Morgunblaðið - 03.10.1999, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
i __________________________
FÓLK í FRÉTTUM
®
Mercedes-Benz C180 Classic
Árgerð 1999, ekinn 37 þ.km., azurit blár, ABS,
5 gíra sjálfskipting með hraðastilli, spólvörn, rafdr. rúður,
rafdr. gler topplúga, hiti í sætum, litað gler, álfelgur ofl.
Nánari upplýsingar i síma 898 3738
PAÐ kennir ýmissa manngerða og
afbrigða í skák í nýrri heimildar-
mynd Þorfinns Guðnasonar sem
ber heiti sem markast af viðfangs-
efninu, - Grand Rokk. Myndin var
frumsýnd í fyrrakvöld á öldurhús-
inu, verður sýnd þar kl. 20 í kvöld
og ef til vill eitthvað fram í næstu
viku. „Upphafið má rekja til þess að
á útmánuðum fórum við að tefla
þarna og komumst að því að mann-
■x- lífíð var margslungið; þetta var eins
konar strákaathvarf," segir Þor-
fínnur Guðnason sem margir
þekkja af heimildarmyndinni
Hagamúsinni sem sýnd hefur verið
víða um heim.
Þótt engar séu mýsnar á Grand
Rokk segir Þorfmnur að þar sé að
fínna þverskurð af íslensku samfé-
lagi. „Þarna koma saman í einum
hnapp frammámenn og öryrkjar;
staðurinn sýnir fólki sem passar ekki
alls staðar inn í mikið umburðarlyndi
og má jafnvel stöku sinnum sjá
þarna hunda. Eg las nýverið í blaði
að þetta væri eini bóhemastaðurinn
á Islandi og get ég alveg tekið undir
það.“
Fluga á vegg
Þegar Þorfínnur rak inn nefið á
útmánuðum komst hann að því að
allir barimir á Klapparstíg voru að
flytja; búið var að segja þeim upp
húsnæðinu. „Það var óljóst hvort
Grand Rokk myndi lifa,“ segir hann.
„Komin var töluverð angist í liðið og
menn voru að leita hófanna úti í bæ
að öðrum stað. Mér fannst þetta efni
í skemmtilega ferðasögu af bar og
það var eiginlega Hrafn Jökulsson
sem hvatti mig til dáða sem formað-
ur nýstofnaðs skákklúbbs Grand
Rokks.“
Forseti.
„Já, forseti," segir Þorfinnur og
hlær. „Það má ekki gleyma því.“
Hvernig vinnustaður er Grand
Rokk?
„Hann er ansi áfengur og reynslan
að sama skapi áfeng.“
Dan Hansson heitinn er í stóru
hlutverki.
„Hann lést vikuna áður en ég lauk
við myndina og er hún tileinkuð
minningu þessa frábæra skák-
manns.“
Hvað ætlarðu að gera við mynd-
ina?
„Eg er ekki búinn að hugsa svo
langt fram í tímann en ég er viss um
að hún ratar inn á sjónvarpsstöð fyrr
eða síðar. Þetta er kráarsagnfræði
tíu árum eftir að bjórinn var leyfður
- höfum við gengið til góðs, götuna
fram eftir veg? Er kráarstemmning
á Islandi? Þjóðþekktar persónur
koma við sögu og ég held að þetta
eigi eftir að verða merkileg heimild
þegar fram í sækir, sem gerist á því
herrans ári 1999.
Þú ert með fleiri myndir á prjónun-
um.
„Þetta var eiginlega stílæfíng fyrir
aðra mynd sem ég er að gera um
Lalla Jones. Hún verður á öðrum
nótum en efnistökin eru svipuð og ég
hef mikla trú á því verkefni. Eg hef
unnið að henni í þrjú ár og þann tíma
hef ég verið fluga á vegg; þetta er
stíll sem Evrópubúar kalla nýbylgj-
una í heimildarmyndagerð. Þessi að-
ferð gerir hverjum sem er kleift að
fara út á götu eða heim til mömmu,
kvikmynda og elta uppi söguþráð því
Morgunblaðið/Ásdís
Þorfínnur Guðnason leikstjóri í góðum fólagsskap.
hann liggur allt í kring. Þetta er
mjög ódýrt því tæknilegur kostnaður
hefur hríðlækkað.“
Hvenær fáum við að sjá Lalla Jo-
nes á hvíta tjaldinu?
„Tökum er lokið og ég geri ráð
fyrir að myndin verði tilbúin ein-
hvern tíma á útmánuðum, febrúar
eða mars.“
Ertu góður í skák?
