Morgunblaðið - 03.10.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
Arnað heilla
Q/\ÁRA afmæli. í dag,
Ovlsunnudaginn 3. októ-
ber, verður áttræður Svein-
björn Sigurðsson, bygg-
ingameistari, Miðleiti 7,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Helga Kristinsdóttir.
Þau eru með opið hús í saln-
um á jarðhæð Miðleitis 7,
frá kl. 16-19. Sveinbjörn af-
þakkar gjafir en bendir fólki
á að styðja byggingarsjóð
Reykjalundar.
Ljósmynd: Charlotta María
Hauksdóttir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. maí sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Helgu Soffíu
Konráðsdóttur Lilja Þor-
steinsdóttir og Ríkarður
Már Ríkarðsson. Heimili
þeirra er á Leirutanga 35a,
Mosfellsbæ.
Baraa- & fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. júlí sl. í Kópa-
vogskirkju af sr. Agústi
Guðmundssyni Helga Þór-
dís Guðmundsdóttir og
Ólafur Magnús Birgisson.
Heimiii þeirra er á Fagur-
hóli 3, Grundarfirði.
BRIDS
llmsjon 6iiðmiin(Iiir
Páll Arnarson
MILLIFÆRSLA á tapslög-
um hefur oftast þann tilgang
að halda hættulega mótherj-
anum úti í kuldanum, svo
ekki komi skot í gegnum við-
kvæman lit. Hér er óvenju-
legt dæmi:
Austur gefur; alhr á
hættu.
Norður
* KG8
V 103
* 964
* Á9843
Vestur Austur
A7 A 43
VÁKDG62 V 98754
♦ ÁD82 ♦ G105
* D7 * KG10
Suður
* ÁD109652
V-
* K73
* 652
Vestur Nortlur Austur Suður
Pass 3 spaðar
4 hjörtu 4 sp. Pass Pass
Pass
Fimm hjörtu eru borð-
leggjandi í ÁV, en þrátt fyrir
fimmlitinn er ekki auðvelt
fyrir austur að fara upp í ell-
efu slaga samning með svo
flata skiptingu. En hvað um
það. Gegn fjórum spöðum
leggur vestur af stað með
hjartaás, en í stað þess að
trompa hendir sagnhafi laufi!
Ef vestur spilar hjarta áíram
hendir suðm' öðru laufi og
getur þá fríað iitinn án þess
að austur komist inn tii að
spila tígli í gegnum kónginn.
Vestur græðir ekkert á því
að skipta yfir í lauf, því það
verður drepið með ás, hjarta-
tíu spilað og laufi hent. Sama
niðurstaða. Eina vörn vest-
urs eftir fyrsta slaginn er að
spila tigli frá ÁD! Það kostar
vissulega slag í bili, en hann
kemur tvöfaldur til baka.
Sérkennilegt spil.
Með morgunkaffinu
HOGNI HREKKVISI
/,5g cr ab gcfa fqrrverancU fanga iæ&fáero ■"
Stóð ég úti í tunglsljósi, stóð ég út við skóg, -
stórir komu skarar, af álfum var þar nóg.
Blésu þeir á sönglúðra, og bar þá að mér fljótt, -
og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt.
Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund, -
hornin jóa gullroðnu blika við lund, -
eins og þegar álftir af ísa grárri spöng
fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng.
Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um
leið,
hló að mér og hleypti hestinum á skeið.
Var þar út af ástinni ungu, sem ég ber?
Eða var það feigðin, sem kallar að mér?
Jónas Hallgrímsson (Heine.)
ORÐABÓKIN
Bjarni Einarsson dr.
phil. hefur oft vikið
ýmsu að mér um máls-
farsleg efni. Ekki alls
fyrir löngu hittumst við
á förnum vegi. Bað hann
mig þá að minnast á
beygingu ofangreindra
orða, sem og annaiTa
þeirra orða, sem oft eru
nefnd frændsemisorð.
Hefur hann tekið eftir
því, að fjölmiðlamenn
eru eitthvað farnir að
ruglast í beygingu
þeirra. Ég verð því mið-
ur að taka undir þetta
með honum, því að ég
Faðir, bróðir
hef einmitt sjálfur tekið
eftir þessu. Er því ekki
úr vegi að minna á beyg-
ingu þessai’a orða. I
uppvexti mínum var
þegar í bai'naskóla vikið
alveg sérstaklega að
þessum orðum. Þá voru
þessi orð tekin fyrir í
málfræðibókum, svo
sem hjá Birni Guðfmns-
syni. Tökum no. faðir.
Þetta er faðir minn er
sagt í nf. Við tölum um
föður okkar (þf.), svo
vorum við hjá föður okk-
ar (þgf.), og loks förum
við til föður okkar (ef.).
Sama gildir um no. móð-
ir. Það beygist í et. á
þessa leið: móðir, móð-
ur, móður, móður. Við
tölum um móður okkar,
ekki móðir okkar. Þessi
no. hafa því endinguna
-ir, í nf., en -ur í svo-
nefndum aukaföllum.
Sama er að segja um no.
bróðir og systh'. Ég tel
mig svo hafa heyrt talað
um faðir minn (nf.), þar
sem um föður minn (þf.)
var að ræða. Ef. föðurs
fyrir föður, bróðurs fyr-
ir bróður eru líka algeng
í talmáli. - J.A J.
