Morgunblaðið - 30.11.1999, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999 5
Kári í jötunmóð
Valdablokkir riðlast
Óli Björn Kárason
Bók sem veitir innsýn í þá ótrúlegu umbyltingu atvinnu- og
viðskiptalífs sem orðið hefur á undanförnum árum. Gamlir
valdakjarnar hafa gliðnað og nýir menn, óháðir gamalgrónum
ættar- og stjórnmálatengslum, setja mikinn svip á viðskiptalífið.
Ritstjóri DV lýsir þessum straumhvörfum, sviptir
hulunni af átökum að tjaldabaki og bregður
kastljósinu á þá einstaklinga og fyrirtæki sem
koma við sögu.
Moskvulinan
Arnór Hannibalsson
Arnor Hanmbalsson, sem for ungur
til náms í Moskvu, segir hér frá
samskiptum íslenskra kommúnista
við móðurflokkinn í Sovétríkjunum.
Dregin eru fram i dagsljósið áður óbirt
skjöl úr skjalasöfnum í Moskvu, sem
sýna hvernig íslenskir kommúnistar
sóttu „línuna" þangað og fengu þaðan
fjárstuðning og fyrirmæli um, hvernig
haga bæri baráttunni á íslandi. Þá fjallar
Arnór ítarlega um samband Halldórs
Laxness við Sovétríkin og skrif hans (
þágu sósíalismans.
i «««r
esson
Fa»>e9U!u dófrisrt\,r
Guöni Th. Jóhannesson
Ant það
Kári Stefánsson kom eins og
stormsveipur inn (íslenskt þjóðlíf
árið 1996 með stórbrotin áform
sem áttu eftir að leiða til hatrammra
átaka. En vitum við alla söguna
um upphaf íslenskrar erfða-
greiningar? Hver er maðurinn
Kári Stefánsson? Hér er rakin saga
Kára og íslenskrar erfðagreiningar,
skrifuð á hlutlausan hátt af
vönduðum sagnfræðingi.
Bók aldarinnar
Gísli Marteinn Baldursson og Ólafur Teitur Guðnason
Á þriðja hundrað „topp 10“ lista um ísland 20. aldar. „Landslið"
sérfræðinga metur það sem hæst og lægst hefur borið á
öldinni. Allt sem máli skiptir síðustu hundrað ár í stórskemmtilegri
og fróðlegri samantekt.
„Frábær bók! Gísla Marteini og Ólafi Teiti hefur tekist að gera öllum
helstu atburðum 20. aldarinnar skil í mjög læsilegri og oft sprenghlægilegri
bók sem hentar bæði ungum og öldnum." Elín Hirst
Bækur fyrir breytt samfélag
NÝJA B Ö KAFÉLAGIÐ