkju.
Laugarneskirkja. Morgunbænii- kl.
6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir böm.
Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Unglingasamkoma kl. 20.30. Mikill
og hress söngur. Allir hjartanlega
velkomnir.
Sjöunda dags aðventistar á fs-
landi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta
kl. 11.15. Ræðumaður Ben Maxson.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Lokað. Öllum
beint til Reykjavíkur.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Lokað. Öllum
beint til Reykjavíkur.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Lokað. Öllum beint tO
Reykjavíkur.
FÖSTUDAGUR 17 SEPTEMBER 1999 39
Láttu það
eftir þér!
ÁRSKORT1 BORGARLEIKHÚSIÐ
SU í Svtil
Sýning í kvöld
aðeins örfáar sýningar
m'iSatizm WTiínixmvsjt Mlðasala f sfma
Borgarleikhúsið 1??? - 2000 568 8000 JQ
Nœsta sýning
áunnudaginn kl. 14
Ævintyrið er
hafið á ný
f'
0