Morgunblaðið - 15.06.2000, Side 4
4 FIMMTUDAGUR15. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Deilur um starfslok formanns VMSI
„Einskis nýt
valdabarátta“
, Morgunblaðið/Ásdís
Huld Magnúsdóttir, formaður Islandsdeildar Amnesty International og
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri kynntu f gær ársskýrslu
samtakanna.
Alþjóðasamfélagið
bregst of seint við
EINSKIS nýt valdabarátta er farin
að setja allt of sterkan svip á starf-
semi verkalýðshreyfingarinnar. Petta
er mat Jóhannesar Ragnarssonar,
formanns Verkalýðsfélags Snæfells-
bæjar, sem telur að allt of h'tið sé hug-
að að hinum almenna félagsmanni.
Jóhannes telur aðförina að Bimi
Grétari Sveinssyni, sem hann kallar
svo, vera aðför að íslenskri verkalýðs-
hreyfingu. Fullti-úar fjölmargra fé-
laga af landsbyggðinni hafi á dögun-
um komið suður til Reykjavíkur á
framkvæmdastjómarfund án þess að
nokkuð hafi komið þar fram. Strax
eftir fundinn hafi meirihlutinn hins
vegar kynnt starfslok formannsins.
„Það er greinilegt að þessi svokall-
aði meirihluti sér ekki ástæðu til að
virða rétt kjörinna fulltrúa. Þess
vegna finnst okkur sem við höfum
verið höfð að ffflum," segir Jóhannes.
Hann telur engan vafa leika á að
starfslok Bjöms Grétars séu tilkomin
vegna óánægju félaga á höfuðborgar-
svæðinu með kjaraviðræður í vor. Þar
hafi stóru félögin komið saman undan
merkjum Flóabandalagsins - greini-
lega í þeim tilgangi að klekkja á ein-
hverjum.
„Við formenn landsbyggðarfélaga
munum ekki sitja undfr slíkum vinnu-
brögðum og notum sumarið tU að
ræða saman um þá stöðu sem komin
er upp,“ sagði Jóhannes ennfremur.
Aðspurður hvort uppi á borðum sé
endanlegur klofningur verkalýðsfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu annars
vegar og landsbyggðinni hins vegar,
sagði hann: „Það er auðvitað engin
óskastaða. Neyðist menn hins vegar
tU þess verður svo að vera, enda virð-
ast ákveðnir aðUar hafa stefnt að
þeirri stöðu allan tímann.“
Því er við að bæta að Samstaða,
stéttarfélag á Blönduósi, mótmælir
því að starfsmenn stéttarfélaga og
landssambanda þeirra eigi að búa við
önnur skUyrði við starfslok en þeir
sjálfir hafa séð sér fært að semja um
fyrir sitt fólk á almennum vinnumark-
aði og því komi starfslokasamningur
ekki tU greina fyrir Björn Grétar
Sveinsson. Þetta kemur fram í álykt-
un stjómar Samstöðu sem samþykkt
var sl. þriðjudag.
í ályktuninni segir að skoðun Sam-
stöðu sé að Bjöm Grétar sé réttkjör-
inn formaður VMSÍ og að fram-
kvæmdastjóm sambandsins hafi
engan lagalegan rétt til að gera
starfslokasamning hvað varðar störf
hans sem formanns sambandsins.
ÍSLANDSDEILD mannréttinda-
samtakanna Amnesty Internation-
al hefur að undanförnu safnað
undirskriftum til að vekja athygli
á mannréttindabrotum í Saudi-
Ai-abíu og til að hvetja ríkisstjórn-
ir og fyrirtæki til að stöðva við-
skipti með demanta frá vissum
svæðum í Sierra-Leone, en ágóð-
inn af demantaviðskiptunum er
notaður til vopnakaupa.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri íslandsdeildar
Amnesty, segir ástand mannrétt-
inda í Saudi-Arabíu vera hroða-
legt. „Þar er ekki réttur til að
stofna verkalýðsfélög, stjórnmála-
flokkar eru bannaðir, dómstólar
eru ekki óháðir og pyntingar eru
daglegt brauð. Hýðingar eru al-
geng refsing og limir eru gjarnan
höggnir af fólki. Amnesty hefur
staðfestar heimildir um að í fyrra
hafi verið 103 aftökur í Saudi-
Arabíu sem er mikið því í landinu
búa aðeins um 19 milljónir,“ segir
Jóhanna.
„Við erum mjög ósátt við það
hvernig alþjóðasamfélagið lætur
mannréttindabrot viðgangast og
gerir ekkert í málunum fyrr en allt
er komið í óefni,“ segir Jóhanna.
