Morgunblaðið - 03.10.1999, Side 22

Morgunblaðið - 03.10.1999, Side 22
22 SUNNUDAGUR 3. OKTÓBBR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Félag háskólakvenna verkum sem hann hefur ekki leikið áður Alain Lefévre píanóleikari við æfingar í Salnum. Morgunblaðið/Golli Námskeið Sölku Völ VETRARSTARF Félags háskóla- kvenna hefst á þriðjudag með nám- skeiði í samvinnu við Hafnarfjarðar- leikhúsið og Annað svið um uppsetn- ingu þeirra á Sölku Völku eftir Halldór Laxness í nýrri leik- gerð Hilmars Jóns- sonar. „Petta er í sjötta sinn sem félagið stendur fyrir slíku námskeiði um leik- sýningar á vegum leikhúsanna," segir Geirlaug Þorvaldsdóttir for- maður Félags háskólakvenna, en að sögn hennar hafa nám- skeiðin notið vaxandi vinsælda og verið vel sótt. „Það er Jón Viðar Jónsson leiklistarfræð- ingur sem hefur umsjón með námskeiðinu ■' sem dreifist á fimm skipti. Á þriðjudagskvöld- ið verða fyrirlestrar bók- menntalegs og sagnfræðilegs eðlis. Þvínæst verður fylgst með æfingu Hafnarfjarðarleikhúss- ins, þar sem listrænir stjórn- endur sýningarinnar munu ræða við þátttakendur nám- Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur skeiðsins. Því næst horfum við á kvikmyndina víð- frægu sem Arne Mattsson gerði hér á landi á sjötta áratugnum. Þá gefst þátttakend- um námskeiðsins að sjálfsögðu kost- ur á að sjá sýningu verksins strax í kjölfar frumsýn- ingar og nám- skeiðinu lýkur með pallborðsum- ræðum þar sem fengnir verða ýmsir fróðir menn um verk Halldórs Laxness til að ræða við námskeiðsþátttak- endur. Þetta er í annáð sinn sem Félag háskólakvenna efnir til samstarfs við Hafnarfjarðar- leikhúsið, en félagið stóð að eins kvölds námskeiði fyrir þremur árum um sýningu leik- hússins á Birtingi og tókst það sérlega vel,“ segir Geirlaug Þorvaldsdóttir. í vetur eru fyr- irhuguð fleiri námskeið á veg- um Félags háskólakvenna og eru þau öllum opin, körlum jafnt sem konum, að sögn Geir- laugar. opinberlega á ferli sínum. Þetta er efnisskrá fyrir tón- listarunnendur. Fyrir þá sem eru vel heima í tónlist," segir fransk-kanadíski píanóleikar- inn Alain Lefévre, sem leikur á Tí- brártónleikum í Salnum í kvöld, sunnudag, kl. 20.30. Efnisskráin er öll tileinkuð Liszt, „ . . .þeim Liszt sem ég kann best við,“ segir Alain. „Liszt sem andans maður, Lizst sem rís í hæðir og verður voldugur og stór.“ Á efnisskránni eru Prelúdía og Fúga no. 1 í a-moll eftir Bach/Liszt, Tilbrigðin Wienen, Klagen, Mephisto-valsinn og Funerailles. Loks eru umritanir Liszts fyrir píanó á verkum Wagners, Liebestod Isoldar úr Tristan og Isold, Resitativ og Söngurinn um kvöldstjömuna úr Tannhauser og að lokum forleikur- inn úr Tannhauser. Hér er svo sannarlega ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur en Alain Lefévre er í hópi fremstu píanó- leikara heimsins og hefur áður ráð- ist í verkefni sem fyrirfram þóttu óyfirstíganleg. Er gjarnan vísað til frumflutnings hans og síðar marg- verðlaunaðrar geislaplötuupptöku á píanókonsert eftir John Corigli- ano sem þykir einstætt afrek. „Ég var fjórtán mánuði að ná tökum á konsertinum en yfirleitt er ég 6-8 vikur að æfa og læra nýjan píanó- konsert," segir Lefévre. Hann bætir því við að sér hafi komið á óvart að ekki hafi verið gerð nein