Morgunblaðið - 30.11.1999, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
HARALDUR BRAGI
BÖÐVARSSON
+ Haraldur Bragi
Böðvarsson
fæddist í Hafnarfírði
4. júlí 1960. Hann
lést á Landspítalan-
um 21. nóvember síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Böðvar
Bragason, lögreglu-
stjóri í Reykjavík, f.
4.10. 1938, og Gígja
Björk Haraldsdóttir,
húsfreyja og banka-
starfsmaður í
Reykjavík, f. 13.1.
1938. Systir Har-
aldar er Ragnheiður
Ólöf,f. 25.11.1972.
titför Haraldar fer fram
frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Þegar ég sest niður til að setja
niður örfá orð um hann Halla vin
minn, nú þegar hann er lagður af
stað í síðustu ferðina sína, eru svo
ótalmargar góðar stundir sem rifj-
ast upp. Það er ekki ætlunin með
þessum skrifum að rifja þær upp
hér, þetta eru fjársjóðir sem ekki
j.verða bornir á borð fyrir alþjóð. Mig
f langar bara með nokkrum fátækleg-
um orðum að reyna að koma því til
skila að hann Halli vinur minn var
alveg einstaklega góður maður.
Það er ein af gæfum mínum í líf-
inu að hafa fengið að kynnast Har-
aldi Braga Böðvarssyni og notið
okkar einlæga vináttusambands
sem hófst fljótlega eftir að við
kynntumst fyrir um sjö árum síðan.
Halli var afskaplega blíður og til-
finninganæmur, en oft var þetta hul-
ið undir hrjúfri skel sem hann brynj-
aði sig með. Það voru aðeins hans
nánustu ættingjar og vinir sem
fengu að kynnast og njóta hans eins
og hann var undir hrjúfri skelinni.
Haraldur var búinn að vera
heilsulítill um nokkurt skeið og var
að jafna sig eftir sjúkrahúslegu í
sumar þegar heilsan gaf sig. Ekki
óraði mig fyrir því að ég væri að
njóta síðustu samverustundanna
með honum þá viku sem hann var
hjá mér í Þýskalandi áður en hann
varð skyndilega veikur örfáum dög-
um eftir heimkomu. Eins og alltaf
spjölluðum við mikið saman og hann
var fullur bjartsýni á framtíðina,
búinn að taka upp heilsusamlegra
líferni, sáttur við sjálfan sig og til-
veruna og fullur af ferskum hug-
* mvndum og framtíðaráformum.
Halli var alltaf boðinn og búinn að
aðstoða vini sína og hann var ófeim-
inn við að sýna væntumþykju þeim
sem voru honum kærir, hann var
vinur sem var gott að leita til. Hann
var vinur sem gott var að njóta
þagnarinnar með, hann var líka vin-
ur sem gerði góða stund betri og var
oft hrókur alls fagnaðar. Maður kom
ekki að tómum kofanum hjá honum
heldur, stálminnugur og vel lesinn.
Það var sama hvort fréttirnar voru
innlendar eða erlendar, Haraldur
fylgdist með öllu. Hann var líka einn
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
af þeim sem komst vel
að orði, gæddur sér-
stakri kímnigáfu og
ekki stóð á að koma
með hnyttin svör.
Hann hafði oft sín eigin
nöfn og tilvitnanir um
menn og málefni og
sagði frá á lifandi og
skemmtilegan hátt.
Börnin mín og nánustu
vinir voru líka svo
gæfusöm að kynnast
Haraldi vel og það var
samnefnari með öllum
sem raunverulega
kynntust honum,
hversu fjarskalega þeim þótti vænt
um þennan öðling. Honum sárnaði
mikið hversu miskunnarlaust hann
var dæmdur af fólki sem ekkert
þekkti til af eigin raun og var bæði
leiður og sár þegar hann ræddi við
mig þær persónulegu árásir og ása-
kanir sem hann mátti þola. Guð gefi
að þær raddir séu nú þagnaðar og að
fjölskyldunni og minningu þessa
unga manns sem nú hefur verið tek-
inn frá okkur sé virðing sýnd.
