Morgunblaðið - 16.02.2000, Page 24

Morgunblaðið - 16.02.2000, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ESB hefur formlegar aðildarviðræður við sex rfki til viðbótar Allt gert til að slá á áhyggj- ur í aðildarlöndunum Reuters Jaime Gama, utanrikisráðherra Portúgals sem nú er í forsæti ráðherra- ráðs ESB (t.v.), og Glinter Verheugen (t.h.), sem fer með stækkunarmál ESB í framkvæmdtistjórninni, samfagna Petre Roman, utanríkisráð- herra Rúmeníu, en hann sagði gærdaginn sögulegan fyrir Iand sitt. Brussel. AFP, AP. EVRÓPUSAMBANDIÐ hóf í gær formlegar aðildarviðræður við sex ríki til viðbótar þeim sem viðræður voru þegar hafnar við, og þar með eru slíkar viðræður komnar í gang við samtals tólf ríki, sem öll stefna að inngöngu í sambandið sem fyrst. Gunter Verheugen, sem fer með stækkunarmál í framkvæmdastjórn ESB, tók fram við þetta tækifæri, að í þessu ferli þyrfti að taka tillit til áhyggna í aðildarríkjunum fimmtán af þeim stökkbreytingaráhrifum sem slík fjölgun aðildarríkja mun hafa í för með sér. „Vissulega þurfum við að taka þá staðreynd með í reikninginn, að í sumum aðildarríkjum er fólk ótta- slegið, áhyggjufullt," tjáði Verheu- gen blaðamönnum. „Við þessu þurf- um við að bregðast," sagði hann. Lýðskrumarar skulu ekki geta gengið á lagið Sagði hann jafnframt að þeir sem styðja stækkun Evrópusambands- ins yrðu að finna svör við þessum áhyggjum, ef þeir vilja ekki að lýðskrumarar á borð við Austurrík- ismanninn Jörg Haider gangi á lag- ið og komi sér áfram á áhyggjum al- mennings. Haider, leiðtogi Frelsisflokksins sem tók þátt í að mynda ríkisstjórn í Vín þrátt fyrir harða andstöðu stjórnvalda í öðrum Jakarta. AFP. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær, að nauðsynlegt væri að koma lögum ESB-ríkjum, hefur áður gagnrýnt áformin um stækkun ESB, einkum á þeim forsendum að þá sé hætta á að innflytjendur frá Austur-Evrópu muni streyma til hinna ríkari landa yfir þá, sem borið hefðu ábyrgð á morðunum og óöldinni á Austur- Tímor. Lofaði hann einnig Abdur- vestanverðrar álfunnar. Fyrstur að samningaborðinu í Brussel í gær, á síðari degi utanríkisráðherrafundar ESB, var Joseph Borg, utanríkis- ráðherra Möltu. Hann sagði eyríkið rahman Wahid, forseta Indónesíu, fyrir að hafa vikið Wiranto hers- höfðingja frá sem öryggisráðherra í stjórn sinni. „Þá, sem báru ábyrgð á ofbeldinu á A-Tímor, verður að draga fyrir rétt,“ sagði Annan að loknum fundi með Alwi Shihab, utanríkisráð- herra Indónesíu, í Jakarta, höfuð- borg landsins, en þangað kom Ann- an í gær og mun fara til A-Tímors á morgun. Wiranto, sem hefur verið sakaður um að bera ábyrgð á glæpaverkun- um á A-Tímor ásamt fimm öðrum hershöfðingjum, neitaði lengi að verða við áskorunum Wahids um að segja af sér en Wahid tók loks af skarið seint á sunnudagskvöld og rak hann. Lýstu herinn og þingið strax yfir stuðningi við þá ákvörð- un. Talið er, að erlendir ráðamenn hafi hvatt Wahid mjög til að reka Wiranto og talsmaður forsetans sagði, að ákvörðunin hefði meðal annars verið tekin til að tryggja áframhaldandi erlenda aðstoð og fjárfestingu. Wiranto hershöfðingi lét að því liggja í gær, að foringjar í hernum, sem stæðu nærri Wahid, hefðu átt þátt í að hann var rekinn. stefna á inngöngu í sambandið árið 2003, en engu hinna væntanlegu að- ildarríkja verður veitt aðild fyrr en það ár. Því næst komu hver á fætur öðrum fulltrúar fyrrum austan- tjaldsríkjanna Rúmeníu, Slóvakíu, Lettlands, Litháens og Búlgaríu. A leiðtogafundi ESB í Helsinki í des- ember var samþykkt að öll þessi ríki fengju að hefja formlegar aðild- arviðræður, eins og staðið hafa yfir frá því í lok marz 1998 við fimm önnur ríki Mið- og Austur-Evrópu: - Eistland, Pólland, Tékkland, Ung- verjaland og Slóveníu - auk Kýpur. „Eftir að hafa verið í skuggahlið sögunnar í hálfa öld (...) þýðir þessi sögulega stund að Rúmenía er loks réttum megin í sögunni," sagði Pet- re Roman, utanríkisráðherra Rúm- eníu. Hann sagðist telja raunhæft að land sitt fengi inngöngu í sam- bandið árið 2007, þar með hefði það svigrúm til að hrinda nauðsynleg- um, en á köflum erfiðum, umbótum í framkvæmd og koma þar með efnahagslífinu, löggjöf og reglu- gerðum í það horf sem ESB-aðild krefst. Fjölgun í fyrsta lagi árið 2003 Til að tryggja að stofnanir og ákvarðanataka Evrópusambandsins sjálfs verði í stakk búin að starfa með skilvirkum hætti eftir fjölgun aðildarríkja, hrintu utanríkisráð- herrar ESB af