Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR16. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Grunnskólanemar hafa ekki verið fleiri í mörg ár 83% grunnskóla á landinu eru einsetin NEMENDUR í grunnskólum á íslandi voru 43.030 haustið 1999 og hefur þeim fjölgað um 609, eða um 1,4% frá fyrra ári. Nemendur hafa ekki verið fleiri í grunnskólum landsins síðan á áttunda áratugn- um. Alls eru grunnskólarnir 192, þar af 6 sérskólar, og hefur skólun- um fækkað um fjóra frá haustinu 1998. Um 83% grunnskóla eru einsetn- ir og hefur hlutfall þeirra hækkað um fjögur prósentustig frá skólaár- inu 1998-9. Nemendum í grunnskólum á höf- uðborgarsvæðinu utan Reykjavík- ur hefur fjölgað mest frá fyrra ári, eða um 4,9%. Nemendum fjölgaði á Suðvesturhorninu, Suðurlandi og Vesturlandi en fækkaði í öðrum landshlutum. Mest er fækkunin á Austurlandi, 4,0%, og á Vestfjörð- um, 3,4%. Einsetnum skólum fjölgar Fjölmennasti grunnskóli lands- ins, eins og í fyrra, er Árbæjarskóli í Reykjavík, með 796 nemendur. Setbergsskóli í Hafnarfirði kemur rétt á eftir með 782 nemendur. Fjórir skólar til viðbótar hafa fleiri en 700 nemendur. Fámennasti grunnskóli landsins í ár, eins og undanfarin ár, er Grunnskólinn í Mjóafjarðarhreppi, með þrjá nem- endur. Fjórir aðrir almennir grunnskólar hafa færri en 10 nem- endur. Einsetnir grunnskólar voru 159 talsins haustið 1999 og hefur fjölg- að um fimm frá fyrra ári. Allir grunnskólar á Norðurlandi eystra voru einsetnir og yfir 90% grunn- skóla á Norðurlandi vestra og á Vestfjörðum. Rúmlega þrír af hverjum fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu eru einsetnir, en langlægst er hlutfallið á Suður- nesjum, þar sem einn af hverjum fjórum grunnskólum er einsetinn. Kennurum með kennsluréttindi fjölgar Starfsmenn við kennslu í grunn- skólum landsins voru tæplega 4.200 um miðjan október 1999 og hafði fjölgað um 151 (3,7%) frá sama tíma árið áður. Kennurum með kennsluréttindi hefur fjölgað frá fyrra ári en kennurum án kennsluréttinda fækkað lítillega. Kennurum með kennsluréttindi hefur fjölgað um 166 á milli ára, úr 3.336 í 3.502, eða um 5%. Alls hafa 83,5% starfsmanna við kennslu haustið 1999 kennsluréttindi. Þrátt fyrir fjölgun starfsfólks við kennslu fækkar réttindalausum kennurum h'tillega, eða um 15 á milli ára. Hlutfall kennara án kennslurétt- inda lækkar því um prósentustig á milli ára, úr 17,5% í 16,5%, en 694 réttindalausir kennarar voru við kennslu í október 1999. Yfir 93% starfsmanna við kennslu á höfuðborgarsvæðinu hafa kennsluréttindi og tæp 83% kennara á Suðurlandi. Hlutfalls- lega fæstir starfsmenn við kennslu hafa kennsluréttindi á Norðurlandi vestra, 59%, og tæp 61% kennara á Vestfjörðum. Kennurum með kennsluréttindi hefur fjölgað veru- lega á Vestfjörðum frá fyrra ári, en haustið 1998 hafði innan við helm- ingur (48,8%) kennara á Vestfjörð- um kennsluréttindi. Einnig hefur hlutfall kennara með kennslurétt- indi hækkað umtalsvert á Suður- landi og á Norðurlandi eystra. Haustið 1998 voru kennarar án kennsluréttinda 29,9% starfsmanna við kennslu í skólum utan höfuð- borgarsvæðisins, en 27,6% haustið 1999. Á sama tíma fjölgaði rétt- indalausum kennurum á höfuð- borgarsvæðinu um 0,2 prósentu- stig, úr 6,3% í 6,5% kennara. Rúmlega 73% starfsmanna við kennslu eru í fullu starfi og hefur þeim fjölgað um rúm 3 prósentu- stig frá fyrra ári. Morgunblaðið/Axel Sölvason Jöfn og spenn- andi keppni SJÖ LIÐ tóku þátt í keppni véla- og iðnaðarverkfræðinema um að leysa þá þraut að búa til tæki sem tók upp tennisbolta, og skaut honum í mark. Gefin voru þrjú stig ef tækið stoppaði á afmörk- uðum stað og boltinn hitti í mark en tvö stig ef tækið fór of langt en boltinn hitti í mark. Farnar voru tvær umferðir og í hvorri umferð átti að skora tvö mörk. Að sögn Magnúsar Þórs