Morgunblaðið - 17.11.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999 2 7
Saga sem
leynir á sér
BÆKUR
S k á Itl s a » a
KULARAFDEGI
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.
Mál og menning 1999, 136 bls.
EKKI veit ég hvort Kristín
Marja Baldursdóttir á sér fyrir-
mynd í hópi rithöfunda en óneitan-
lega kemur hin breska Fay Weldon
upp í hugann við lestur bóka henn-
ar. Söguefni, stíll og frásagnarað-
ferð Kristínar Marju minna mjög á
hina frábæru Weldon - og er þar
ekki leiðum að líkjast. Báðar skrifa
þær Kristín Marja og Weldon texta
sem gneistar af kaldhæðnislegum
og ísmeygilegum kvennahúmor
eins og hann gerist bestur. Sögu-
efni beggja snerta margbrotið líf
nútímakvenna sem oftar en ekki
eru „töff týpur“ sem kalla ekki allt
ömmu sína og láta karlmenn ekki
troða sér um tær - og hyggja á
hefndir ef svo ber undir. Vel má
skilgreina verk þeirra beggja sem
kómískar úttektir á samskiptum
kvenna og samskiptum kynjanna
(með kvenrembuívafi) á yfirborð-
inu - en meira hangir einnig á spýt-
unni.
Hvað Kristínu Marju áhrærir
kom fyrsta skáldsaga hennar,
Mávahlátur (1995), sem ný og fersk
rödd inn í íslenskar samtímabók-
menntir. Lýsingin á hinni óborgan-
legu aðalpersónu sögunnar,
Freyju, er með fyrstu ekta „femme
fatale" lýsingum íslenskra bók-
mennta (a.m.k. frá sjónarhóli
konu), sannkölluð ísdrottning. Lýs-
ingin á kvennafansi Mávahláturs á
sér varla samsvörun í íslenskum
skáldsögum og einnig dregur höf-
undur upp bráðskemmtilega sam-
félagsmynd í verkinu.
Aðalpersóna nýjustu skáldsögu
Kristínar Marju, Kular af degi,
heitir Þórsteina Þórsdóttir. Hún er
kennari „af guðs náð“, glæsileg,
einhleyp og fjárhagslega vel stæð.
Þórsteina hefur sjálfsálit í meira
lagi, sýnir nemendum sínum hörku,
er útsjónarsöm í kennsluaðferðum
og kann að snúa karlmönnum í
kringum sig, ef svo ber undir. Hún
vill þó hafa fremur lítið saman við
þá að sælda og kýs frekar að halda
Kristín Marja
Baldursdóttir
kvenkyns sam-
kennurum sínum
dýrðlegar veislur
að frönskum hætti.
Óneitanlega
minnir karakter
Þórsteinu á aðra
fræga „töff týpu“
íslenskra samtíma-
bókmennta, nefni-
lega Öldu í Tíma-
þjófi Steinunnar
Sigurðardóttur.
Lengra nær þó
samanburðurinn á
þessum tveimur
skáldsögum varla
því efni og stíll
þeiira Kristínar
Marju og Steinunnar er afar ólíkur.
Þótt báðir höfundar noti íroníu af
unaðslegri list má segja að aðal-
stílbragð Steinunnar sé ljóðrænan
en stíll Kristínar Marju einkennist
af smellnu og hnitmiðuðu talmáli.
Kular af degi er heldur ekki ástar-
saga en í henni leynist vísir að
sakamálasögu. Fyrst og fremst er
hér þó um að ræða kostulega sögu
af einhleypri og sérviturri konu, af
samskiptum hennar við karlkyns
nágranna sinn, við samkennara
sína og nemendur, af „ritúalísku"
háttalagi hennar heima fyrir,
njósnum hennar um nágranna í
næstu húsum, af ferðalögum henn-
ar í Frakklandi og fleiru.
