Morgunblaðið - 17.11.1999, Page 23

Morgunblaðið - 17.11.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999 23 ERLENT Fundur utanríkis- og varnarmála- ráðherra Evrópusambandsins Afanga náð í smíði varnar- stoðar ESB Brussel. AP, Reuters. Á SÖGULEGUM fundi utanríkis- og vamarmálaráðherra allra Evrópusambandslandanna fimm- tán í Brussel á mánudag var stiginn mikilvægur áfangi í þá átt að gera Vestur-Evrópusambandið (VES) að raunverulegum vamararmi Evrópusambandsins (ESB). Þetta var í fyrsta sinn í 42 ára sögu ESB sem allir utanríkis- og varnarmálaráðhen-amir sátu sam- eiginlegan fund, sem ber vott um að ESB-ríkjunum sé nú alvara með að koma á fót raunverulega sameigin- legri vamarstefnu. Meðal þess sem ákveðið var á fundinum var að gera Javier Sol- ana, fyrrverandi framkvæmda- stjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO), sem nýlega tók við emb- ætti æðsta talsmanns ESB í utan- ríkis- og öryggismálum, jafnframt í embætti framkvæmdastjóra VES. „Þetta er mjög mikilvægur dag- ur,“sagi Solana. Hann hikaði hins vegar ekki við að bæta við: „En við eigum enn langt í land“ Að tillögu Breta vai- jafnframt samþykkt á fundinum að koma skyldi upp 40.000 manna sam- evrópski viðbragðshersveit, sem væri hægt að senda á innan við 60 dögum til friðargæzlustarfa á átakasvæðum við anddyri Evrópu- sambandsins. „En það er enn fjarri því að Evrópa búi yfir því sem til þarf- ,“sagði Geoff Hoon, varnarmálaráð- herra Bretlands. „Eins og það hefði ekki verið dagljóst fyrir sýndi Koso- vodeilan okkur ótvírætt fram á, að við verðum að gera meira til að axla byrði varna Evrópu," sagði hann. Mikil uppbygging nauðsynleg á ýmsum sviðum hermála Rudolf Scharping, vamarmálar- áðherra Þýzkalands, skoraði á ESB-ríkin að ljúka gerð „sameigin- legrar vamarvitundar" eins og upp- bygging sameiginlegra vama hefur verið nefnd, fyrir árið 2003. Til þess að svo megi verða þarf ESB að byggja upp hemaðarlega flutningsgetu, gemhnattatækni og bæta sig á fleiri sviðum hernaðar- mála þar sem Evrópumenn standa mun lakar að vígi heldur en Banda- ríkjamenn. I lofthernaðinum í Kosovo vom það bandarískar her- þotur sem flugu flestar árásarferð- imar. Franski vamarmálaráðherrann Alain Richard sagði að ESB yrði að verða fært um að grípa til nægilega öflugra ráðstafana til að geta hindr- að að upp úr sjóði í deilumálum í nágrannalöndum sambandsins og geta gert áætlanir um hemaðarað- gerðir, gert hernaðarleiðangra út af örkinni og haldið þeim úti, án að- stoðar Bandaríkjamanna. En Scharping og fleiri ráðherrar tóku fram að eftir sem áður yrði Atlantshafsbandalagið grandvallar- vettvangur öryggismálasamstarfs yfir Atlantshafið og ekki stæði til að veikja NATO. Markmiðið sé fyrst og fremst að Vestur-Evrópubúum verði kleift að senda herlið og her- gögn til nágrannasvæða með nægi- lega skömmum fyrirvara án þess að þurfa að leita á náðir hinna banda- rísku bandamanna sinna. Áhyggjur NATO-ríkja utan ESB Madelaine Albright, utanríkis- málaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt að Evrópa eigi að hafa sína eig- in varnarstoð, að því gefnu að það leiði ekki til þess að tengsl rofni, að óþarfa tvöföldun verði á vamar- skipulagi bandamanna, né að mis- munun komi upp á milli þeirra. Hún er meðal þeirra sem hafa bent á að taka beri tillit til þess að Tyrkland, Island, Noregur, Pólland, Ung- verjaland og Tékkland era öll í NA- TO en ekki ESB. Hættan sé sú að þessi ríki verði ósátt við ákvarðanir sem teknar verði í nafni hinnar nýju evrópsku varnarstoðar sem þessi ríki hafi ekki kost á að koma að nema sem áheymarfulltrúar. Hins vegar sjá hlutlausu ríkin í ESB, Finnland, Svíþjóð, Austurríki og Irland áhrif sín aukast með því að þau hafi fullan atkvæðisrétt í hinni komandi varnarstoð ESB. Að loknum fundi ESB-ráðherr- anna á mánudag áttu utanríkis- og varnarmálaráðherrar NATO-ríkj- anna^utan ESB, þar á meðal Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra, kost á að eiga fund með ESB-ráð- herrunum, þar sem hinir fyiT- nefndu vöraðu við því að smíði vam- arstoðar ESB yrði til að veikja NATO og samstarfið yfir Atlants- hafið. Halldór