stað nýrri ríkja- ráðstefnu á mánudag, sem stefnt er að því að ljúki á leiðtogafundi í Nissa í Frakklandi í desember, með því að undirrituð verði ný upp- færsla á stofnsáttmála sambands- ins. Sáttmálabreytingarnar þarf síðan að staðfesta í öllum ESB-ríkj- unum 15, í samræmi við þær reglur sem gilda þar að lútandi í hverju og einu þeirra. Það ferli getur tekið meira en ár, miðað við reynsluna af fyrri sáttmálabreytingum. Ekkert tilvonandi aðildarríki getur því gert sér vonir um að hljóta inngöngu fyrr en í fyrsta lagi í ársbyrjun 2003, og þá aðeins að því gefnu að viðkomandi ríki hafi verið úrskurð- að hæft til þess. AP Hlýjar móttökur LEIÐTOGAR Evrúpusambandsins hafa ákveðið að refsa Austurríki fyrir að taka liðsmenn hægriflokks Jörgs Haiders í stjdrn. Þrátt fyrir þetta er ekki annað að sjá en að- stoðarutanrikisráðherra Spánar, Ramon de Miguel, sé alúðlegur við utanríkisráðherra Austurríkis, Benitu Ferrero-Waldner, á fundi utanríkisráðherra sambandsins í Brussel. Lögreglu- menn spilltastir í Búlgaríu LÖGREGLUMENN eru spilltustu opinberu starfs- mennirnir í Búlgaríu, sam- kvæmt skýrslu sem samtökin Centre for Democratic Studies birtu í gær. Fram kemur að næstum fjórðungur allra sam- skipta við búlgarska lögreglu- menn hefur í för með sér kröfur af þeirra hálfu um fé, gjafir eða þjónustu. Rannsókn samtak- anna fólst meðal annars í viðtöl- um við rúmlega 1.100 Búlgara. í ljós kom að læknar og toll- verðir koma næstir í röðinni á listanum yfir spilltustu opin- beru starfsmenn Búlgaríu. Edith Cresson svipt friðhelgi FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins hefur ákveðið að afnema friðhelgi Edith Cres- son, fyrrver- andi forsæt- isráðherra Frakklands og fyrrver- andi meðlim frakvæmda- stjórnarinn- ar, svo hægt verði að yf- irheyra hana vegna gruns um spillingu í embætti. Cresson fór með mennta- og vísindamál í fram- kvæmdastjórninni meðan Jacques Santer sat í forsæti hennar. Framkvæmdastjórnin sagði af sér í heilu lagi á síðasta ári vegna spillingarásakana. Cresson hefur meðal annars verið sökuð um að hafa greitt frönskum tannlækni og vini sínum, Rene Berthelot, háar fjárhæðir fyrir mjög léttvæg störf í þágu framkvæmda- stjórnarinnar. Svíar eyða í góðærinu EINKANEYSLA í Svíþjóð jókst um rúmlega 9% í desem- ber á síðasta ári, miðað við sama tímabil árið á undan. Vís- itala einkaneyslu í Sviþjóð hef- ur aldrei verið hærri, að sögn Daniels Lennartssons, tölfræð- ings hjá sænsku Hagstofunni. Aukningin liggur einkum í vax- andi verslun með munaðar- og tískuvarning ýmiss konar, neysla nauðsynjavara hefur að mestu staðið í stað milli ára. Góðæri ríkir nú í sænsku efnahagslífi og hefur stórlega dregið úr atvinnuleysi þar á síð- ustu tveimur árum. Kínverji sprengdi sig í loft upp MAÐUR sem sagður er hafa verið vanheill á geði sprengdi sjálfan sig í loft upp á Torgi hins himneska friðar í Peking í gær. Maðurinn mun hafa verið bóndi frá Hubei-héraði en ekki er vitað um ástæður sjálfsvígs- ins. Ferðamaður frá Suður- Kóreu særðist lítillega í sprengingunni. Frjálsir demókratar í Hessen Afram samstarf við Roland Koch Hallc, Berlfn. AFP. LANDSTJÓRN flokks frjálsra demókrata í Þýskalandi, FDP, heimtaði á sunnudag að stjórn flokksins í sambandslandinu Hessen endurskoðaði þá ákvörð- un sína að halda áfram stjórnar- samstarfi með Kristilegum de- mókrötum, CDU. Forsætis- ráðherra Hessen, Roland Koch, hefur játað að hafa sagt ósatt um leynireikninga flokks síns í Sviss. Flokksdeild FDP í Hess- en hefur fram að þessu viljað halda samstarfinu áfram þrátt fyrir fyrirmæli landstjórnarinn- ar, en hinn 4. marz nk. hyggst flokksdeildin koma saman til aukafundar til að taka ákvörðun um framhaldið. Horst Eylmann, þingmaður og lögfræðiráðgjafi CDU, hvatti í blaðaviðtali í gær Koch til að segja af sér og bjarga með því stjórnarsamstarfinu við frjálsa demókrata í Hessen og leggja sitt af mörkum til endurreisnar trúverðugleika CDU í augum kjósenda. Þingflokkar jafnaðar- manna og græningja á þinginu í Hessen ítrekuðu í gær kröfu sína um að efnt yrði til kosninga áný. Stálvaskar Mikið úrval af vönduðum stálvöskum framleiddum í verksmiðjum Intra í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Tenrn Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sfmi: 5641088 • Fax: 564 1089 Fást í byngingavöruverslurmi urri luricl allt Brottrekstri Wirantos fagnað í Indónesíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.