Þórsteina lýsir „kennslufræði“
sinni á sama afdráttarlausa mátann
og hún lýsir skoðunum sínum á
unglingum, hjónaböndum og bók-
menntum, svo fátt eitt sé
nefnt. Hún unir sér við
lestur orðabóka en les
síst af öllu skáldsögur:
„... ég les ekki bull í fólki“
(6). Nemendur á að beita
hörðum aga, að mati Þór-
steinu, enda kennir hún
illstjórnanlegum ungl-
ingum sem leita sífellt
færis á að klekkja á
kennaranum. Þegar
háttalag nokkurra af-
vegaleiddra nemanda
Þórsteinu leiðir til harm-
leiks tekur hún til sinna
ráða. Hér verður að sjálf-
sögðu ekki gefin upp
flétta (plott) verksins, en
látið nægja að segja að lestur þess-
arar stuttu en þéttu sögu er hvoru
tveggja skemmtilegur og spenn-
andi.
Frásagnaraðferð Kristínar
Marju er vel sniðin að þeirri fléttu
sem liggur undir yfirborðinu, svo
að segja, því undir „sakleysislegu"
masi Þórsteinu um eigið líf er fólg-
in frásögn af glæpaverkum. Frá-
sögnin er í fyrstu persónu og gerist
á einni helgi, þótt. sögutíminn
spanni mörg ár í lífí Þórsteinu í
gegnum upprifjanir hennar og
hugleiðingar. Þórsteina kryddar
frásögn sína með innskotum þar
sem hún talar bæði um sjálfa sig og
til sjálfrar sín. Fyrrnefndu innskot-
in eru til dæmis í formi viðtals,
minningaræðu og ævisögu, en síð-
arnefndu innskotin innihalda vísan-
ir til glæpafléttunnar" og skapa
spennu frásagnarinnar:
- Heyrðir þú högg Þórsteina?
- Högg? Nei ég heyrði ekkert.
- Engin högg í húsinu?
- Eg heyri bara þögnina.
Kannski komu hljóðin að utan þeg-
ar kerlingarálkurnar skelltu aftur
bílhurðunum.
Komu ekki höggin úr kjallaran-
um?
Því trúi ég tæpast, þar býr eng-
inn að mér vitandi, en svona brestir
berast of upp með hitaveiturörun-
um. (21)
Kular af degi er ekki löng saga,
aðeins 136 blaðsíður, en hún leynir
á sér, kemur lesanda á óvart og
skemmtir honum sífellt með
ísmeygilegum húmor og hinu góða
auga höfundar fyrir því neyðarlega
í samskiptum fólks. Það sakar
heldur ekki að undirtónn sögunnar
er alvarlegur og tekur á ýmsum
vandamálum sem brenna á samfé-
laginu í dag - að vissu leyti má
segja að Kristín Marja laumi inn
um kjallaradyrnar bakdyramegin
glúrinni ádeilu í annars létta og
skemmtandi frásögn.
Soffía Auður Birgisdóttir
Ellen læðist um með
vöskum sveinum
London
22. nóvember
TONLIST
ÍVl ií l í ii ii á S ó 1 o n í
í s 1 a n d u s i
ELLEN KRISTJÁNS-
DÓTTIR OGFÉLAGAR
Ellen Kristjánsdóttir söngur, Eyþór
Gunnarsson píanó og slagverk,
Guðmundur Pétursson gítar og Tó-
mas R. Einarsson kontrabassa.
Sunnudagskvöldið 7.11.1999.
ÞAÐ heyrist alltof sjaldan í
djasssöngkonunni Ellen Kristjáns-
dóttur og geisladiskurinn hennar
sem kom út í fyrra, Ellen Kristjáns-
dóttir læðist um, hefur farið heldur
hljótt. Það gerði diskm- hennar þar
á undan, Kombóið, einnig, en er þó
uppseldur. A Kombódiskinum var
frumsamin tónlist en á þeim seinni
vinsælir bandarískir standardar
sem Friðrik Erlingsson (mestan
part) hefur gert íslenska texta við.
Megnið af þeim lögum er Ellen
söng á tónleikunum á Múlanum má
fínna á þeim diski, en áðuren Ellen
hóf sönginn lék tríóið djas-
standarda og lög eftir bassaleikar-
ann, Tómas R. Einarsson.
Það má segja að Dave Brubeck
hafi rammað inn dagskrá tríósins.
Disneyvalsinn, Someday my prince
will come, var fyrsta lagið þeirra.