athugasemd við efnisskrána af Conservatoire National Superieur de Musique de Paris undir leiðsögn Pierre Sancan. Þar vann hann til fyrstu verðlauna fyrir hvoru- tveggja einleik og kammertónlist. Eftir að hafa sigrað í Alþjóðlegu Alfred Cortot píanókeppninni á Ítalíu hélt hann sína fyrstu ein- leikstónleika á Scala í Mílanó. Le- févre hefur síðan verið einn af eft- irsóttustu píanóleikuram heimsins og leikið með öllum helstu sinfóníu- hljómsveitum veraldarinnar og unnið til fjölda viðurkenninga og verðlauna. Hann hefur einnig feng- ið viðurkenningar fyrir hljóðupp- tökur sínar og hefur hljóðritað jöfnum höndum klassíska tónlist sem nútímaverk. Héðan fer hann til tónleikahalds í Toronto í Kanada og síðan til Aþenu þar sem hann leikur á opnunartónleikum hinnar miklu tónlistarhátíðar sem þar er haldin árlega. Lefévre lýsir ánægju sinni með Salinn og segir hann henta einstak- lega vel til einleikstónleika. „Hljómburðurinn er frábær og stærðin á Salnum er alveg mátu- leg. Það er ekki oft núorðið sem maður fær tækifæri til að leika í sal af þessari stærð, en einleikstón- leikar þarfnast nálægðar við áheyrandann. Hér gæti ég trúað að maður næði lifandi og góðu sam- bandi við áheyrendur. Hér verður gaman að spila.“ Lefévre hefur einmitt verið sagður sérstaklega skemmtilegur konsertpíanísti, hann lætiir tilfinningarnar óspart í ljós við hljóðfærið og hann segir að efnisskráin í kvöld gefi tækifæri til að túlka allan skalann og rúmlega það. „Þessi tónlist sprengir nánast utan af sér hljóðfærið." Hann fórn- ar höndum við spumingunni um hvort hann hafi leikið þessa efnis- skrá víða. „Ég er að flytja hana í fyrsta skipti hér í Salnum á Is- landi. Ég hef verið að undirbúa hana í tvö ár og mun leika hana á tónleikum næstu 12-18 mánuðina en þetta er framraunin.“ Tónleikar Lefévré marka jafn- framt upphaf Kanadadaga á ís- landi, en þeir munu standa yfir dagana 3.-7. okt. Tónleikarnir era haldnir í samvinnu við Kanadíska sendiráðið í Ósló og Aðalræðis- mannsskrifstofu Kanada á Islandi. hálfu stjórnenda Salarins í Kópa- vogi. „Það sagði mér strax að ég væri að koma á spennandi stað. Ég hef reyndar lesið heilmikið um ís- land og komist að því að hér býr vel menntað og upplýst fólk. Mér þótti því líklegt að svona efnisskrá gæti fallið í kramið." Ferill Lefévre er glæsilegur. Hann er fæddur 1963 í Frakklandi en fluttist þriggja ára gamall með foreldram sínum og þremur bræðram til Kanada þegar faðir hans réðst tónlistarkennari í Quebec. Lefévre hóf píanónám 4 ára gamall og vakti skjótt athygli. Hann vann fyrstu verðlaun níu sinnum í Tónlistarkeppni Kanada fyrir píanóleik sinn sem bam og unglingur og hóf nám 17 ára við Amanda verðlaunin: Besta mynd Norðurianda 1999 „Fjörug og dramatísk" ★★★ OHT Rás2 •'V-;. . V í' ií 'zé Vinsælasta dogma myndin! ALLIR ERU LYGARAR - SUMIR MEIRA EN AÐRIR S/ÐASri SÖXGl H MIFUNE »{|GÓÐAR \ \ STUNDiR MIFUNES SIDSTE SANG leikstjóri S0REN KRAGH-J AC06SEN HASKOLABIO LISTIR [ Hér verður gaman að spila í Fransk-kanadískí píanósnillinffurinn Alain Lefévre leikur á Tíbrártónleikum í Salnum í Kópavogi í kvöld. Lefévre ætlar að heiðra íslenska tónleikagesti með flutninffl efnis- skrár á píanóverkum Franz Liszt, m.a.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.