Morgunblaðið - 30.11.1999, Síða 47
r
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________ÞRIBJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999 47
MINNINGAR
+ Kristinn Reyr
rithöfundur, tón-
skáld og listmálari
fæddist í Grindavík
30. desember 1914
og ólst þar upp og í
Keflavík. Hann lést
9. ágúst síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Fossvogs-
kirkju 17. ágúst.
Fyrstu kynni mín af
Kristni Reyr voru
ópersónuleg, þau fólust
í kynnum mínum af
leikritum hans, ljóðun-
um og lögunum þjóðkunnu og vin-
sælu og sem sjómaður á yngri árum
hafði ég og hef enn og að vonum ætíð
gaman af „Sailorinn". Það mun vera
það ljóð og lag sem einna oftast hef-
ur verið flutt í útvarpi og ekki að
undra. Þar er ein þehTa mörgu hliða
á Kristni sem ég kynntist svo vel síð-
ar í fari hans við persónuleg kynni,
tóngáfan og gamansemin. Eg bið
lesandann að virða mér til vorkunnar
að ég birti þennan skemmtilega brag
í heild:
Þá var eg saiior á Sankti Kildu
og sigldi kúrsinn, ef ekki rak
og hærri öldur en Himal^ja
sér helltu útí manns koníak.
Þá var eg sailor á Sankti Kildu
og sagður glíminn og hnefafær,
víðkunnur sailor á sjó og landi,
charmör frá hvirfli og niður í tær.
Eg man á knæpu í Casablanca,
að kvinnur drukku mín töfraorð.
Og dansað gat eg og duflað meira
en dátar þoldu við næstu borð.
Þeir sóttu að mér frá aust og norðvest
og aust og suðvest með loppumar.
En kvinnum bauð eg að komast undan
til Kildu minnar og striplast þar.
Svo tók ég krusið. Og kreppti báða
og kýldi móðinn úr þeirra her
og komst að lokum í Kildugeimið
með knæpuskriflið á herðum mér.
II.
Þessi bragur ber vott miklu næmi
í fari manns sem aldrei stundaði sjó,
en var hinsvegar kominn af sjó-
mönnum í báðar ættir og sjómann-
ssonur og andrúm verstöðvarinnar
honum því í blóð borið. En Kristinn
átti fleiri strengi í hörpu sinni, miklu
fleiri, óskoraða samúð með lítil-
magnanum og djúpa alvöru. Afi hans
í föðurætt átti fimm syni og þrír
þeirra drukknuðu í róðri á sama
degi. Um þann atburð orti Kristinn
ljóðið „Þann apríldag":
Útvarhorft
oguppisegl
undan Gerðistöngum
himinninn var kólgugrár
hugsa eg til þess löngum.
Útvarhorft
ogekkertsegl
undan Gerðistöngum
himinninn var sagnafár
hugsa eg til þess löngum.
Ogenginnsá
hvaðafamínum
innifyrirbjó
þann apríldag
eráttihann
synitvoálandi
ogsyniþrjá
ísjó.
bók Halldórs, Barn
náttúrunnar, og mælt-
ist svo: Þú sagðir ein-
hverntíma Halldór að
við byrjuðum allir sem
leirskáld, og vil ég nú
biðja þig að árita þessa
fyrstu bók þína. Hall-
dór kunni að taka
gamninu og brá hand-
fljótur penna sínum:
Asko, þú hefur lög að
mæla og njóttu heill.
IV.
Sigfús Halldórsson,
tónskáld og málari, hélt
einu sinni sýningu í Keflavík í hús-
næði bókabúðar Kristins Reyrs, sem
Sigfús kvað þá réttilega hafa verið
prímus mótor í menningarlífi staðar-
ins. Og ég opnaði sýninguna með
pomp og prakt og gaf meira að segja
kokkteil, sagði Sigfús og hélt áfram:
En enginn gaf mér neitt. Gestirnir
héldu hver um sig að búið væri að
hlaða mig heimboðum langt umfram
magafylli. Ég ráfaði því um plássið
einn og yfirgefinn með afganginn af
kokkteilnum uns mér hugkvæmdist
að kveðja dyra á heimili Kristins
fremur en að verða úti þarna suður
með sjó. Kristinn fékk hláturskast
við sögu mína um píslargönguna í
kulda og trekk og bauð mig og flösk-
una hjartanlega velkomin og við
settumst að kokkteilnum. Og ég held
að ég hafi aldrei kynnst skemmti-
legri manni, botnaði Sigfús sögu
sína. Ég get svo sannarlega tekið í
streng með Sigfúsi um stórskemmti-
legar orðræður við Kristin. Við
skiptumst á heimsóknum meðan
heilsa hans leyfði og tókum síðan
upp regluleg samskipti í síma og það
voru óralöng símtöl og andlegur
heilsubrunnur fyrir mig. Svo yfir-
máta orðsnjall var viðmælandinn.
