Morgunblaðið - 03.10.1999, Blaðsíða 48
I
4118 SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1999
4
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
10HEN I 6ET OLPER,l M
60íN(&TOLEARNTOPLAY
A MUSICALIN5TRUMENT..
I CAN'T PECIDE IF I
5H0ULP PLAY THE PIANO.
ORTHEVIOLIN,ORTHE
CELLOORTHE HARP..
Þegar ég verð eldri
ætla ég að læra að
leika á hljóðfæri.
f IT D0E5N'T MATTER.
BECAUSE YOU'LL
NEVER OET AROUNP
TO PLAYIN6 ANY
OF THEM.
Ég get bara ekki ákveðið
mig. Ætti ég að velja píanó,
fiðlu, selló eða á hörpu.
YOU ARE FORTI55IMOLY
WEIRP;MARCIE..
Það skiptir engu
máli vegna þess
að þú munt aldrei
leika á neitt af þeim.
Þú ert svo sannarlega
stórfurðuleg, Magga.
*
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til
dómsmálaráðherra
Frá Jóhanni Páli Símonarsyni:
FRÚ Sólveig Pétursdóttir, dóms-
málaráðherra.
Mesta böl íslenska samtímans
er fíkniefnamnflutningur og
neysla. Þess vegna fagna ég í
hvert sinn sem lögreglan upprætir
dópsalana sem halda þessum
óþverra að bömum okkar. Eg
fagna sérstaklega að lögregla skuli
hafa upprætt dópsalaklíku á dög-
unum. Eg held við séum sammála
um það ráðherrann, ég og sjómenn
á fraktskipum.
í Morgunblaðinu sl. laugardag
er viðtal við mann sem titlaður er
yfírmaður efnahagsbrotadeildar
hjá ríkislögreglustjóra. Nafnið er
Jón H. Snorrason. Þar er hann að
útskýra breytingar sem orðið hafa
á fíkniefnamarkaðnum og hann
talar sérstaklega um farmenn í
þessu sambandi. Mér vitanlega
komu þeir hvergi við sögu í stóra
fíkniefnamálinu, enda var flutt inn
í innsigluðum gámum, sem far-
mönnum kemur ekkert við nema
að lesta þá og landa í blóðspreng.
Yfirmaður efnahagsbrotadeildar
segir síðan eftir að hafa talað um
ótiltekna menn sem hafa komið sér
fyrir innan skipafélaganna, hvað
svo sem það þýðir: „Þá er árang-
ursríkast fyrir fíkniefnainnflytj-
endur að koma sér í samband við
þá skipverja sem eru afbrotamenn
á þessu sviði og bjóða þeim sam-
starf.“
Yfirmaður efnahagsbrotadeild-
arinnar gengur lengra og segir í
beinu framhaldi: „Það er á vitorði
margra hvaða skipverjar smygla
áfengi þannig að tiltölulega auð-
velt er fyrir fíkniefnainnflytjendur
að setja sig í samband við þá því
þeir eru ekki margir á hverju
skipi.“
Úndirritaður hefur verið á
fraktskipum í 30 ár og veit ekki
hvaða skipverja yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar á við, en úr því
það er á vitorði margra hverjir það
eru þá hlýtur hann að geta upplýst
það.
Eg fer fram á að dómsmálaráð-
herra sjái til þess að nöfn þessara
manna séu birt svo farmenn þurfi
ekki almennt að sitja undir dylgj-
um undirmanns hennar.
Eg skora líka á dómsmálaráð-
herra að spyrja yfirmann efna-
hagsbrotadeildarinnar, sem ætti
að vita um nöfn áfengissmyglara
sem nú má búast við að fari að
flytja inn dópið, af hverju tollur og
lögregla hafa ekki handtekið þetta
lið úr því að „þeir eru ekki margir
á hverju skipi“ og „á vitorði
margra hvaða skipverjar" stunda
smygl?
Ef nöfnin verða ekki birt og ef
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
biður okkur farmenn ekki afsökun-
ar á orðum sínum af sjálfsdáðum,
þá skorar undirritaður á þig, frú
Sólveig Pétursdóttir, dómsmála-
ráðherra, að knýja fram afsökun-
arbeiðni, en víkja manninum frá
ella. Það er alvörumál að sitja und-
ir svona yfírlýsingum.
Menn geta ekki kastað svona
rugli fram sem hittir fyrir heila
stétt manna án þess að svara fyrir
það hvað þeir meina í smáatriðum.
Hvorki gagnvart mér og starfsfé-
lögum mínum, né til dæmis gagn-
vart fyrirtækinu, sem ég starfa hjá
og mér þykir vænt um, eða gagn-
vart þeim sem halda þar um
stjórnvölinn. Hugsaðu um það, frú
dómsmálaráðherra, næst þegar þú
hittir _ for- og framkvæmdastjór-
ana. Eg treysti því að þú sjáir al-
vöruna í málinu. Stjórnendur fyr-
irtækja geta varla setið undir því
þegjandi að tiltekinn hópur manna
sem starfar hjá þeim skuli vera
vændur um að vera glæpamenn,
að vísu „ekki margir á hverju
skipi“, en „á vitorði margra hvaða
skipverjar“.
JÓHANN PÁLL SÍMONARSON,
sjómaður hjá Eimskip.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vi«5 hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskaö er.
Nýj°
tæjkníhreinsunm
Sólheimor 35 • Slmli 533 3634 • OSMi 897 3634
TANNLÆKNIR
Stefán Hallur Jónsson
Hef hafiö störf á tannlæknastofu
Björgvins Jónssonar, Síðumúla 25.
Sími 553 2501, gsm 896 2767.
Viðtalstímar eftir samkomulagi.
4