Jónsson- ar, prófessors og formanns véla- og iðnaðar verkfræðideildar, náðu fjögur lið öllum stigunum og réð tímamunur úrslitum. Sagði hann að keppnin hefði aldrei fyrr verið svona jöfn; sigurliðið leysti þrautina á 13,5 sekúndum en næsta lið á eftir var 14,6 sekúnd- ur. Lengst til vinstri á myndinni er Magnús Þór Jónsson prófessor, þá fulltrúar fyrirtækjanna sem veittu verðlaun, Sigbjörn Jónsson, frá Snertli (í ræðustól) og Hall- dóra Matthíasdóttir markaðs- fulltrúi Opinna kerfa og vinnings- liðið þeir Ástmundur Nielsson og Ármann Gylfason, úr véla- og iðn- aðarverkfræðiskori, og Jón Erl- mg Ericson, nemi í sjúkraþjálfun. í öðru sæti var Guðmundur Ólafs- son, úr véla- og iðnaðarverkfræð- iskor og fékk hann einnig verð- laun fyrir bestu hönnunina. Morgunblaðið/Jón Stefánsson Ekið á gangandi vegfaranda EKIÐ var á gangandi vegfaranda, morgun. Hann var fluttur á slysadeild sem stigið hafði út úr kyrrstæðri bif- með sjúkrabifreið en mun ekki hafa reið sinni við Norðlingabraut í gær- slasast mikið, að sögn lögreglunnar. Andlát STEINDÓR GUÐMUNDSSON STEINDÓR Guð- mundsson verkfræð- ingur, forstjóri Kefla- víkurverktaka hf. og fyrrverandi forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, varð bráð- kvaddur á heimili sínu í gær, 15. febrúar. Steindór fæddist í Reykjavík 8. júní 1947. Foreldrar hans voru Ingibjörg Jónasdóttir frá Brautarholti í Reykjavík og Guð- mundur Pétursson, símritari frá Eyrar- bakka, sem bæði eru látin. Steindór lauk prófi í byggingarverkfræði í Edinborg í Skotlandi árið 1970, starfaði fyrst sem eftirlitsverkfræð- ingur hjá Landsvirkjun við byggingu Sigölduvirkjunar, þá sem staðar- verkfræðingur Istaks hf. við bygg- ingu járnblendiverksmiðju á Grund- artanga, Vesturlandsvegar í Kjós o.fl., síðan staðarverkfræðingur E. Pihl & sön A.S. á Grænlandi við bygg- ingu sjúkrahúss á Grænlandi. Frá 1982 til 1992 var Steindór framkvæmdastj óri Verkfræðistofu Stanl- eys Pálssonar hf. og hafði jafnframt því yf- irumsjón með bygg- ingu fjölda mannvirkja, m.a. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Verzlun- arskóla íslands ásamt því að vera verkfræði- legur ráðgjafi Flug- leiða, Ratsjárstofnun- ar, Heklu hf. auk fjölmargra annarra fyrirtækja. Steindór var forstjóri Fram- kvæmdasýslu ríkisins frá því í 1992- 1999. Hann hóf störf sem forstjóri Keflavíkurverktaka haustið 1999. Steindór lætur eftir sig eiginkonu, Bjarndísi Harðardóttur, og þrjú börn, Evu Hrönn, Fríðu Dóru og Snorra Val. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Annarra leiða verði leitað til að mæta fjárhagsvandanum STJÓRN Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga hefur sent frá sér álykt- un vegna niðurskurðar á geðsviði Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þar segir: „Stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur hefur lagt til 100 milljóna la-óna nið- urskurð á geðsviði sjúkrahússins á árinu 2000. Stjórn sjúkrahússins velur að láta fjárhagsvanda þess koma niður á þessum hópi sem í inn- an við ársgamalli skýrslu faghóps um forgangsröðun í heilbrigðiskerf- inu var talinn til forgangshópa að heilbrigðisþjónustu. Samtímis því að stjórn sjúkra- hússins íhugar og velur þessa leið á sér stað átak á vegum Landlæknis- embættisins í þá veru að kynna geð- sjúkdóma og slá á fordóma gegn geðsjúkdómum. Stjórn Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga lýsir yf- ir undrun sinni á að stjórn sjúkra- hússins skuli velja þessa leið til að mæta fjárhagsvanda sjúkrahússins. Stjórn Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga beinir þeim tilmælum til stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur að stjórnin leiti annarra leiða til að mæta þeim fjárhagsvanda sem sjúkrahúsið glímir nú við. Stjórn félagsins vill jafnframt ítreka að í ályktun, sem stjórnin sendi frá sér 