segir útfærslu vanta Finna yrði ásættanlegt fyrir- komulag samráðs milli NATO-ríkj- anna sem ekki era í ESB og nýju varnarstoðarinnar eftir að VES er sameinað ESB. I samtali við Morgunblaðið sagði Halldór fundinn hafa verið jákvæð- an. „Eg tel að eftir þennan fund sé meiri áhugi fyrir raunveralegu samstarfi við NÁTO-þjóðimar sem standa utan Evrópusambandsins. Það er hins vegar alveg eftir að út- færa það,“ sagði Halldór„Við verð- um að bíða og sjá hvað verður ákveðið á leiðtoga-fundinum í Hels- inki í desember" Sagði Halldór NATO-ríkin utan ESB hafa staðið mjög vel saman. Mikill þungi hafi verið í málflutningi þeirra. „Það kom í ljós á þessum fundi að Solana þekkir málflutning þessara ríkja og ég bind vonir við að þessi reynsla hans skipti veralegu máli í því að leiða þetta mál farsællega til lykta," sagði Halldór, en ESB-ríkin stefna að því að VES verði endan- lega rannið inn í ESB í lok næsta árs. ELDHU SG ARDINUR Mikiö úrval af tilbúnum eldhúsgardínum og köppum O O CT LO OO co LO Allt fyrir gluggann r-\lrl A -' www.alnabucr.is Svartsýni í viðræðum um skaðabótasjóð NÝ LOTA samningaviðræðna vegna stofnunar skaðabótasjóðs til handa fólki sem neytt var til vinnu í Þýzkalandi á dögum síðari heimsstyrjaldar hófst í Bonn í gær. Þar héldu lögmenn hópa fyrrverandi nauðungarverkafólks til streitu kröfum um að í sjóðnum verði að minnsta kosti tólf mill- jarðar bandaríkjadala, andvirði 860 milljarða króna, en það er um tvöföld sú upphæð sem hinir þýzku aðilar, stjórnvöld annars vegar og hópur fyrirtækja hins vegar, hafa lýst sig reiðubúna að greiða í sjóðinn. Einn lögmaðurinn hótaði að fara fyrir allsherjarútgöngu af samningafundinum, hækki þýzku fyrirtækin ekki tilboð sitt. Einn fulltrúi Þjóðverja í viðræð- unum viðurkenndi að hugsanlega slitnaði upp úr þeim áður en þær næðu að mjaka málum nær sam- komulagi á þeim tveimur dögum sem áformað var að sitja að samn- ingaborði í Bonn, í gær og í dag. Áður hafði verið álitið líklegt að á þessum fundi tækjust þáttaskil i viðræðunum. „Meirihluti lögmannanna er til- búinn til að ganga út,“ sagði Bandaríkjamaðurinn Edward Fagan, einn 12 lögmanna hópa fyrrverandi nauðungarverkafólks. Fyrir liggur 6 milljarða marka tilboð, andvirði 230 milljarða króna, frá þýzku fyrirtækjunum og stjórnvöldum - 4 milljarðar frá um 50 fyrirtækjum og 2 milljarðar frá stjórninni - en ríkisstjórnin hefur lýst sig reiðubúna að hækka tilboð sitt um einn milljarð marka, með því skilyrði að fyrirtækin leggi fram áþekka upphæð til við- bótar. Deborah Sturman, einn lög- manna fólks sem telur sig eiga til- kall til fjár úr slíkum skaðabóta- sjóði, ítrekaði kröfuna um að í sjóðnum yrðu ekki minna en 12 milljarðar Bandaríkjadala, and- virði 860 milljarða króna. „Eg er mjög svartsýn á að við náum samkomulagi á næstunni,“s- agði hún„Þetta er bara byrjunin11. Undir þrýstingi frá lögmönnum í Bandaríkjunum, sem hótuðu að hefja málaferli gegn þýzkum fyr- irtækjum sem nýttu sér nauðung- arvinnuafl í stríðinu, stakk hópur þekktra þýzkra fyrirtækja upp á því í febrúar sl. að stofna til slíks skaðabótasjóðs, svo að þeir sem teldu sig eiga rétt á slíkum skaða- bótum sneru sér til sjóðsins í stað þess að standa í málaferlum. Til stóð að ganga frá samkomulagi um stofnun sjóðsins hinn 1. sept- ember sl., þegar rétt 60 ár voru frá því síðari heimsstyrjöldin hófst. Helzti vandinn í vegi fyrir sam- komulagi er að enn er deilt um hve margir séu enn á lífl sem hugsan- lega eigi rétt á slikum bótum, en mat á fjölda þeirra nær frá nokkur hundruð þúsundum upp í 2,3 mil- ljónir manna. ummi Með eða án afþurrkunarbursta Tilvalið fyrir heimili, stofnanir, húsfélög og fyrirtæki. mottnr HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is LANCÖME Takmarkað magn ERT ÞU A LEIÐ I FERÐALAG? LÁTTU ÞÁ EKKI HAPP ÚR HENDI SLEPPA LANCÖME býður þér 50 ml Primordiale næturkrem og sem kaupauka tösku, dagkrem 15 ml, augnkrem og varakrem 5 ml. Verðmæti kaupaukans er 3.600 kr. Einnig fóanlegar töskur með Primordiale dagkremi og Rénergie kremi. lancöme verslanir um land allí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.