Þeir sem þekktu Harald og fengu
að njóta hans einstaka persónuleika
og miklu vináttu og hlýju eru ríkir á
eftir, hans er sárt saknað og minn-
ingin um þennan ljúfa og góða vin
mun lifa að eilífu. Fjölskyldunni,
ættingjum og vinum hans votta ég
mína innilegustu samúð.
Þakka þér allar góðu stundirnar,
traust þitt, einlægni og hlýju, elsku
Halli. Eg veit þú lifir í ljósinu.
Fanney Gisladóttir.
María sveipar mild og fól
í mýksta skýjalín
drenginn sinn en döggin svöl
dreyrg í grænum stakki skín
og rósum fríöum
roðna þyrnar um hljóða nótt.
Sól er á hlíðum
sofðu rótt.
Bamsins blundi þýðum
bregða mun fyrr en varir skjótt,
heims af harmi stríðum
hjartað gerist þungt og mótt.
Sólerafhlíðum
sofðu rótt.
(ÞorsteinnVald.)
Ég mun alltaf varðveita góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Guð geymi þig.
Elsku Gígja, Böðvar og Ragn-
heiður, megi kærleikur Guðs gefa
ykkur styrk og okkur öllum sem
syrgjum góðan dreng.
Guðmunda Hrönn.
Fréttir af fráfalli vinar míns Har-
alds Braga Böðvarssonar voru mér
þungbærar. Ég kynntist Halla í Há-
skóla íslands 1981, þegar ég var að
byrja á viðskiptafræðinni en Halli
byrjaði þar áður en hann fór að
nema lögfræði. Tókust með okkur
góð vináttubönd sem héldust. Halli
var vinur vina sinna og alltaf var
hann fús til að hjálpa og gefa góð
ráð. Eins og Kahlil Gibran í Spá-
manninum segir „að gefa af eignum
sínum er lítil gjöf. Hin sanna gjöf er
að gefa af sjálfum sér“.
Halli var tilfinningamaður, gædd-
ur góðum mannkostum, kímni og
prúðmennsku. Alltaf var gaman að
hitta hann því Halli var léttur í lund
og alltaf stutt í brosið. Hann var
skarpgreindur og þótti mér miður
að hann skyldi ekki hafa sinnt lög-
fræðinni að fullu. Halli hafði gaman
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
af tæknimálum og tileinkaði sér allt-
af nýjustu tækni í fjarskiptageiran-
um. A ferðalagi erlendis í fyrra með
Halla komst ég að því hversu vel
upplýstur hann var varðandi tækni-
mál og hvað hann hafði brennandi
áhuga á nýjustu tækjum í þeim
geira. Halli stofnaði fyrirtækið Lög-
afl og vann hann að lögfræðistörfum
um árabil. Hann var klár og beinsk-
eyttur lögfræðingur og var gott að
hafa hann sér við hlið í flóknum
samningagerðum. Hæfileikar hans
komu þar best í ljós.
Síðustu árin rak Halli meðal ann-
ars listdanshúsið Vegas sem reynd-
ist honum þungur baggi. Sá ég mikl-
ar breytingar á Halla síðustu þrjú
árin vegna mikils umtals og ágangs
fjölmiðla. Kahlil Gibran í Spámann-
inum segh': „Þið eruð vegurinn og
vegfarendur og þegar einhver ykkar
fellur, þá fellur hann fyrir þá, sem á
eftir ganga, og varar við steininum í
götunni. Já, og hann fellur vegna
þeiiTa, sem á undan gengu og
fótvissari voru, en ruddu ekki stein-
inum úr vegi. Þið getið ekki greint
hinn réttláta frá hinum rangláta og
hinn góða frá illvirkjanum, því að
þeir standa saman hlið við hlið fyrir
augliti himinsins, samofnir eins og
hvítir og svartir þræðir. Og þegar
hinn svarti þráður slitnar, verður
vefarinn að bæta allt klæðið og vef-
stólinn."
Því miður var Halli verstur sjálf-
um sér og eins og hann sagði oft: „Ö1
er böl.“ Sárt mun ég sakna góðs vin-
ar og sendi ég fjölskyldu hans alla
mína samúð og hlýhug. Guð gefi
þeim stjrk í sorg sinni.^
Bárður Jdsef Agústsson.