2. febrúar sl. í tilefni út- komu skýrslu um aðgengi að heil- brigðisþjónustu á Islandi, kemur fram sú stefna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að efla beri al- menna geðheilsuvernd á Islandi. Sérstaklega er talið mikilvægt að efla geðheilsuvernd á íslandi innan heilsugæslunnar. í ályktuninni stendur: „Ákveðnar lýðfræðilegar og þjóð- félagslegar staðreyndir gera það _að verkum að ungar fjölskyldur á ís- landi eru einkar útsettar fyrir sálfé- lagslegum vandamálum. Má þar nefna langan vinnudag, mörg börn í fjölskyldu (miðað við samanburðar- þjóðir), ónóg leikskóla- og dagvistar- rými (miðað við samanburðarþjóðir) og vöntun á einsetningu skóla. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lagt áherslu á þátt hjúkrunarfræð- inga í þessum þætti heilbrigðisþjón- ustunnar. I stefnu fagdeildar geð- hjúkrunarfræðinga kemur fram að breytt þjóðfélagsgerð kalli á nýjar leiðir til að tryggja og efla heilbrigði landsmanna. Orðrétt stendur: Með aukinni geðheilsugæslu má koma í veg fyrir fjölda andlegra og líkam- legra kvilla, svo og langvarandi van- líðan og örorku í kjölfar óhjákvæmi- legra boðafalla lífsins. Aukin geðheilsugæsla er þjóðhagslega hagkvæmur kostur og getur minnk- að samfélagslegan kostnað vegna orörku og óhamingju manna.““ Hæstiréttur íslands 80 ára HÆSTIRÉTTUR íslands er 80 ára í dag. Hæstiréttur var stofnaður með lögum nr. 22/1919 og tók til starfa 16. febrúar árið 1920. í ágripi af sögu Hæstaréttar, sem er að finna á heimasíðu réttarins, segir að aðdragandi að stofnun Hæstaréttar Islands hafi verið all- langur og mjög samofinn sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar á 19. öld. „Ein krafan var að sjálfsögðu sú, að æðsta dómsvald í íslenskum mál- um yrði flutt inn í landið. Kom þessi krafa um innlent æðsta dómsvald í íslenskum sérmálum fyrst fram á þjóðfundinum 1851. Állan síðari hluta 19. aldar var málinu hreyft aftur og aftur, en náði ekki fram að ganga. Með sambandslögunum frá 1918 fékk Island síðan viðurkenningu á fullveldi sínu og tók í sínar hendur bæði framkvæmdar- og löggjafar- valdið. I 10. gr. þeirra var ákveðið, að Hæstiréttur Danmerkur skyldi hafa á hendi æðsta dómsvald í ís- lenskum málum, þar til íslendingar kynnu sjálfir að stofna sinn eigin dómstól. íslendingar hófust þegar handa um að nýta sér þessa heimild í sam- bandslögunum. Var prófessor Ein- ari Arnórssyni falið að semja frumvarp til laga um Hæstarétt og var það lagt fyrir Alþingi árið 1919 og samþykkt þar að mestu óbreytt," segir í ágripi af sögu réttarins. Hæstiréttur Islands fer með æðsta dómsvald hér á landi. I upp- hafi skipuðu Hæstarétt dómstjóri og fjórir meðdómendur, sem skip- aðir voru af konungi á ábyrgð ráð- herra. Fjöldi dómara hefur verið breytilegur. Síðast var dómurum fjölgað við Hæstarétt árið 1994 og eru þeir nú níu. Hæstiréttur var fyrst til húsa í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg en frá 1949 í dómhúsinu við Lindargötu. Dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýju dóm- húsi Hæstaréttar við Arnarhól 15. júlí 1994 og var húsið tekið í notkun 5. september 1996. „Hlýtur að vekja fögnuð í hjörtum allra Islendinga“ í ágripi af sögu Hæstaréttar á heimasíðu réttarins er að finna til- vitnun í ræðu sem Sveinn Björns- son, þá málafærslumaður, hélt fyrir hönd lögmanna við fyrstu setningu Hæstaréttar fyrir 80 árum, en þar sagði Sveinn: „Háu dómendur! Þessi stund mun jafnan talin merkisstund í sögu íslenzku þjóðarinnar. Sú stund er æðstu dómendur í íslenzkum mál- um taka aftur sæti til dóma á fóst- urjörð vorri. Þessi atburður, sem hér á sér stað nú í dag, hlýtur að vekja fögnuð í hjörtum allra íslend- inga. Hann er einn af áþreifanlegu vottunum um að vér höfum aftur fengið fullveldi um öll vor mál.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.