Amnesty hafi séð fyrir marga at-
burði, t.d. í Kosovo, Búrúndí og
Austur-Tímor og varað við þeim
en alþjóðasamfélagið hafi brugðist
alltof seint við.
Skjóta fífla-
hausum
VINIRNIR Davíð Örn Jónsson og
Egill Egilsson voru í túninu austan
við Vík í Mýrdal í góða veðrinu nú í
vikunni að skjóta fíflahausum út í
loftið þegar fréttaritari Morgun-
blaðsins átti þar leið hjá. Á mynd-
inni sést hvar einn fíflahausinn svíf-
ur í loftinu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rannsóknarátak á sumarexemi í hrossum hefst í haust
rannsóknarátaksins er að skilgreina
betur þá þætti sem stýra meingerð
sjúkdómsins með því að rannsaka
ónæmiskerfið, finna ónæmisvaka í
flugunni, einangra þá og gen þeirra
og þróa aðferðir til bólusetninga
gegn ofnæminu. Unnið verðui- jöfn-
um höndum að þróun DNA-bóluefna
og próteinbóluefna og mun sú vinna
öll fara fram á Keldum, rannsóknar-
stöð Háskólans í meinafræðum. Að
sögn Ingileifar Jónsdóttur ónæmis-
fræðings, sem stýrði starfshópnum,
verða jafnframt þróaðai- aðferðir til
þess að meta ónæmissvör í hrossum
og mun það hjálpa til við að byggja
upp þekkingu og tækni á Keldum
sem mun einnig nýtast við rannsókn-
fr á smitsjúkdómum í hrossum og
öðrum húsdýrum.
Áætlað er að rannsóknarátakið
standi í þrjú ár en að því loknu er
meðal annars stefnt að því að DNA-
bóluefni og próteinbóluefni hafi verið
búin til og í framhaldinu verði metið
hvort raunhæft sé að hefja víðtækar
tilraunabólusetningar á hrossum.
Heildarkostnaður við verkið er áætl-
aður 82 milljónir króna en Fram-
leiðnisjóður landbúnaðrins, Keldur
og samstarfsaðilinn í Sviss leggja
fram stærstan hlut þess fjár, auk
þess sem Rannís styrkir verkefnið
um 2,4 milljónir.
RANNSÓKNARÁTAK á sumarex-
emi í hrossum hefst í haust. Hópur
sérfræðinga mun vinna að rannsókn-
inni undir stjóm Sigurbjargar Þor-
steinsdóttur ónæmisfræðings. Unnið
verður í samstarfi við rannsóknarhóp
í Sviss undir stjóm dr. Eliane Marti
en hún hefur um nokkurt skeið unnið
að rannsóknum á þessu sviði. Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
skipaði í vor starfshóp sem skipu-
leggja átti rannsóknarferli á sjúk-
dómnum á sem allra stystum tíma og
varð niðurstaða hópsins sú að rann-
sóknarátaki sem þessu yrði ýtt úr
vör. Á blaðamannafundi sem haldinn
var að Keldum í gær sagði Guðni að
mikilvægt væri að hinn íslenski vís-
Með því að nýta sér þjónustu Heimiiislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari
vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi.
Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útiánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum
og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
eetfM/k
m
HEIMILISLÍNAN
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
www.bi.ls
indaheimur fylgdist með þessu stóra
og umfangsmikla verkefni. „Mér var
það mikið kappsmál að koma þessu
máli áfram og ég vona að við séum að
rata hér leið sem að-skilar okkur
árangri,“ sagði Guðni. fff
Sumarexem í hrossum er talið vera
ofnæmi sem beinist gegn próteinum
sem berast í hrossin við bit mýflugna
af ættkvíslinni Culicoides. Sjúkdóm-
urinn er hverfandi á íslandi þar sem
flugan lifir ekki hér en algengur í ís-
Ienskum hrossum erlendis og veldur
hann mikilli vanlíðan hjá hrossunum
auk þess sem hann skapar vandamál
við útflutning á hrossum. Markmið
Brotist inn
í bíla við
sundstaði
TALSVERT hefur borið á því
að undanförnu að brotist hafi
verið inn í bíla á bílastæðum
við sundstaði í Reykjavík. Að
sögn lögreglunnar í Reykja-
vík, hafa þjófarnir nýtt sér
það að fólk flykkist nú í sund í
góða veðrinu í höfuðborginni.
Þjófarnir hafa látið til skar-
ar skríða víðá um borgina en
lögreglan brýnir fyiir almenn-
ingi að skilja ekki eftir verð-
mæti í bílum sínum, eða gæta
þess annars að þau sjáist ekki.
Hyggjast
þróa bóluefni