Brubeck hljóðritaði það fyrstur
djassleikara þó útgáfa Miles Davis
sé trúlega frægari. Lokalag tríósins
var eftir Bi-ubeck, In your own
sweet way, og það hljóðritaði Miles
líka. Inná milli voru svo verk eftir
Sonny Rollins og Tómas og
athyglisverðust túlkun þein-a fé-
laga á Astarvísu Tómasar, sem
finna má á stórgóðum geisladiski
hans er út kom í fyrra; A góðum
degi. Þar leikur Jacob Fischer á
gítarinn og Einar Valur á trommur.
Þegar maður hefur heyrt einn af
betri djassgítarleikum Evrópu
leika þessa norrænu Astarvísu
Tómasar, sem er klassatónsmíð, er
ekki nema von að maður hlusti
grannt eftir þegar Guðmundur
Pétursson leikur hana. Drengurinn
hefur löngum verið handgengnari
blúsi en djassi og það var hann jafn-
an þetta kvöld, ef lögin gáfu tilefni
til, en hann túlkaði Ástarvísuna vel
og í sólókafla hans ríkti sterk djas-
stilfinning. Um Eyþór Gunnarsson
þarf ekki að fjölyrða, sólóar hans
músíkalskir að vanda og Tómas
hélt uppi ryþmanum og smullu
strengir gjarnan við bretti.
Ellen Kristjánsdóttir réð ríkjum
seinni hluta tónleikanna og voru
flest lögin flutt með undirleik Guð-
mundar og Tómasar. Það er dálítið
ski-ítið að heyra lög sem bestu
djasssöngvarar veraldar hafa gert
sígild og sungið á ensku flutt á
íslensku. Þetta var einsog í gamla
daga þegar Jóhann Möller söng
Laufblöð falla (Autumn leaves).
What is the thing called love eftir
Cole Porter nefnir Friðrik: Hvað er
þetta með ást og S’wonderful eftir
George Gershwin: Það er unaðs-
legt. Svo gerði Jónas Arnason texta
við Body and soul, Ég ann þér enn
þrátt fyrir allt, og Ómar Ragnars-
son við Cry me a river. Tár þér titra
á hvarmi. Eini gallinn við að hlusta
á suma ástarsöngvana á íslensku er
að væmnin meiðir frekar þegar
móðurmálið á í hlut en enskan.
Sigrún Jónsdóttir, ejn fremsta
djasssöngkona er við Islendingar
höfum átt, söng Cry me a river frá-
bærlega með Ola Gauk á gítar og
Ellen túlkaði lagið ekki síður vel.
Ellen er einstaklega sjarmerandi
söngkona, en raddsvið hennar er
ekki mikið og misjafnt hvaða lög
eiga við hana. Body and soul var t.d.
mun síðra en What is the thing cal-
led love.
Ellen tók mið af klassískum
djassballöðusöng í túlkun sinni en
undirleikurinn var þó enn frekar en
söngurinn á millistríðsnótunum og
ekkert nema gott um það að segja-
Þótt gaman væri að hlusta á Ellenu
þetta kvöld væri ekki ónýtt að
heyra hana flytja metnaðarfyllri
dagskrá. Mér finnst einhvern veg-
inn einsog þessi músíkalska og
hæfileikaríka söngkona hafí aldrei
notið sín sem skyldi, þótt margt frá-
bært hafi hún gert á löngum ferli.
Vernharður Linnet
frá kr.
13.
Hefgarferð
25. nóvember,
9 sæti laus.
Heimsferðir selja nú síðustu sætin á
þessum einstöku kjörum til heims-
borgarinnar London í nóvember,
flugsæti frá aðeins 13.890 krónum.
Hvergi í Evrópu er jafnmikið um að vera í listum og menningar-
lífi og hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval hótela og
nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr.
13.890
Verð kr.
Flugsæti með flugvallarsköttum.
22. nóvember.
Gildir frá mánudegi til fimmtudags.
24.990
J
TA-
HEIMSFERÐIR
Flugsæti með flugvallarsköttum.
25. nóvember.
Gildir frá ílmmtudegi til mánudags.
2, 3 og 4 stjömu hótel í boði.
Austurstræti 17, 2. hæð
sími 562 4600
www.heimsferdir.is