Morgunblaðið - 30.11.1999, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
URVERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Fyiii heimilið, veitingahús, félagasamtök
og alla þá sem huga að veisluhöldum
Uthafskarfakvóti Islendinga skerðist um 24%
Hefur áhrif á rekstur
Auðvelt í uppsetningu, tekui lítið pláss
Stærð: Brotið saman:
76 x 1,82 6 cm
Skúlagata 26, 101 Reykjavík,
S. $n 8072, GSM. 861 5192, E-mail:,iasta@simnet.is
stærstu fyrirtækjanna
Frábært tilboð á
bílaleigubílum
innanlands og erlendis
Kr. 2.600 sólarhringurinn (Flokkur A)
AVIS tT 562 4433
myndum minnka aflann. Okkur
finnst afstaða þessara þjóða því
óábyrg."
Islendingar mótmæltu þessari
niðurstöðu NEAFC og eru því ekki
bundnir henni. Arni segir að nú muni
stjórnvöld skoða hvernig íslending-
ar geti hagað sínum veiðum á Reykj-
aneshrygg. „Við munum skoða hvað
hægt er að gera til að ná þeim
markmiðum sem við stefndum að í
samningagerðinni og fara að mestu
leyti saman við niðurstöður og tillög-
ur vísindamanna," segir Arni.
-------♦ ♦ ♦-----
Kropp í
síldinni
„ÞAD hefur verið ágætis kropp í
sfldinni og nánast full vinnsla hjá
okkur,“ segir Freysteinn Bjamason,
útgerðarstjóri Sfldarvinnslunnar í
Neskaupstað. „Reyndar kom bræla
um helgina og því er þetta eitthvað
daufara núna en við höfum tekið á
móti 13 til 14.000 tonnum af sfld í
vinnslu á vertíðinni sem er meira en
við tókum á móti til jóla í fyrra.“
Beitir NK landaði um 560 tonnum
af sfld fyrir helgi og segir Freysteinn
að hann og fleiri bátar hafi haldið
vinnslunni nánast á fullu á vertíðinni.
„Það var ágætis sfldveiði í nót í haust
og svo eru Beitir og fleiri með nýja
þantrollið frá Hampiðjunni, sem er
léttara í drætti og því geta menn ver-
ið með stærri troll en áður.“
Sigurjón Valdimarsson, skipstjóri
á Beiti, segir að ekkert sé að hafa í
Héraðsflóadýpi þessa dagana en þar
væri aftur spáð brælu. „Við höfinn
ekkert séð síðan við komum út á
laugardag," segir hann. „Við lentum
í ágætistorfu fyrir helgi og fengum
þá um 560 tonn af ágætri sfld í þrem-
ur holum en höfum ekki fundið hana
aftur.“
I gær hafði samtals verið tilkynnt
um móttöku á liðlega 46 þúsund
tonnum af sfld á vertíðinni og því um
55 þúsund tonn eftir af kvótanum.
Tæplega fjögur þúsund tonn hafa
farið í frystingu, um 13.000 í söltun
og afgangurinn í bræðslu eða um
30.000 tonn.
Mikið af smásfld
Hafrannsóknaskipið Arni Frið-
riksson var í loðnuleit undan Norð-
urlandi þar til sl. fimmtudag þegar
skipt var yfir í leit að smásfld. Byrjað
var í Húnaflóa en skipið var á Skjálf-
anda í gær á leið austur fyrir. „Þegar
þessu lýkur förum við í stóru sfldina,
byrjum væntanlega hérna fyrir aust-
an og förum suður fyrir á vestur-
svæðið,“ segir Sveinn Sveinbjörns-
sonleiðangursstjóri. „Okkur sýnist
að það sé töluvert af smásfld hérna,
10 til 11 sentímetra árs gamalli síld,
sem eru góðar upplýsingar."
-------♦♦ ♦------
Mun minni
hrefnukvóti
NORSKA sjávarútvegsráðuneytið
hefur ákveðið að hrefnukvóti næsta
árs verði 655 dýr, en það er um 100
hvölum færra en á þessu ári. Ákvörð-
unin er tekin í samræmi við nýting-
aráætlun þá, sem vísindanefnd Al-
þjóða hvalveiðiráðsins, hefur mótað.
Hrefnustofninn í norðaustanverðu
Atlantshafi er nú talinn um 112.000
dýr og 72.000 dýr á miðju hafinu.
Þrátt fyrir það er kvótinn ákveðinn
minni en á þessu ári. Skýringin er að
reiknilíkanið fyrir kvótann hefur
verið bætt í kjölfar upplýsinga frá
Noregi og endurskoðunar á stofn-
stærð við Jan Mayen.
