Morgunblaðið - 30.11.1999, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vinnslustöðin vann málið í Héraðsdómi Reykjavíkur
Fiskistofa dæmd til að greiða
um fimm milljónir auk vaxta
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dsemdi í gær Fiskistofu til að greiða
Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyj-
um röskar 4,8 milljónir króna með
vöxtum og dráttarvöxtum frá 30.
mars í fyrra og hálfa milljón í máls-
kostnað vegna gjaldtöku fyrir
meintan umframafla Sighvats
Bjarnasonar VE úr norsk-íslenska
síldarstofninum 1997. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvort mál-
inu verði áfrýjað til Hæstaréttar en
það hefur ekki fordæmisgildi þar
sem ný lög um veiðamar voru sam-
þykkt 1998, að sögn Jóns B. Jónas-
sonar, skrifstofustjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu.
Rétturinn komst að þeirri niður-
stöðu að stjórn sjávarútvegsráð-
herra á veiðum úr norsk-íslenska
síldarstofninum vorið og sumarið
1997 á grundvelli reglugerðar, sem
hann hefði gefið út í mars á sama
ári, hefði ekki verið lögum sam-
kvæm. Hefði ráðherra borið að
ákveða aflahlutdeild einstakra skipa
á grundvelli laga nr. 38 frá árinu
1990. Það var ekki gert heldur
veiddu skipin þar til heildaraflanum
var náð. Þar sem ekki hefði verið
heimilt að ákveða veiðarnar eins og
ráðuneytið gerði með reglugerð nr.
190/1997 komst héraðsdómur að
þeirri niðurstöðu að álagning sér-
staks aukagjalds á Vinnslustöðina
vegna meints 809 tonna umframafla
Sighvats Bjarnasonar VE hefði ver-
ið ólögmæt.
Tvö önnur skip greiddu sekt
með fyrirvara
„Þessi dómur hefur ekkert for-
dæmisgildi því árið eftir voru sam-
þykkt ný lög um stjórnun á þessum
veiðum," segir Jón B. Jónasson.
Hann segir að tveimur öðrum skip-
um hafi verið gert að greiða gjald
vegna umframafla, en það hafi verið
lægra en gjald Vinnslustöðvarinnar.
Verði málinu ekki áfrýjað til Hæsta-
réttar feli niðurstaða héraðsdóms í
sér að Fiskistofu beri að endur-
greiða þeim á sama hátt enda hafi
verið um sambærileg tilvik að ræða.
Jón segir líklegt að málinu verði
áfrýjað til Hæstaréttar til að fá end-
anlega niðurstöðu því einn dómari
hafi dæmt í málinu hjá undirrétti og
menn séu ekki sammála um lagalega
túlkun þess. í umfjöllun í ráðuneyt-
inu á sínum tíma hefðu lögfræðingar
komist að því að leiðin sem farin var
stæðist. Ennfremur hafi við umfjöll-
un fiumvarpsins í sjávarútvegs-
nefnd á sínum tíma verið gengið út
frá því að ekki kæmi til varanlegrar
úthlutunar úr umræddum sfldar-
stofni.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Þrengir að
smáfuglum
Samræmd próf í 4. og 7. bekk
Landsbyggðin
sækir sig miðað
við Reykjavík
REYKJAVÍK var undir landsmeð-
altali í stærðfræði í samræmdum
prófum 4. bekkinga, sem haldin
voru í oktdbermánuði, en í íslensku
var árangurinn jafn meðaltalinu. I
7. bekk voru nemendur í Reykjavík
yfir meðaltali í báðum námsgrein-
um, en nemendur af Vestíjörðum,
Suðurlandi og Suðumesjum voru
með lakasta árangurinn í báðum
aldurshdpum.
Meðaleinkunnin í stærðfræði hjá
4. bekkingum í Reykjavík var 6,5 en
landsmeðaltalið var 6,7 og í ís-
lensku var meðaleinkunnin 6,5 í
Reykjavík og landsmeðaltal hið
sama.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsdknastofnun uppeldis- og
menntamála vekur árangur 4.
bekkinga í Reykjavík athygli. Sam-
ræmd prdf í þessum aldurshdpi
voru fyrst þreytt árið 1996 og að
því ári undanskildu hefur árang-
urinn í bæði stærðfræði og íslensku
farið versnandi.
Miðað við það að einkunnirnar
séu normaldreifðar á kvarðanum 1
til 9 og landsmeðaltalið alltaf haft
5,0 var meðaleinkunnin í Reykjavík
árið 1996 5,0 í stærðfræði og 5,2 í
islensku. Árið 1997 var meðaltalið
5,3 í stærðfræði en 5,2 í íslensku;
árið 1998 var meðaltalið 5,1 í stærð-
fræði og í íslensku og í ár fdr það
undir Iandsmeðaltalið og var 4,9 í
báðum greinum.
Tvær skýringar
á þróuninni í Reykjavík
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsdknastofnun uppeldis- og
menntamála eru tvær mögulegar
skýringar á þessari þrdun í Reykja-
vík. Annars vegar að landsbyggðin
hafi bætt árangur sinn undanfarin
ár en Reykjavík staðið í stað og
landsbyggðin þannig dregið meðal-
tal nemenda í Reykjavík niður mið-
að við heildina. Hins vegar gæti
skýringin verið sú að árangurinn í
Reykjavík væri einfaldlega lakari
en undanfarin ár.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsdknastofnun uppeldis- og
menntamála eykst munurinn á milli
Reykjavíkursvæðisins og lands-
byggðarinnar eftir því sem nem-
endur verða eldri.