Ég vil trúa því að þeir sem deyja
séu ekki horfnir. Þeir eru aðeins
komnir á undan. Jafnframt vil ég
trúa því að skilnaðarstundin sé dag-
ur samfunda í himnasal. Haustið
kom fljótt í lífi vinar míns hans
Haraldar B. Böðvarssonar eða Halla
eins og ég kallaði hann jafnan. Það
er sagt að dauðann skiljum við þá
fyrst er hann leggur hönd sína á ein-
hvern sem við unnum.
Mig setti hljóðan er ég frétti það
að Halli lægi alvarlega veikur á gjör-
gæslu Landspítalans. í kjölfarið
fylgdi andlátsfregn.
Tilviljanir í lífinu eru oft skrýtnar.
Ég kynntist Halla fyrir u.þ.b. 20 ár-
um. Það var að vorlagi að ég var á
leiðinni heim í strætisvagni. Vék þar
að mér ungur maður í lögreglubún-
ingi. Hann þóttist þekkja mig úr fé-
lagslífinu úr Verzlunarskóla Is-
lands. Hann fór að ræða við mig um
heima og geima. Eftir stutta stund
fannst mér eins og ég hefði þekkt
hann alla ævi. í beinu framhaldi
bauð ég honum heim til mín í kaffi
og héldum við samtalinu áfram.
Hann hafði þá nýlega lokið
stúdentsprófi og var kominn í starf
sem afleysingamaður í lögreglunni í
Kópavogi, frekar en í Hafnarfirði.
Hann hlakkaði til sumarsins og
þeirra ævintýra sem hans biðu.
Síðar vann ég við afleysingastörf í
lögreglunni í Reykjavík en Halli á
Seltjarnarnesinu. Um tíma vorum
við samferða í lagadeildinni í Há-
skólanum og héldum góðum tengsl-
um á þeim tíma og í framhaldi. Með-
an Halli var í sambúð og bjó í
Hlíðunum héldum við reglulega til
skiptis matarboð með öðrum hjón-
um. Dýrindis krásir og framandi
réttir voru á boðstólum. Við slík
tækifæri naut Halli sín og var höfð-
ingi heim að sækja. Við hjónin eig-
um góðar minningar með Halla frá
þessum tíma. Hin síðari ár skildi
leiðir okkar í önnum hversdagslífins.
Við fylgclumst þó alltaf hvor með
öðrum. Á aðfangadag jóla í gegnum
árin hringdi Halli ávallt i mig og
óskaði mér og fjölskyldu minni
gleðilegra jóla, árs og friðar. Honum
þótti þessi leið miklu persónulegri
heldur en að senda jólakort. Hann
fyrirgaf mér þó að ég notaði þessa
aðferð. Ég mun sakna þess að heyra
ekki í vini mínum þessi jól og fram-
vegis.
Halli var áhugasamur um velferð
og einkahagi vina sinna og þeim góð-
ur. Hann var glaðvær og einlægur.
Honum lá hátt rómur, það var eftir
honum tekið þar sem hann var í
hópi. Nú þegar hann er allur, sakna
ég hláturs hans og kveð góðan dreng
með söknuði og þakklæti fyrir sam-
fylgdina.
Sorgin er mikil og sendir fjöl-
skylda mín foreldum hans, systur og
öðrum aðstandendum dýpstu sam-
úðarkveðju. Mannsandinn líður ekki
undir lok, minning um góðan dreng
lifir í hjarta og minni. Líkt og sólin
sem virðist ganga undir, en alltaf
heldur áfram að lýsa.
Sveinn Guðmundsson.
Látinn er langt um aldur fram
Haraldur Bragi Böðvarsson lög-
fræðingur vinur minn. Andlát hans
bar brátt að og eftir standa vinir
hans höggdofa.
Haraldur heitinn var dagfars-
prúður maður og kom vel fyrir.
Hann var léttur í lund, skemmtileg-
ur og var ávallt vinum sínum til stað-
ar. Sagt er að það sé hvers manns
gæfa að eiga góða vini og Haraldur
var sannarlega vinur vina sinna.