I^ÍSLlfÓNSSON e/if
Bíldshöfða 14 Sími: 587 6644
TEKJUTAP kvótahæstu útgerðar-
fyrirtækjanna vegna fyrirhugaðs
niðurskurðar á úthafskarfakvóta á
Reykjaneshrygg nemur hundruðum
milljónum ki’óna. Islendingar eru
ekki bundnir af skiptingu kvótans og
segir sjávarútvegsráðherra að
stjórnvöld muni nú skoða hvernig Is-
lendingar geti best stjómað sínum
veiðum sjálfir.
N orðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndin (NEAFC) ákvað í síðustu
viku að skerða karfakvóta á Reykj-
aneshrygg á næsta ári úr 153 þúsund
tonnum í 120 þúsund tonn. íslend-
ingum eru þar af ætluð 34.159 tonn
sem er um 24% skerðing frá kvóta
yfirstandandi árs en hlutur Islend-
inga var 45.000 tonn á þessu ári. ís-
lendingar mótmæltu hins vegar nið-
urstöðu NEAFC og eru því ekki
bundnir af henni. Þannig hafa Rúss-
ar til dæmis verið óbundnir skipt-
ingu karfakvóta á Reykjaneshrygg
undanfarin ár en þeir hafa hins veg-
ar ekki veitt fram yfir það sem þeim
hefur verið ætlað.
150 milljón króna tekjutap
fyrir Granda hf.
Tiltölulega fá sjávarútvegsfyrir-
tæki hérlendis ráða yfir nærri helm-
ingi þess kvóta sem Islendingum var
úthlutað á þessu ári. Skerðing á
kvótanum mun því að öllum líkindum
hafa umtalsverð áhrif á rekstur
þessra fyrirtækja. Grandi hf. í
Reykjavík er með mestan karfa-
kvóta ísle'nskra útgerða á Reykja-
neshrygg, eða um 8.897 tonn eða
nærri 20% af kvóta íslendinga. Mið-
að við hlutfallslega skerðingu á
heildarkvóta Islendinga samkvæmt
samþykkt NEAFC yrði kvóti
Granda hf. því um 6.762 tonn á næsta
ári. Niðurskurðurinn gæti þýtt
nærri 150 milljón króna minni tekjur
fyrir Granda á næsta ári.
Samherji hf. á Akureyri er með
næstmestan kvóta íslenskra útgerða
á Reykjaneshrygg eða um 6.800 tonn
á þessu ári, HB hf. á Akranesi er
með um 4.000 tonn, Fiskiðja Skag-
firðings hf. á Sauðárkróki um 3.700
tonn. Stálskip hf. í Hafnarfirði um
3.500 tonn og Þormóður rammi-
Sæberg hf. á Siglufirði um 3.400
tonn. Samtals eru því 6 stærstu út-
gerðarfélögin með um 23.500 tonna
kvóta á þessu ári og má áætla verð-
mæti hans um 1,6 milljarða króna.
Miðað við áætlaðan niðurskurð á
úthafskarfakvótanum yrði kvóti
þessara fyrirtækja tæp 18.000 tonn á
næsta ári. Ætla má að verðmæti
þess afla skerðist um 389 milljónir
króna og verði um 1,2 milljarðar
króna á næsta ári.
Þeir talsmenn þessara fyrirtækja
sem Morgunblaðið ræddi við lögðu
flestir áherslu á að íslendingar væru
óbundnir ákvörðun NEAFC og það
væri stjórnvalda að taka ákvörðun
um framhald málsins. Bentu þeir á
að ákvörðun NEAFC væri byggð á
veikum forsendum vegna þess hve
stofnmæling á karfastofninum tókst
illa. Hins vegar væri mikilvægt fyrir
Islendinga að sýna ábyrgð og sögð-
ust þeir mundu hlíta niðurstöðu
stjórnvalda.
Óábyrg niðurstaða
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segist ósáttur við niður-
stöðu NEAFC, enda gangi hún þvert
gegn niðurstöðum og ráðleggingum
vísindamanna. „NEAFC vill ekki
stjóma veiðunum eins og um tvo
stofna sé að ræða og ná þannig
markvissari stjórn á veiðunum og ná
þannig að vernda neðri karfastofn-
inn en sókn í hann hefur aukist mjög
á undanförnum ámm. Það er
óábyrgt að okkar mati að verið sé að
veiða úr neðri stofninum en mæla
efri stofninn og það gengur ekki til
lengdar."
Árni bendir á að ákvörðun
NEAFC um 120 þúsund tonna kvóta
á næsta ári sé ívið meira en aflinn
varð á síðasta ári og talsvert meira
en stefnir í að veiðin verði á þessu
ári. „Það er þannig ekki mikil vernd-
un í þessari lækkun. Við eram nán-
ast eina þjóðin sem hefrn- veitt sinn
kvóta og ef við færam eftir þessari
niðurstöðu værum við þeir einu sem
Ný grind - ZX. Meiri stöðugleiki. Ný vél.
Meira afl. Betri fjöðrun. Minni þyngd.
Betri Ijósabúnaður. Meiri sparneytni.
Minni hávaði.
Svo þú getir
sleppt þér iau