„Nei, ég er afieitur. En ég hef
ofsalegan áhuga og hef nú samt náð
því að vinna Hrafn Jökulsson."
Skeinmtilegt; örsamfélag
Ekki var hægt að láta hjá líða að
hringja í Hrafn eftir þessa yfirlýs-
ingu Þorfinns og bera þetta undir
hann. „Svo þú tapaðir fyrir Þorfinni
Guðnasyni," byrjar blaðamaður á að
segja.
„Hverju var hann að ljúga að
þér?“ hváir Hrafn og er auðheyri-
lega mikið niðri fyrir.
„Hann segist hafa unnið þig í
skák,“ segir blaðamaður.
„Ekki opinberlega, vona ég,“ segir
Hrafn og bætir við; „Ef þú ætlar að
birta þetta... þetta er rakið meið-
yrðamál.“
Blaðamaður beinir talinu að öðru
og spyr Hrafn út í samfélagið á
Grand Rokk.
Pétur Kristjánsson og Kristján Jónsson
í hrókasamræðum.
daga klukkan 14,“ svarar Hrafn.
„Síðan eru skáksveitir Grand Rokks
að halda til leiks í deildakeppni
Skáksambands Islands. A-sveit okk-
ar sem byrjaði í fjórðu deild í fyrra
teflir í þriðju deild og er gaman frá
því að segja við erum í sambandi við
færeyska skákmenn og munum tefla
fram tveimur skákmönnum þaðan.
Er það liður í þróunaraðstoð Grand
Rokk. Rógvi Rasmussen, glaðbeittur
læknanemi, teflir með okkur í A-
sveitinni og standa yfir viðræður við
Færeyinga um frekara samstarf.
Skákfélagið mun einnig beita sér
fyrir útbreiðslu skáklistarinnar á
landsbyggðinni og förum við um
Austurland og Norðurland í október
og nóvember. Yfirskrift ferðarinnar
verður „Skák og skáldskapur"; á
meðan betri liðsmenn Skákfélagsins
sjá um taflmennskuna mun forseti
félagsins kynna skáldsögu sína sem
kemur út á næstu vikum.“
Hvaða skáldsaga er það?
„Það er lítil saga eftir undirritaðan
sem kemur út í nóvember hjá For-
laginu; sambland af spennu-,
skemmti- og harmsögu. Hún fjallar
um ungan mann sem tekur eina
ranga ákvörðun og eftir það fara
ófyrirsjáanlegir og háskalegir hlutir
að gerast.“
„Það er ákaflega flókið og
skemmtilegt,“ segir Hrafn. „Þetta er
örsamfélag sem mannfræðingar
hefðu gaman af því að rannsaka. Hér
er fólk úr öllum áttum og ég held að
við getum teflt fram framúrskarandi
sveitum listamanna, skákmanna, iðn-
aðarmanna, jafnvel fegurðardrottn-
inga. Allt þetta fólk myndar hina
skemmtilegu deiglu sem Grand
Rokk er. Og mér fannst því að í ald-
arlok yrði staðurinn að leggja sitt af
mörkum til þess að bregða upp
mynd af þessu sérkennilega og
fjöruga mannlífi."
Fegurðardrottningum? Ef marka
má heimildarmyndina er þetta
strákaklúbhur.
„Strákarnir eru ennþá í meiri-
hluta. Það viðurkenni ég,“ segir
Hrafn. „En þessi staður nýtur vax-
andi vinsælda meðal kvenna, til að
mynda hefur skákfélagið farið í sér-
stakt átak til að efla þátttöku kvenna
í skák og ég er stoltur af því sem for-
seti félagsins að upplýsa að 40%
meðlima eru konur; þetta er hæsta
hlutfall í heiminum og þar af er nú
mörg fegurðardrottningin."
Skák og skáldskapur
Hvenær er næsta skákmót?
„Við erum með mót alla laugar-
Dr. Bjarni sjónháttafræðingur leikur stóra
rullu í inyndinni.
Þorfinnur Guðnason með framleiðandanum
Skákmeistarinn Róbert Harðarson
og Hrafn Jökulsson.
Ferðasaga af
Nú er allt fulli r— ■ „ af spennandi — n m W Jtt
nyium þrugum frá ollum til umgerðar heimshornum A 1 1 /V
ByKjimcmseTT 50% afsLÚTTun. v?5!! * Skeifunni 1 Arb. TakmaRkaö maqn víö hiiðma á Grii og fyrir aftan ) ALLíuv goö inan 1 ii. x' —— ' tiLboð i qungi w/j og Kringlunni ® opið á laugardögum 0§ YlíEQ ðlLaSTCSÖl II sími: 5331020