Arangur 7. bekkinga í Reykjavík
hefur verið mun jafnari en árangur
4. bekkinga frá því prdfin voru
haldin í fyrsta skipti árið 1996.
Reyndar hefur meðaltalið í stærð-
fræði farið sífellt lækkandi frá
1997, ef miðað er við normaldreifð-
ar einkunnir.
Einkunnir í
stærðfræði lækka
f prdfunum sem haldin voru í
oktdber voru nágrannasveitarfélög
Reykjavíkur (Kdpavogur, Hafnar-
fjörður, Garðabær, Seltjarnarnes
og Mosfellsbær) með besta árang-
urinn í stærðfræði 4. bekkinga og í
íslensku voru þau ásamt Norður-
landi eystra og Austurlandi með
bestan árangur.
í 7. bekk voru Reykvíkingar með
besta árangurinn í stærðfræði og í
íslensku voru þeir, ásamt ná-
grannasveitarfélögunum, með
besta árangurinn.
Samræmd könnunarpróf í 4. og 7. bekk 1999
Samræmdar einkunnir á kvarðanum 1-10
‘v Umdæmi 4.bekkur 7. bekkur
Stærðfræði íslenska Stærðfræði íslenska
Fjöldi M Fjöldi M Fjöldi M Fjöldi M
Reykjavík 1.545 6,5 1.531 6,5 1.332 7,3 1.318 6,9
Nágr. Reykjav. 1.089 6,9 1.081 6,7 950 7,3 940 6,8
Suðurnes 237 6,8 236 6,2 285 7,2 284 6,4
Vesturland 255 6,6 250 6,4 218 7,1 219 6,5
Vestfirðir 140 6,4 140 6,4 126 6,8 123 6,4
Norðurl. vestra 159 6,6 156 6,6 145 7,1 144 6,5
Norðurl. eystra 505 6,8 500 6,7 400 6,9 403 6,7
Austurland 185 6,7 184 6,7 173 7,1 172 6,7
Suðurland 357 6,3 354 6,4 344 6,7 345 6,5
Landið allt 4.472 6,7 4.432 6,5 3.973 7,1 3.948 6,7
VETUR konungur gerir vart við sig
þessa dagana og smáfuglarnir
kunna eflaust vel að meta korn í
gogginn.
Arekstur í
Húnaþingi
TVÆR bifreiðar lentu í árekstri við
Lækjarmót í Vestur-Húnavatns-
sýslu, um klukkan 19 í gærkvöld. Að
sögn lögreglunnar á Blönduósi urðu
ekki slys á fólki en bflarnir, jeppi og
fólksbfll, skemmdust mikið og voru
dregnir í burtu með dráttarbifreið.
Að sögn lögreglu var talsverð
hálka á veginum er slysið varð og olli
hún því að önnur bifreiðin rann yfir á
rangan vegarhelming með þeim af-
leiðingum að hún lenti á bifreið er ók
í gagnstæða átt.
Rfkisstjórnin fjallar um fjárlög og fjáraukalög
Aukin framlög
þarf til sjúkrahúsa
LJÓST er að töluvert meiri
framlög þarf til heilbrigðisstofn-
ana á fjáraukalögum og á fjárlög-
um næsta árs en þegar er gert
ráð fyrir, samkvæmt upplýsing-
um fjármálaráðherra, en ríkis-
stjórnin fjallaði um ríkisfjármálin
á fundum sínum á föstudag og
um helgina. I fjáraukalögum
vegna ársins í ár er gert ráð fyrir
þremur milljörðum króna í við-
bótarframlög vegna heilbrigðis-
og tryggingamála og þar af eru
um tveir milljarðar króna ætlaðir
vegna fjárþarfa sjúkrahúsanna.
Geir Haarde fjármálaráðherra
sagði í samtali við Morgunblaðið
að á fundunum hefði verið fjallað
um fjárlögin og fjáraukalögin.
Farið hefði verið yfir þessi mál í
heild sinni og þar inn í kæmi
fjárhagsstaða heilbrigðisstofnan-
anna. „Það er alveg ljóst að
þarna er veruleg fjárþörf og við
þurfum að reyna að leysa það
með einhverjum hætti,“ sagði
Geir.
Hann sagði að á þessu stigi
væri ekki hægt að segja hversu
mikil fjárþörf sjúkrahúsanna
væri til viðbótar við það sem þeg-
ar væri ætlað að verja til þeirra í
fjáraukalögum, en það væru um
það bil tveir milljarðar króna af
um þriggja milljarða króna við-
bótarfjárveitingu vegna heil-
brigðis- og tryggingamála.
„Það verður væntanlega ein-
hver töluverð aukning. Það er
ljóst af þessum athugunum okk-
ar,“ sagði fjármálaráðherra enn-
fremur. Hann sagði að bæði
þyrfti viðbótarfjárveitingu vegna
ársins í ár og eins vegna fjárlaga
næsta árs, hvort tveggja væri
samhangandi.
Aðspurður um vinnuna við
fjárlögin almennt sagði Geir að
hún væri í hefðbundnum farvegi.
Stefnt væri að því að hafa fjár-
lagaafganginn sem mestan, en á
þessu stigi væri ekki rétt að vera
með neinar heitstrengingar í
þeim efnum.
I Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Heimili
Með
Morgun-
blaðinu í
dag er
dreift blaði
frá Ágústi
Ármann
„Jól 1999“
www.mbl.is
Þormóður verður aðstoðar
maður Péturs hjá KR / C1
••••••••••••••••••••••••••••
Þórður valinn maður leiksins
gegn Anderlecht / C2
JHorjjunblníúti
mi \M\«;
I.ISTIH
Nóoiatot
BÆKUR
Bitist um
Bookerinn