Hans verður sárlega saknað. Halli
minn, þetta var svo óraunverulegt
þegar ég frétti af veikindum þínum,
aldrei hefði ég trúað því að ég ætti
eftir að kveðja þig núna. í tæpan
áratug hefur vinskapur okkar dafn-
að og aukist sem mest má vera.
Maður sem aldrei skipti skapi, alltaf
með bros á vör og eins og ég sagði
oftast: Halli, þú ert síðasti herra-
maðurinn. Ég veit að þú ert í góðum
félagsskap hjá afa þínum sem þér
þótti svo vænt um.
Eftir sitjum við sem þekktum þig
svo vel og söknum þín. Hver er sinn-
ar gæfu smiður og það vissir þú vel.
Það var sannarlega mín gæfa að
hafa getað brallað með þér og átt
þessar samverustundir sem ég mun
geyma hjá mér þar til við hittumst
síðar.
Bresta vonir, blika tár á hvörmum,
blæða undir, gleðin flúin er;
Drottinn veit þú styrk í hörðum hörmum,
helju lostinn vinur burtu þá fer.
Aðeins getur grætt hin djúpu sárin
geisli vonar, trú á Jesúm Krist.
Hann vill þerra þungu sorgartárin
þeirra, er hafa vini sína misst.
(Guðrún Guðm.)
Ég óska þér, Haraldur, góðrar
vegferðar yfir í veiðilöndin eilífu
þangað sem leið allra liggur að lok-
um. Foreldrum þínum og systur
sendi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning Har-
aldar Braga Böðvarssonar.
Þorvaldur Örn Kristmundsson.
Lífið virðist stundum ótrúlega
stutt. Halli vinur minn er dáinn,
langt um aldur fram. Það er hræði-
lega erfitt að trúa því að hér eftir
eigi maður aðeins eftir að eiga hann
að í minningunni. Hugsanirnar
hrannast upp. Samverustundirnar
voru margar hjá okkur vinunum. Oft
var glatt á hjalla bæði heima og er-
lendis. Margt var brallað heima í
Laugarásnum og á þínum heimavelli
í Vesturbænum. Þú skipar ríkan
sess í lífi okkar hjóna og oft komst
þú skemmtilega á óvart. Seint
gleymum við heimsóknum þínum til
okkar í Englandi. Hvar og hvenær
sem við hittumst í seinni tíð urðu
ávallt fagnaðarfundir. Við vorum
vinir fyrir lífstíð.
Elsku vinur, hvíl í friði. Bestu
þakkir fyrir allt og allt. Gígja, Böð-
var, Ragnheiður og amma Heiða,
megi guð vera með ykkur og veita
ykkur styrk í þessari miklu sorg.
Friðrik Armann Guðmundsson.
Kveðja frá útskriftarárgangi
úr lagadeild HÍ1989
Með fáeinum orðum viljum við
sem útskrifuðumst úr lagadeild Há-
skóla íslands vorið 1989 kveðja
skólafélaga okkar, Harald Böðvars-
son, sem látinn er langt fyrir aldur
fram.
Nú eru liðin rúm tíu ár frá því við
útskrifuðumst saman úr Háskóla Is-
lands. Fyrstu árin eftir útskrift var
nokkuð nánu sambandi haldið innan
hópsins, en eins og gengur leiðir
amstur dagsins til þess að samveru-
stundum fækkar. Yfirleitt er það þó
svo að skólafélagar eru hverjum
manni minnisstæðir og þessi gömlu
tengsl rofna seint enda þótt pers-
ónulegu sambandi sé ekki lengur
fyrir að fara. Því var það okkur í
þessum hópi áfall að frétta af andláti
Haraldar.
Haraldur var yfirleitt glaðlyndur
og eftir honum var tekið. Minnis-
stætt er að Haraldur virtist hafa
mörg járn í eldinum strax á skólaár-
unum. Skemmtiferð erlendis við
námslok nýtti hann t.a.m. jafnframt
sem viðskiptaferð. Á meðan lunginn
úr hópnum eyddi degi í Lundúnum
þrammandi Oxfordstrætið sást á
eftir Haraldi á fund einhvers staðar
í borginni. Nú þegar þú átt fund við
almættið kveðjum við þig, Haraldur,
og þökkum þér eftirminnileg kynni.