STJORIVUSPA
eflir Franrcs Ilrakc
VOGIN
Afmælisbarn dagsins: Þótt
þú sért félagslyndur kýstu
einveruna á stundum. Þú ert
vandlátur í vali vina þinna.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Það eru gerðar til þín kröfur
úr ýmsum áttum og eiga sum-
ar þeirra rétt á sér en aðrar
ekki. Sinntu því sem máli
skiptir og gleymdu ekki sjálf-
um þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur lengi beðið færis að
ræða óþægileg en óhjákvæmi-
leg mál við ættingja þinn og nú
gefst þér tækifæri til þess svo
drífðu þetta bara af.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) VA
Heimsmálin eru þér ofariega í
huga og þú finnur til vanmátt-
ar gegn óréttlætinu. Viljirðu
hafa áhrif skaltu byrja á sjálf-
um þér og sýna gott fordæmi.
Krabbi
(21. júní - 22 júlí)
Gefðu þér tíma til að sinna
heimilinu og lyfta því upp með
því að mála eða breyta til. Allir
hafa gott af tilbreytingu svona
öðru hvoru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekkert getur verið svo slæmt
að ástæða sé til að reita hár
sitt. Taktu hlutunum eins og
þeir eru og reyndu að gera
það besta úr stöðunni hverju
sinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <D&
Þú ert þakklátur fyrir hversu
vel þér hefur gengið á mörg-
um sviðum og vilt launa for-
sjóninni til baka á einhvern
hátt.
V°S m
(23. sept. - 22. október) 4i
Þú ert upptekinn af sjálfum
þér og starfsframa þínum og
skalt leita leiða til að gera
starfið innihaldsríkara því þá
fyrst nýturðu þess.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ert í skapi til að kynnast
nýju fólki og sjá hvað það leiðir
af sér. Hafðu samt allan vai'a á
þér og Ijóstraðu engu upp við
fyrstu kynni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ffaO
Þótt þú sért frjálslegri á
margan hátt en aðrir skaltu
ekki ergja þig á því þótt aðrir
vilji lifa eftir ákveðnu mynstri
því þeir gætu þurft á því að
halda.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) tSf
Ef þú ert ekki í skapi til að
fara út meðal vina skaltu láta
það eftir þér, því það kemur
dagur eftir þennan dag. Not-
aðu tímann til að hvíla þig.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Q&Írt
Þér hefur vegnað vel og þú
nýtur virðingar samstarfsfólks
þíns. Gættu þess að láta það
ekki stíga þér til höfuðs því
það gæti orðið þér að falli.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Gefðu þér tíma til að vera með
því fólki sem þér þykir vænt
um og léttu á hjarta þínu ef
ástæða er til því til þess eru
vinimir að styðja hvor annan.
Stjörnuspána á að les a sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi eru
ekki byggðar á traustum ginnni
vísindalegra staðreynda.
tr
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1999 51
...—-------
ÆTISTENSLAR FYRIR GLER
60 TEGUNDIR, EINNIG SÉRGERÐIR
ifÓðinsgötu 7 tiffanyis Sími 562 844831!
Stuttir og síáir kjólar
Stæráir 8—18
Hverfisgötu 50 O Sími 551 5222
lostulínstrúð
ur
NámskeíS í gerð postulínsbrúða.
International
^0iij^\c,kc¥í___Ólafía Sveinsdóttir, sími 557 Ó8Ó8.
Sölusýning
á málverkum
gömlu meistaranna í Kirkjuhvoli, Kirkjustræti 4, við hliðina
á Pelsinum. Opið kl. 14 til 18 í dag. Verk eftir Jóhannes S.
Kjarval, Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson, Kristínu
Jónsdóttur, Finn Jónsson, Svein Þórarinsson, Mugg,
Gunnlaug Blöndal og Snorra Arinbjarnar.
Að gera erfitt hjónaband gott
og gott hjónaband betra
Viðtöl - námskeið - meðferð.
Fyrir hjón og sambýlisfólk um
samskipti, tjáskipti og tilfinningar.
Nánari upplýsingar í síma 553 8800 og 553 9040.
Stcfón Jóhannsson, MA,
(jölskylduráðgjafi
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðiö
Jólagjafir til útlanda!
Vi Q'ifl.v
★ SÉRMERKTAR JÓLAGJAFIR ★
— Handklæði — Skrúfblýantar —
— Pennar — Pennasett —
Verð frá kr. 1.380
Verð frá kr. 1.490
Hringið og biðjið um mynda-
listann eða skoðið vöru-
úrvalið á vefnum
Sendingarkostnaður bætist viö
vöruverö.
Afhendingartími
www.postlistinn.is ±
PONTUNARSIMI
7-,4-dagar virka dagakl 16-19
W 5571960
Afhe
REYKLAUSmeð
S.TALFSDALEIÐSLU
EINKATIMAR/NAMSKEIÐ
Sími 694 5494
4 vikna námskeið hef jast 14. okt
Með dáleiðslu getur þú losað þig frá fíknum,
unnið úr tilfinningalegum áföllum, sorg, ótta,
kvíða, reiði, sektarkennd og skömni.
Með dáleiðsiu getur þú aukið getu þína og
jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum.
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur,
viðurkenndur af A.C.H.E.
(The American Council of Hypnotist Examiners)