V.
Kristinn var maður með eindæm-
um harður af sér; hann lét aldrei bil-
bug á sér finna þrátt fyrir langvar-
andi heilsubrest, og banabeður á
sjúki-ahúsi breytti þar engu um.
Ékkert var fjær skapgerð þessa
manns en hugarvíl. Þarna sem hann
lá og beið skapadóms síns sló hann
sem fyrr á létta strengi við mig.
Hjúkrunarkonurnar luku upp hurð-
inni til að kanna hverju sætti sam-
ræður á léttum nótum í sjúkrastofu
dauðveiks manns. Skömmu áður en
hann gaf upp andann vék talinu að
hugsanlegu framhaldslífi. Hann
spurði þá hvort ég þyrfti einhverja
sérlega fyrirgreiðslu hans þegar ég
kæmi á eftir honum á eilífðarströnd-
ina. Ég bað hann þá að hafa tiltækan
stóran kúst. Hann vildi þá vita hvað
ég ætlaði að gera við kústinn. Ég
kvaðst ætla að sópa með honum burt
Stofnað 1990
Útfararþjónustan ehf.
Aðstoðum við skrif minningarrgreina
Rúnar Geirmundsson. útfararstjóri
Sími 567 9110
KRISTINN
REYR
og niður sálartetrum óvina minna
þegar þeir skreiddust upþá skör
Paradísar. Kristni brást ekki boga-
listin, kímdi og spurði hvort ég þyrfti
þá ekki jarðýtu! Kristinn var einna
best máU farinn allra manna sem ég
hef kynnst um dagana. Rómurinn
mikill og skýr, enda afbragðs upp-
lesari. Eg sá hann einu sinni í hlut-
verki fundarstjóra á rithöfundaþingi
þegar heitt var í kolunum, og hef ég
hvorki fyrr né síðar orðið vitni að
glæsilegri né skilmerkilegri fundar-
stjóm og starfaði ég þó áratug á Al-
þingi. I þessu hlutverki sem öðrum
gerði hann ýtrustu kröfur til sín. Ög-
unin og vandvirknin að hverju sem
hann gekk var aðalsmerki hans. Út-
gefin verk hans em hátt í 30 talsins,
ljóð, leikrit, sönglög. Svanasöngur
hans kom út 1993, 17 Ijóðalög, geis-
ladiskur sem geislar af og inniheldur
mörg ljóða hans og lög við þau og lög
hans við ljóð margra góðskálda. Enn
eitt dæmi um fjölhæfni hans er ón-
efnt; hann málaði mikið sér til hugar-
hægðar.
Ráð Kristins, ef eftir var leitað,
vom rammlega ígrunduð og voru til
vitnis um hörkugreind hans; hann
skoðaði mál skipulega, frá öllum
hliðum, enda reyndust ráð hans jafn-
an hollráð og ekki spillti gamansamt
ívaf í bland.
Kristinn var meðalmaður á hæð,
fríður sýnum, manna best eygður, og
fyrirmannlegur í fasi, þannig að
minnti á rómverskan senator. En
bak við formfast forhliðið, þaðan sem
styrkur rómur barst, sló stórt hjarta.
Og er þá ónefndur einn þáttur í fari
hans, gjafmildin, og fara margar
sögur af þeim eiginleika meðal
barnabarna hans og var ekki ein-
skorðuð við fjölskyldubönd, ef því
var að skipta. Daginn áður en synir
mínir héldu utan til háskólanáms
boðsendi hann umslög til þeirra og
innihaldið var hjartahlýjar óskir um
fararheill og ríflegt skotsilfur. Við
fráfall Kristins Reyrs er á skömmum
tíma enn eitt stórt skarð höggvið í
þröngan vinahóp minn. Ég bið nú
vini mínum blessunar í æðri heimi
með þökk fyrir langar og ómetanleg-
ar samvistir hér á jörðu.
Jóhannes Helgi.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) —
Erfisdrykkjur
6UeHiA9ðhú/ið
GftPi-inn
Dalshraun 13
S. 555 4477 *555 4424
&
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
iniiimnnn
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
H
H
H
m.
Persónuleg kynni okkar Kristins
hófust fyrir rúmum aldarfjórðungi
þegar við vorum samherjar í átökum
út af félagsmálum rithöfunda.