Jafnframt biðjum við góðan guð að
veita fjölskyldu þinni styrk á þess-
um erfiðu tímum.
Jæja, Halli minn, kæri vinur, svo
þú ert búinn að kveðja. Ég sit hérna
og rita þessar línur eins og ég væri
að skrifa þér sendibréf. Þetta er allt
svo ótrúlegt, að þú, þessi hressi og
skemmtilegi strákur, svo uppfullur
af lífsorku og krafti, já hreint út sagt
svo ólgandi af lífsfjöri, skulir vera
farinn frá okkur, er nokkuð sem ég
get varla skilið. Það er svo margt
sem ég átti ósagt við þig, svo margt
sem ég vildi að við hefðum getað
unnið að saman, á þessari dularfullu
ferð okkar allra.
Ég man eins og það hefði gerst í
gær þegar ég kom fyrst í lagadeild-
ina, hvernig þú eins og tókst mig að
þér, öldunginn í deildinni, og brúaðir
svokallað kynslóðabil á augabragði,
þannig að mér, sem var uppfullur af
stressi, leið vel og fannst ég strax til-
heyra þessum hópi af ungu fólki,
sem var þarna við nám. Mér varð
fljótt ljóst að þú skarst þig nokkuð
úr þessum ágæta hópi að því leyti að
þú varst eins og þroskaðri en hinir
miðað við aldur, og sannarlega gerð-
ir þú mér dvölina þarna alla bæri-
legii og skemmtilegri en ég nokkru
sinni átti von á. Þetta vil ég að þú og
vinir okkar viti.
Eftir námið hittumst við margoft
og við hjónin kunnum þér einkar
góðar þakkir fyrir margvíslega
greiða sem þú gerðir okkur og aldrei
stóð annað til en að gott framhald
yrði á okkar kynnum.
Kæri Halli minn, einn sá lífsglað-
asti piltur sem ég hef nokkru sinni á
ævinni kynnst, ég vil fyrir hönd okk-
ar hjóna færa þér innilegar þakkir
fyrir vináttu þína í okkar garð, og
við biðjum þess að þú fáir góða veg-
ferð í þeim heimkynnum sem nú
verða þín (ég vona bara að þeir séu
hressir þarna, sem þú nú heiðrar
með nærveru þinni!).
Ég bið svo að heilsa þér, vinur
minn, og vona bara að þú takir vel á
móti okkur þegar við komum yfir.
Foreldrum þínum og systur og
vinum öllum sendum við samúðar-
kveðjur.
Kjartan og Hrafnhildur.
Elsku vinur okkar, Haraldur. Við
vitum að þú ert búinn að yfirgefa
okkar jarðneska líf, en þú lifir áfram
í huga okkar og við minnumst þín
alltaf sem káts og glaðs vinar, segj-
andi skemmtilegar sögur.
En okkur langar að þakka þér
fyrir allar þær ánægjustundir sem
við áttum með þér bæði hér heima
hjá okkur og ekki síst á Grandanum.
Jóla- og páskaboðin hennar Fann-
eyjar verða ekki sömu og áður án
þín.
Sonur okkar sem gengur ekki
heill til skógar kynntist þínum innra
manni mjög vel og reyndist þú hon-
um sem kær vinur frá fyrstu kynn-
um og á hann nú um sárt að binda
eins og fleiri að hafa misst góðan vin
og annar sonur okkar sem er meist-
ari í sinni íþróttagrein hefur nú
misst einn sinn besta stuðningsaðila.
Við þökkum þér, Halli minn, fyrir
að hafa fengið að kynnast þér og fyr-
ir allt það sem þú hefur miðlað okk-
ur af reynslu þinni gegnum lífið. Við
munum sakna þín og minnast í
skötuveislunni og í jólaboðinu.
Við vottum foreldrum þínum,
systur og þinni bestu vinkonu,
Fanneyju, okkar dýpstu samúð.
Guð geymi þig, elsku vinur.
Olga, Jóhann og synir.