Traustari og skemmtilegri samherja
hef ég aldrei kynnst. Ein saga tengd
þessum átökum, harðvítugri undir-
skriftasöfnun, er til marks um gama-
nsemi Kristins. Við knúðum þá án
þess að boða okkur dyra hjá Halldóri
og Auði á Gljúfrasteini og var boðið
til stofu og var engu líkara en að
Auður hefði sagnaranda um gesta-
komu, því að við vorum ekki fyrr
sestir í stofu en inn rann hjólaborð
með rausnarlegum veitingum, knúið
handafli húsfreyju. Þegar við að er-
indi loknu stóðum upp til að kveðja
dró Kristinn uppúr pússi sínu fyrstu
LEGSTEINAR
I rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða úr
íslenskum og erlendum steintegundum
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalist;
Íg S.HELGASON HF
ISTEIIMSMIÐ J A
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410
KRISTINN
DAVÍÐSSON
+ Kristinn Davíðs-
son fæddist í
Reykjavík 11. maí
1952. Hann lést í
Hafnarfirði 21. nó-
vember 1999. For-
eldrar hans eru Mar-
ía Guðmundsdóttir
og Davíð V. Erlends-
son. Kristinn var
elstur fjögurra
systkina. Systur
hans eru: Anna Guð-
rún, gift Gary And-
erson, Linda, gift
Randy Anderson, og
Lísa Björk, gift Giu-
seppe Franco Corsaro. Þau eru öll
búsett í Bandaríkjunum. Kristinn
var ókvæntur og barnlaus.
Útför Kristins fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku Kiddi minn. Mig langar að
minnast þín með fáeinum orðum. Ég
hugsa með hlýju til allra stundanna
sem við áttum saman sem börn. Þú
varst stóri bróðir minn sem alltaf
gættir mín og hélst yftr mér vernd-
arhendi. Við áttum svo margar
skemmtilegar stundir á Ásvallagöt-
unni. Við lékum saman í snjónum,
fórum oft saman á skauta á Tjörn-
inni og í danstímana hjá Hermanni
Ragnari. Stundum bauðst þú mér
upp því af einhverjum orsökum varst
þú alltaf að vernda mig. Þú varst svo
klár að dansa og endaðir venjulega í
sýningarflokki.
Árið 1967 lá svo leið okkar til
Bandaríkjanna en þangað fluttum
við með foreldrum okkar. í byrjun
vorum við ekki ánægð því við sökn-
uðum vina okkar á íslandi, en það
breyttist fljótt. Vlð áttum saman
margar góðar stundir
og eignuðumst marga
góða vini. Við gengum
saman í framhalds-
skóla en þangað fékk
ég oft far með þér á
mótorhjólinu þínu. Síð-
an útskrifaðist þú frá
Los Altos Highschool
árið 1970 með hæstu
einkunn og pabbi og
mamma voru mjög
hreykin af þér.
Við áttum svo samarf-
margar skemmtilegar
stundir á baðströndinni
á Huntington Beach.
Stuttu seinna skildu leiðir okkar
þegar þú fluttir aftur til Islands og
bjóst hjá afa og ömmu í Stóragerði
34. Mikið var tómlegt hjá okkur eftir
að þú fórst, Kiddi minn. Eitt er það
sem ég veit að þú varst góður maður
sem vildi öllum vel. Þú varst sérstak-
lega gjafmildur.
Þú varst alltaf svo góður við
Lindu, dóttur mína, þú komst ekki
svo í heimsókn að þú færðir henni
ekki eitthvað fallegt, enda þótti
henni einstaklega vænt um þig og
hún saknar þín mjög.
Eins vil ég þakka þér fyrir allar
Bubba Morthens-diskana sem þú
hefur sent mér til Bandaríkjanna. Þú
varst svo mikið fyrir tónlist og það
eru mörg lög á þeim sem minna mig
á þig. Mig langar til að segja fyrir
hönd pabba og mömmu, Lindu, dótt-
ur minnar, Lindu og Lísu, systra
þinna að við elskuðum þig. Við mun-
um alltaf sakna þín, en mest af öllu
vonum við að þér líði nú vel og þú
hafir fundið frið í hjarta þínu og sál.
Guð geymi þig alltaf, Kiddi minn.
Þín systir,
Anna Guðrún. ‘
+
Ástkær sonur okkar og bróðir,
HARALDUR BRAGI BÖÐVARSSON,
Reykjavíkurvegi 35,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum sunnudaginn
21. nóvember, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju í dag, þriðjudaginn 30. nóvem-
ber, kl. 15.00.
Gígja Haraldsdóttir,
Böðvar Bragason,
Ragnheiður Ólöf Böðvarsdóttir.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
HÁLFDAN VIBORG,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 25. nóvember.
Jóhanna Viborg, Höskuldur Frímannsson,
María Viborg, Ólafur Friðriksson
og barnabörn.
+
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS SIGURÐSSON
fyrrverandi leigubílstjóri,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 28. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Laufey Sigurðardóttir,
Elsa Jónasdóttir, Sigursteinn Kristinsson,
Gylfi Jónasson, Guðný Kristjánsdóttir,
barnabörn og bamabarnabörn.